Morgunblaðið - 17.04.1998, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Sjö helstu iðnríki heims þinga
Japanskur efnahagur
mikið áhyggjuefni
Washingfton, Tokýó. Reuters.
Stunginn
á slæm-
um stað
Jóhannesarborg. The Daily Telegraph.
SEIÐKARLAR hafa tjáð Nel-
son Mandela, forseta Suður-
Afrfku, að hann skuli búa sig
undir það versta eftir að bý-
flugnasveimur réðst á hann og
stakk hann á leyndum stað.
Býflugurnar komust inn um
opinn glugga á húsi, sem
Mandela á í átthögum sínum í
Transkei. Var hann þá að
koma úr baði og var að
þurrka sér. „Ég gleymdi því,
að það er best að standa graf-
kyrr eins og myndastytta en
greip þess í stað til eiturbrús-
ans. Það kunnu þær ekki að
meta og stungu mig allar
nokkuð fyrir neðan nafla,“
sagði Mandela.
Mandela varð raunar ekkert
meint af þessu en suður-
afrískir seiðkarlar segja, að
málið sé grafalvarlegt. Býfl-
ugurnar hafi verið fulltrúar
forfeðranna og árásin sé ills
viti. Því verði hann að grípa til
alls konar varúðarráðstafana,
slátra kú og geit og konurnar
í fjölskyldu hans verði að laga
sérstakan bjór. Að því búnu
skuli hann hella í sig ýmsum
lyfjum til að hreinsa líkama og
sál.
A FUNDI sjö helstu iðnríkja heims,
sem haldinn er í Washington, voru í
gær ræddar leiðir til að tryggja að
efnahagsvandi Asíuríkja hefði tak-
mörkuð áhrif á önnur ríki heimsins.
Verð á hlutabréfum í Japan lækkaði
nokkuð í gær í kjölfar þess að fund-
armenn brugðust vonum japanskra
stjórnvalda um að styðja við jap-
anska jenið.
Á fundi sínum í fyrradag höfðu
fjármálaráðherrar Bandaríkjanna,
Bretlands, Kanada, Frakklands,
Þýskalands, Ítalíu og Japans þau
skilaboð til japanskra stjórnvalda
að þau gætu ekki ætlast til of mikils
af öðrum ríkjum heldur yrðu sjálf
að grípa þegar í stað til nauðsyn-
legra úrbóta til að blása lífí í efna-
hag landsins. Ýmsir fjármálasér-
fræðingar í Japan sögðu hins vegar
í gær að fundarmenn hefðu sagt
nægilega mikið til að koma í veg
fyrir hrun jensins. „Yfírlýsingar
iðnríkjanna varðandi Japan voru í
samræmi við væntingar markaðar-
ins. Ef ekkert hefði verið minnst á
Japan þeim hefði jenið tekið algera
dýfu niður á við.“
Japanskir stjórnarerindrekar
með aðstoðarfjármálaráðherrans
Eisuke Sakakibara í broddi fylking-
ar sögðust þrátt fyrir allt ánægðir
með yfirlýsingu iðnríkjanna, sem
þeir töldu að útilokaði ekki sameig-
inlegt átak iðnríkjanna til að að-
stoða jenið. Þær yfirlýsingar virðast
hins vegar stangast á við orð Rob-
erts Rubins, ráðherra í bandaríska
fjármálaráðuneytinu, sem sagði á
blaðamannafundi að þessi möguleiki
hefði ekki einu sinni komið til um-
ræðu.
I yfírlýsingu iðnríkjanna kom
hins vegar fram að þau teldu efna-
hagsvandamál Japans alvarleg og
að þau hefðu aukist á undanförnum
mánuðum. Bæði Rubin og Domin-
ique Strauss-Kahn, fjármálaráð-
herra Frakklands, lýstu hins vegar
vonbrigðum sínum yfir því að hafa
ekki séð tillögur Japana um úrbæt-
ur.
EMU rætt í fyrsta sinn
Á fundi iðnríkjanna var drjúgum
tíma eytt í að ræða efnahagsvanda-
mál Japana. Önnur atriði sem voru
á dagskrá mættu afgangi en fundar-
menn lýstu þó stuðningi við áætlan-
ir til úrbóta á efnahagsvanda
Indónesíu og hvöttu indónesísk
stjórnvöld til að standa við loforð
sín um að hrinda þessum áætlunum
í framkvæmd, en þær eru liður í
samningi Indónesa við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn (IMF) um efna-
hagsaðstoð. Michel Camdessus,
framkvæmdastjóri IMF, sagðist á
þriðjudag sannfærður um að þessar
áætlanir myndu bera tilætlaðan
árangur.
Fjármálaráðherrarnir lögðu á
fundinum sérstaka blessun sína yfir
sameiginlegan gjaldmiðil Evrópu-
ríkjanna, sem taka á í notkun, og
sögðu að myntbandalag Evrópu-
ríkja myndi aðstoða í viðleitni
þeirra sem vilja ná stöðugleika á
fjármálamarkaði. Franski fjármála-
ráðherrann Strauss-Kahn sagði við
blaðamenn að nú hefði í fyrsta
skipti verið rætt að einhverju ráði
um tilkomu evrópska gjaldmiðilsins
á fundi iðnríkjanna. „Evrópubúar
geta þess vegna vera afar ánægð-
ir.“
Reuters
Fyrrverandi sérsveitarmaður
í her Norður-Kóreu
Her og yfir-
stétt fá matinn
Nýtt ráð við
bakteríum
Washington. Reuters.
NÝ AÐFERÐ í baráttunni við bakt-
eríusýkingar kann að leiða til þess að
hættan af svonefndum „ofurbakter-
íum“, sem engin lyf vinna á, verði
senn liðin hjá.
Naomi Balaban, og samstarfsfólk
hennar við Háskólann í Kalifomíu
hafa uppgötvað prótein sem stjórnar
framleiðslu allra eiturefna er gera
klasahnettlubakteríuna hættulega
og hafa fundið tvær aðferðir til að
hindra starfsemi þessa próteins.
Balaban og félagar vænta þess að
þetta geti komið í stað sýklalyfja.
Klasahnettlubakterían er algengasti
sýkingavaldur í Bandaríkjunum og
yfirleitt auðviðráðanleg með sýkla-
lyfjum. En aíbrigði, er standa af sér
lyfin, hafa orðið til og eitt þeirra
reynst sterkara en lyfið vankómýsín,
sem talið var síðasti möguleikinn á
vöm gegn „ofurbakteríum".
Balaban sagði unnt að koma í veg
fyrir að bakteríumar framleiddu eit-
urefnin er gerðu þær hættulegar, og
komast þannig hjá því að drepa þær,
svo sem gert væri með hefðbundnum
sýklalyfjum. Þar af leiðandi myndi
bakterían síður stökkbreytast og því
ekki mynda ónæmi gegn lyfjunum.
Seoul. The Daily Telegraph.
FYRRVERÁNDI foringi í her
Norður-Kóreu sagði í fyrradag, að
herinn og háttsettir embættismenn
í kommúnistaflokknum væru látnir
sitja fyrir um matvæli, sem alþjóð-
legar hjálparstofnanir og einstök
ríki sendu til landsins.
Fregnir af hungruðum er
leggjast á lík
Lee Kwang-soo er nú foringi í
suður-kóreska sjóhemum en var
áður í sérsveitum norður-kóreska
heraflans. Segir hann, að þá hafi
hann nærst á matvælum og gengið
í fatnaði frá erlendum hjálpar-
stofnunum. Hins vegar hafi sumir
kunningja sinna, sem unnu í skot-
færaverksmiðju, verið svo mátt-
famir af hungri, að þeir hafi ekki
komist til vinnu sinnar. Lee kveðst
vera sammála þeim fréttum frá
samtökunum Læknum án
landamæra, að sums staðar hafi
hungrið rekið fólk til að leggjast á
lík.
„Hjálpin berst ekki til almenn-
ings, heldur til embættismanna
flokksins og hersins. Stjórnin veit
sem er, að fái hermennirnir ekki
mat, er öllu lokið fyrir henni.“
Fyrstu eiginlegu viðræður
Kóreurikjanna fóm út um þúfur í
Peking fyrr í vikunni og strönduðu
á þeirri kröfu S-Kóreumanna, að
sundmðum fjölskyldum yrði leyft
að sameinast. Tilgangur N-Kóreu-
manna með viðræðunum var að
biðja um meira en 500.000 tonn af
áburði frá suðurhlutanum.
Hungurs-
neyð í
Súdan
HUNGURSNEYÐ er nú í Afr-
íkuríkinu Súdan og beið þetta
vannærða barn eftir matarbita í
hjálparskýli í fyrradag. Hjálp-
arstofnanir segja þúsundir
manna í bráðri lífshættu ef ekki
komi til aukin aðstoð erlendra
ríkja.
-----*-*-•---
Fresta rétt-
arhöldum
yfír Botha
George í S-Afríku. Reuters.
RÉTTARHÖLDUM yfir P.W.
Botha, fyrmm forseta S-Afríku,
var frestað í gær til 1. júní næst-
komandi en Botha er nú fyrir dómi
fyrir að hafa hunsað skipanir um
að mæta fyrir Sannleiks- og sátta-
nefndinni svokölluðu.
Fresturinn kemur í kjölfar vitn-
isburðar Paul van Zyls, aðalritara
Sannleiks- og sáttanefndarinnar,
þar sem hann sagði nefndina vilja
láta Botha svara ásökunum þess
efnis að ríkisstjórn hans hefði á
sínum tíma af ásetningi framið
mannréttindabrot til að viðhalda
aðskilnaðarstefnunni milli hvítra
manna og svartra.
„Höldum áfram“
Lögfræðingur Bothas sagði
frestinn „algerlega óviðunandi" því
yrði til þess að ósannaðar ásakanir
á hendur Botha yrðu á allra vömm.
Vitni heyrðu Botha segja við
Lappe Laubscher, lögfræðing sinn,
að réttarhöldin yrðu að halda
áfram. „Þetta mál átti aðeins að
vera fjóra daga fyrir rétti. Svona
nú, höldum áfram.“
Áætlað var að ljúka réttarhöld-
unum á fóstudag en þau hafa dreg-
ist á langinn og sagði dómarinn,
Victor Lugaju, frestun óumflýjan-
lega, þrátt fyrir að hún væri afar
bagaleg, þar sem fulltrúar réttar-
ins og lögaðilar gætu ekki sinnt
málinu að fullum krafti fyrr en í
júní.
Karadzic
ekki
ábyrgur?
FRANSKA dagblaðið Le
Monde sagði frá því í gær að
lögfræðingar Radovans
Karadzic, fyrmm leiðtoga
Bosníu-Serba í átökunum á
Balkanskaga, væm að íhuga
að veija Karadzic fyrir Mann-
réttindadómstólnum í Haag
með því að halda því fram að
hershöfðinginn Ratko Mladic
og Slobodan Milosevic, forseti
Bosníu, bæm í raun meiri
ábyrgð á meintum fjöldamorð-
um í Bosníustríðinu. Því er
spáð að Karadzic gefi sig brátt
fram.
Morðvopns
leitað í
Stokkhólmi
KAFARAR munu á mánudag
hefja leit í vötnum í miðborg
Stokkhólms að byssunni sem
sænski forsætisráðherrann
Olaf Palme var myrtur með
árið 1986. Forsvarsmenn
þessa einkaframtaks telja lík-
legt að morðingi Palmes hafi
fleygt morðvopninu í einhver
vatnanna á leið frá morð-
staðnum en lögreglan í Stokk-
hólmi hefur hingað talið að
slík leit væri ólíkleg til að
skila árangri.
Líkklæðin til
sýnis
KUFLINN sem lengi hefur
verið talinn vera líkklæði Jesú
Krists verð-
ur til sýnis í
dómkirkju
Tórínó-
borgar á
Italíu frá og
með 19.
apríl næst-
komandi.
Líkklæðin
hafa verið
geymd í silfurkistli í kirkjunni
síðan 1694 og var naumlega
bjargað úr eldsvoða í fyrra.
Fyrirsát í
Rússlandi
FJÓRIR háttsettir foringjar í
rússneska hemum, þar af einn
hershöfðingi, voru myrtir í
fyrirsát skammt frá Mozdok á
Kákasussvæðinu í gær en þar
ráku Rússar stærstu herbæki-
stöðvar sínar í stríðinu við
Tsjetsjeníu.
Sergej Stepashín, innanrík-
isráðherra Rússlands, kvaðst
telja að hér væri á ferðinni til-
raun róttæks foringja í upp-
reisnarher Tsjetsjeníu til að
skemma fyrir viðkvæmum
friðarviðræðum í Moskvu um
framtíð Tsjetjseníu.
Sprengja í
Svíþjóð
SPRENGJA sprakk fyrir ut-
an veitingastað í suðurhluta
Helsingborgar í Svíþjóð
snemma í gærdag og taldi lög-
reglan á staðnum að atburður-
inn væri þáttur í deilum mót-
orhjólagengja sem staðið hafa
um nokkurt skeið. Engin
meiðsl urðu á mönnum.