Morgunblaðið - 07.04.1998, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
■ fimmta skip tið í úrslitin
1 QAQ Úrslitakeppni: ? - Undanúrslit. 2:1 KA ? ?
1 QQ7 Úrslitakeppni: - 3:1 Afturelding ■ Undanúrslit. - Fram hefur ekki fyrr
1 QQfi Úrslitakeppni: 3:1 KA 1:3 Valur Undanúrslit. 2:1 Afturelding leikið í úrslita- keppninni.
1 QQR Úrslitakeppni: 3:2 KA 2:3Valur 99® Undanúrslit. 2:0 Afturelding ren ui i ‘f noa ursnium í fyrra eftir tap gegn Afhgp|dingu
1 QQA Úrslitakeppni: 3:1 Haukar - Undanúrslit. 2:1 Selfoss - Fram lék í 2. deild 1995-96.
1 QQ4 Úrslitakeppni: 3:1 FH - Undanúrslit. 2:0Selfoss 1:3 Valur
1 AAA Úrslitakeppni: - - írwfc Undanúrslit. - 3:1 Selfoss Fyrsta úrslitakeppnin með þessu sniði
■ GUÐJÓN Árnason hefur leikið
600 leiki fyrir meistai-aflokk FH í
handknattleiks og fékk af því tilefni
blómvönd frá félaginu fyrir leik FH
og Fram á sunnudaginn. Hefur Guð-
jón hefur leikið fleiri leiki fyrir
meistararflokk FH en nokkur annar.
■ BERGSVEINN Bergsveinsson
landsliðsmarkvörður hefur endur-
nýjað samning sinn við Aftureldingu
og leikur með félaginu næstu tvö ár.
■ ÞÁ er ljóst að Skúli Gunnsteins-
son þjálfar Mosfellinga á næsta
keppnistímabili a.m.k. en félagið
gerði við hann þriggja ára saming í
fyrra sem vilji er fyrir að standa við
af beggja hálfu.
■ „VIÐ höfum engan hug á að leggja
stein í götu Einars Einarssonar vilji
hann taka að sér þjálfun Stjörnunn-
ar,“ sagði Jóhann Guðjónsson for-
maður handknattleiksdeildar UMFA
í samtali við Morgunblaðið en
orðrómur hefur verið um að Einar
sem var aðstoðarþjálfari og leikmað-
ur UMFA haldi í heimahagana og
taki við starfí Valdimars Grfmsson-
ar.
■ HÖRÐUSTU stuðningsmenn KR
fóru uppá Skaga á sunnudag til að
fylgjst með leiknum gegn ÍA í und-
anúrslitum úrvalsdeildarinnar í
körfuknattleik. Einn þeirra sagðist
hafa boðið konunni sinni með en hún
afþakkað því hún hefði aldrei séð KR
sigra á Akranesi og þá var hún ekki
bara að tala um körfuknattleik!
■ BJARNI Magnússon fór fyrstur í
frí af leikmönnum IA því hann fékk
sína fimmtu villu þegar 47 sekúndur
voru eftir af leiknum.
■ KEITH Vassel, leikmaður KR,
skiptir ört um peysu. í fyrsta leikn-
um við IA sem fram fór á Seltjarnar-
nesi lék hann í treyju númer 4 og
það gerði hann einnig í þriðja leikn-
um. í öðrum leiknum, sem leikinn
var á Akranesi var, hann í treyju
númer 9 og á sunnudag var hann
númer 6!
■ RÚSSNESKI sóknarmaðurinn
Oieg Veretenikov gerði fímm mörk
er Rotor Volgograd vann Shinnik
Yaroslavl 6:2 í rússnesku 1. deildinni
í knattspymu. Hann hafði gert
þrennu eftir hálftíma og bætti tveim-
ur mörkum við síðustu tíu mínútur
leiksins. Deildin er nýbyrjuð en Ver-
etenikov virðsit samt á góðri leið
með að tryggja sér markakóngstitil-
inn því hann gerði þrennu í síðasta
leik.
■ KLAUS Augenthaler, fyrrum
landsliðsmaður Þýskalands, endur-
nýjaði samning sinn við austurríska
liðið Granz AK um helgina. Augent-
haler hafnaði tilboðum frá þýskum
liðum. „Það er mjög krefjani að
þjálfa í Þýskalandi og ég held það sé
aðeins of snemmt fyrir mig að fara
þangað," sagði Augenthaler.
■ PAUL Tergat heimsmethafi í
10.000 m hlaupi frá Kenýja náði á
laugardaginn besta tíma sem náðst
hefur í hálfmaraþoni karla, en ekki
er skráð heimsmet í greininni. Ter-
gat hljóp á 59,17 mínútum, en áður
hafði Portúgalinn Antonio Pinto
hlaupið best á 59,43 mín.
■ PETER Nicol frá Bretlandi vann
Jansher Khan í úrslitum Opna
breska mótsins í skvassi, 17:16, 15:4,
15:5 og var fyrsti Bretinn í 25 ár til
þess að vinna gullverðlaun á mótinu.
Khan hafði unnið mótið í sjö ár í röð
og hefur verið fremstur skvass-
manna í heiminum allt þar til Nieol
velti honum úr sessi í efsta sæti
heimslista skvassmanna á dögunum.
Þá hafði Khan verið í efsta sæti í
hálft fímmta ár.
EGG
■%iltur á ritstjórninni endurtók
■ nvað eftir annað í gær að
Valur og PH kæmu til með að
leika um íslandsmeistaratitilinn
í handknattleik karla. Spurður
hvaða lið yrðí íslandsmeistari
þegar Valsmenn voru tveimur
mörkum yfir í fyrri hálfleik
framlengingarinnar
fyrir norðan í gær-
kvöldi stóð ekki á
svarinu: „Valur. Nei,
annars, ég spáði FH
sigri um daginn og
verð að standa við
það.“ í kvöld fæst úr því skorið
hvort bikarmeistarar Vals mæta
Fram eða FH í úrslitum, en fyr-
ir liggur að íslandsmeistarar og
deildarmeistarar KA eru úr leik.
Á tímum ferminga má geta
þess að ungu strákarnir í boltan-
um voru ekki fermdir þegar
menn eins og Páll Björgvinsson,
Steinar Birgisson, Kristján Ara-
son, Sigurður Valur Sveinsson,
Guðmundur Þórðarson, Sigmai-
Þröstur Óskai-sson, Erlingur
Kristjánsson og Jón Kristjáns-
son voru upp á sitt besta. Áratug
eða áratugum síðar eru þessir
nafngi-eindu menn enn upp á sitt
besta í aðalhlutverld, lykilmenn í
liðum sínum, skrefum framai- en
lærisveinarnir. Samt sem áður
em þeir langt frá þvf að vera
eins öflugir og þeir voiu á árum
áður, sem segir meira um spor-
göngumennina.
í flokkaíþróttum hljóta fé-
lagsmenn að vera með í þeim
tilgangi að komast í liðið með
það í huga að styrkja það og
efla. Lengi vel hættu menn á
besta aldri, á milli tvítugs og
þrítugs. Stundum vegna
meiðsla, stunduin vegna þess að
þeir voru ekki nógu góðir en
oftast vegna fjölskyldunnar og
stritsins við að eiga í sig og á.
Nú virðist ekkert koma í veg
fyrir að menn hætti nema
meiðsl. Það er að sjálfsögðu hið
besta mál fyrir viðkomandi,
heldur þeim ungum í anda,
hraustum og sterkum, en það er
á vissan hátt niðurlægjandi fyr-
Iþróttir fyrir alla,
keppni og atvinnu-
mennska eins?
ir til þess að gera nýfermda og
vel klippta að vera í skugga
blómabarnanna og annarra
nærri þeim þegar um keppni
þeirra bestu er að ræða.
Á hippatímabilinu léku menn
með hárband og ef rétt er mun-
að hrinti íþróttasambandið af
stað átaki um almenningsíþrótt-
ir í kjölfarið. Iþróttir fyrir alla
hafa fengið byr undir báða
vængi undanfarin misseri og er
það vel. Hins vegar hlýtur eitt-
hvað að vera að á hinum vængn-
um, á keppnishliðinni, þegar
fyrrverandi keppnismenn eru í
hópi fremstu manna þrátt fyrir
að hafa ekki keppt á meðal
þeirra bestu í sex ár, samanber
keppni í stórsvigi kaiia á skíða-
landsmótinu um helgina.
Þeir bestu, deildai-meistaram-
ir og íslandsmeistaramir, eru úr
leik í handboltanum og því verða
aðrir bestir innan skamms. Þrjú
lið eru í hattinum, en ef að líkum
lætur verða það aldursforset-
arnir sem gera gæfumuninn
hvort sem fyrmefnd spá gengur
eftír eða ekki. Hinir fara sjálf-
sagt í atvinnumennsku.
Steinþór
Guðbjartsson
Hvemig bregst skíðamaðurínn JÓHANN HAUKUR HAFSTEIN við öllu mótlætinu?
Aföllin
herða mig
JÓHANN Haukur Hafstein, skíðamaður úr Ármanni, hefur verið
mjög óheppinn í skíðamótum vetrarins. Þessi efnilegi skíða-
maður, sem hefur helgað sig skíðaíþróttinni undanfarin ár, fór
ekki varhluta af óheppninni á Skíðalandsmótinu sem lauk á
Akureyri í gær. Hann meiddist tveimur dögum fyrir mótið og
það háði honum í keppninni. Hann veiktist rétt áður en hann
átti að keppa á Ólympíuleikunum í Nagano í byrjun febrúar, var
veikur þegar heimsmeistaramót unglinga fór fram og skráning
á unglingameistaramót Noregs klúðraðist.
Jóhann Haukur er 19 ára og er
sonur Ingu Ástu Hafstein og
Péturs Kr. Hafstein. Hann á tvo
■■■■■■ bræður, Birgi Hákon
Eflir og Pétur Hrafn.
Jónatansson Hann byrjað að æfa
skiði 8 ara gamall a
ísafírði en fluttist til
Reykjavíkur þegar hann var 12
ára. Fór þá í KR og æfði með fé-
laginu í tvö ár en síðan hefur hann
keppt fyrir Armann. Hann hefur
verið í skíðamenntaskóla í Geilo í
Noregi og lýkur þaðan stúdents-
prófí í vor.
„Eg átti mér fjögur markmið
fyrir þennan vetur. Það var að
standa mig vel á Ólympíuleikun-
un, heimsmeistaramóti unglinga,
norska unglingameistaramótinu
og síðan á Skíðamóti íslands.
Þetta hefur allt hrunið og farið í
vaskinn. Það er með ólíkindum
hvernig þessi vetur hefur verið
hjá mér.“
Hefur þú náð að bæta punkta-
stöðuna frá þvíí fyrra?
„Já, ég hef bætt mig verulega í
risasvigi. Ég er hins vegar á svip-
uðu róli í stórsviginu og í fyrra.
Eg hef að vísu ekki komist niður
eitt einasta stórsvigsmót frá því í
janúar og aðeins komist niður í
tveimur svigmótum af tólf í vetur.
Ég hef átt mjög góðar fyrri um-
ferðir, en fallið svo út í þeim
seinni. Það er ekki nægilega
gott.“
Hefur þú einhverja skýringu á
þessum óförum þínum?
„Ég held að þetta séu fyrst og
fremst breytingar á tækni og
hraða hjá mér. Eg keyri hraðar en
áður og það tekur tíma að venjast
Morgunblaðið/Golli
JÓHANN Haukur Hafstein datt illa tveimur dögum fyrir lands-
mótið og andlit hans ber þess greinilega merki.
hraðanum. Ég tel mig vera búinn
á ná ágætum tökum á tækninni,
en vantar að ná tökum á hraðan-
um.“
Er ekki slæmt fyrír sjálfs-
traustið þegar svona illa gengur?
„Það hefur auðvitað verið mikið
mótlæti í vetur og það er oft erfitt
að sætta sig við það. En ég held að
þessi áfóll herði mig þegar til
lengri tíma er litið. Það verða allir
íþróttamenn að ganga í gegnum
mótlæti og nú getur þetta ekki
annað en legið upp á við. Annars
get ég ekki annað en hlegið að
þessu eftir á.“
Þú ert ekkert á því að láta þetta
buga þig og ætlar að halda áfram
af fullum krafti?
„Já, ég er alls ekki hættur og
kem tvíefldur til leiks næsta vet-
ur. Ég verð áfram erlendis við æf-
ingar. Það er ekki alveg ljóst hvar
landsliðið verður með æfingaað-
stöðu, en það er verið að vinna í
því þessa dagana. Ég stefni að því
að taka þátt í Evrópubikarmótun-
um næsta vetur og langtíma
mai’kmiðið er auðvitað þátttaka í
heimsbikarnum.“
Nú hefur Kristinn Björnsson
troðið brautina fyrír ykkur þessa
yngrí, gefurþaðþér byr íseglin?
„Já, hann er búinn að gera góða
hluti fyrir skíðaíþróttina hér á
landi. Við komum til með að njóta
góðs af því. Það er mikið til honum
að þakka að við hin í landsliðinu
höfum fengið skíðafót og annan
útbúnað. Hann hefur komið ís-
landi á kortið. Árangur hans er
hvatning fyrir okkur.“