Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
BADMINTON
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 B 7
Erfitt að slá
„kallinn“ út
Færði
andstæð-
ingunum
þakkir
BRODDI Kristjánsson, sem
er 37 ára, er signrsælasti
badmintonmaður landsins.
Hann sigraði í einliðaleik í
13. skiptið um helgina, en
fyrst varð hann íslands-
meistari 1980, eða fyrir 18
árum. Hann hefur auk þess
16 sinnum sigrað í tvíliða-
leik karla, þar af síðustu níu
árin, og af þeim níu átta
sinnum ásamt Árna Þór
Hallgrímssyni. Atta sinnum
hefur Broddi sigrað í
tvenndarleik. Hann hefur
því unnið 37 íslandsmeist-
aratitla og geri aðrir betur.
Eftir mótið sagði hann að
þetta hefði verið síðasta ís-
landsmót hans í einliðaleik.
Broddi, sem nú er lands-
liðsþjálfari í badminton,
sagði að nú væri koininn
tími til að slaka á. Hann
sagði eftir sigurinn í ein-
liðaleiknum á sunnudag að
þetta væri í síðasta skipti
sem liann tæki þátt í ís-
landsmótinu í einliðaleik.
„Ég hef átt fáa stuðnings-
menn, líklega fimm, sex í
gegnum tíðina og jiakka
þeim stuðninginn. Eg vil
hins vegar þakka andstæð-
ingum mínum líka því án
þeirra hefði ég ekki náð
svona góðum árangri,“
sagði Broddi.
Broddi Kristjánsson hefur unnið
fleiri íslandsmeistaratitla en
nokkur annar íslenskur íþróttamað-
ur og bætti tveimur í safnið um helg-
ina, í einliða- og tvíliðaleik. „Allir
leikirnii- sem ég spilaði í mótinu voru
nokkuð auðveldir. Ég lenti aldrei í
teljandi vandræðum og kom mjög af-
slappaður í úrslitaleikinn á móti
Sveini. Ég hef aldrei tapað fyrir hon-
um og ætlaði ekki að taka upp á því í
þessum leik,“ sagði Broddi.
Hann sagðist hafa æft nokkuð vel
síðustu tvo mánuðina eftir að hann
náði sér af meiðslum í lok nóvember.
„Ég hef æft öðruvísi í vetur en áður
vegna þess að ég gat ekkert æft í
september og október vegna
meiðsla. Það var bara svo gaman að
byrja aftur og ég fann mig flótlega
vel. Ég spila mikið og er hér í TBR-
húsinu fjóra til fímm tlma á dag, ekki
að æfa sjálfan mig heldur meira að
miðla til annarra,“ sagði hann.
Um endurnýjun í badmintoninu
hér landi sagði hann: „Jú, það eru
alltaf ungir og efnilegir spilarar að
koma fram en það er greinilega
erfitt að slá „kallinn“ út endanlega.
Það hlýtur að vera erfitt fyrir þessa
stráka að láta mig alltaf vinna sig, en
þeir verða þá bara að gera betur -
leggja meira á sig við æfingar. Sumir
eru með réttu tæknina en vantar
meiri hugsun í spilið og svo öfugt.
Það þarf að hitta á allt í sama mann-
inum til að þetta gangi upp og það er
galdurinn."
Hann sagði að mjög öflugt ung-
lingastarf væri unnið hjá TBR, nán-
ast fullbókaðir tímar alla daga. „Ef
Brynja Pétursdóttir
rétt verður haldið á spilunum ættum
við að geta komið upp öflugu liði í
framtíðinni. Aðstæðumar eru fyrir
hendi og það ætti að vera hægt. Það
er ekki nóg að fara til útlanda, bara til
að fara þangað. Það þarf meira til.“
Rétt að byrja
Sveinn Sölvason, sem er 19 ára,
lék til úrslita í einliðaleik í fyrsta
sinn. Hann sagði að það hefði verið
mjög erfitt að eiga við Brodda.
„Hann er seigur, kallinn, og hefur
mikla reynslu. Hann var kominn í
landsliðið áður en ég fæddist. Hann
var rosalega góður uppi við netið -
var einbeittur og spilaði vel. Hann er
bestur í dag og átti þetta skilið,"
sagði Sveinn sem hefur æft badmint-
on í tíu ár.
Hann lýkur stúdentsprófi frá M.S
í vor og reiknar með að fara til Dan-
merkur næsta vetur til að æfa. „Ég
Sveinn Sölvason
ætla mér meira í badmintoninu,
þetta er rétt að byrja,“ sagði Sveinn.
Á sigurbraut á ný
Elsa Nielsen sagði að úrslitaleikur-
inn hefði verið erfiður. „Ég var orðin
smeyk um að missa þetta niður eftii-
að Brynja náði að jafna í annarri lotu.
Hún vai' mjög grimm og gaf ekkert
eftir. En sem betui' fer náði ég að
vinna og vonandi er ég komin á sigur-
braut á ný eftir smáhlé."
Brypja Pétursdóttir er Akumesing-
ur en hefur æft með TBR í tæp tvö ár.
„Ég hef bætt árangur minn verulega
síðan ég fór að æfa hér hjá TBR enda
breiðari hópur sem æfir hjá félaginu
og því meiri samkeppni en var uppi á
Akranesi. Ég stefni að því að verða ís-
landsmeistari næsta vetur, ef ekld, þá
þamæsta," sagði Brynja sem er tví-
tug og hefur leikið til úrslita tvö ár í
röð og tapað í bæði skiptin.
mir
ið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Meistarataktar
BRODDI Kristjánsson og Elsa Nielsen, sem er á myndinni til
vinstri, urðu tvöfaldir fslandsmeistarar um helgina, f einliða- og
tvíliðaleik. Broddi lýst því yfir eftir mótið að þetta hafi verið síð-
asti einliðaleikur hans á íslandsmóti.
ALLS:
37 titlar
Einliða-
leikur: 13
Tvenndar-
leikur: 8
Tvíliða-
leikur: 16
apaði fyrirA
irna Þór ■—I
fallgrímssyni
undanúrslitum
einliðaleik