Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Real Madríd
lá heima
Spænska stórveldið Barcelona,
sem hefur átt í stökustu vand-
ræðum upp á síðkastið í spænsku
knattspymunni, vann fyrsta sigur
sinn í fimm leikjum á sunnudag.
Liðið gat vart leikið gegn lakari
andstæðingi í 1. deildinni, Sporting
frá Gijon sem hefur ekki enn unnið
leik í vetur, en lokatölur urðu 2:1.
Brasilíumaðurinn Rivaldo gerði
sigurmarkið með langskoti, sem
fór í varnarmann og í fjærhomið
eftir að markvörður Sporting var
kominn í hitt markhomið. Rivaldo
gerði jafnframt fyrra mark
Barcelona á 19. mínútu eftir send-
ingu frá landa sínum, Giovanni, en
Jesus Velasco jafnaði skömmu síð-
ar og áhorfendur á Nou Camp í
Barcelona bauluðu og kröfðust af-
sagnar van Gaals, knattspymu-
stjóra liðsins.
Barcelona hefur gengið ótrúlega
illa að undanfömu, þótt það sé
stjömum prýtt og leiki hvem
heimaleik frammi fyrir rúmlega
hundrað þúsund dyggum stuðn-
ingsmönnum. Mörgum áhangend-
um Katalóníuliðsins þótti heiguls-
háttur að skipta vamarmanninum
Miguel-Angel Nadal inná fyrir
Luis Figo í síðari hálfleik, þegar
Barcelona var einu marki yfir
gegn botnliðinu - og það á heima-
velli. „Ég geri hvað sem ég get til
að sigra,“ sagði van Gaal.
Varaforseti félagins, Joan
Gaspart, var ekki ánægður með
ákvörðunina. „Þegar leikið er gegn
botnliði, á lið eins og Barcelona að
kappkosta það að gera sem flest
mörk, en við höfum fengið of mörg
klaufaleg mörk á okkur á lokamín-
útunum til að treysta á slíka leik-
aðferð á næstunni. Við tökum enga
áhættu.“
Barcelona komst einu stigi upp
fyrir Real Madrid eftir sigurinn á
Sporting, en Real spilaði sinn leik í
gærkvöld og tapaði á heimavelli
fyrir Valencia, 2:1. Gaizka Mend-
ieta kom gestunum yfir úr víta-
spymu á 4. mínútu og Rúmeninn
Adrian Uie bætti öðra marki við á
þeirri sautjándu. Króatinn Davor
Suker minnkaði muninn úr víta-
spymu á 68. mínútu, en nær
komust leikmenn Real Madrid
ekki.
Real Sociedad hefur blandað sér
óvænt í baráttu efstu liða. Vara-
maðurinn Javi de Paula skoraði
tvívegis í síðari hálfleik í 4:0 sigri
liðsins á Valladolid, en Sociedad er
aðeins tveimur stigum á eftir
Barcelona. Atletico Bilbao er í
fjórða sæti, vann Compostela, 1:0,
á sunnudag.
Reuters
RONALDO svaraði harðri gagnrýni undanfarið með því að skora sigurmark Internazionale gegn
Brescia. Hér á hann í höggi við Aimo Diana, leikmann Brescia.
■ JUNINHO, hinn brasilíski mið-
vallarleikmaður Atletico Madrid í
spænsku knattspyrnunni, fótbrotn-
aði illa á sunnudag, í leik gegn Celta
frá Vigo. Sperrileggur á vinstri fæti
hans brotnaði og talið er að hann
verði frá keppni í um þrjá mánuði.
■ GARY Speed, enskur landsliðs-
maður í enska úrvalsdeildarliðinu
Everton, neitaði að fara með liðinu
til London vegna deildarleiks við
West Ham á laugardag, en eins og
fram kom fyrir helgi tilkynnti
Speed á fimmtudag að hann vildi
fara frá Everton.
■ HOWARD Kendall, knattspymu-
stjóri, svipti hann þegar fyrirliða-
stöðunni og var Duncan Ferguson
fyrirliði á Upton Park en félagið
setti upp verð fyrir Speed, sex millj-
ónir punda, um 720 millj. kr. Jafn-
framt var tilkynnt að Speed fengi
ekki að fara frá félaginu fyrr en
maður hefði verið keyptur í staðinn.
■ JAAP Stam, hollenskur landsliðs-
maður í liði PSV Eindhoven, er
undir smásjá tveggja stórliða, sem
hafa áhuga á að kaupa hann. Það
eru Arsenal og Glasgow Rangers.
Stam er metinn á sjö milljónir
punda.
■ MICHAEL Thomas, leikmaður
Liverpool í úrvalsdeild ensku knatt-
spymunnar, verður líklega lánaður
til Middlesbrough, sem leikur í 1.
deild. Brian Robson, stjóri 1. deild-
arliðsins, staðfesti þetta um helgina.
■ NEWCASTLE hefur spurst fyrir
um möguleika á að kaupa þýska
sóknarmanninn Ulf Kirsten af Ba-
yer Leverkusen, en hann hefur
skorað flest mörk allra í þýsku 1.
deildinni. Hann býst sjálfur við að
endumýja samning sinn við
Leverkusen.
■ TOTTENHAM undirbýr nú tilboð
í Georgíumanninn Georgi Kinkl-
adze, sem leikur með Manchester
City í 1. deild í Englandi. Everton
hefur einnig áhuga á miðvallarleik-
manninum knáa.
Loksins skoraði Ronaldo
JUVENTUS hefur eins stigs forskot í 1. deild ítölsku knattspyrn-
unnar, en Internazionale fylgir efsta liðinu fast á eftir. Aðeins
eitt stig skilur liðin. Ronaldo gerði fyrsta deildarmark sitt fyrir
Internazionale í um tvo mánuði er liðið vann nauman sigur á
Brescia.
Juventus er enn efst í ítölsku 1.
deildinni í knattspymu, en liðið
vann Lecce, 2:0, á sunnudag. Vam-
armaðurinn Mark Iuliano gerði
fyrra markið eftir að hafa komið
inná sem varamaður, en
Aiessandro Del Piero bætti síðara
markinu við í síðari hálfleik.
í augum áhangenda Juventus
stóð sigurinn þó í skugga fótbrots
vamarmanns Juventus, Ciro Ferr-
ara, en sperrileggur á vinstri fæti
hans tvíbrotnaði. Talið er að Ferr-
ara geti ekki leikið með landsliði
Ítalíu í heimsmeistarakeppninni í
Frakklandi í sumar.
Gagnrýni svarað
Intemazionale er sem fyrr einu
stigi á eftir Juventus eftir „lífs-
nauðsynlegan" sigur á Brescia á
útivelli, 1:0. Brasilíumaðurinn
Ronaldo gerði eina mark leiksins á
74. mínútu, með skalla, en hann
hafði ekki gert eitt einasta mark í
deildarkeppninni í um tvo mánuði.
Fyrir vikið var Ronaldo, knatt-
spymumaður ársins 1997 hjá al-
þjóða knattspymusambandinu og
því evrópska, harðlega gagnrýnd-
ur og hafa forystumenn ítalska fé-
lagsins sagst óánægðir með fram-
komu kappans, sem kvartar yfir
viðmóti áhorfenda og annarra í
tengslum við félagið. Inter-
nazionale verður án miðvallarleik-
mannsins Francesco Moriero í
næsta leik, en hann var rekinn af
velli á 82. mínútu leiksins á sunnu-
dag.
Fyrsta tap Udinese
f tfu leikjum
Udinese hefur náð mjög athygl-
isverðum árangri á þessu tímabili,
en liðið hefur ekki tapað í tíu síð-
ustu leikjum sínum - þökk sé
þýska framherjanum Oliver Bier-
hoff, sem hefur leikið frábærlega í
vetur og skorað næstum í hverjum
leik. Breyting varð þó á því á
sunnudag, því liðið varð að játa sig
sigrað fyrir Fiorentina, 1:0.
Belgíski landsliðsmaðurinn Luis
Oliviera gerði mark Fiorentina á
75. mínútu.
Ekki vora mörg mörk skorað í
umferð helgarinnar á Italíu, en
undantekning varð þar á í einum
leik. Argentínumaðurinn Abel
Balbo var með þrennu fyrir Róm-
verja í æsispennandi leik þeirra við
Empoli, en höfuðborgarbúarnir
unnu, 4:3. Þetta var fyrsti sigur
Rómarliðsins í níu leikjum (bikar-
keppni meðtalin).
Balbo gerði sigurmarkið úr víta-
spymu á 87. mínútu, en Brasilíu-
maðurinn Aldair gerði þriðja mark
liðsins á 72. mín. Empoli gerði tvö
mörk á síðustu fimm mínútum
leiksins og var Cappellini að verki í
bæði skiptin, en Claudio Bonomi
opnaði markareikning gestanna á
60. mínútu.
Loks skoraði Milan
á San Siro
Filippo Maniero lék sinn fyrsta
leik með AC Milan á sunnudag, en
hann var seldur frá Parma í síð-
ustu viku. Milan sigraði Piacenza
og gerði Maniero sigurmarkið þeg-
ar komið var fram í uppbótartíma
vegna tafa. Mark hans var það
fyrsta sem AC Milan skorar á
heimavelli sínum, San Siro, í 388
leikmínútur í deildarkeppninni.
Parma sigraði Bari, 1:0, á heima-
velli. Dino Baggio skoraði eina
mark leiksins á 67. mínútu. Til
marks um hve lítið var skorað á
Italíu um helgina, urðu tvö marka-
laus jafntefli; annars vegar í leik
Napólí og Lazio og hins vegar í
viðureign Bologna og Atalanta.
Shearer
í fótspor
Ronaldos?
INTERNAZIONALE, efsta lið
ítölsku 1. deildarinnar í knatt-
spymu, hefur áhuga á Alan
Shearer, framherja Newcastle á
Englandi. Vill félagið fá hann til
liðsins sem staðgengil Ronaldos
hins brasilíska, sem hefur ekki
staðið undir væntingum og gerði
einungis fyrsta mark sitt í um
tvo mánuði á sunnudag.
Líklegt er talið að Intem-
azionale bjóði metupphæð í
Shearer, sem hóf leik að nýju
eftir slæm ökklameiðsli, sem
hann hlaut síðastliðið haust. Út-
sendari ítalska liðsins var t.d. á
bikarleik Newcastle og Stevena-
ge á dögunum. Haft var eftir
talsmanni Intemazionale, að
Ronaldo fyndist sér ekki jafn vel
tekið í Mílanó eins og í
Barcelona. „Nokkrar líkur era á
að hann fari jafnvel aftur til
Spánar. Félagið er að svipast
um eftir leikmanni í hans stað
og ef vera kynni að önnur lið
sýndu Ronaldo áhuga, yrði
Shearer augljóslega óskaleik-
maður Internazionale," sagði
ónefndur fulltrúi ítalska liðsins.
Ljóst er að Kenny Dalglish,
knattspyrnustjóri Newcastle,
reynir allt hvað hann getur til að
halda Shearer - a.m.k. á meðan
hann er við störf hjá félaginu, en
orðrómur er á kreiki um að
Liverpool vilji fá Dalglish til
starfa við hlið Roy Evans, stjóra
liðsins. Ef Dalglish snýr aftur á
fomar slóðir, þ.e. til Anfield
Road, er Brian Little talinn lík-
legur arftaki hans hjá
Reuters
ALAN Shearer (t.h.J, fram-
herji Newcastle, er undir
smásjá ítalska stórliðsins
Internazionale, sem virðist
hafa meiri áhuga á að fá
hann til sín en að halda
Ronaldo, knattspyrnu-
manni ársins 1997.
Newcastle, en hann er nú knatt-
spymustjóri Aston Villa.
Nýr samningur Barcelona við
Nike-íþróttavöraframleiðand-
ann þykir renna stoðum undir
þá kenningu ýmissa knatt-
spymuáhugamanna, að Ronaldo
sé á leið aftur til Katalóníuveld-
isins. Astæða þess er sú að Ron-
aldo gerði sjálfur umfangsmik-
inn auglýsingasamning við sama
fyrirtæki.
Að auki þóttu orð Robertos
Carlos, brasih'sks bakvarðar
Real Madrid, áhugaverð: „Ron-
aldo verður á Spáni á næsta
tímabili. Ég get ekki sagt neitt
meira sem stendur, en ég veit
það fyrir víst.“ Eins og flestir
knattspyrnuáhugamenn vita,
era þeir Carlos og Ronaldo
landar - og auk þess miklir mát-
ar.