Morgunblaðið - 12.02.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.02.1998, Blaðsíða 8
Reuters JUVENTUS, sem hafði unnið sjö leiki í röð fyrir leikinn á móti Brecia í gærkvöldi, varð að sætta sig við jafntefli, 1:1. Hér er það fram- herjinn Alessandro Del Piero sem reynir að komast framhjá varnarmönnum Brescia, Alberto Savino og Ivan Javorcic. Berescia stöðvaði sigurgöngu Juve Efstu lið ítölsku knattspyrnunn- ar, Juventus og Inter, köstuðu frá sér 1:0 forystu og urðu að sætta sig bæði við 1:1 jafntelfi í deildar- keppninni í gærkvöldi. Juve á mót Brescia og Inter á móti Fiorentina. Filippo Inzaghi náði forystu fyrir Juve í upphafi síðari hálfleiks á móti Brescia, sem er að berjast fyrir til- verurétti sínum í deildinni. Vamar- maðurinn Alberto Savino jafnaði 19 mín. síðar og var þetta fyrsta mark hans í efstu deild og stöðvaði þar með sjö leikja sigurgöngu Tórínó- liðsins. Inter tók forystuna í Florence á móti Fiorentina með marki Ron- aldos úr aukaspymu á 26. mínútu leiks. Argentínumaðurinn Gabriel Batistuta jafnaði fyrir leikhlé með góðu marki úr vítateignum eftir fyr- irgjöf Brasilíumannsins Luis Oli- veira. Þetta var 15. deildarmark hans á tímabilinu. Tékkinn Pavel Nedved gerði tvö mörk íyrir Roma og Roberto Baggio það sama fyrir Bologna sem vann Bari 4:3. Fyrra mark Baggios var úr vítaspyrnu og síðan kom hann liði sínu í 2:0. Hann hefur gert 12 mörk á tímabilinu og virðist vera að komast í sína bestu æfingu. Kolombíumaðurinn Faustino Asprilla gerði fyrsta mark sitt fyrir Parma eftir að hann kom frá Newcastle. Leikurinn endaði með jafntefli, 1:1. Parma lék einum leik- manni færri síðustu fimm mínút- umar eftir að Luigi Apolloni var rekinn út af fyrir að brjóta á Ro- berto Murgita. Napoli vann Vicenza 2:0 og var þetta fyrsti sigur liðsins í deildinni í 150 daga eða síðan 14. september. Juve hefur nú 45 stig og er fjórum stigum á undan Inter. Udinese, sem er í þriðja sæti deildarinnar, gerði markalaust jafntefli við AC Milan á San Siro-leikvanginum í Mflanó og er með 38 stig. Auðvelt hjá Barcelona Barcelona burstaði Merida, 3:0, í síðari leik liðanna í fjórðungsúrslit- um spænsku bikarkeppninnar í gær- kvöldi. Sergi Barjuan gerði fyrsta mark liðsins strax á 2. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Rivaldo (víti) og Dragan Ciric bættu tveimur við í síðari hálfleik. Barcelona vann samanlagt 5:0 og er komið í undan- úrslit keppninnar. Deportivo Coruna náði aðeins markalausu jafntefli gegn 2. deild- arliði Alaves á heimavelli og féll þar með úr keppninni. Alaves vann fyrri leikinn 3:1 og leikur í fyrsta sinn í sögu félagsins í undanúrslitum. ■ ARSENAL hefur framlengt samninga sína við Steve Bould og Nigel Winterburn um eitt ár til við- bótar, en samningar þeirra við fé- lagið áttu að renna út í vor. Félag- arnir hafa verið í rúman áratug hjá félaginu. ■ ARSENE Wenger knattspyrnu- stjóri Arsenal segir það vera gleði- efni að framlengja samningana við þessa tvo leikmenn. Þeir séu góðir leikmenn og íyrii-myndar persónu- leikar. ■ WENGER er tilbúinn að gera samning við Lee Dixon, enn einn af eldri leikmönnunum í herbúðum liðsins, þannig að hann, Tony Ad- ams, Steve Bould og Nigel Winter- burn ljúki ferli sínum hjá félaginu. ■ ÞESSIR fórir leikmenn hafa unn- ið mikið starf fyrir liðið. Dixon hef- ur leikið 444 leiki, Adams 529 leiki, Bould 336 leiki og Winterburn 482 leiki. ■ „SAMNINGURINN veitir mér svigrúm til þess að Ijúka ferlinum hjá einu stærsta félagi landsins,“ sagði Winterburn eftir að hann skrifaði undir samninginn. ■ STEPEN Hughes, hinn ungi mið- vallarleikmaður Arsenal, skrifaði undii- fimm ára samning við liðið í gær. ■ ASTON Villa hefur kvartað við Alþjóða knattspymusambandið, FIFA, að Atletico Madrid hafi í heimildarleysi átt í viðræðum við júgóslavneska landsliðsmanninn Savo Milosevic. ■ BARCELONA hefur verið sektað um 300.000 krónur af spænska knattspyrnusambandinu vegna þess að einn stuðningsmanna fé- lagsins kastaði vatnsflösku í dómar- ann, Victor Esquinas Torres, að loknum bikarleik síðustu viku. Þetta er í annað sinn sem svipað at- vik á sér stað á Camp Nou velli fé- lagsins. ■ NEWCASTLE hefur boðið fimm millj. punda í þýska landsliðsmann- inn Markus Babbel, sem leikur með Bayem Miinchen. Babbel, sem er 25 ára, leikur í stöðu aftasta varn- armanns. ■ LAWRIE McMenemy, fyrrum knattspyrnustjóri Southampton, hefur verið ráðinn sem þjálfari landsliðs Norður-írlands. Aðstoð- armenn hans verða Joe Jordan og Pat Jennings. ■ „ÉG VONA að ég nái að gera eins góða hluti með norður-írska landsliðið og Jack Charlton náði að gera með írska liðið,“ sagði McMenemy. ■ BLACKBURN keypti í gær varn- armanninn Callum Davidson frá skoska liðinu St. Johnstone á 1,75 millj. punda. ■ MESTAR líkur eru nú á að Brian Laudrup, sem leikur með Glasgow Rangers, gerist leikmaður með Chelsea. Hann segii- að leikstfll hans komi til með að falla inn í leik- skipulag Chelsea, en Laudrup er mjög ánægður með hvernig Ruud Gullit, knattspyrnustjóri liðsins, lætur það leika. ■ ÞAÐ hefur oft verið rætt um að Brian væri á fórum til Ajax, þar sem hann hefði áhuga á að leika með bróðir sínum Michael. Brian segir að hann hafi ekki hug á að leika með Michael, þar sem hann óttist að með því gæti jafnvel skuggi fallið á góða vinátta þeirra bræðra. ■ ÍTALSKI landsliðsmaðurinn Nicola Berti, sem er í láni hjá Tottenham, hefur áhuga á að vera áfram hjá liðinu. Berti er ánægður hjá Tottenham og er tilbúinn að skrifa undir tveggja ára samning við liðið. Bandaríkjamenn skelltu heimsmeisturunum frá Brasilíu Fyrsta markið í 68 ár! KNATTSPYRNAN er óútreik- anleg. Að því urðu 12.298 áhorf- endur í Los Angeles vitni í fyrr- inótt er heimsmeistararnir frá Brasilíu máttu þola tap fyrir Bandaríkjamönnum 1:0. Þetta var fyrsti sigur Bandaríkjamanna á Brasilíumönnum í níu viðureign- um og fyrsta markið sem þeir hafa skorað gegn Brasilíu í 68 ár, eða frá því í leik þjóðanna 1930, 4:3. Fyrir leikinn í fyrrinótt var markatalan 23:3 fyrir Brasilíu- menn. Preki Radosavijevic, fyrrver- andi leikmaður Everton og Portsmouth, sem er fæddur í Ser- bíu, kom inn á sem varamaður á 59. mínútu og skoraði sigurmarkið aðeins sex mínútum síðar - þrum- aði knettinum í netið, óverjandi fyrir Taffarel, markvörð Brasilíu- manna. Leikurinn var undanúr- slitaleikur í Gull-bikarkeppninni í Bandaríkjunum og leika heima- menn til úrslita við Mexíkó eða Jamaíku. Steve Sampson, þjálfari banda- ríska liðsins, var ánægður eftir leikinn. „Þetta er söguleg stund fyrir bandaríska knattspyi-nu. Við látum hér ekki staðað numið, held- ur höldum áfram. Brasilíumenn réðu ferðinni í leiknum og hefðu þess vegna get- að verið sex mörkum yfir í fyrri hálfleik. Kasey Keller, markvörð- ur Leicester, kom í veg fyrir það með stórgóðum leik - hann varði nokkrum sinnum meistaralega, þar af fjórum sinnum frá Romario. „Keller stóð sig frábærlega, einnig var mark Perki glæsilegt," sagði Sampson. „Þetta var okkar kvöld. Þó svo að við fögnuðum sigri er ekki hægt að loka augunum fyrir því að Brasilíumenn eru með frá- bært landslið," sagði Keller. Þetta var aðeins þriðji tapleikur Brasilíumanna síðan þeir urðu heimsmeistarar í Bandaríkjunum 1994. Síðan þá tapaði Brasilía 4:2 fyrir Noregi í fyrra og 2:0 fyrir Mexíkó 1996. 3 6 21 24 32 47 / 29 44

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.