Morgunblaðið - 17.04.1998, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
KOSNINGAR ’98
Sveiflujöfnim
í hagkerfínu
SVEIFLUJOFN-
UN er jafnan ofarlega
á baugi í tali stjóm-
málamanna um efna-
hagsmál hér ó landi.
Oftast er fjallað um
hagsveiflur eins og
þær séu náttúrafyrir-
bæri sem maðurinn
fær ekki ráðið við
frekar en jarðskjálfta
eða eldgos og að eina
ráðið til að verjast
þeim sé að búa til sér-
staka sjóði sem þá sé
hægt að ganga á þegar
illa árar. Hér á íslandi
hafa slíkir sjóðir verið
sérstaklega vinsælir í gegnum tíð-
ina. Reynslan af þeim sem hag-
stjómartæki hefur aftur á móti ver-
ið slæm. Sannleikurinn er sá að
hagsveiflur era alls engin óviðráð-
anleg náttúrafyrirbæri. Á síðustu
áratugum hefur þekking manna á
því hvernig hægt er að koma i veg
fyrir hagsveiflur aukist hröðum
skrefum. Og þar sem hagstjórn hef-
ur notað sér þessa Jsekkingu sjást
þess glögg merki. Á íslandi hefur
hagstjóm til dæmis breyst það mik-
ið til hins betra á síðustu 15 árum að
fullyrða má að ekki verði nærri þvf
eins miklar sveiflur í þjóðarbú-
skapnum á næstu áratugum.
Heistu breytingarnar era tvær.
Annars vegar sáu menn að tak-
marka þurfti aðgang að auðlindum
lands og sjávar til þess að koma
mætti í veg fyrir ofnýtingu þeirra.
Helsta dæmið er auðvitað sjávarút-
vegurinn, þar sem komið var á
kvótakerfi um miðjan siðasta áratug
og síðan mótaðar reglur sem
tryggja viðunandi vöxt fiskistofn-
anna. Þetta fyrirkomulag á að koma
í veg fyrir hagsveiflur af völdum
aflabrests. Á síðustu árum hafa
menn síðan áttað sig betur á því að
hagkvæmasta leiðin til að takmarka
aðgang að auðlindum er
að eignarréttur að þeim
sé vel skilgreindur. Það
hefur hins vegar enn
ekki skapast sátt um
það í þjóðfélaginu hvort
hér eigi að ríkja sér-
eignarfyrirkomulag eða
þá að auðlindir þjóðar-
innar eigi að vera þjóð-
nýttar.
Hin helsta breytingin
á hagstjórn hér á landi
sem gerir það að verk-
um að hagsveiflur verða
líklega minni í framtíð-
inni er sú að skilningur
á yfirstjórn peninga-
mála hefur aukist til muna. Hér
vantar þó nokkuð á. Það er hlutverk
seðlabanka að sjá hagkerfi fyrir
hæfílega miklum peningum til þess
Það er ljóst, segir Jón
Steinsson, að ákvarðan-
ir Seðlabanka Islands
um peningamál eru af-
skaplega mikilvægar
fyrir þrón efnahags-
---------------7--------------
mála á Islandi.
að hagvöxtur þess verði sem mest-
ur, þ.e. eins miklum peningum og
mögulega samrýmist verðstöðug-
leika. Þetta getur hann gert með
markaðsaðgerðum sem hafa áhrif á
vaxtastigið og einhliða vaxtaákvörð-
unum. Þegar atvinnuleysi eykst og
útht er fyrir kreppu dælir seðla-
bankinn peningum inn í hagkerfíð
og kemur hjólum atvinnulífsins í
gang á ný með lægri vöxtum. Þegar
hins vegar hámarks vexti hefur ver-
ið náð og það lítur út fyrir að hag-
Jón Steinsson
kerfið sé að ofhitna er það hlutverk
seðlabankans að stíga á bremsuna
og koma í veg fyrir þenslu. í hag-
kerfi þar sem seðlabankinn sinnir
þessu hlutverki sínu vel er ekki þörf
fyrir sérstaka sjóði til þess að jafna
sveiflur. Fyrr á þessari öld var vin-
sælt að nota ríkissjóði sem slíka
sjóði sem jöfnuðu sveiflur í hagkerf-
inu en fjótlega kom í ljós að auð-
veldara reyndist að auka útgjöld
þegar illa áraði en að skera þau nið-
ur þegar gott var í ári. Afleiðingin
var gríðarleg skuldasöfnun hjá rík-
issjóðum sem hafði á endanum þær
afleiðingar að halda uppi vaxtastigi
þessara janda með slæmum afleið-
ingum. Á sama tíma hefur skilning-
ur manna á peningamálum aukist
hröðum skrefum og í dag hníga flest
rök að því að besta leiðin til að
stjórna hagkerfí sé með virkri pen-
ingamálastefnu af hálfu seðlabanka
og aðhaldi í ríkisútgjöldum. Það er
því ljóst að ákvarðanir Seðlabanka
Islands um peningamál eru afskap-
lega mikilvægar fyrir þróun efna-
hagsmála á Islandi. En til þess að
tryggt sé að þær séu teknar án til-
lits til pólitísks þrýstings vegna
kosninga, kjarasamninga eða ein-
hvers annars en stöðu hagkerfisins
er mikilvægt að sjálfstæði Seðla-
bankans sé tryggt með lögum.
Hverjum sem til þekkir er einnig
Ijóst að ákvarðanir um peningamál
eru ákaflega flóknar og ekki á færi
nema færustu sérfræðinga í pen-
ingahagfræði. Það er því ekki viðun-
andi að stjórnunarhæfileikar og góð
dómgreind séu hæfniskröfur fyrir
seðlabankastjóra eins og verið hef-
ur hér á Islandi. Það er oft sagt að
nóg sé af fagfólki innan Seðlabank-
ans sem bankastjórarnir geti leitað
til og að þess vegna þurfi þeir ekki
að vera sérfræðingar í peningahag-
fræði sjálfír. Með sömu rökum
mætti auðvitað segja að hæstarétt-
ardómarar þyrftu ekki að vera lög-
fræðingar þar sem þeir gætu bara
ráðið lögfræðinga til réttarins og
stuðst við þá. Það er sjálfsagt að vel
sé gert við stjórnmálamenn þegar
þeir Ijúka þingstörfum, en Seðla-
bankinn er ekki rétti vettvangurinn
til þess.
Höfundur er hagfræðinemi.
Ærin elliglöp
ENN eina ferðina
ræðst Herdís Þor-
valdsdóttir fram á rit-
völlinn til að rægja
fjáreigendur í Grinda-
vík. Stórorð er hún að
vanda og bendir hún
landsmönnum á tillits-
og siðleysi þessara
manna. Enn er það
fjáreign okkar Grind-
víkinga sem kemur í
veg fyrir að þessi
mikla athafnakona geti
hafist handa við upp-
græðslu Reykja-
nesskagans. En þess-
ari ágætu konu gleym-
ist jafnan að geta þess
í skrifum sínum að fyrir hartnær
tuttugu og fímm árum var Reykja-
nesskagi vestan Grindavíkurvegar
friðaður fyrir beit. Þetta er stórt og
mikið landsvæði, sem mjög víða er
illa farið, ekki af völdum ofbeitar,
heldur hafa náttúruöflin átt þar.
stærstan hlut að máli. Ég fer æði
oft um þennan hluta „Skagans" en
aldrei hef ég rekist þar á Herdísi
við uppgræðslustörf. Undarlegt!
Það sem hefur verið gert í land-
græðslu á þessum hluta „Skagans"
er á Vogastapa. íslenskir aðalverk-
takar létu af hendi fjármagn til
kaupa á áburði og grasfræi, sem
flugvél Landgræðslunnar dreifði síð-
an á viðkomandi svæði. Ef til vill
hafa verktakamir verið að friða sam-
viskuna, því ekki er það af völdum
sauðkindarinnar að Stapafellið er
nærri horfið og stór hluti af Súlum.
Herdís segir að Grindvíkingar
einir manna beiti afréttinn hér á
Reykjanesinu. Af hverju sækja
menn úr Keflavík, Garði, Njarðvík
og Vatnsleysuströnd fé sitt í Þór-
kötlustaðarétt í
Grindavík á haustin?
Einfaldlega vegna
þess, að þeir nýta af-
réttinn. Garðbæingar
hafa í aldanna rás
sleppt sínu fé á afrétt
hér á Reykjanesskag-
anum og gera enn.
Það er líka, Herdís,
siðlaust háttalag að
fara vísvitandi með
rangt mál, eins og þú
hefur oft gert í skrifum
þínum. Ég las fyrir
nokkuð löngu grein
sem bar fyrirsögnina
„Hérdís, hvar hefur þú
alið manninn öll þín
æviár?“ Þessi grein var eftir Dag-
rúnu Kristjánsdóttur, fyi'rv. hús-
Það er ekki ofbeit held-
ur náttúruöfiin, segir
Kristinn Þórhallsson,
sem farið hafa illa með
landsvæðið vestan
Grindavíkurvegar.
mæðrakennara. Dagrúnu ofbauð
greinilega hvernig Herdís í skrifum
sínum veittist, ekki aðeins að okkur
fjáreigendum í Grindavík, heldur
bændum almennt. Dagrúnu tókst
með orðum sínum að flengja Her-
dísi svo eftirminnilega, að ekki hef-
ur komið stafkrókur frá henni á
prenti fyrr en nú. Kannske hefur
hún núna talið óhætt að byrja upp á
nýtt í trausti þess að enginn myndi
svara. En svo gerist það, að verð-
Kristinn
Þórhallsson
launaskáld okkar íslendinga, Guð-
bergur Bergsson, skrifar grein í
DV. Þar gerir hann púra grín að
skrifum hennar og segist meðal
annars hafa lesið grein Herdísar
fyrir grindvískar rollur og þær orð-
ið alveg orðlausar af undmn.
Þú getur þess, Herdís, að roll-
umar okkar éti upp allan nýgræð-
inginn í Krýsuvík, sem Land-
græðslan hafi sáð þar í sárin. En þú
lætur þess ógetið, að stærstu sárin
í Krýsuvíkurlandi eru sennilega af
völdum Landgræðslunnar, þegar
rutt var fyrir girðingarstæði, sem
aldrei verður að neinu. En þetta
sést ekki þegar ekið er þarna um
og þess vegna ástæða til að þegja.
Það hefur verið gert undanfarin
haust, að auglýsa Þórkötlustaða-
rétt. Hingað hefur fólki verið boðið
að koma, svo börn og unglingar geti
komist í snertingu við sauðkindina,
sem í aldanna rás hélt lífinu í ís-
lendingum. Og það verð ég að segja,
kæra Herdís, að þegar við
„hobby“karlar stöndum á réttar-
veggnum og sjáum hvernig börnin
njóta sín í réttinni innan um rollurn-
ar, þá nagar samviskan okkur ekki.
Ég hefði ekki nennt að elta ólar
við þessi skrif þín nema vegna
rangfærslnanna. Ég hef bara stikl-
að á stóru. Af mörgu fleira er að
taka. Ég vil að endingu segja við
þig, Herdís, beindu nú kröftum þín-
um að þeim hluta Reykjanesskag-
ans sem friðaður er. Þegar þetta
svæði er orðið að slíku blómahafi,
sem þú talar um, og við getum legið
í skugga trjánna, þá verður fjárbú-
skapur kannske aflagður í Grinda-
vík og þú getur snúið þér að hinun
hluta „Skagans". En farðu að ráð-
um Dagrúnar Kristjánsdóttur og
krjúptu á kné og biddu Guð almátt-
ugan um gott veður á þetta allt
saman.
Höfundur er rafvirki og búsettur í
Grindavík.
Framtíðarbyggð
í Reykjavík
ÞEIR einstaklingar,
sem gefa kost á sér til
setu í borgarstjórn
Reykjavíkur á næsta
kjörtímabili, verða að
svara því á hvern hátt
sldpuleggja eigi sam-
göngur, umhverfi og
framtíðarbyggð í
Reykjavík og að öðru
leyti standa að stjórn
borgarinnar í næstu
framtíð. Skynsamleg
stefnumörkun og fram-
kvæmd hennar getur
ráðið úrslitum um það
hvort Reykjavík gegni
áfram forystuhlutverki
sínu. Stefnuleysi og stöðugar sjón-
hverfingar duga skammt.
Veralegur munur er á stefnu D-
lista sjálfstæðismanna og R-listans
undir forystu Alþýðubandalagsins í
mörgum mikilvægum málaflokkum.
Sjálfstæðismenn leggja áherslu á
skýra framtíðarsýn í hagsmunamál-
um Reykvíkinga. Með þeirri stefnu-
skrá sem frambjóðendur D-listans
kynntu almenningi nýlega er borgar-
búum gerð rækilega grein fyrir því
hvað við ætlum að gera til að efla
Reykjavik og gera hana að öruggari
borg. Fyrir framtíð Reykjavíkur
skiptir skýr stefnumörkun í helstu
hagsmunamálum borgarbúa mestu
máli en ekki stundarvinsældir ein-
staki-a stjómmálaforingja.
Komum í veg fyrir lóðaskort
Við viljum gjörbreyta stefnunni í
skipulags-, umferðar- og lóðamálum.
I dag skortir íbúða- og atvinnulóðir
og ástandið minnir á stöðuna eins og
hún var í tíð vinstri meirihlutans í
Reykjavík árin 1978-1982 þegar lóða-
skortur var æpandi og íbúar borgar-
innar og atvinnufyrirtæki hröktust út
úr borginni þar sem hér var einungis
unnt að mæta óskum þriðjungs
þeirra sem sóttu um lóðir.
Táknrænt fyiTr ástandið í Reykja-
vík nú er næturlöng biðröð eftir þeim
fáu lóðum sem nýlega var úthlutað.
Stöðnun í skipulags- og
lóðamálum á sér nú stað
í borginni og þessu
verður að breyta. R-list-
inn verður að svara því
hvers vegna engin ný
íbúða- og atvinnuhverfi
hafa verið skipulögð á
kjörtímabilinu, sem
jafnframt era tilbúin til
úthlutunar.
Ný íbúðar- og at-
vinnusvæði
Frambjóðendur D-
lista sjálfstæðismanna
ætla sér að standa vörð
um öfiuga þróun fram-
tíðarbyggðar í Reykjavík og tryggja
að áfram verði byggt íbúðarhúsnæði
meðfram ströndinni. Það felst meðal
annars í því að Geldinganesið verður
gert að íbúðarsvæði og samgöngur
stórbættar með flýtingu Sundabraut-
Verulegur munur er á
stefnu D-lista sjálf-
stæðismanna, segir
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, og R-list-
ans undir forystu Al-
þýðubandalagsins.
ar. Við ætlum þegar á þessu ári að
skipuleggja rúmlega 30 hektara nýtt
atvinnusvæði að Höllum við Vestur-
landsveg. Það svæði gæti orðið tilbú-
ið til úthlutunar þegar á næsta ári og
gæti svarað brýnustu óskum margra
fyrirtækja um heppilegar atvinnulóð-
ir. Stefna sjálfstæðismanna mun
tryggja það að öllum Reykvíkingum
sem þess óska verður gert kleift að
byggja íbúðar- eða atvinnusvæði í
Reykjavík.
Höfundur er borgarfulltrúi.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Hin húmaníska
bylting
Humanistaflokkurinn
setur fram mynd af því
þjóðfélagi sem getur
opnað framtíð fyrir
mannveruna sem nú
liggur við köfnun vegna
þess kverkataks sem
minnihlutinn heldur
fjöldanum í. Þetta er
heilleg mynd sem tekur
til félagslegra aðstæðna,
grundvallarþarfa sér-
hverrar mannvera fyrir
fæði, heilbrigði, mennt-
un, húsaskjól og fyrir að
geta skapað sér og sín-
um framtíð. Þetta þjóð-
félagslíkan byggist á
þeim ótakmörkuðu hæfi-
leikum sem hver einasta manneskja
er gædd séu henni gefnar þær að-
stæður sem eru henni verðar. Við
Húmanistaflokkurinn,
segir Júlíus Valdimars-
son, býður fram í
borgarstj órnar-
kosningunum nú.
getum skapað þetta þjóðfélag og við
skulum hefjast handa nú þegar.
Fólkið mun gera
þessar breytingar
Fólkið mun gera þessar breyting-
ar, en upphafsmiðið þarf að vera rétt.
Okkar framtíðarflaug þarf að fljúga
langt, langt fram í aldir. Næsta öld
verður öld húmanismans, upphafsöld
nýrrar framtíðar þar sem mannveran
verður ætíð æðsta gild-
ið. Æðra framleiðslu-
þáttunum, peningum,
æðra allri félagslegid
skipan. Þessir þættir
ættu eingöngu að þjóna
mannverunni og fram-
tíð hennar. Allir ættu
að vera jafnsettir gagn-
vart lögunum og allir
ættu að hafa jöfn tæki-
færi. Þetta er lágmark
þess sem hægt er að
ætlast til, sá grunnur
sem sköpunin og fjöl-
breytileikinn þarf að
byggjast á. Allt annað
en þetta er firring.
Húmanistar hafna
öllu því sem hindrar þessa húmanísku
umbyltingu, þeir leggja fram krafta
sína til að byggja þessa framtíð hlið
við hlið með öðram sem deila sömu
hugsjón. Mannveran er ekki maur,
ekki litilsgilt tannhjól í neyslumask-
ínu peningavaldsins. Mannveran er
guð í hlekkjum og þessa hlekki þarf
hún að brjóta af sér.
Hefjumst handa nú þegar
Húmanistaflokkurinn býður fram í
borgarstjórnarkosningum nú. Þeir
sem finna samhljóm með þessari
stefnu munu örugglega geta tekið
undir stefnumál Húmanistaflokksins
í komandi borgarstjórnarkosningum.
Stefnumálin snúast um tilveru fólks-
ins í borginni.
Tefjum ekki þessa byltingu, hefj-
umst handa nú þegar.
Höfundur er frambjóðandi fyrir
Húmanistaflokkinn í borgarstjórn-
arkosningum.
Júlíus
Valdimarsson