Morgunblaðið - 20.06.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 20.06.1998, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sviðsstjóri handlækningadeildar uggandi vegna uppsagna Sjúklingar fá ekki ustu sem þeir eiga „ÉG ER mjög uggandi um starf- semina, sem er að vissu leyti eins og fjöregg sem ekki má brjóta, og ótt- ast að sjúklingar fái ekki þá þjón- ustu sem þeir eiga rétt á og hafa borgað fyrir með sköttum sínum,“ sagði Jónas Magnússon, prófessor á handlækningasviði Landspítalans, aðspurður um ástandið þar vegna yfirvofandi uppsagna hjúkrunar- fræðinga. Jónas Magnússon segir að um- fangsmiklar aðgerðir, sem hugsan- lega hafi fylgikvilla í fór með sér, svo sem hjartaaðgerðir, séu ekki gerðar lengur, einhverjar minni háttar aðgerðir verði unnt að gera í næstu viku en þegar nær dregur mánaðamótum og eftir að uppsagn- irnar koma til verður aðeins haldið úti einni skurðstofu. „Við höfum aðeins helming þeirra hjúkrunarfræðinga í vinnu sem við hefðum haft ef verkfall stæði yfir og það þýðir að við getum ekki sinnt öðru en algjörum neyðartilvikum og vitum raunar ekki ennþá hvort við ráðum við það. Við höldum úti einni skurðstofu og veljum á hana bráða- aðgerðir og augnslys, annað gerum við ekki,“ segir Jónas. „Ef einhver fær krabbamein í ristil, lifur eða maga verður hann bara að bíða þar til hlutirnir verða komnir í samt lag. Við höldum ekki gangandi skurðstofu frá klukkan átta til fjögur heldur höfum tiltæka áhöfn sem við köllum út þegar þörf krefur." Að sögn Jónasar er útilokað að hjúkrunarfræðingar af öðrum deild- um geti gripið inní störf skurðstofu- hjúkrunarfræðinga; þau séu það sérhæfð og aðeins þeir hjúkrunar- fræðingar geti komið þar að gagni sem kunni á tæki og viti hvar hlut- irnir séu. I einhverjum tilvikum verður hægt að beina sjúklingum til sjúkrahúsa í nágrannabyggðum Reykjavíkur og Jónas segir einnig hugsanlegt að brýnar umfangsmikl- ar aðgerðir verði gerðar erlendis. Þá segir Jónas þetta ástand hafa slæm tilfinningaleg áhrif og sagði langvarandi erfiðleika og niður- skurð í heilbrigðiskerfinu hafa nið- urdrepandi áhrif. „Mörg okkar sem starfa í heilbrigðiskerfinu í dag myndum fara í aðra vinnu ef við fengjum hana, þannig er ástandið orðið og það er engin stétt í heil- brigðiskerfinu ánægð í starfi.“ Um 60 rúm úr notkun vegna uppsagna A geðlækningasviði Landspítal- ans verður einni móttökudeild hald- ið opinni. AIls eru geðdeildirnar fimm, þ.e. ein áfengisdeild og fjórar almennar deildir og geta þær alls tekið við vel yfir 100 sjúklingum. Ákveðið hafði verið áður að loka einni deildinni en nú verður þremur til viðbótar lokað vegna hugsan- legra uppsagna. Tómas Zoéga, sviðsstjóri geð- deildar, segir deildina geta tekið við þjón- rétt á 15 til 20 sjúklingum og því verði 80-90 rúm tekin úr notkun vegna uppsagna og sumarlokana, þar af um 60 vegna uppsagna. „Við verð- um að útskrifa fólk sem við hefðum annars haft lengur í meðferð og byrjum á því strax í næstu viku. Reynt verður að styrkja bráða- og göngudeildarþjónustuna en ef þetta ástand varir einhvem tíma verðum við að stytta innlagnartímann mjög mikið og sinna fólki með öðrum hætti," segir Tómas. Milli 90 og 95% innlagna eru bráðar. Mun færri hjúkrunarfræðingar verða í vinnu á geðdeildunum en verkfallsáætlun gerir ráð fyrir en Tómas segir álíka hátt hlutfall hafa sagt upp þar og meðaltalið eða kringum 60%. Hann sagði vitað að nokkrir hjúkrunarfræðingar myndu snúa sér að öðrum störfum, nokkur hópur myndi taka sér langt frí og trúlega koma aftur með haustinu og enn aðrir myndu snúa til baka þeg- ar samningum lýkur. Hliðarstýrisfótstig Boeing-þotna Allar þot- ur Flug- leiða skoðaðar ALLAR þotur Flugleiða verða skoðaðar á næstunni í kjölfar atviks sem varð í Bandaríkjunum fyrir skömmu þegar hliðarstýrisfótstig flugstjóra á Boeing 737 þotu duttu úr sambandi í lendingu. Bandaríska loftferðaeftirlitið, FAA, hefur gefið út fyrirmæli um að allar þotur af gerðunum 737, 747, 757, 767 og 777 verði skoðaðar sérstaklega. Fyrir- mælin taka gildi 6. júlí nk. og skulu allar þotur af þessum gerðum skoð- aðar innan 90 daga þaðan í frá. Skoðaðarinnan mánaðar Að sögn Kristins Halldórssonar, tæknistjóra Flugleiða, voru allar fjórar 737 farþegaþotur Flugleiða skoðaðar þegar fréttist af umræddu atviki en nú hefur verið gefin út verklýsing með fyrirmælum um að skoða allar þotur og verður það gert innan mánaðar. Ekki urðu slys á fólki þegar óhappið varð í Bandaríkjunum, en aðstoðarflugmaður tók við stjóm vélarinnar og gekk lendingin að óskum. Kristinn segir að þegar fréttist af atvikinu hafi Flugleiðir látið skoða 737 vélarnar, samkvæmt þeim upplýsingum sem þá lágu fyr- ir, en til þess að taka af allan vafa hafi nú verið gefin út verklýsing um að skoða allar þotur Flugleiða. Kvennamessa við þvottalaugarnar í Laugardal Morgunblaðið/Árni Sæberg Stund milli stríða ÞVOTTAKONAN sem Ásmundur Sveinsson hjó forðum í stein leit sem snöggvast upp frá vinnu sinni við þvottalaugarnar í Laugardal í gærkvöldi til þess að hlýða á kvennamessu í tilefni kvenróttinda- dagsins 19. júní. Það voru Kvenna- kirkjan, Kvenréttindafélag Islands og Kvenfélagasamband Islands sem stóðu að messunni, sem var haldin til að minnast þess að þennan dag árið 1915 feng^u íslenskar konur kosningarétt. Kví Keikos komin SJÓKVÍ háhyrningsins Keiko kom til lands rúmlega hálftólf í gærkvöldi. Þá var orðin um 14 tíma seinkun á komu flutninga- vélarinnar hingað til lands. Stefnt var á að hefjast strax handa við að afferma vélina en að sögn Halls Hallssonar hjá Mönnum og málefnum var áætlað að það tæki um tólf tíma. Fjöldi fólks safnaðist saman við flugvöllin til að fylgjast með komu vélarinnar. Kvíin verður flutt til Þorláks- hafnar um leið og lokið verður við að ferma flutningabílana sem flytja kvína. Hún verður flutt á fjórtán fjörutíu feta flutningabíl- um sem aka í bílalest. Bílalestin ekur í gegnum Reykjavík á leið sinni til Þorláks- hafnar. Þaðan verður siglt með kvína til Vestmannaeyja með Herjólfi. Aætlað er að á morgun verði lokið við að flytja kvína þangað. Sjókví Keikos er flutt í tvennu lagi til Islands. Loðnan ófundin í upphafí vertíðar Á ANNAN tug skipa voru kom- in til loðnuleitar norður af Mel- rakkasléttu á miðnætti í nótt þegar loðnuvertíðin hófst. Að sögn Bjarna Bjarnasonar, skip- stjóra á Súlunni EA, hafði eng- in loðna fundist í gærkvöldi en þá hafði verið leitað á sömu slóðum og hún hafði fundist á við upphaf vertíðarinnar í fyrra. Bjami sagði að sjór væri heitur á svæðinu og sagði að skipin væru enn á norðurleið og að enginn hefði enn orðið loðn- unnar var. Loðnukvótinn í upphafi ver- tíðar er 950 þúsund tonn og hef- ur 44 skipum verið úthlutað kvóta. Tilkynningaskylda íslenskra fiskiskipa vissi til þess að 12 skip væru komin á eða að nálg- ast svæðið norður af Melrakka- sléttu í gærkvöldi en talið er að fleiri skip bætist í hópinn um helgina. Ný breið- skífa Stuð- manna STUÐMENN gefa út breiðskífu í haust með tólf nýjum lögum og verður það þeirra fyrsta breiðskífa einvörðungu með nýjum lögum síð- an Hve glöð er vor æska kom út ár- ið 1991. Stuðmenn koma fram á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunar- mannahelgina og til að hita upp fyr- ir hátíðina gefa þeir út margmiðlun- ardisk með fjórum nýjum Iögum í júlí og fara í tónleikaferð um landið. Á margmiðlunardiskinum verða myndbönd við þessi fjögur nýju lög. ■ Kraftur í Stuðmönnum/53 ------^44------ Sumarhúsi snúið við FLUTNINGABIFREIÐ sem flutti sumarhús áleiðis frá Hafnarfirði til Egilsstaða varð að snúa við hjá brúnni yfir Jökulsá á Breiðamerk- ursandi í gær. Að sögn lögreglunnar á Höfn í Homafirði reyndist ekki mögulegt að koma húsinu yfir brúna vegna yf- irbyggingar á henni þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Húsið reyndist einfaldlega of stórt. Þá var ætlunin að reyna að flytja sumarhúsið norð- ur Kjöl og þaðan norðurleiðina austur á Egilsstaði en vegurinn reyndist ekki fær enn og því horfið frá þeirri ætlan. Var flutningabif- reiðinni því snúið við og henni ekið aftur til Hafnarfjarðar. HiVI '98 á Netinu www.mbi.is Frakkinn Thierry Henry dáði Carl Lewis / B3 Victor Ikpeba kom Nígeríu áfram / B2 í dag aosteuR ALAUGARD0GUM LIjoIH/ii

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.