Morgunblaðið - 17.04.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998 45
KOSNINGAR ’98
Luddítarnir ganga
aftur í R-listanum
I BYRJUN nítjándu
aldar var hreyfmg á
Englandi sem barðist
gegn tækninýjungum.
Menn þessir voru kallað-
ir Luddítar en þeir töldu
að iðnvæðingin myndi
splundra þjóðskipulaginu
og hafa fátækt og hörm-
ungar í fór með sér.
Einkum voru voru þeir á
verði gagnvart öllum nýj-
ungum eins og saumavél-
um og járnbrautum.
Luddítarnir höfðu að
því leyti rétt fyrir sér að
iðnvæðingin gerbreytti
þjóðskipulaginu en á allt
annan veg en þeir hugðu.
Kjartan
Magnússon
Tækniframfarir og samgöngubætur,
samhliða iðnbyltingunni, gerðu Eng-
lendinga að forystuþjóð í heiminum.
Luddítarnir eru nú aðeins forvitnileg
neðanmálsgrein í sögubókum, bros-
legt samheiti yfír þá sem berjast
gegn breytingum, standa gegn fram-
förum og tuldra stöðugt í barm sér:
„Heimur versnandi fer.“
Luddítanna lifa enn
góðu lífi hjá meirihluta
borgarstjómar
Reykjavíkur. Atvinnu-
lóðir eru á þrotiim í
borginni vegna fyrir-
hyggjuleysis R-list-
ans, atvinnulífi og ein-
staklingum er íþyngt
með auknum álögum
og þannig má lengi
telja.
Mest áberandi er þó
fjandskapur R-listans
við ný samgöngu-
mannvirki í borginni
en kjörtímabilið hefur
ekki nægt honum til
að svara kalli nútím-
ans og skynja þarfir borgarbúa í
samgöngumálum. Pví hafa vanda-
málin í Reykjavíkurumferðinni
hrannast upp. Stóraukið álag á
stofnbrautir þeinir bílaumferð inn £
Luddítar 20. aldarinnar
Á síðustu fjórum árum hefur hvað
eftir annað komið í Ijós að sjónarmið
íbúahverfín og skapai’ þannig slysa-
hættu.
Halda mætti að það sé R-listanum
sérstakt kappsmál að borgarbúar
haldi sig heima við og séu almennt
sem minnst á ferli. Formaður skipu-
lags- og umferðarnefndar vill hafa
göturnai' sem þrengstar. Horfið hef-
Hjá vondu fdlki
Guðlaugur Þór
Þórðarson
í raun
Stjórnmálamenn og
flokkar setja hugsjónir
sínar og stefnumál
fram fyrir hverjar
kosningar til að kjós-
endur geti gert sér
grein fyrir af hverju
þeir eigi að velja einn
flokk fram yfir annan.
Stjórnmálamenn útlista
að fyrir þessum stefn-
um og markmiðum
muni þeir berjast á
kjörtímabilinu. Þetta
gerðist einnig íyrir síð-
ustu kosningar. Þær
kosningar vann R-list-
inn og kom því í hans
hlut að fylgja eftir þeim
stefnumálum sem hann
markaðssetti og seldi sig út á fyrir
fjórum árum. Nú þegar líður að lok-
Það er mikilvægt, segir
Guðlaugur Þór Þórð-
arson, að kjósendur
velti því fyrir sér undir
hvaða formerkjum
stjórnmálamenn eru
kjörnir til valda.
um kjörtímabilsins er fomtnilegt
að bera saman loforð og efndir.
Er þetta í lagi?
Ingibjörg Sólrún sagði fyrir fjór-
um árum að R-listinn myndi standa
og falla með atvinnumálunum. Nú er
staðan sú að jafn margir eru at-
vinnulausir í Reykjavík og fyrir fjór-
um árum. Langtímaatvmnulausum
hefur einnig fjölgað verulega. Fyrir
fjórum árum var kreppa í landinu en
nú er góðæri og uppgangur alls
staðar en samt sem áður minnkar
atvinnuleysið ekkert. R-listinn lofaði
að hækka ekki skatta en það kom þó
ekki í veg fyrir að þeir hækkuðu
fasteignagjöldin um tæp 30%. Þessi
hækkun R-listans þýðir 40-120 þús-
und króna skerðingu á ráðstöfunar-
tekjum heimila á kjörtímabilinu og
kemur sérlega illa niður á þeim sem
þurfa að búa í stærra húsnæði, s.s.
bamafjölskyldum.
R-listinn lofaði að greiða niður
skuldir borgarinnar. Skuldir borg-
arinnar hafa hins vegar hækkað um
4,5 milljarða en reynt
hefur verið að breiða
yfir þessa skuldasöfn-
un með því að færa
skuldir úr borgarsjóði £
aðra sjóði i eigu borg-
arinnar. Skuldirnar
hverfa þó ekki við það.
R-listinn lofaði að öll
börn 1 árs og eldri
fengju inni á leikskól-
um borgarinnar í lok
kjörtímabilsins. Um
síðustu áramót voru
um 2 þúsund börn á
biðlistum og R-listinn
hefur opinberlega lýst
þv£ yfir að þetta loforð
verður ekki uppfyllt á
kjörtimabilinu.
R-listinn lofaði átaki £ byggingu
leiguíbúða og gagnrýndi sjálfstæð-
ismenn harðlega fýrir að fjölga
leiguíbúðum „aðeins“ um 112 á sið-
asta kjörtimabili. R-listinn hefur nú
fjölgað leiguíbúðum um tæplega 70.
Það er þeirra „átak“.
R-listinn lofaði öldruðum átaki í
byggingu hjúkrunarheimila. Það
hefur verið svikið með þeirri kveðju
frá R-listanum að fasteignagjöld
aldraðra voru hækkuð um tæp 30%.
í íþróttamálum lofaði R-listinn
fjölnota íþróttahúsi og 50 metra
innisundlaug á kjörtímabilinu. Hvar
eru þessar byggingar nú nokkrum
vikum fyrir lok kjörtímabilsins?
R-listinn lofaði auknu lýðræði og
því að borgarbúar kæmu fyi-r að
ákvörðunum borgarinnar. Skyldu
þeir borgarbúar sem mótmæltu
hækkunum SVR og þeir sem mót-
mæltu nýbyggingum við Efstaleiti,
Hæðargarð, Kirkjusand og víðar
kannast við þessi loforð.
Hér hefur aðeins verið tæpt á
nokkrum þeim loforðum sem R-list-
inn hefur látið undir höfuð leggjast
að uppíylla, en listinn er langur.
Ófær til birtingar
Það er mikilvægt að kjósendur
velti því fyiir sér undir hvaða for-
merkjum stjórnmálamenn eru
kjörnir til valda. Sjálfstæðismenn
tíðkuðu það að bii-ta loforðalista
sinn frá fyrri kosningum aftur fyrir
næstu kosningar og gat fólk þá séð
að loforð höfðu verið efnd. Þetta
mun R-listinn ekki gera enda er lof-
orðalisti þeirra ófær til birtingar.
Höfundur skipar 7. sætið á D-lista
sjálfstœðismanna til borgarstjómar-
kosninga.
Umferðarvandamálin
hrannast upp, segir
Kjartan Magnússon,
vegna þess að R-listinn
lokar augunum fyrir
raunverulegum þörfum
borgarbúa eins og þeim
að komast leiðar sinnar.
ur verið frá byggingu mislægra
gatnamóta, sem hefðu greitt fyrir
umferð og dregið úr mengun og
slysahættu. R-listinn hefur einnig
dregið lappirnar vegna breikkunai-
Gullinbrúar, sem er fyrir löngu orðin
nauðsynleg. í maí á síðasta ári felldu
borgarráðsmenn R-listans t.d. til-
lögu sjálfstæðismanna um að flýta
breikkun brúarinnar með því að
borgin lánaði ríkinu fé til verksins.
„Tóm steypa og algjört malbik“
Helgi Hjörvar, sem hlaut yfir-
burðakosningu í fyrsta sæti R-list-
ans, gaf upp afstöðu sína til sam-
göngumannvirkja í Reykjavik á
fundi stjórnmálafræðinema með
frambjóðendum D-lista og R-Iista 20.
mars. Þar sagði hann orðrétt að
sjálfstæðismenn hefðu helst afrekað
það að vera með upphlaup út af því
hvort „einhver brú“ yrði breikkuð
ái'inu fyrr eða síðar. Hann bætti því
við að vegna þess að það kallaði á
lántökur, teldi hann enga ástæðu til
að hefjast handa við byggingu
Sundabrautar eins og sjálfstæðis-
menn hafa lagt til. Helgi sagði þetta
sýna að málflutningur sjálfstæðis-
manna væri „tóm steypa og algjört
malbik."
Á meðan borgarfulltrúar telja
engu máli skipta hvort „einhver brú“
verði breikkuð fyrr eða síðar, þá
verður það ekki gert. Þessi orð odd-
vita R-listans sýna betur en margt
annað að samgöngubætur hafa ekki
forgang hjá núverandi meirihluta
borgarstjómar Reykjavíkur. Þar
eiga Luddítarnir enn visan stuðning.
Höfundur er blaðamaður.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ilagnarsson
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Tuttugu og átta pör spiluðu 3.
apríl og urðu úrslit þessi í N/S:
Halla Ólafsdóttir - Garðar Sigurðsson 376
Eysteinn Einarsson - Lárus Hermannsson 359
Bragi Salomonsson - Hannes Alfonmsson 341
Efstu pör í A/V:
Vilhjálmur Sigurðss. - Valdimar Lárusson 432
Rafn Kristjánsson - Oliver Kristóferss. 415
Unnur Jónsdóttir - Jónas Jónsson 351
Þrjátíu pör spiluðu 7. apríl og þá
urðu eftirtalin pör efst í N/S:
Þórhildur Magnúsd. - Sigurður Pálsson 372
Sigurleifur Guðjónss. - Þorsteinn Erlingss. 359
Bergsveinn Breiðfj. - Kjartan Guðmundss. 357
Hæsta skor i A/V:
Jón Stefánsson - Magnús Oddsson 399
Emst Bachman - Jón Andrésson 382
Þórarinn Ámason - Þorleifur Þórarinss. 372
Bridsfélag SÁÁ
Sunnudagskvöldið 5. apríl 1998
var spilaður eins kvölds Mitchell
tvímenningur. 20 pör spiluðu 9 um-
ferðir, 3 spil á milli para. Meðalskor
var 216 og röð efstu para varð eftir-
farandi:
NS
1. Unnar A. Guðmundss. - Elias Ingimarss. 258
2-3. Halldór Þorvaldss. - Baldur Bjartmarss.257
2- 3. Jón Eyvindur - Jóhann Jóhannsson 257
4. Bergljót Aðalsteinsd. - Björgv. Kjartanss. 219
AV
1. Óskar Knstinsson - Kristinn Óskarsson 247
2. Gunnar Ómarsson - Arnar Bergþórsson 240
3. Einar Pétursson - Þóroddur Ragnarsson 237
4. Ásgeir Gunnarsson - Einar Oddsson 234
Ekki var spilað síðasta sunnudag,
enda páskadagur. Næst verður spil-
að sunnudagskvöldið 19. april.
Félagið vill hvetja sem flesta til
að mæta, spilað er i húsnæði
Úlfaldans, Ái-múla 40, bakatil, og
hefst spilamennska stundvíslega
klukkan 19:30. Keppnisstjóri að-
stoðar við myndun para ef 'menn
mæta stakir.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 20. april nk. hefst
3— 4 kvölda (fer eftir fjölda þátttak-
enda) Butler-tvímenningur. Sigur-
vegarar úr þessari keppni verða tví-
menningsmeistarar deildanna fyrir
þetta tímabil.
Þá verða í lok tímabilsins verð-
launaðir þeir tveir sem unnið hafa
flest bronsstig í vetur.
Skráning er á spilastað í Þöngla-
bakka 1 kl. 19.30 stundvíslega.
Bridgefélag Reyðaríjarðar
og Eskifjarðar
Laugardaginn 11. april var hinn
árlegi Páskatvímenningur BN hald-
inn af BRE á Reyðarfirði. 24 pör
tóku þátt og voru spiluð 3 spil milli
para. Sveinn Herjólfsson og Þor-
steinn Bergsson frá BE leiddu mót-
ið allan tímann og unnu það með
miklum yfirburðum. Lokastaðan
varð á þessa leið:
Sveinn Heijólfsson - Þorsteinn Bergsson 24
Ásgeir Metúsalems. - Kristján Kristjánsson 124
Pálmi Kristmannsson - Stefán Kristmanns.lll
Böðvar Þórisson - Siguijón Stefánsson 100
Þriðjudagskvöldið 14.4. var spil-
aður tvímenningur hjá BRE með
þátttöku 14 para og fóru leikar
þannig:
Ami Guðmundsson - Jóhann Þorsteinsson 190
Auðbergur Jónsson - Hafsteinn Lárusson 178
Ásgeir Metúsalems. - Kristján Kristjánsson 178
Haukur Bjömsson - Magnús Bjamason 167
Bridsfélag Akureyrar
Einmenningskeppni BA lauk síðast-
liðinn þriðjudag. Spilað var 3 kvöld
og skor tveggja bestu kvölda giltu
til stiga. Einmenningsmeistari af
öryggi varð Haukur Harðarson með
323 stig, sem er 62,12% skor.
Röð næstu manna varð annars
þessi:
Pétur Guðjónsson 309 (59,42%)
Stefán Vilhjálmsson 305 (58,65%)
Þorsteinn Guðbjöms. 299 (57,50%)
Preben Pétursson 298 (57,31%)
Næsta mót BA og jafnframt síð-
asta mót vetrarins er Alfreðsmótið
sem haldið er til minningar um Al-
freð Pálsson. Fyrirkomulagið er
Monrad-tvímenningur sem er nýj-
ung hjá félaginu og hefst það
þriðjudaginn 21. apríl. Samkvæmt
venju verður pöium raðað í sveitir.
Pör þurfa að skrá sig fyrir kl. 20.00
á mánudagskvöld.
Bílgreinasambandið
Aðalfundur BGS verður haldinn
laugardaginn 18. apríl nk.
á Grand Hótel Reykjavík.
Kl. 09.00-09.10
Kl. 09.10-09.30
Kl. 09.30-09.45
Kl. 09.45-10.30
Kl. 10.30-10.45
Kl. 10.45-12.15
Kl. 12.30
Fundarsetning - Bogi Pálsson formaður BGS.
Erindi um Fræðslumiðstöð bílgreina og stöðu
menntamála í bílgreininni. - Björn Bjarnason
menntamálaráðherra.
Fyrirspurnir - Umræður.
Aðalfundur.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffihlé.
Sérgreinafundir.
Verkstæðisfundur
Bílamálarar og bifreiðasmiðir
Bifreiðainnflytjendur
Smurstöðvar
Varahlutasalar
Hádegisverður
Stjórn BGS