Morgunblaðið - 12.02.1998, Side 5

Morgunblaðið - 12.02.1998, Side 5
4 B FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1998 B 5' KÖRFUKNATTLEIKUR KÖRFUKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Golli „Mikils vænst af okkur“ Helgi Jónas Guðfinnsson, tæpra 22 ára bakvörður Grindavíkur, hefur leikið vel í vetur - gert 19,1 stig að meðaltali í leik í úrvalsdeildinni. Hann og Darryl Wilson mynda eitt besta bakvarðapar deildarinnar og eru að sönnu illstöðvanlegir. Fyrir sex árum var Helgi valinn besti leikmaður fimm liða undanriðils í Belgíu árið 1992, sem var liður í undankeppni fyrir Evrópu- keppni drengjalandsliða, en úrslita- keppni hennar fór fram í Tyrklandi. Sá árangur Helga Jónasar sýnir vel hversu sterkur leikmaður hann er. Helgi Jónas og félagar í íslenska liðinu urðu í öðru sæti síns riðils, en í honum öttu þeir kappi við Litháa, Belga, Kýp- urbúa og Englendinga. Þannig öðlað- ist íslenska drengjalandsliðið rétt til að leika í úrslitakeppninni í Tyrklandi og hafnaði í níunda sæti. „Þegar litið er til baka, tel ég mig hafa notið ákveðinna forréttinda að fá að ferðast jafn mikið og við gerðum þegar við vorum í þessari keppni. Við fórum víða, t.d. til Litháens," segir Helgi. Hann hefur ferðast víðar en til íyrr- nefndra Evrópulanda, því hann hefur þegar fengið smjörþefinn af banda- rískum körfuknattleik - lék með Lely- menntaskólanum í Naples í Flórídaríki veturinn 1993 til 1994. „Eftir að ég kom heim þaðan var ég eitt ár í Fjöl- brautaskóla Suðumesja, en ætlaði síð- an aftur út - samt í annan skóla. Ég sendi einkunnir mínar út, en þá kom í ljós að ég var í rauninni útskrifaður, hafði þegar lokið þeirri menntun sem telst til menntaskólastigs í Bandaríkj- unum. Ég fór því ekki utan, eins og til stóð, og þá fór þetta eiginlega allt í rugling hjá mér. Ég var ekki búinn að taka inntökupróf í háskóla, svokallað SAT-próf, og það er svolítið erfitt að komast aftur inn í skólakerfið í Banda- ríkjunum þegar maður hefur verið frá á annað borð. Ég ákvað að reyna ekki frekar við það og hélt því áfram að læra hér heima og lauk námi á íþrótta- braut,“ segir Helgi Jónas. Hvenær byrjaðirðu að leika körfuknattleik? „Ég byrjaði að leika mér í körfu- bolta þegar ég var ellefu ára. Ég flutti til Grindavíkur á ellefta ári, en átti áður heima á Neskaupstað. Þar var ég mikið á skíðum og lagði meiri áherslu á skíðaíþróttina þar til ég varð þrettán ára. Þá ákvað ég að skella mér í körfuknattleikinn og stunda hann á vetuma í stað þess að vera á skíðum." Dreymir þig ekki um að fara aftur til útlanda og leika körfuknattleik? „Jú, mig langar til þess, en ekkert sérstaklega til þess að fara til Banda- ríkjanna. Ég er spenntari fyrir því að reyna fyrir mér einhvers staðar í Evrópu, því þar hafa gefist fleiri tækifæri vegna Bosman-málsins. Ég hef því meiri áhuga á að komast þangað.“ Stefnir þú sem sagt að því að kom- ast að í einhverri sterkri deild í Evr- ópu? „Já, markmiðið er fyrst og fremst að komast á markaðinn í Evrópu. Þá gild- ir einu hvort viðkomandi deild er mjög sterk eða ekki - bara að maður nái að sanna sig. Hugsanlega leiðir eitt af öðm og maður komist að lokum í sterka deild, eins og Herbert Arnarson gerði. Hann fór til Hollands, í ágæta deild, þaðan komst hann svo til Belgíu, en þar er mun sterkari deildarkeppni." Margir telja að Grindavíkurliðið með þig, Wilson og Tsartsaris innan- borðs eigi bókstaflega að verða meist- ari í vor. „Það er vitaskuld mikils vænst af okkur í vetur, að vinna titla. Við emm með mjög góðan bandarískan leik- mann og Grikkinn hefur reynst okkur mjög vel. Sfðan kemur á daginn hvemig liðið nær að vinna saman. Það skiptir rosalega miklu máli, en það hefur ekki gengið mjög vel hjá okkur undanfarið. Mér hefur fundist nokk- uirar niðursveiflu gæta hjá okkur upp á síðkastið, þó að við höfum verið að vinna síðustu leiki. Mér finnst vanta meiri leikgleði í liðið og þegar maður vinnur svona marga leiki, verður maður of góðu vanur og er farinn að taka því sem sjálfsögðum hlut. Þá er hætt við því að lið missi dampinn - öll leikgleði hverf- ur bara. Við verðum að byggja hana upp fyrir bikanírslitaleikinn," segir Helgi Jónas. Körfuknattleikslið Grindvíkinga er líklegt til afreka í úi-vals- deildinni í vetur. Það vennir efsta sætið um þessar mundir og leikur til úrslita í bikarkeppninni gegn KFÍ á laugardag. Að margra mati á liðið þessari velgengni að fagna vegna komu Bandaríkjamannsins Darryls Wilsons og Grikkjans Konstantinos Tsartsaris síðastliðið haust, en sá síðarnefndi fékk þó ekki leikheimild fyrr en um miðjan nóvembermánuð. Asamt Helga Jónasi Guðfinnssyni mynda þeir skemmtilegt þríeyki, sem jafnan reynist andstæðingum Grindavíkurliðsins óþægur ljár í þúfu. Darryl Wilson og félagar í Miss- issippi State-háskólanum komust í undanúrslit NCAA-deildakeppninn- ar [Final Four] vorið 1996, en urðu að láta í minni pokann er þeir mættu Syracuse, en þá gerði Wilson 24 stig. Milljónir áhorfenda fylgjast jafnan með þessum leikjum, en und- anúrslit bandaríska háskóla- körfuknattleiksins eru mjög vinsælt sjónvarpsefni vestanhafs. Tveir samherjar Wilsons í Mississippi Sta- te leika nú í NBA-deiIdinni; þeir Erick Dampier og Dante Jones. Wil- son var þó stigahæstur leikmanna liðsins með 17,8 stig að meðaltali í Ieik, en Iið hans lék í einum sterkasta riðli NCAA-deildarkeppn- innar, sem sýnir vel hversu góður leikmaður er þar á ferð. Hvemig stendur þá á því að þessi snjalli leikmaður er að leika körfuknattleik á Islandi? „Ég spilaði ekkert á síðasta keppnistímabili, því þá var ég að ljúka námi í kennslu- Margir velta fyrir sér hvers vegna Grikk- inn ungi, Konstantinos Tsartsaris, Banda- ríkjamaðurinn Darryl Wilson og Helgi Jónas Guðfínnsson, sem leika allir með körfuknattleiksliði Grindavíkur, eru ekki að leika í sterkari deild en hér á landi. Edwin Rögnvaldsson ræddi við þríeykið og leitaði svara við þessari spurningu auk annarra. fræðum. Ég taldi mig því knúinn til að hefja leik að nýju síðastliðið haust og tók einfaldlega fyrsta til- boði sem barst,“ segir Wilson, sem hefur gert 33,7 stig að meðaltali fyr- ir Grindavík á yfirstandandi tíma- bili. Benedikt Guðmundssyni, sem var ráðinn þjálfari Grindavíkur síðast- liðið sumar, var boðið til æfingabúða í New Jersey í Bandaríkjunum fyrir yfirstandand tímabii. Þar lék Kon- stantinos Tsartsaris listir sínar og vakti athygli Benedikts, sem bauð honum að koma til íslands. Fram- haldið þekkja allir áhugamenn um körfuknattleik hér á landi, en Grikk- inn ungi hefur skorað 21,6 stig, tekið 16,7 fráköst og varið 4,1 skot að meðaltali í deildarleikjum vetrarins. „Ég átti um tvennt að velja síð- asta sumar; annars vegar að halda kyrru fyrir í Grikklandi og leika áfram með sama liðinu í fjórðu deild, hinsvegar að koma hingað - og hér er ég! Astæðan er einföld. Ég vildi spila í sterkari deild. Hér er leikinn mun betri körfuknattleikur en í fjórðu deildinni í Grikklandi. Mig langaði að láta reyna á það hvort ég kæmist í bandarískan háskóla, en ég var einu ári of ungur. Mér verður vonandi að ósk minni síðar,“ segir Tsartsaris. Wilson, sem er 23 ára, fæddist í Mississippiríki, en hann hóf að leika körfuknattleik í Alabama þegar hann var ellefu ára. Hann lék með liði South Lamar-menntaskólans áð- ur en hann gekk í háskóla. „Og nú er farið að snjóa!“ Wilson segist vera ánægður hér á landi, þó hann bíði eftir tilboðum ÞRÍEYKIÐ sem reynst hefur andstæðingum Grindvíkinga óþægur Ijár í þúfu í vetur. Bandaríkjamaðurinn Darryl Wilson, hinn há- vaxni Konstantinos Tsartsaris frá Grikklandi og landsliðsmaður- inn Helgi Jónas Guðfinnsson. liða úr sterkari deildum í Evrópu. „Hér er allt til fyrirmyndar og mér líkar vel hérna, en ég leyfi mér að kvarta undan veðrinu. Hér er kuldi, rigning, hálka - og nú er farið að snjóa! En að öðru leyti er allt eins og best verður á kosið. Mér líkar vel við samherja mína og þjálfarann," segir Wilson. Þú kvartar undan veðrinu, en það hefur ekki verið nærrijafn slæmt og ímeðalári? „Það er gott. Ég hlýt þá að vera heppinn. Allir verða einhvern tíma heppnir, enda er það hverjum manni nauðsynlegt." Tsartsaris tekur undir með félaga sínum. „Ég er sama sinnis. Ég er mjög ánægður hérna, en ég verð að viðurkenna að mér er svolítið kalt. í heimaborg minni í Grikklandi snjóar ef til vill einu sinni á fimm ára fresti." Ekki er laust við að menn eigi erfítt með að trúa því að hinn 208 cm hái Tsartsaris sé aðeins átján ára er þeir fylgjast með honum á vellinum. Hann fæddist í grísku borginni Ver- ia og hóf að leika með körfuknatt- leiksliði borgarinnar, Filippos Veri- as, fyrir aðeins fimm árum. Hann lék með unglingaliðinu í þrjú ár, en var síðan valinn í aðalliðið, sem leik- ur í fjórðu deildinni í Grikklandi, eins og fram kom í orðum Grikkj- ans. Allir viija sigra okkur Sumir körfuknattleiksáhugamenn á íslandi eru þeirrar skoðunar að Wilson, Tsartsaris og Helgi Jónas Guðfinnsson séu nógu góðir saman til að færa Grindvíkingum íslands- meistaratitil í vor auk bikarmeist- aratignarinnar nk. laugardag upp á eigin spýtur. „Það er of snemmt að segja nokkuð um það núna. Auk þess eru fimm leikmenn inná í hvoru liði, en ekki þrír,“ áréttar Gríkkinn. Kom mér á óvart DARRYL Wilson segir félaga sinn, Konstantinos Tsartsaris, mjög efnilegan og eiga mögu- leika á að verða að prýðisgóðum leikmanni á heimsmælikvarða. „Eg tel að hann geti orðið nyög góður leikmaður, því hann er aðeins átján ára og er mjög hæfileikaríkur. Hæfni hans kom mér á óvart - hann getur skor- að þriggja stiga körfur, hefur nyög góðar hreyfingar undir körfunni, er mjög sterkur varn- armaður og getur varið mörg skot. Hann getur nánast alit og verður örugglega frábær leik- maður.“ En hvern telur Wilson besta erlenda leikmanninn hér á landi, að leikmönnum Grinda- vikurliðsins frátöldum? „Hér eru margir góðir leikmenn, en ef ég á að velja einhvern sér- stakan er það Sherrick Simpson [Haukum],“ sagði Darryl Wilson er Morgunblaðið spurði hann hvaða erlendi leikmaður honum þætti skara framúr hér á landi, ef Grindavíkurliðið væri frá- talið. „Hann getur leikið undir körfunni eða fyrir utan, er mik- ill íþróttamaður og getur skap- að félögum sinum skotfæri. Damon Johnson [Akranesi] er einnig nyög snjall og er mikil- vægur liði sínu eins og Simpson. Báðir er íjölhæfir, geta skorað þriggja stiga körfur, eru leiknir með boltann og góðir varnar- menn. Þessir tveir eru bestu leikmenn deildarinnar, að mínu mati, en vissulega má ekki gleyma Warren Peebles hjá Val. Hann hefur reynst sínu liði mjög dýrmætur og lék mjög vel gegn okkur í undanúrslitum bikarkeppninnar," segir Wil- son. Morgunblaðið/Þorkell Troðið með tilþrifum TSARTSARIS treður í fyrsta deildarleik sínum með Grindavík, sem var í Keflavík hinn 20. nóvember sl. Grikkfnn gerði átján stig I frumraun sinni á íslandi. Darvyl Wilson um Tsartsaris? Dreymir um að leika í NBA-deildinni Wilson segir körfuknattleik flókn- ari íþrótt en svo að telja megi að Gr- indvíkingar eigi íslands- og bikar- meistaratitilinn vísan. „Körfubolti er tilviljunarkennd íþrótt, sem snýst mikið um að menn séu vel upplagðir. Auk þess er heppni þung á metun- um. Það er aldrei að vita hver mun eiga góðan dag eða slæman og menn eiga alltaf á hættu að meiðast. Við erum með þrjá mjög góða leikmenn, en þetta er hópíþrótt og það eru fimm menn í hvoru liði á vellinum samtímis. Önnur lið hafa ef- laust orðið vör við þetta hugarfar fólks, að við hljótum að vinna. Það verður til þess að þau leggja sig meira fram en ella þegar þau mæta okk- ur. Allir vilja sigra okkur. Auk þess erum við ekki eina liðið í úrvalsdeildinni sem hefur góða leikmenn innan- borðs,“ segir Bandaríkjamaðurinn. Hlaupið og skotið Wilson hefur mikla reynslu af bandarískum körfuknattleik, bæði í menntaskóla og háskóla, og hefur nú fengið að kynnast íþróttinni í öðrum löndum. Hvern telur hann helsta muninn á leikaðferðum bandarískra skólaliða og þeirra sem leika í ís- lensku úrvalsdeildinni? „A.m.k. í þeirri deild sem ég lék í var meginá- herslan lögð á varnarleik. Þar var hugarfarið þannig: „Vörn, vörn, vörn . . . engin mistök." Einbeiting var einnig mikilvægur þáttur í leikn- um. Það sama gildir um íslenskan körfuknattleik, nema að hér er meira lagt upp úr hraðaupphlaupum og langskotum. I háskóladeildinni heima voru mjög margir góðir há- vaxnir leikmenn og boltinn var sendur til þeirra undír körfuna í hverri sókn. Þannig gekk boltinn aftur út og síðan undir körfuna á ný - beðið átekta. Ég lék t.d. með miðherja sem leikur nú í NBA-deildinni, Erick Dampier, og vitaskuld var alltaf gef- ið á hann og beðið, en hérna er bara hlaupið og skotið. Það er gaman og ekki ósvipað þeim leikstíl sem ég átti að vepjast í menntaskóla. Það er svolítið skemmtilegt að hverfa aftur til menntaskólaáranna, ef þannig má að orði komast," segir Wilson. Tsartsaris lék mun hægari körfuknattleik í Grikklandi en geng- ur og gerist hér á landi. „Við lékum langar sóknir og leituðum að hent- ugustu lausninni. Fyrir vikið voru ekki mörg stig skoruð í leikjunum,“ segir Grikkinn. Las greinar um veðrið Við hverju bjuggust kappamir tveir eru þeir hugðust leggja leið sína til íslands? „Eg vissi ekki við hverju ég átti að búast. Ég sagði bara: „farðu!“ við sjálfan mig. Af nafni landsins að dæma, gerði ég ráð fyrir að hér væri kalt, sem reyndist auðvitað rétt. Ég reyndi því að hafa eins mikið af hlýjum fatnaði með- ferðis og ég gat. En mér hefur ekki orðið meint af,“ segir Wilson. Tsartsaris segist ekki hafa vitað neitt um ísland þegar Benedikt þjálfari bauð honum að leika með Grindavík. „Ég leit bara á landakort og leitaði að landinu. Mér leist ágæt- lega á að fara þangað og sló til. Ég las grein um veðrið á Norðurlöndum og þar kom fram að það væri í raun- inni ekki jafn kalt á Islandi yfir vetr- artímann og á hinum Norðurlöndun- um, t.d. Noregi og Grænlandi. Mér leið strax betur við það.“ Hvað gerið þið á daginn, þegar þið eruð ekki á æfmgu með liðinu? „Við æfum upp á eigin spýtur í íþróttahúsinu á morgnana, lyftum lóðum, gerum skotæfingar og ég þróa hreyfingar mínar undir körf- unni. Síðan er slakað á, við horfum á bíómyndir eða eitthvað slfkt,“ segir Tsartsaris. Wilson segist lesa mikið í frí- stundum auk þess að „heimsækja stundum vini mína í herstöðinni," segir hann. Tsartsaris segist ætíð hafa verið hávaxinn miðað við aldur. „Ég var stór þegar ég fæddist," segir hann, en var honum nokkurn tíma ráðlagt að hefja körfuknattleiksiðkun vegna þess hve hávaxinn hann var? „Nei, nei! Ég byrjaði að spila körfubolta með vinum mínum á leikvöllunum'* og í skólanum. Ég fylgdist svolítið með NBA-deildinni í sjónvarpinu, en þá var alltaf sýndur einn leikur viku- lega. Chicago Bulls er mitt lið á þeim vettvangi, það er langbesta liðið og það breyttist sann- ariega ekki þegar Dennis Rodman kom þangað. Mér þykir hann mjög skemmtilegur leik- maður,“ segir Ts- artsaris. « Rodman er þó ekki fyrirmynd Grikkjans, hvað frammistöðu á vell- inum snertir, heldur Shaquille O’Neal, miðherji Los Angeles Lakers. „Ég vil hafa allt til brunns að bera, sem einkennir hans leik, nema þá helst vítanýtinguna [48,7% í vetur]. Hann er hræðileg vítaskytta. Ég tel mig þegar orðinn betri en hann á vítalín- unni.“ Óánægður hjá Filippos Fannst Tsartsaris ekki erfitt að taka þá ákvörðun að fara að heiman til að reyna að sanna sig? „Það var vitanlega stórt skref, en ég hafði þegar ákveðið að fara að heiman þegar Benedikt bauð mér að koma hingað, því ég var ekki ánægður hjá liði mínu í Grikklandi. Hinn mögu- leikinn var að fara til Bandaríkj- anna, en það gekk ekki.“ Hvernig stóð á þeirri löngu bið sem leið áður en þú fékkst loks að spila fyrsta leikinn hér á tsiandi? „Forráðamenn gríska Iiðsins vildu ekki veita mér leikheimild vegna þess að þeir sögðu að ég væri tán-*’ ingur og því eign þeirra. Þannig eru reglurnar í Grikklandi. Liðin „eiga“ leikmenn sem eru 21 árs eða yngri og þurfa ekki að gera samninga við þá. Loks féllst Grindavík á að greiða gríska liðinu einhverja upphæð og ég fékk leikheimild til loka apríl- mánaðar fyrir vikið, en síðan er ég skuldbundinn gríska liðinu aftur,“ segir Grikkinn, en hann lék fyrsta deildarleik sinn hinn 20. nóvember sl. í Keflavík og gerði þá átján stig. Frægir andstæðíngar Wilson hefur leikið gegn fjölda þekktra NBA-leikmanna, t.d. Ray Allen, Kitty Kittles, Antonioi McDyess, Jason Caffey, Tim Dunc- an o.fl. „Ég lék líka gegn Kobe Bryant í „sumardeildinni" svoköll- uðu [Summer League].“ Hver hefur þér þótt erfíðastur viðureignar? „Mér var eitt sinn falið að hafa gætur á Ray Allen og það var erfítt, því hann er svo virkur. Ég hef nú ekki enn gefíð upp alla von um að leika í NBA-deildinni. Ég tel mig eiga möguleika á að komast þangað og vonandi á ég eftir að leika gegn öllum frægustu og bestu leikmönn- um heims. Það er mitt markmið," segir Wilson. Telurðu þig eiga góða möguleika áþví? „Það er aldrei að vita hvenær maður fær tækifæri til að sanna sig. Ég vona að ég verði heppinn og það eina sem ég get gert er að gera mitt besta - bíða og vona.“ Tsartsaris dreymir einnig um að Ieika í NBA-deildinni, en gerir sér grein fyrir því að leiðin þangað er þyrnum stráð. „Mig dreymir um að leika einhvern tímann í NBA-deiId- inni, en núna stefni ég að því að komast í giisku 1. deildina. Éf ég á kost á að komast lengra en það, er það vitaskuld af hinu góða, en ég held að það sé of snemmt að búast við einhverju slíku. Ef ég á kost á að taka SAT-prófíð [inntökupróf í bandaríska háskóla] fer ég í háskóla í Bandaríkjunum. Heldurðu að Filippos Verias sleppi þér svo auðveldlega? „Já, fyrstu deildarliðin í Grikk- landi geta boðið þá upphæð sem það vill fá fyrirmig." „Eg leit á landakort og leitaði að íslandi"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.