Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 5
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 B 5
ÍÞRÓTTIR
ístensk6
a>un4þi&'í6ni
|>ömb&nílið
AO\aSpsrt
SUND / INNANHUSSMEISTARAMOT ISLANDS
Morgunblaðið/Björn Blöndal
BRIAN Marshall, þjálfari Sundfélags Hafnarfjarðar, ásamt þeim Láru Hrund Bjargardóttur og Eml
Arnarssyni sem bæði settu íslandsmet á mótinu.
Þrjú íslands-
met féllu
„MÓTIÐ hefur tekist vel í alla staði og menn eru þegar farnir
að ræða um að halda það aftur hér að ári,“ sagði Sævar Stef-
ánsson, formaður Sundsambands íslands, í lok innanhúss-
meistaramóts íslands í 25 m laug sem fram fór í sundlauginni
á Keflavíkurflugvelli um helgina. Sævar sagði að á síðustu 10
árum hefði mótið verið haldið átta sinnum í Vestmannaeyjum.
Þar væri gott að vera en kostnaður væri mikill fyrir keppendur
og aðstandendur þeirra að fara til Eyja og því hefði verið
ákveðið að reyna nýja leið. „f sundhöllinni eru aðeins fjórar
brautir en hér eru þær sex sem gerir keppnina mikiu skemmti-
legri og ef við hefðum haft meiri tíma til undirbúnings hefðu
brautirnar getað orðið fleiri,“ sagði Sævar ennfremur.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
íris Edda Heimisdóttir
Efnilegur
Sandgerð-
ingur
SANDGERÐINGAR hafa hing-
að til ekki getað státað sig af af-
reksfólki í sundi. En nú kann að
verða breyting á því að 14 ára
stúlka úr Sandgerði, íris Edda
Heimisdóttir, hefur vakið at-
hygli manna fyrir góðan árang-
ur undanfarið í bringusundi og á
mótinu setti hún telpnamet í 200
m bringusundi. Fyrra metið átti
hún raunar sjálf sem hún setti í
haust en fyrra metið átti Lára
Hrund Bjargardóttir úr SH.
Iris Edda sagði að hún hefði
farið að æfa sund í Sandgerði
þegar þar byggð hefði verið
sundlaug í tengslum við íþrótta-
húsið þá 8 ára í 16,5 m útilaug.
Hún hefði síðan gengið til liðs
við Keflvíkinga þegar þjálfarinn
í Sandgerði hefði hætt.
Bringusund er sérgrein Irisár
Eddu. Hún sagðist hafa mikinn
áhuga á greininni og að hún ætl-
aði sér að komast í fremstu röð.
Markmiðið væri að komast á
stórmót eriendis og þar væru
Ólympíuleikarnir árið 2000 efst
á blaði.
Þrjú íslandsmet voru sett á
mótinu og eitt var jafnað - og
voru það keppendur úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar sem
Bjöm þar áttu hlut að máli.
Blöndal Óm Amarson setti
skrífar íslandsmet í 200 m
íjórsundi og síðan
jafnaði hann íslandsmetið í 50 m
skriðsundi og deilir því nú með
Magnúsi Má Ólafssyni sem setti
það árið 1992. Lára Hrund Bjarg-
ardóttir bætti eigið met í 400 m
fjórsundi og síðan setti sveit SH
met í 4 x 100 m fjórsundi karla.
Alls voru 120 keppendur á mótinu
frá 15 félögum. Flestir úr SH, 21,
og síðan komu 18 keppendur frá
Keflavík.
Bryan Marshall frá Birmingham
í Englandi hefur þjálfað hjá Sund-
félagi Hafnarfjarðar síðan í ágúst
árið 1996. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að stefnan væri að
eiga keppendur á Ólympíuleikun-
um árið 2000 og að hann væri
bjartsýnn á að það tækist. „Núna
æfa um 180 sund hjá félaginu og
raunar þyrftum við miklu stærri
laug. í þessum hópi eru margir
efnilegir sundmenn sem hafa rétta
hugarfarið og tíminn verður síðan
að skera úr um hvernig til tekst.“
Eðvarð Pór Eðvarðsson, sá
kunni sundkappi, þjálfai' nú lið
Keflavíkur en stjarna liðsins á und-
anfömum árum, Eydís Konráðs-
dóttir, var að keppa á danska
meistaramótinu um helgina þar
sem hún nú dvelur við æfíngar.
Bróðir Eydísar, Magnús, er hættur
og einbeitir sér nú að námi í lækn-
isfræði. Eðvarð Þór sagði að marg-
ir efnilegir sundmenn væm nú að
koma upp hjá sunddeildinni og ætti
Keflavík nú 5 fulltrúa í unglinga-
landsliðinu. Þá mætti nefna þær
írisi Eddu Heimisdóttur og Sunnu
Dís Ingibjargardóttur sem báðar
gætu náð langt.
„Mér finnst að nú sé minni
breidd og árangur í mörgum grein-
um sé lakari en í mótum síðustu
ára. Skýringin er flókin en ég vil
benda á að af 120 keppendum em
þrír 20 ára og eldri,“ sagði Guð-
mundur Harðarson, fyrram sund-
kappi og landsliðsþjálfari. Hann
sagði að unglingar gætu æft á með-
an þeir væra við nám en eftir að
námi lyki væru flestir sem hættu
og það væri ein af skýringunum á
hversu lágur meðalaldurinn væri í
sundinu. Þetta væri áhyggjuefni
þar sem sundmenn gætu verið á
hátindi sundferils síns um 25 ára
aldur.
Áhugi á að halda mótið
á sama stað að ári
Birgir Ingibergsson mótsstjóri
sagði að mótið hefði gengið vel.
Hann sagði að flestir keppendur
hefðu verið af höfuðborgarsvæðinu
og þeir sem ættu lengst að fara
kæmu frá Akureyri og Vestmanna-
eyjum. Menn hefðu verið að tala
um að ekki væri hægt að synda
eins hratt í lauginni og sundlaug-
inni í Vestmannaeyjum, en að hann
væri ekki á sama máli og þar mætti
benda á þau Islandsmet sem sett
hefðu verið á mótinu. Birgir sagði
að þegar væri kominn fram áhugi á
að halda mótið á sama stað að ári
og hefði verið tekið jákvætt í þá
hugmynd. _________________________
■ tirslit / Bll
STANGARSTÖKK
Enn bætir
George
heims-
met sitt
„ÉG hafði það ekki í huga fyrir
keppnina að slá heimsmetið," sagði
Emma George, heimsmethafí í
stangarstökki kvenna utanhúss eftir
að hún hafði bætt eigið met um 1 em
á móti Brisbane í heimalandi sínu,
Ástralíu. „Ég kom afslöppuð til leiks
því ég keppti meira í gamni en al-
vöru. Leiddi hugann framan af ekk-
ert að því að bæta heimsmetið.
Þetta var í tíunda sinn sem George
setur heimsmet í stangarstökki utan-
húss frá árinu 1995. Daniéla Bartova
frá Tékklandi hefur einnig sett tíu
heimsmet í stangarstökki utanhúss
en ekkert þeirra sl. ár, en George er
23 ára gömul. Síðast bætti hún eigið
met utanhúss 14. mars sl.
Þróun
metsins
4,05 Sun Caiyun (Kína) 21.5/92
4,06 Sun 25.3/95
4,08 Sun 18.5/95
Zhong Guiqing (Kína) 18.5/95
4,10 Daniela Bartova (Tékk.) 21.5/95
4,12 Bartova 18.6/95
4,13 Bartova 24.6/95
4,14 Bartova 2.7/95
4,15 Bartova 5.7/95
4,16 Bartova 14.7/95
4,17 Bartova 15.7/95
4,18 Andrea Miiller (Þýskal.) 5.8/95
4J20 Bartova 18.8/95
4,21 Bartova 22.8/95
4,22 Bartova 11/9/95
4,23 Sun 4.11/95
4,25 Emma George (Ástr.) 30.11/95
4,28 George 17.12/95
4,41 George 28.1/96
4,42 George 29.6/96
4,45 George 14.7/96
4,50 George 8.2/97
4,55 George 20.2/97
4,57 George 212/98
4,58 George 14.3/98
4,59 George 21.3/98
Bjarki
með
tíu mörk
BJARKI Sigurðsson lék vel er
Drammen vann stórsigur á
Heimdal, 37:22, í noi-sku 1.
deildinni í handknattleik á
heimavelli á sunnudaginn.
Bjarki skoraði tíu mörk og var
aðahnaðurinn í sókn Iiðsins, sem
hefur leikið vel upp á síðkastið.
Þá var markvörðurinn Andreas
Lindquist vel á verði í marki
liðsins. Drammen var yfir allan
leikinn. Sigurimi var liðinu mik-
ilvægur til þess að Iialda fjórða
sætinu í deildinni en liðin í 4. til
7. sæti leika í lok tímabilshis um
sæti í Borgakeppni Evrópu
næsta vetur.
í uppgjöri efstu liða vami
Sandefjord næstu nágranna
sína, Runar, 29:24. Þar með er
Sandefjord í efsta sætinu með 36
stig að loknum 21 leik.
Larvik, liðið sem Kristján
Halldórsson þjálfari í úrvals-
deild kvenna í Noregi, tapaði
um helgiua 31:24 fyrir Nord-
strand. Þar með minnkuðu veru-
lega líkur liðsins á að veija
meistaratitilinn því Byásen held-
ur sínu striki og er nú með
þriggja stiga forystu. Tap Lar-
víkur var annað tap liðsins á
skörnmu tíma en fjórir lykil-
menn hafa ekki leikið með upp á
síðkastið vegna meiðsla.
Tertens, lið Fanneyjar Rún-
ai-sdóttur markvarðar, gerði
jafntefli við Selbu á útivelli,
26:26, og siglir lygnan sjó f
fjórða sæti deildarinnar, Qórum
stigum á eftir Bækkelaget en
fímm stigum á undan Selbu.