Morgunblaðið - 07.04.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 7. APRÍL 1998 B 3
Morgunblaðið/Golli
ÞRÍR Valsaranna sigurreifir eftir sigurinn á KA á Akureyri f gærkvöldi, enda höfðu þeir ærna ástæðu til að fagna því Valur leikur til úr-
slita f fimmta skipti á sex árum. Frá vinstri: Davíð Ólafsson, Jón Kristjánsson leikmaður og þjálfarl og Valgarð Thoroddsen.
Valsmenn vængjum
þöndum í úrslitin
VALSMENN komu vængjum þöndum til Akureyrar og tryggðu sér
sæti í úrslitum eftir að hafa lagt íslandsmeistara KA 23:20 að
veili í æsispennandi framlengdum oddaleik í gærkvöldi. Að lokn-
um venjulegum leiktíma var staðan 18:18. Leikurinn bauð upp á
spennu allan tímann - spennu eins og hún gerist best. Gríðarleg
barátta gerði það að verkum að handboltinn var ekki í háum
gæðaflokki. Guðmundur Hrafnkeisson, markvörður og fyrirliði
Vals, fór fyrir sínum mönnum og varði eins og berserkur og það
gaf liðinu þá vítaminssprautu sem þurfti til að sigra.
Spennustigið í troðfullu KA-heim-
ilinu var rafmagnað enda mikið í
húfi fyrir bæði lið - sæti í úrslitum.
■■■■■■■ KA-menn tóku það til
Vaiur B. bragðs að taka þjálfar-
Jóratansson ann Jón Kristjánsson
skrifar úr umferð frá fyrstu
mínútu. Það kom ekki í
veg fyrir það að Valur komst í 2:0.
KA-menn jöfnuðu í fyrsta sinn, 4:4,
eftir að Björgvin Björgvinsson hafði
gert þrjú mörk í röð. Liðin skiptust
síðan á að skora og munaði aldrei
nema einu marki fram að leikhléi, en
þá höfðu heimamenn yfír 10:9.
Halldór Sigfússon misnotaði víti á
upphafsmínútu síðari hálfleiks, skaut
í slá og yfir. Daníel jafnaði fyrir Val,
10:10 en þegar tíu mínútur voru liðn-
ar var Valur kominn með tveggja
marka forskot, 12:14. Þá kom Hilm-
ar Bjarnason inn fyrir Halldór í
stöðu leikstjómanda hjá KA. Hann
átti þátt í næstu fjórum mörk og allt
í einu voru heimamenn komnir með
forystu, 16:15.
Valsmenn gerðu einnig breytingu
á sínu liði þegar þarna var komið
sögu. Freyr Brynjarsson kom inn í
vinstra hornið fyrir Davíð Ólafsson
sem hafði ekki náð sér á strik. Hann
gerði þrjú mörk í röð og breytti stöð-
unni í 16:18 þegar fjórar mínútur
voru efir. KA-menn sýndu mikinn
styrk á lokamínútunum og náðu að
jafna, 18:18, úr vítakasti sem Hilmar
fískaði og skoraði sjálfur úr.
I framlengingunni sýndu Vals-
menn að þeir eru með sterkari taug-
ar. Þeir gerðu tvö fyrstu mörkin, en
Leó náði að laga stöðuna í 19:20 í lok
fyrri hálfleiks framlengingarinnar. A
fyrstu mínútu síðari hálfleiks fram-
lengingarinnar var Ingi Rafn rekinn
útaf og þá vaknaði von hjá KA.
Hilmar jafnaði úr víti, 20:20 og hélt
spennustiginu í hámarki. Sigfús
fiskaði síðan víti fýrir Val sem Jón
Kristjánsson skoraði úr þegar tvær
mínútur voru eftir. Yala missti bolt-
ann klaufalega í næstu sókn KA og
Valsmenn þökkuðu íyrir og Ari All-
ansson óð í gegn og kom Val í 20:22
þegar 45 sekúndur voru eftir. Sókn
KA fór í súginn og Jón Kristjánsson
innsiglaði sigurinn með marki yfír
endilangan völlinn, 20:23, um leið og
lokaflautið gall.
Valsmenn
vandanum vaxnir
Það er ekki annað hægt en taka
ofan fyrir Valsmönnum. Það hefur
verið mikill stígandi í leik liðsins.
Það er erfitt að leika í KA-heimilinu
fyrir framan öskrandi stuðnings-
menn heimamanna, en Hlíðarenda-
strákarnir voru vandanum vaxnir og
létu ekki slá sig út af laginu. Þeir
héldu vel á spilunum, sérstaklega í
lokin. Guðmundur Hrafnkelsson fór
á kostum í markinu og varði alls 24
skot, þar af 14 langskot. Þess má
geta að KA gerði aðeins 3 mörk úr
langskotum. Ingi Rafn Jónsson var
mjög öflugur í fyrri hálfleik og tók
þá við hlutverki Jóns Kristjánssonar
sem var klipptur út úr leiknum allan
tímann. Hann gerði fjögur mörk og
fískaði auk þess þrjú vítaköst. Inn-
koma Freys var líka hárrétt ákvörð-
un. Hann þakkaði traustið með því
að gera 4 mörk á þeim stutta tima
sem hann lék. Sigfús var einnig mjög
sterkur í vörninni og brást ekki á lín-
unni þegar hann fékk boltann.
Skytturnar brugðust
Skytturnar hjá KA, Goldin og
Yala, brugðust. Þeir reyndu allt of
oft skot úr erfiðum færum sem Guð-
mundur átti auðvelt með að verja.
Leó Örn var besti leikmaður liðsins,
skoraði sex mörk og fískaði eitt
vítakast. Hilmar Bjarnason lék
einnig vel þann tíma sem hann fékk
að vera með og Björgvin átti góðan
kafla í fyrri hálfleik, en ógnaði lítið
eftir það. Uppskeran hjá KA eftir
veturinn er deildarmeistaratitill og
verða þeir að gera sig ánægða með
það nú þegar þeir fara í sumarfrí.
SÓKNARNÝTING
Þriðji leikur liðanna í undanúrslitum,
leikjnn á Akureyri 6. apríl 1998
Mðrk Sóknir % ?. MdrK Sóknir %
10 25 40 F.h 9 23 39
8 22 36 S.h 9 22 41
2 8 25 Framl. 5 9 56
20 55 36 Alls 23 54 43
3 Langskot 8
3 Gegnumbrot 2
2 Hraðaupphlaup 4
5 Horn 2
3 Lína 3
4 Víti 4
EFTIR að hafa rutt þessari
hindrun úr vegi stefnum við á
tvöfaldan sigur, það verður gaman
^■■1 að ná í Islandsmeist-
ReynirB. aratitilinn því það er
E'rJkfa°n svo stutt síðan við
urðum endanlega bik-
armeistarar,“ sagði
Jón Kristjánsson þjálfari Vals eftir
leikinn í gærkvöldi. „Ég vissi að
þetta yrði erfíður leikur og að það
myndu ekki nema 1-2 mörk skilja
að leikslokum. Ég bjóst ekki við
því að þeir myndu taka mig úr um-
ferð allan leikinn. Ég reiknaði
reyndar með því að þeir myndu
gera það hluta leiksins en það tók
okkur nokkurn tíma að laga sókn-
arleik okkar að þessari vöm þeirra.
Þetta vai- bara spurningin um það
hvor hefði frumkvæðið í fram-
lenginunni og okkur tókst að ná
því,“ sagði Jón. „Það hafa líklega
ekki margir haft trú á því að við
næðum að sigra KA í þriðja leikn-
um hér fyrir norðan en það tókst
og ég er mjög sáttur.“
SÓKNARNÝTING
Annar leikur liðanna í undanúrslitum,
leikinn í Reykjavík 4. apríl 1998
Valur F KA
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
15 23 65 F.h 13 23 57
10 25 40 S.h 11 25 44
25 48 52 Alls 24 48 50
9 Langskot 9
2 Gegnumbrot 3
5 Hraðaupphlaup 3
2 Hom 1
6 Lína 5
1 Víti 3
Hörkuleikur
„Þetta var hörkuleikur“, sagði
Jóhann G. Jóhannsson fyrirliði KA
að leikslokum. „Þeir höfðu heppn-
ina með sér í framlengingunni
ásamt því að við fórum mjög illa að
ráði okkar í sóknarleiknum og því
fór sem fór. En Valsmenn átti síril-
ið að vinna og óska ég þeim til
hamingju."
Erfitt í sókninni
„Við reyndum allt sem við gát-
um,“ sagði Alti Hilmarsson þjálfari
KA eftir leikinn. „Það var ekki
mikill handbolti sem liðin léku í
kvöld, en þeim mun meira um bar-
áttu. Eins og yfírleitt þegar þessi
lið leika þá er það spurning hvorir
hafa heppnina með sér á lokamín-
útunum, það liðið sigrar. Hjá okkur
var sóknin vandamálið í kvöld; það
er óhætt að segja að sóknarleikur-
inn hafí verið vandamál, auk þess
sem við létum Guðmund í markinu
verja allt of mikið frá okkur."
Stefnum á tvö-
faldan sigur
Theódór
tryggði Val
aukaleik
THEÓDÓR Valsson tryggði
Valsmönnum oddaleik er hann
gerði sigurmark Vals 2
!■■■■■ sekúndum fyrir leiks-
Ivar Bene- lok, 25:24, er Valur og
diktsson áttust öðru
sinni á Hlíðarenda á
laugardaginn. Ekki
mátti miklu muna að KA-menn
bæru sigur úr býtum og aðeins
klaufaskapur þeirra undir lokin
kom í veg fyrir það. Þeir voru um
stund þremur leikmönnum íleiri,
náðu aðeins að vinna upp tveggja
marka forskot Valsmanna á þeim
tíma og brenndu af einu dauðafæri.
Heimamenn voru mikið öflugri í
fyrri hálfleik og virtust hafa öll ráð í
hendi sér. Sóknarleikur Vals gekk
greiðlega í gegnum galopna vöm
gestanna og vörn Valsara var all-
góð, en öðru fremur var það sóknar-
leikur KA sem brást. Éftir rúmar
23 mínútur voru heimamenn með
fimm marka forskot, 13:8. KA-menn
náðu að stoppa í götin í vörninni á
lokakaflanum og meiri ógnun kom í
sóknarleikinn við breytingar sem á
honum urðu. Karim Yala var settur
á bekkinn og Vladimír Goldin kom í
hans stað og Sverrir Björnsson
leysti Goldin af á vinstri vængnurp.
Þetta bar þann ávöxt að í hálfleik
munaði aðeins 2 mörkum, 15:13, Val
í hag.
Valsmenn byrjuðu síðari hálfleik
illa á sama tíma og KA héldu upp-
teknum hætti frá lokum fyrri hálf-
leiks. Gerðu þeir þrjú fyrstu mörkin
í hálfleiknum og náðu forystu í
fyrsta sinn, 16:15. Eftir það var
mikil barátta í báðum liðum og jafnt
á öllum tölum þar til Valsmenn
náðu tveggja marka forystu, 24:22,
þegar tæpar fímm mínútur voru eft-
ir. Skömmu síðar var Valgarð
Thorddsen, Valsmaður, rekinn af
leikvelli fyrir að því er virtist mis-
skilning við innkast. Ekki voru liðn-
ar nema 50 sekúndur frá því að Val-
garð fór út af er Ingi Rafn var send-
ur sömu leið að því er virtist fyrir
litlar sakir. Ellefu sekúndum síðar
var Sigfús Sigurðsson réttilega rek-
inn af leikvelli fyrir að taka um háls
Yala. Valsmenn voru því þremur
færri í eina mínútu og tveimur færri
í eina mínútu. Yala nýtti möguleik-
ann strax og minnkaði forskotið í 1
mark, 24:23, er tvær mínútur voru
eftir. Valsmenn misstu knöttinn
fljótlega enda sóknin þunnskipuð og
Jóhann G. Jóhannsson fékk dauða-
færi í hægra horni, vippaði yfír
Guðmund og framhjá markinu.
Ekki leið á löngu þar til Valsmenn
misstu boltann á ný og Leó Örn
Þorleifsson jafnaði þegar mínúta
var eftir, 24:24. Valsmenn sýndu yf-
irvegun í síðustu sókninni og fengu
menn sína inn á hvern af öðrum og
stilltu upp í sókn sem endaði sem
fyrr segir tveimur sekúndum fyrir
leikslok með góðu marki Theódórs
af línunni.
Þannig
vörðu þeir
Leikurinn í gærkvöldi:
Sigtryggur Albertsson, KA:
14(4) 5(1) langskot, 4(1), úr
horni, 3(2) af línu, 1 eftir
gegnubrot, 1(1) eftir hraða-
upphlaup.
Guðmundur Hrafnkeisson,
Val: 24(6) 14(2) langskot, 5(1)
úr horni, 3(1) eftir gegnubrot,
2(1) eftir hraðaupphlaup.
Leikurinn á laugardag:
Guðmundur Hrafnkelsson,
Val: 7 (4); 5 (2) langskot, 1(1)
úr horni, 1(1) af línu.
Sigtryggur Albertsson, KA: 9
(2); 4 (1) langskot, 1 gegn-
umbrot, 3 (1) úr horni, 1 af
línu.