Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 B 5 KÖRFUKNATTLEIKUR Rafmagnaðar lokamínútur Leikur Skagamanna og Grindvík- inga var lengst af leikur kattar- ins að músinni. Megnið af leiknum var styrkleikamun- urinn mikill og fátt Ottesen benti til annars en skrífar að Skagamenn yrðu hreinlega teknir í nefið. Grindvíkingar höfðu lengst af mjög örugga forustu, eða allt að 20 stiga. Það virtist alveg sama hvem- ig boltanum var hent upp í loftið, alltaf rataði hann rétta leið í körfu- hring heimamanna. Þriggja stiga hittnin var með ólíkindum og þegar Grindvíkingar eru í þannig ham er erfitt að eiga við þá. En þegar 5 mínútur voru eftir af leiknum hrukku Skagamenn í gang og hófu að saxa hratt og örugglega á forskot gestanna. Þegar innan við mínúta var eftir af leiknum misstu Grindvíkingar boltann í stöðunni 81-82 og þar með áttu Skagamenn kost á því að ná forystu í fyrsta skipti í leiknum. Damon Johnson ákvað að dóla með boltann og freista þess að skjóta þegar að lítið væri eftir af skotklukloinni. En Gr- indvíkingar „stálu“ boltanum af Johnson og þar með urðu vonir Skagamanna að engu. Grindvíkingar léku þennan leik ágætlega og er aðdáunarvert hve hittnin var góð lengst af leiks. Einnig voru þeir mjög beittir í öll- um fráköstum, en einbeitingarleysið í lokin var rétt búið að kosta þá sig- urinn. Þeir Darryl J. Wilson og Helgi Jónas voru mjög góðir og einnig var Tsartsaris sterkur, sér- staklega í vöminni. Hjá Skagamönnum lék Damon Johnson eins og herforingi. Þessi leikmaður er hreint ótrúlegur og hélt Skagamönnum gjörsamlega á floti eins og oft áður. Einnig var Er- molinsky sterkur í vöminni og er gaman að sjá hvað „gamli maðurinn“ Sindur vamarleikinn vel saman. i Sárasta tapið' ifi Morgunblaðið/Árni Sæberg HAUKAR fóru létt með ÍR-inga í Seljaskóla. Haukamennirnir Þorvaldur Amarson og Björgvin Jóns- son eiga hér í höggl við bræðurna Atla (nr. 12) og Hjörleif (nr. 6) Sigurþórssyni. Þetta er sárasta tapið í vetur. Við komum hingað til að sækja tvö stig og áttum svo sannarlega góða möguleika á sigri, en við misstum þetta úr höndunum á okkur á loka- sprettinum," sagði Páll Kolbeinsson, ^^____ þjálfari Tindastóls Björn frá Sauðárkróki, eft- Btöndat ir að lið hans hafði skrifar tapað fyrir Keflvík- ingum í framlengd- um leik í Keflavík á sunnudags- kvöldið. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn, 85:85, og því varð að framlengja leikinn um 5 mínútur. Þá reyndust Keflvíkingar sterkari og tryggðu sér sigur með því að setja 11 síðustu stigin. Lokatölur urðu, 100:94, en í hálfleik var staðan 37:42. Norðanmenn sýndu það þegar í upphafi að þeir yrðu engin lömb að leika sér við fyrir Keflvíkinga og þeir áttu frumkvæðið lengstum í leiknum. Keflvíkingum gekk illa að finna sig í byrjun, þeir bæði hittu illa og sóknarleikur þeirra gekk ekki upp. Tindastólsmenn léku yfirvegað og það voru þeir sem réðu hraða leiksins lengstum. Þrátt fyrir að leikurinn væri oftast í járnum varð hann samt aldrei spennandi fyrr en að leikslokum dró. Keflvíkingar áttu góðan endasprett og virtust eiga sigurinn vísan í stöðunni 85:82. Þá voru rétt um fjögur sekúndubrot til leiksloka. Norðanmenn tóku leikhlé til að leggja á ráðin og Torry John náði að jafna metin með 3ja stiga körfu nánast í þann mund sem leik- urinn var flautaður af. Torrey John og Sverrir Þór Sverrisson tveir af lykilmönnum liðsins voru þá komnir með 4 villur og undir það síðasta voru allir leikmenn Tindatóls komn- ir með 4 villur. Á þá voru dæmdar 28 villur í leiknum gegn 17 villum Keflvíkinga. Þeir fengu 9 villur í fyrri hálfleik og á þá var ekki dæmd villa fyrr en að rúmar 6 mínútur voru til leiksloka í venjulegum leik- tíma. „Það hjálpaði okkur ekki að fá all- ar þessar villur og það kom sér illa að Torrey John og Sverrir fengu sína fjórðu villu fljótlega í síðari hálfleik því fyrir vikið gátu þeir ekki beitt sér eins og skyldi. Við þurftum svo sannarlega á þessum stigum að halda og í stað þess að færast upp um sæti dettum við nú niður í sjötta sæti,“ sagði Páll Kolbeinsson, þjálf- ari Tindastóls. Sá sem kom einna mest á óvart í liði Keflavíkur var Fannar Olafsson sem sækir í sig veðrið með hverjum leik. Dana Dingle, Falur Harðarson, Guðjón Skúlason, Kristján Guðlags- son og Gunnar Einarsson léku einnig vel. Tony John og Sverrir Þór Sverrisson voru atkvæðamestir í liði Tindastóls ásamt þeim Arnari Kárasyni og Hinriki Gunnarssyni. Lið norðanmanna er jafnt og vel leikandi og enginn ætti að bóka sig- ur fyrirfram á þeim. KR-ingar baráttuglaðari KR-ingar gerðu góða ferð til ísa- fjarðar og nældu í bæði stigin á móti KFÍ, 89:72. í upphafi var jafn- ræði með liðunum en um miðjan fyrri hálfleik skildi leiðir og KR náði 15 stiga forystu og Torfj það var of breitt bil Jóhannsson fyrir heimamenn að skrifar brúa. í byrjun virtist stefna í hörkuleik og jafnt var fram undir miðjan fyrri hálfleik, en þá var eins og leikmenn KFÍ hefðu tekið sér frí um stund. KR-ingar völtuðu yfir heimamenn, sem náðu þó að vakna undir lok fyrri hálfleiks og minnkuðu muninn í 12 stig. Það var ljóst að KR-ingar voru komnir vestur tii að sýna hvað þeir raunverulega geta og að þeir séu betri en stigataflan sýnir. Þeir voru baráttuglaðir og það var bersýnilega góður fengur fyrir þá að fá útlend- inginn sem leikur nú með liðinu, Keith Vassel. Aftur á móti vantaði KFÍ baráttuandann og kannski ekki undarlegt þar sem þetta var fjórði leikur liðsins á átta dögum. Fáheyrðir yfirburðir Haukar heimsóttu ÍR-inga í Seljaskólann á sunnudagskvöld og burstuðu þá, Edwjn 105:54. Bai-áttan var fíögnvaldsson í fyrirrúmi hjá Hafn- skrifar firðingum er leikur- inn hófst og komust leikmenn ÍR hvorki lönd né strönd - sérstaklega vegna góðrar samvinnu Hauka í vörninni. Breiðhyltingar voru lánlausir, en allt lék í lyndi í herbúðum þeirra rauðklæddu. ÍR-ingar reyndu t.d. pressuvöm snemma leiks er þeir sáu hvert stefndi en ekkert gekk. Kevin Grandberg, Kanadamaðurinn í liði IR, sem varð 26 ára á sunnudag, var eini leikmaður liðsins með „lífs- marki“, enda gefst hann aldrei upp þótt á móti blási. Hann hefur án efa óskað sér sigurs í afmælisgjöf. Allir leikmenn Hauka lögðu sitt af mörkum og allir fengu þeir að spreyta sig dágóða stund. „Við vor- um mjög óánægðir eftir að hafa tap- að fyrir Njarðvík með einu stigi [á fimmtudag] og komum brjálaðir til leiks. Við nýttum okkur allan þann hraða sem liðið býr yfir. Það eina sem ÍR-ingar geta er að nota allan sinn hraða og ef við gerum það sama, vinnum við þá með fimmtíu stigum. Það kom á daginn en ÍR- ingarnir fóru þó ekki eins hratt yfir og þeir geta,“ sagði Pétur Ingvars- son sem leikur í stöðu leikstjóm- anda eftir að bróðir hans, Jón Am- ar, fór til Belgíu. Skallagrímur á enn von Skallagrímur byrjaði leikinn við Þór með látum en hann var æði kaflaskiptur og sigur heimamanna aldrei í hættu. Loka- Ingimundur tölur urðu 88:71. Ingimundarson Lið Þórs er mun skrifar lágvaxnara og áttu norðanmenn í erfið- leikum í sóknarleik sínum á móti stóru strákunum í Skallagrími. Staðan í hálfleik var 45:30. Bragi Magnússon byrjaði seinni hálfleikimm vel eins og hinn fyi-ri og skoraði grimmt. Tómas Holton fékk sína þriðju villu er sex mín. voni liðnar af hálfleikninn. Þá voru fimm leikmenn Skallagríms komnir með þrjár villur. Norðanmenn léku hratt og höfðu hátt og sumir þeirra líktust helst skæruliðum. En lítið gekk þar til losnaði um Ratliff í liði þeirra er Bernhard Graner var hvfldur. Er fimm mín. voru eftir tók Þór leikhlé er staðan var 78:61. Tómas Holton hvíldi sig utan vallar er sigurinn virtist í höfn, en mikið hafði mætt á honum sem leikstjórnanda allan tímann. Kom þá í Ijós hve mikilvæg- ur hann er fyrir liðið. Síðustu tvær mínúturnar léku yngri leikmenn Skallagríms og hart var barist allt til loka. Skallagrímur á enn von um að komast í átta liða úrslitin en útlit- ið hjá Þór er ekki sem best. Bernhard Graner er mjög mikil- vægur fyrir lið Skallagríms og lék vel. Það má einnig segja um Tómas Holton. Sigmar Páll og Finnur áttu góða spretti og Ari er að finna sig að nýju. Páll Axel barðist vel og tók mikið af fráköstum en hitti illa. Bragi Magnússon átti sinn besta leik í langan tíma. „Ég er hress og kátur,“ sagði hann að leikslokum. „Liðið lék allt vel og skorið dreifðist á alla leikmenn. En það er einkenni á góðum körfubolta, eins og við vilj- um leika." Jesse Ratliff og Haf- steinn Lúðvíksson voru langbestir hjá Þór og Sigurður Sigurðsson átti góða spretti. Leiftursóknir Njarðvíkinga Leiftursóknir Njarðvíkinga slógu Valsmenn algerlega út af laginu þegar liðin mættust í Njarðvík á sunnudaginn. Vals- Björn menn gei’ðu að visu Blöndal fyrstu stigin í leikn- skrifar um en síðan tóku Njarðvíkingar öll völd á vellinum. Þeir nánast rúlluðu Valsmönnum upp og linntu ekki lát- um fyrr en þeir höfðu náð 34 stiga forystu, 45:11. Þá tók Friðrik Rún- arsson, þjálfari Njarðvíkinga, byrj- unarliðið að mestu út af og við það misstu heimamenn algerlega takt- inn í leik sínum og Valsmenn náðu aðeins að klóra í bakkann og laga stöðuna. í hálfleik var staðan 51:38 en lokatölur urðu 111:89 „Ég tók nokkra áhættu með því að taka byrjunarliðið út af því ég vildi leyfa fleirum að spreyta sig. Við þurfum að ná meiri breidd og til þess þurfa fleiri að fá að spreyta sig. Ég var hálfhræddur fyrir leikinn eftir góð úrslit í Hafnarfirði, en sá ótti var ástæðulaus því við áttum mjög góðan leik í byrjun sem lagði grunninn að sigrinum á Valsmönn- um,“ sagði Friðrik Rúnarsson, þjálf- ari Njarðvíkinga, eftir leikinn. Hjá Njarðvíkingum voru Petey Sessoms, Teitur Örlygsson, Páll Kristinson, Sturla Örlygsson og Friðrik Rúnarsson bestir. Logi Gunnarsson gerði laglega hluti og mætti fá að leika meira. Bandaríkja- maðurinn Warren Peebles var yfir- burðamaður i liði Vals, hann gerði 39 stig í leiknum og átti auk þess fjölda stoðsendinga. Guðmundur Björnsson hitti vel og Valsmenn höfðu mikla yfirburði í sóknar- fráköstum, 18 gegn 5 Njarðvíkinga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.