Morgunblaðið - 05.06.1998, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 05.06.1998, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 B 7 ÁRNI Björn, Einar Bergur og Nína með sýnishorn af verkum sínum. Skrípó, stríðsmyndir og Kryddpíur ÞAU sitja önnum kafin inni á barnadeildinni, Árni Björn Gests- son, tíu ára, Einar Bergur Björns- son, tíu ára og Nína Arnarsdóttir, átta ára. „Svona fimm eða sex ára,“ svar- ar Árni Björn spurningu blaða- manns um livað hann hafi verið gamall þegar hann kom fyrst á námskeið í Myndlistaskólauum. „Ég líka,“ segir Einar Bergur og Nína var sex eða sjö, en er þegar búin að fara á fjögur námskeið. Árna Birni fínnst skemmtilegast að teikna skrípó eða búa til hluti úr leir. Einar Bergur vill helst teikna stríðsmyndir en Nínu þykir allt skemmtilegt - en líklega skemmtilegast þó að teikna mynd- ir af Kryddpíunum úr hljómsveit- inni ensku Spice girls. Krakkarnir eru ansi duglegir. Það er greinilegt að kennslan hef- ur ekki farið fyrir ofan garð og neðan hjá þeim, en aðalkennari á barnanámskeiðum Myndlistaskól- ans er Rósa Kristín Júlíusdóttir. Þau taka sér hlé frá störfum og benda gestunum á myndir sem þau hafa teiknað og málað og prýða nú veggi skólans. Það er af nógu að taka og ekki minnkar úr- valið með árunum því Árni Björn, Einar Bergur og Nína hafa öll hug á að halda áfram að læra mynd- list. VERK nema í fornámi. nemendum verður strax í upphafi leiðbeint um notkun þeiiTa. „Fag- legar kröfur til kennara og nem- enda munu aukast við þessar breyt- ingar,“ segir hann. Helgi segir starfsfólk Myndlista- skólans, kennara jafnt sem nem- endur, nota Netið mjög mikið. „Skólinn er með heimasíðu auk þess sem allir nemendur í listhönn- unardeild hanna sína eigin síðu. Við fáum viðbrögð erlendis, fyiárspurn- ir og annað í gegnum Netið, auk þess sem heilu áfangarnir eru unnir á því formi, til dæmis ef kennarinn er staddur erlendis.“ í fagurlistadeild er að sögn Helga ætlunin að nýta reynsluna af styttri og markvissari námskeiðum í grafískri hönnun. Markmiðið er að gera námið fjölbreyttara og gera til dæmis grafík, tölvuteiknun, marg- miðlun og umhverfíslist hærra und- ir höfði. Mikilvægt að opna skólann Á útskriftarsýningum eru, eins og lög gera ráð fyrir, til sýnis út- skriftarverk nemenda. Einnig eru þar verk annarra nemenda dag- skólans sem styttra eru komnir í náminu, verk barnanna og sýnis- horn af verkum þeirra sem sótt hafa fullorðinsnámskeiðin. „Við reynum að breyta áherslunni eitt- hvað á milli ára þó auðvitað verði þessar sýningar keimlíkar," segir ÚR glugga barnadeildarinnar. Helgi. „Okkur þykir mikilvægt að opna skólann fyrir almenn- ingi tvisvar til þrisvar á ári, til þess að sýna þetta mikla starf sem hér fer fram. Skólinn á að kynna sig og þetta hefur fallið í góðan jarðveg. Fólk mætir á þessa sýningu ár eftir ár og lætur okkur heyra hvað því finnst. Það er líka gott fyrir kenn- ara og nemend- ur að skoða vetrarstarfið svona.“ Vorsýning- in stóð að þessu sinni frá fimmtu- degi fram til sunnudags og á þeim fjórum dögum komu sautján til átján hundruð manns. „Það koma líka alltaf hópar fólks yfir vetrartímann að skoða skólann. Fólk hefur áhuga á því sem hér fer fram, enda er hér innan veggja hugmyndaríkt og duglegt fólk upp til hópa sem setur svip sinn á bæjar- lífið okkar.“ NEMENDUR utan af landi eru einlægir, óspilltir, lifandi, vilja ekki fá allt upp í hendurnar strax og kunna að bíða,“ segir Kolbrún Aðal- steinsdóttir skólastjóri Skóla Johns Casablancas á Islandi. Hópur úr skólanum tók nýverið þátt í fyrir- sætu- og hæfileikakeppninni MAAI í New York og hafa ellefu stúlkur úr hópnum þegar komist á samning að hennar sögn. Þrjár stórar umboðsskrifstofur hafa sýnt þremur stúlkum úr Vest- mannaeyjum mikinn ________________ áhuga og segir Kolbrún furðu vekja hve ungum Islendingum af lands- byggðinni gangi vel að fóta sig á sýningarpöll- um erlendis. „Þrír ein- staklingar frá Akureyri, þau Ásdís María Frank- lín, Elva Eiríksdóttir og Gen Magnússon, sem nýverið sýndi fyrir Vers- ace, eru eitt dæmið um velgengni þessara krakka og nú virðist röð- in vera komin að Vest- mannaeyjum. Þrjár stúlkur þaðan; Guðný Sigríður Gísladóttir, Val- gerður Sigurjónsdóttir og Ester Helga Sæ- mundsdóttir eiga mögu- leika hjá stórum skrif- stofum í New York, Lundúnum og París, til dæmis Eileen Ford. Það er að segja ef samþykki foreldra þeirra fæst. Fjórða Vest- mannaeyjastúlkan, Ragnheiður Guð- mundsdóttir, tók þátt í MAAI- keppninni fyrir þremur árum, og vinnur nú úti um all- an heim,“ segir hún. af lands- byggðinni eru einlæg- ar, lifandi og óspilltar V VLGERÐl R Sigun’ónsdóttii ESTER Helga Sæmundsdóttir Undirbúningur fyrir hverja keppni tekur eitt ár og skoða um- boðsskrifstofumar myndamöppur þátttakendum jafnan í krók og kring. Bandarískur ljósmyndari, Israel Colon, tók myndirnar aí Vestmannaeyja-stelpunum Ester, Valgerði og Guðnýju, sem eru ung- ar að árum, fæddar 1980, 1982 og 1983. „Ásdís, Geir og Elva voru öll ung þegar þau tóku þátt í MAAI-keppn- inni í New York á sínum tíma. Það er kostur að byrja snemma því tvö ár tekur að byggja upp gott úrval aí myndum í möppuna sína,“ segir Kolbrún. Reglusamari, hlýðnari og duglegri að læra Kolbrún telur að MAAI-keppnin ýti undir árangur ungra krakka sem vilja ná langt sem fyrirsætur því fulltrúar umboðsskrifstofanna fái þá tækifæri til þess að sjá með eigin augum þá sem þeim h'st best á af myndum. „Krakkarnir utan aí landi eru ívið reglusamari og dug- legri að læra, sem þýðir að þeir eiga auðveldara með að fara eftir regl- um. Þetta skilar sér. Sukksamt líf- erni leynir sér ekki og þeir sem eru óspilltir hafa meira að gefa. Miklu máli skiptir hvemig manneskjan kemur fyrir í þessu starfi og frekja og ýtni koma henni ekkert áleiðis. Engin umboðsskrifstofa kærir sig um mislynda fyrirsætu sem full er af stælum." Hún leggur ennfremur mikla áherslu á nauðsyn menntunar. Líka þegar fyrirsætur eiga í hlut. „Það hefur verið mjög ljúft að vinna með krökkunum utan af landi. Þau vilja mennta sig líka og eru því miklu sterkari á svellinu. Það er ekkert varið í að vinna með fyrirsætum sem eru al- gerlega ómenntaðar. si Þannig einstaklingar hafa um fátt að tala, vita i lítið sem ekkert um landið Á- sitt, kunna fátt í samskiptum og ná þar af leiðandi ekki árangri,“ segir Kolbrún Aðalsteinsdóttir að endingu. hke GUDNY ■ Sigríður P Gísladóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.