Morgunblaðið - 12.02.1998, Síða 2
2 B FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
■ SPÁNSKA íþróttablaðið _ AS
sagði frá því í gær, að Inter á Ítalíu
hefði hug á að skipta á Ronaldo og
ítalska leikmanninum Christian Vi-
eri, sem leikur með Atletico Mad-
rid.
■ AC Milan hefur einnig áhuga á
Vieri, sem hefur skorað þrettán
mörk fyrir Atletico í jafn mörgum
leikjum á Spáni í vetur, eða síðan
hann var keyptur til liðsins frá Ju-
ventus.
■ JESUS Gil, eigandi Atletico Mad-
rid, hefur sagt að Vieri sé besti
knattspyrnumaður heims í dag.
■ ANNAÐ blað á Spáni - Marca,
sagði frá því í gær að Valencia
hefði hug á að selja argentínska
landsliðsmanninn Ortega eftir HM í
sumar. Ortega skrapp til heima-
lands síns í gær. Hann tekur út
leikbann í tveimur næstu leikjum
Valencia þar sem hann er í leik-
banni fyrir að ráðast að dómara eft-
ir tap liðsins fyrir Valladolid um sl.
helgi.
■ HOLLENSKA liðið PSV Eind-
hoven hefur hug á að fá Eric Ger-
ets, fyrrum fyrirliða Belgíu, sem
næsta þjálfara liðsins. Hann þjálfar
nú FC Brugge í Belgíu. Samningur
hans við liðið rennur út í sumar.
■ GERETS lék á árum áður með
Eindhoven. Hans hlutverk verður
að taka við starfi Dick Advocaat,
sem er á fórum til Glasgow Ran-
gers. Gerets lék með Ásgeiri Sig-
urvinssyni hjá Standard Liege í
Belgíu.
■ KRISTJÁN Halldórsson, knatt-
spymumaður, var á dögunum val-
inn íþróttamaður ÍR fjTÍr árið 1997.
Kristján var fyrirliði meistara-
flokks félagsins sem tryggði sér
þátttökurétt í efstu deild sl. haust.
■ NEW York Knicks hefur gert
samning við bakvörðinn Brooks
Thompson. Orlando Magic fékk
kappann í sínar herbúðir 1994, en í
vetur var hann með Phoenix í 13
leikjum en hóf leiktíðina með Irak-
lis í Grikklandi en gerði þar stuttan
stans.
■ EVANDER Holyfield heims-
meistari í þungavigt hnefaleika
segist frekar vilja mæta Vaughn
Bean en Englendingnum Henry
Akinwande næst þegar hann þarf
að verja IBF-tign sína í hringnum.
Akinwande er hinsvegar efstur á
áskorendalista WBA þar sem
Holyfield á einnig titil að verja.
■ HOLYFIELD og Akinwande ei'u
undir handleiðslu sama þjálfara og
sagðist meistarinn vonast til þess
að ekki kæmi til að þeir þyrftu að
mætast því þá þyrfti þjálfarinn að
taka afstöðu til hvorn lærisveina
sinna hann vilji styðja.
■ OSCAR de la Hoya heimsmeitari
WBC í veltivigt hefur fengið
frestað einvígi sínu við Frakkann
Patrick Charpentier sem fram átti
að fara 14. mars vegna meiðsla sem
hann hlaut í æfingu á dögunum.
■ KRISTJÁN Halldórsson þjálfari
Noregsmeistara kvenna í hand-
knattleik, liðs Larvikur, stýrði fé-
lagi sínu til sigurs í norsku bikar-
keppninni í handknattleik um liðna
helgi. Larvik vann Byásen 14:13 í
úrslitaleik. Markvörður Laivik og
danska Iandsliðsins, Lene Rantala,
átti stórleik og lagði öðrum leik-
mönnum fremur grunninn að sigri.
■ LEIKMENN Runar unnu bikar-
inn í karlaflokki eftir 18:17 sigur á
Sandefjord.
■ GHENADIJ Khalepo, landsliðs-
maður í handknattleik frá Hvíta-
Rússlandi, sem er í herbúðum
þýska liðsins Nettelstedt, hefur
ákveðið að ganga til liðs við Lemgo
eftir þetta keppnistímabil.
■ KHALEPO, sem er 2,02 m, hefur
skrifað undir samning til júní 2000.
Hann mun taka stöðu Marc Baum-
gartner, sem fer til svissneska liðs-
ins Winterthur.
Sjötta ÖL-gull Dæhlies
NORSKI skíðagöngukappinn Björn Dæhlie sigi-aði í 10 km göngu karla
með hefðbundinni aðferð á Ólympfuleikunum f Nagano í nótt. Þetta
voru sjöttu gullverðlaun hans á Ólympíuleikum sem er met. Hanu var 8
sekúndum á undan Austurríkismanninuin Markus Gandler sem varð
óvænt í öðru sæti. Ólympíumeistarinn í 30 km göngunni, Finninn Mika
Mylyla, varð þriðji og Vladimir Smirnoff fjórði.
Lee lokaði
markinu
FH-INGAR halda þriðja sætinu í 1. deild, sigruðu Víkinga, 21:17,
í Víkinni og Víkingar eru því enn í næst neðsta sæti, fimm stig-
um á eftir ÍR. Heimamenn léku hreyfanlega og góða 5-1 vörn í
fyrri hálfleik og komust áhugalitlir og hugmyndasnauðir sóknar-
menn FH ekkert á móti þeim. Heimamenn voru 10:8 yfir í leikhléi
og voru óheppnir að hafa ekki meiri forystu því tíu mínútum fyrir
hlé voru þeir 9:4 yfir en FH gerði fjögur mörk gegn tveimur á
lokakaflanum.
ingu í síðustu umferð, Páll Björg-
vinsson var ekki með í gærkvöldi.
Vörnin var sterk í fyrri hálfleík og í
sókninni var leikið af skynsemi.
Boltinn gekk hratt á milli manna og
þótt mörgum þætti sem leikmenn
héldu boltanum fulllengi sýndu þeir
mikla þolinmæði og biðu eftir góðu
skotfæri. Birkir Ivar Guðmundsson
varði mjög vel og í vörninni var
Hjörtur Arnarson sterkur fyrir
framan.
FH lék hörmulega í fyrri hálfleik
en tók sig á eftir hlé. Lee átti frá-
bæran leik, fékk aðeins tvö mörk á
sig í þær tæpu 18 mínútur sem hann
lék. Sigurjón Sigurðsson átti góðan
leik, skoraði fjögur mörk og átti
nokkrar ágætar línusendingar og
Hálfdán var traustur á línunni auk
þess sem Guðmundur Pedersen átti
ágætan leik eftir hlé.
Morgunblaðið/Kristínn
SIGURJÓN Sigurðsson lék vel með FH-ingum. Hér skorar hann
eitt af fjórum mörkum sínum.
Hvað svo sem leikmenn FH
gerðu í leikhléi, fóru í kalda
sturtu eða eitthvað annað, virkaði
það því þeir komu
*®*^^^* mun ákveðnarí til
Unnar leiks e^'r M®- Vörn-
Sveinsson *n tók á móti sóknar-
skrifar mönnum Víkings og
í sóknin gekk upp.
Eftir sjö og hálfa mínútu var FH
komið 13:12 yfir, hafði gert fimm
mörk gegn tveimur mörkum heima-
manna. Næstu fimm mínútur var
jafnt á með liðunum, staðan 15:14
fyrir Víking þegar Suik Hyung Lee
fór í mark FH. Hann gerði sér lítið
fyrir og hélt markinu hreinu næstu
14 mínúturnar en félagar hans
gerðu þrjú mörk á meðan og sigur-
inn var tryggður.
Víkingar gerðu eina breytingu á
liði sínu frá því þeir lögðu Aftureld-
Tólf mínútur
nægðu Fram
Blikar
féllu í
Eyjum
að tók Framara 30 mínútur að
ná úr mesta skrekknum eftir
bikarúrslitaleikinn um síðustu helgi
er þeir mættu ÍR-
I ingum í Seljaskóla í
Benedjktsson gærkvöldi. Leikur
skrifar þeirra var frekar
handahófskendur í
fyrri hálfleik og um tíma virtist sem
baráttuglaðir ÍR-ingar ætluðu að
sigla fram úr. I byrjun síðari hálf-
leiks var meiri festa í leik Safamýr-
arpilta, þá gerðu þeir út um leikinn
á stuttum tíma og nánast formsat-
riði að ljúka leiknum, lokatölur
24:19.
Gríðarleg barátta á kostnað leiks-
ins var hjá Iiðunum í fyrri hálfleik.
Mikið óðagot var á báðum fylking-
um og talsvert um mistök. Hraða-
upphlaup og dauðafæri fóru for-
görðum og eins virtist kveikjuþráð-
ur leikmanna vera stuttur, svo á
stundum mátti engu muna að upp
úr syði. IR-ingar léku framliggjandi
vörn og voru fastir fyrir og óyfir-
vegaðir sóknarmenn Fram áttu í
vandræðum. Sama var upp á ten-
ingnum hinum megin vallarins þar
sem Framarar léku sína hefð-
bundnu 6-0 vörn sem ÍR-ingum
gekk illa að finna leiðir framhjá.
Eini leikmaður IR sem einhverjum
árangri náði í sókninni var Ragnar
Oskarsson sem gerði sjö af 10
mörkum liðsins í fyrri hálfleik.
Framarar höfðu tveggja til
þríggja marka forystu og voru 7:5
yfir eftir rúmar fimmtán mínútur.
Pá gerðu heimamenn fimm mörk í
röð og virtust vera að snúa leiknum
sér í hag. Þá tóku Framarar leikhlé
og komu tvíefldir til baka úr því,
gerðu fjögur mörk í röð og höfðu
eins marks forskot í hálfleik, 11:10.
Eins og fyrr segir gerði Fram út
um leikinn á fyrstu 12 mínútum síð-
ari hálfleiks með því að gera sex
mörk gegn tveimur og ná forystu,
17:12.
Eftir það var enginn vafi hvorum
megin sigurinn lenti, þrátt fyrir að
talsvert lifði af leiktímanum. Sókn-
arleikur IR leystist upp í algjört
stjórnleysi, Ragnar sem hafði leikið
vel í fyrri hálfleik náði sér engan
veginn á strik og gerði ekkert nema
vitleysur og skaut í tíma og ótíma,
án árangurs. Endaði með því að
hann var kældur um tíma af Matthí-
asi Matthíassyni þjálfara, en
hresstist ekkert við það. Aðrir leik-
menn sýndu litla burði til þess að
sauma að Framvélinni sem mallaði
á hálfum hraða síðasta stundar-
fjórðunginn og þurfti lítið fyrir
sigrinum að hafa.
ÍR-ingar sýndu í gærkvöldi að
þeir geta barist af krafti í vörninni
og markvörður liðsins, Hrafn Mar-
geirsson, er ágætur. En fljótlega
þegar á móti blæs rennur af leik-
mönnum mesti móðurinn. Guð-
mundur Þórðarson var besti maður
ÍR-inga og hélt Oleg Titov svo vel
niðri að sá hinn síðarnefndi fékk lít-
ið svigrúm. Aðrir leikmenn ÍR
verða að temja sér meiri yfirvegun.
Framliðið var lengi af stað og
tókst að gera skyldu sína, en það
sýndi engan stórleik. Guðmundur
Helgi Pálsson lék best.
Ekkert gengur hjá
Alfreð og lærisveinum
ALFREÐ Gíslason og félagar hans hjá Hameln töpuðu enn einu sinni í
þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær, nú fyrir Lemgo 33:25. Ha-
meln vermir neðsta sætið með 8 stig eftir 19 Ieiki. Bayer Dormagen er
í næstneðsta sæti með 9 stig og siðan kemur Gummersbach með 12
stig. TIIW Kiel er efst með 35 stig en síðan kemur Lemgo með 30 stig.
Kiel lék við Gummbersbach í undanúrslitum bikarkeppninnar í gær
og sigraði, 30:28. Kile leikur til úrslita við Schutterwald 4. aprfl.
Nýliðarnir án stiga
eftir sautján umferðir
Sigfús G.
Guðmundsson
skrifar
Eyjamenn tóku á móti stigalausu
liði Breiðabliks í Eyjum og sigi'-
uðu eins og við var að búast, 35:23.
Þetta var 17. tap
Breiðabliks í vetur
og er liðið þar með
fallið í 2. deild. Leik-
menn IBV voru
værukærir í upphafi leiks og reynd-
ar allan fyrri hálfleikinn. Þeir léku
með hálfum huga og köstuðu bolt-
anum nokkuð oft klaufalega frá sér.
Blikar náðu að halda í við þá og
munurinn í hálfleik var aðeins fjög-
ur mörk, 15:11.
Heimamenn komu mun ákveðn-
ari til leiks í síðari hálfleik og léku
af meiri festu. Bilið milli liðanna óx
jafnt og þétt. Sigmar Þröstur varði
oft prýðilega í markinu og Eyja-
menn keyi'ðu hratt á Blika og var
forskot þeirra mest 14 mörk.
Sigmar Þröstur átti góða kafla í
marki Eyjamanna og flestir leik-
manna liðsins áttu sína góðu kafla
en ei’fitt er að halda einbeitingu út
heilan leik þegar yfirburðimir eru
þetta miklir. Guðmundur Karl
Geirsson, markvörður Blika, varði
oft ágætlega og var einna bestur í
máttlitlu liði þeirra.
■ Úrslit / B6
■ Staðan / B6