Morgunblaðið - 12.02.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.02.1998, Blaðsíða 6
6 B FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1998 NAGANO (98 MORGUNBLAÐIÐ Jani Soininen stóðst prófið Þjóðhetja Japans brást á úrslitastundu NÝJASTA stjarna Finna í skíðastökki, Jani Soininen, sýndi mik- ið öryggi í keppni í stökki af 90 m palli í gær. Hann var annar eftir fyrri umferð með 90 m stökk en forystusauðurinn og heimamaðurinn Masahiko Harada, sem stökk lengst í fyrri um- ferðinni, stóðst ekki álagið. Stökk aðeins 84,5 m og hrapaði niður í fimmta sæti. En Finninn 25 ára stóðst prófið, stökk 89 m og hrósaði sigri - fékk samtals 234,5 sticf. Vonbrigði 60.000 heimamanna sem voru á meðal áhorfenda voru mikil er ljóst var að að þjóðhetj- an Harada hafði brugðist á úrslita- stundu. Það varð þeim þó huggun harmi gegn að heimsmeistarinn af 120 m palli, Kazuyoshi Funaki sem er nú efstur í heimsbikamum, tókst vel upp í síðara stökki sínu og náði með því að næla í silfurverðlaunin. Funaki stökk 87,5 m og 90,5 m en Austurríkismaðurinn Andreas Wid- hölzl fékk bronsverðlaun, stökk 88 ^ og 90,5 m. Með þessum sigri Soininens hafa Finnar unnið tvenn gullverðlaun á leikunum en áður hafði Mika Myllylae verið allra manna vaskast- ur í 30 km skíðagöngu á mánudag- inn. Soininen er frá bænum Jy- vaaskylaa en þar er einnig fæddur og uppalinn þekktasti skíða- stökkvari Finna, Matti Nykanen. Finnar kvarta Þrátt fyrir sigurinn hefur fmnski ^rhópurinn í Nagano borið fram kvörtun vegna framkvæmdar stökkkeppninnar. Segja þeir að sú ákvörðun dómara að láta Soininen bíða smástund eftir að vindhviða gengi yfír hefði getað haft áhrif á úrslitin. Japaninn Masahiko Harada, sem stökk á eftir Finnan- um, þurfti líka að bíða um stund. Segja forsvarsmenn finnska liðsins að þessi bið hafí farið illa í keppend- ur og dómari hafí gert mistök. Hnífjafnt og óvænt Pieabo Street frá Bandaríkjunum vann risasvig kvenna með minnsta hugsanlegum mun, hún var 1/100 úr sekúndu á undan Austurrríkis- . manninum Michaelu Dorfmeister. Ekki munaði nema 6/100 úr sek- úndu á Dorfmeister og löndu henn- ar, Alexandru Meissnitzer, sem hlaut bronsverðlaun. Sigur Street var óvæntur vegna þess að hún byrjaði að keppa á ný eftir erfið meiðsli í desember sl. Hún keppti nær ekkert í fyrravetur því snemma á keppnistímabilinu meiddist hún illa á hné. Um leið voru þetta fyrstu gullverðlaun Bandaríkjamanna á leikunum. Landa Street, Diann Rof- fe, sem vann þessa grein á síðustu leikum, hefur nú hætt keppni. Frammistaða þýsku keppendanna olli hins vegar vonbrigðum, en fremst í flokki fór sigurvegarinn í bruni kvenna á síðustu leikum, Katja Seizinger, sem var talin sig- urstranglegust fyrir keppnina. Hún varð að gera sér sjötta sætið að góðu eftir gott gengi á heimsbikar- mótum vetrarins. „Síðastliðið ár hefur verið lengi að líða hjá mér,“ sagði Street sigri hrósandi, en hún vann silfur í bruni á síðustu leikum. „Sleitulaus vinna fyrir þessa leika hefur nú borgað sig. Ég held að margir hafi stefnt hærra fyrir keppnina en ég, en orð- ið fyrir vonbrigðum." „An heppni vinnur maður ekki,“ sagði Dorfmeister er hún hafði átt- að sig á úrslitunum. Henni hefur ekki vegnað vel á þessum vetri og aðeins náð 2. sæti á einu af heims- bikarmótum vetrarins. Hún hafði sérstakar umbúðir á öðrum hand- leggnum eftir meiðsli sem hún hlaut við fall í keppni í Cortina d’Ampezzo í síðasta mánuði. Seizinger sem hefur forystu í heildarstigakeppni heimsbikarsins kenndi veðrinu um að hún hefði ekki náð sér á strik. „Það var nokk- uð hlýtt og snjórinn varð harður, það munaði um hverja ferð, þar skildi á milli sigurs og ósigurs að þessu sinni.“ Þrefalt hjá Þjóðverjum Gunda Niemann-Stimemann frá Þýskalandi bar sigur úr býtum í 3.000 m skautahlaupi á öðmm besta tíma sem náðst hefur í greininni, 4.07,89 mín. Þar með bætti hún upp fyrir vonbrigðin á leikunum í Lil- lehammer fyrir fjórum ámm er hún datt og féll úr keppni. I næstu tveim- ur sætum komu löndur hennar, Claudia Pechstein, heimsmethafi, og Anni Friesinger. Allar hlupu þær á skemmri tíma en gamla Ólympíu- metið var, 4.11,94 mínútur sem Hollendingurinn Yvonne van Gennip setti í Calgary fyrir tíu áram. Þetta voru þriðju gullverðlaun St- irnemann á Ólympíuleikum því á leikunum í Albertville í Frakklandi árið 1992 sigraði hún í bæði 3.000 og 5.000 m hlaupi. ROSS Rebagliati frá Kanada fagnar sigri i á sunnudaginn. Reuters stórsvigi á snjóbretti Gullið tekið af Rebagliati Kanadamaðurinn Ross Rebagliati var í gær sviptur gullverðlaun- um sínum sem hann hlaut fyrir sigur í stórsvigi á snjóbretti á sunnudag- inn. Við lyfjapróf kom í Ijós að hann hefur neytt marijúana og því var hann sviptur verðlaununum. Tals- maður kanadíska íþróttasambands- ins sagði í gær að Rebagliati hefði ekki neytt marijúana í tíu mánuði, en hann hefði hins vegar talsvert um- gengist fólk sem notaði efnið. Kanadíska liðið hefur áfrýjað úr- skuðinum og byggir vörn sína á nokkrum atriðum. I fyrsta lagi að marijúana sé ekki notað til að auka árangur keppenda heldur sé það mun líklegra til að koma í veg fyrir góðan árangur. I annan stað halda Kanadamenn því fram að það séu að- eins sum íþróttasambönd sem leiti að marijúana hjá keppendum en ekki öll og því séu reglur Alþjóða ólymp- íunefndarinnar ekki sanngjarnar í alla staði. í þriðja lagi telja Kanada- menn að magnið sem fannst sé svo lítið að það skipti ekki máli, en að- eins fundust 17,8 nanogrömm í hverjum millílítra af þvagi. Það gekk hálferfiðlega að finna Rebagliati í gær en hann fór í felur á meðan hann beið eftir því hvort tillit yrði tekið til áfiýjunar hans. Talsmað- ur lögreglunnar í Nagano benti frétta- mönnum á að samkvæmt japönskum lögum væri bannað að eiga maiTjúana eða hafa það undir höndum. „Það er hins vegar engin refsing fyrir að reykja marijúana, en það er líklegt að menn verði að hafa marijúana undir höndum til að geta reykt það,“ sagði talsmaður lögreglunnar. Rebagliati bætist í hóp fleiri þekktra manna sem hafa lent upp á kant við japönsk lög vegna eitur- lyfja. Þar má meðal annars telja Bítilinn Paul McCartney, Mick Jag- ger og Rolling Stones og knatt- spyrnumanninn Diego Armando Maradona. Marijúana var viður- kennt sem læknislyf í Japan allt þar til Bandaríkjamenn komu til sög- unnar þar í landi í lok síðari heims- styrjaldarinnar og ólíklegt er talið að Rebagliati verði fangelsaður vegna þessa. Keppni á snjóbrettum er ný grein á Ólympíuleikum, en íþróttin hefur vaxið gífurlega síðustu ár og þá aðal- lega hjá ungu fólki. Keppendur á snjóbrettum hafa fengið fremur slæmt orð á sig og eru kallaðir „vondu strákamir" á leikunum. 1 West Ham - Blackburn 2 Aston Villa - Coventry 3 Newcastle - Tranmere 4 Leeds - Birmingham 5 Wimbledon - Wolves 6 Sheffield Wed. - Liverpool 7 Everton - Derby 8 Tottenham - Leicester 9 W.B.A. - Q.P.R. 10 Stockport - Stoke 11 Port Vale - Norwich 12 Ipswich - Huddersfield 13 Crewe - Portsmouth 0 0 2 0 8:5 21:6 3:3 9:2 1:1 13:15 9:1 10:7 4:2 0:0 7:1 9:4 0:0 i ÍTALÍA Árangur á heimavelli frá 1988 m IR Keflavík |U Þín spá 15. febrúar úrslit 1 Udinese - Parma 2 1 1 4:2 1 X 1 X 1 2 Juventus - Sampdoria 3 5 1 6:5 1 1 1 3 Bari - Lazio 0 3 2 4:6 X 2 1 X 2 1 X 2 4 Vicenza - AC Milan 1 1 0 3:1 T X 2 X X 2 5 Roma - Bologna 1 3 0 8:5 1 1 1 6 Empoli - Fiorentina 0 0 0 0:0 X 2 X 2 1 X 2 7 Piacenza - Brescia 0 0 0 0:0 1 X 1 X 1 X 8 Inter - Lecce 4 0 0 13:2 1 1 1 9 Atalanta - Napoli 1 5 2 9:12 1 1 1 10 Lucchese - Perugia 1 1 0 3:2 1 X J 1 xí I T ' 11 Foggia - Torino 1 2 2 5:7 2 2 1 X 12 Genoa-Ancona 1 1 0 6:5 i 1 1 13 Pescara - Fid. Andria 2 0 1 6:4 i 1 1 X Urslit í síðustu viku: Valur: 7 réttir Grindavík: 5 réttir 6 réttir STAÐAN I 1 i 2 3 4 5 STIG Fjöldi réttra 1 Valur m £ 2 7 2 Grindavík o m ~T~ 1 13 3 Þróttur R. ■n ~Ö~ O 4 4 IBV 2 m 2 8 5 Leiftur ~1~ LJ 1 8 1 I 7T] 3 4 ~5~ 1 Fram O 2 2 4 32 2 IA 2 1 2 2 7 31 3 Keflavík 2 1 O O 3 34 4 KR O o 2 O 2 35 5 IR O o 2 L2J 4 30 I næstu viku mætast: Þróttur og Valur Úrslit í síðustu viku: Fram: 8réttir ÍA: lOréttir fM: IQréttir STAÐAN 1 i 2 i 3 4 5 STIG Fjöldi réttra 1 Fram höi O 8 2 IA 2 ~T~ 3 19 3 Keflavík ~Ö~ O 9 4 KR 2 2 10 5 IR i LJ 1 9 1 2 3 4 5 1 Valur 1 2 2 2 7 37 2 Grindavík 1 1 O 2 4 33 3 Þróttur R. O 1 2 1 4 35 4 ÍBV O 2 O O 2 38 5 Leiftur o O 1 3 37 I næstu viku mætast: Keflavík 0g Fram

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.