Morgunblaðið - 12.02.1998, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
__________________________
'fifi
f)Í
-6
33
*lí‘
-ii
—8
6Í
fð
ÍJ
€»í
-iJ
—&
~ f;
•—l'
FRJALSIÞROTTIR
Guðrún Arnardóttir hætt við þátttöku í EM innanhúss
Hef ekki áhuga á að
vera farþegi í Valenciu
GUÐRIJN Ai-nai'dóttir, frjáls-
íþróttakona úr Armanni, keppir
ekki á Evrópumeistaramótinu inn-
anhúss sem fram fer í Valencia á
Spáni í lok þessa mánaðar eins og
hún ætlaði sér. Hún sagðist ekki
sjá tilganginn í því að fara á EM
til að keppa í 400 metra hlaupi.
„Ég hef ekki áhuga á að vera
farþegi í Valenciu. Þessi ákvörðun
að hætta við þátttöku er eingöngu
mín. Þjálfarinn lagði hart að mér
að fara. Ég hef ekki náð að keppa
á neinum innanhússmótum til að
búa mig undir EM eins og ég ætl-
aði mér. Það er sjálfri mér um að
kenna, hálfgert skipulagsleysi. Ég
sé því ekki neinn tilgang í því að
fara til Spánar án þess að vera í
keppnisæfíngu. Þetta eru viss
vonbrigði fyrir mig því ég ætlaði
mér upphaflega að keppa í Va-
lencia og það átti að vera há-
punkturinn á vetrinum,“ sagði
Guðrún í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi.
Hún sagði að æfíngarnar í
Bandaríkjunum hefðu gengið vel
og hún væri jafnvel í betri
grunnæfingu en á sama tíma í
fyrra. Hún reiknar með að keppa
á fyrsta mótinu utanhúss í lok apr-
íl. Hápunktur sumarsins yrði Evrr
ópumeistaramótið sem fram fer í
Ungverjalandi í ágúst. Þar keppir
hún í 400 metra grindahlaupi.
Kristján
aftur
til Lyn
KRISTJÁN Brooks, marka-
kóngur 1. deildar í knatt-
spyrnu á liðnu tímabiii, fer
til Lyn í Noregi í dag. Éins
og greint hefur verið frá
æfði ÍR-ingurinn með liðinu
á dögunum og að sögn Olafs
Garðarssonar, umboðs-
manns hans, var þjálfarinn
ánægður með hann. „Þjálf-
arinn sagðist vera að skoða
fleiri leikmenn en hafði svo
aftur samband og sagðist
vilja fá hann í leik fyrir
helgi,“ sagði Óiafur.
Reuters
MICHAEL Owen, sem er hér í baráttu við Ronald Fuentes, er yngsti landsliðsmaður Englands á líð
andi öld, var 18 ára og 59 daga gamall í gærkvöldi þegar hann lék fyrsta landsleik sinn.
Owen sló
enska metið
Michael Owen hjá Liverpool og
Dion Dublin hjá Coventry
léku í fyrsta sinn með A-liði Eng-
lands í knattspymu í gærkvöldi.
Báðir voru í byrjunarliðinu og báðir
spiluðu allan leikinn en Owen er
yngsti landsliðsmaður Englands á
öldinni, 18 ára og 59 daga gamall í
gær. Merkilegur áfangi en Iíklegt er
að hann vekji ekki eins mikla at-
hygli og búist var við vegna úrslit-
anna. Chile vann 2:0 í vináttuleik á
Wembley og var fyrsti sigurinn í
fimm landsleikjum frá 1950 sann-
gjarn.
Marcelo Salas, Knattspyrnumað-
ur Suður-Ameríku á liðnu ári, gerði
bæði mörk gestanna. Fyrst í kjölfar
einstaklingsframtaks þar sem hann
plataði mótherjana upp úr skónum
og síðan úr vítaspyrnu. Salas, sem
gengur væntanlega frá félagaskipt-
um úr River Plate í Lazio á Italíu í
dag, braut ísinn með frábæru marki
rétt fyrir hlé og innsiglaði öruggan
sigur skömmu fyrir leikslok. „Mig
hefur ávallt dreymt um að spila á
Wembley og að skora á staðnum er
frábært," sagði hann.
Glenn Hoddle, sem tefldi ekki
fram sterkasta liði Englands, sagði
að leikurinn hefði skilað miklu. „Við
erum komnir niður á jörðina á ný.
Við vorum ekki á tánum en þetta er
engin hörmung heldur koma úrslit-
in okkur til góða.“
Kristinn Svanbergsson hjá SKÍ
„Kristinn besti svig-
maður heims“
KRISTINN Svanbergsson, fram-
kvæmdastjóri Skíðasambands Is-
lands og flokksstjóri íslenska
landsliðsins á Ólympíuleikunum,
sagði fréttamönnum I Nagano sl.
fóstudag, 6. febrúar, að Kristinn
Björnsson væri besti svigmaður
heims.
Kristinn lét þessi orð falla í mót-
ttöku þegai' keppendur í alpa-
gi-einum voru boðnir velkomnir og
eru þau höfð eftir honum í frétta-
tilkynningu á heimasíðu veti'ar-
ólympíuleikanna á alnetinu. Hann
gi-einir frá því að átta skíðamenn
séu í íslenska liðinu: „Þeir eru allir
góðir, en stærsta von okkar er
Kristinn Björnsson, hann er besti
svigmaður í öllum heiminum um
þessar mundir,“ segir Kristinn.
Wffl mmmmm
HEIMSMEISTARARNIR FRÁ BRASILÍU FENGU SKELL / B8