Morgunblaðið - 20.06.1998, Page 6

Morgunblaðið - 20.06.1998, Page 6
6 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Blóma- haf í hrauninu ÚTI í miðju nýjahrauni Heimaeyjar stendur litríkur bldmagarður, prýddur garðálfum og margs konar plöntum. Umhverfis er einungis rautt hraunið og því stinga grænt gras, vorlaukar og sumarblóm í stúf, þar sem þau dafna vel í lítilli laut. „Ég hef alltaf verið með blómadellu og alltaf verið hrifin af hrauni þótt ótrúlegt sé,“ segir Guðfinna Kjartanía Olafsdóttir þar sem hún stendur í miðju blómahafinu og setur niður enn fleiri sumarblóm. Guðfinna, eða Gauja eins og hún er kölluð, hefur ásamt Erlendi Stefánssyni eiginmanni sínum ræktað blómagarðinn sfðan árið 1988 og ber hann nafn með rentu, Hraunprýði. Þau hafa einnig verið sæmd verðlaunum og viðurkenningum fyrir framlag sitt í þágu umhverfismála. Eitt sinn þegar þau voru á gangi í hrauninu staðnæmdist Gauja við lautina og sagði: „Hérna væri gaman að búa blómagarð." Að því búnu sóttu þau um Ieyfí til að taka lautina „í fóstur“ sem var auðfengið mál hjá bæjaryfirvöldum og hófu ræktina. Guðfinna ræktar öll sín sumarblóm sjálf og í garðinum er hún með allt mögulegt. Þegar hún taldi tegundirnar fyrir tveimur árum voru þær um 400. Gestkvæmt í Hraunprýði í tæp tíu ár hafa þau hjónin ræktað garðinn og sífellt stækkar hann. „Manninum minum fannst þetta fáránlegt í upphafi, og ég var fegin að garðurinn var langt frá bænum, ég hélt að allir myndu gera grín að mér. En allir urðu strax svo hrifnir af garðinum," segir Gaiya og skellihlær. „Þegar GUÐFINNA og Erlendur gáfu sér örlítinn tíma til að sitja fyrir á mynd, en voru svo strax rokin að vinna í garðinum sinum. Hraunprýði ber svo sannarlega nafn með rentu, en garðinn hafa Guðfinna og Erlendur nú ræktað í tíu ár. Morgunblaðið/RAX maðurinn minn sá að ræktin var farin að bera árangur, og þegar hann hætti að vinna fékk hann þennan brennandi áhuga á ræktinni. Nú erum við bæði hérna eins oft og við getum, allir okkar aurar fara í þetta og við sjáum sko ekkert eftir því,“ sagði Gauja, en þau hjónin reyna að fara þangað á hverjum degi yfir sumartímann. Sagan af Hraunprýði hefur kvisast víða á sl. árum. Þar er mjög gestkvæmt og sagði Gauja að stundum færi allt of mikill tími í kjaftagang. Sumir koma þó að næturlagi og skilja eftir gjafir. I garðinum eru til dæmis tvær styttur, höggnar út í stein, sem höfðu verið skildar eftir af einhveijum listamanninum sem gjöf til þeirra hjóna. Þeim hefur einnig verið gefínn fjöldi litilla garðálfa sem sátu þegjandi í beðunum og brostu, þegar blaðamaður og ljósmyndari kvöddu hjónin og héldu á brott. Efast um að Roph- inol sé bannað HÆGT verður að nálgast lista yfír lyf sem eru bönnuð í Bandaríkjunum í bandaríska sendiráðinu á Islandi innan skamms. Þetta er ráðstöfun sem gerð var í kjölfar þess að tveir meðlimir hljómsveitarinnar Botn- leðju voru sektaðir og vísað úr landi í Bandaríkjunum fyrir að vera með tvær svefntöflur af gerðinni Rophin- ol í fórum sínum. Lárus Vilhjálmsson fulltrúi al- mannatengsla hjá bandaríska sendi- ráðinu sagði að listi yfir ólögleg lyf í Bandaríkjunum væri til, og hægt yrði að nálgast hann í sendiráðinu innan skamms. Lárus sagði að til- fellið sem kom upp á þriðjudaginn væri einstakt og slíkt hefði aldrei komið upp áður. Jóhann Lenharðsson lyfjafræðing- ur hjá Lyfjaeftirliti ríkisins sagði að á Islandi væri til listi yfir lyf sem væru leyfð, öll önnur lyf væru bönn- uð. Hins vegar gildi reglur um að er- lendir ferðamenn geti flutt inn til landsins lyf til eigin nota. Skammt- urinn þurfi þó að vera í samræmi við lengd dvalarinnar. „Akveðin efni eru alltaf bönnuð, eins og til dæmis heróín og hass, en ef ég tek sem dæmi sjúkling sem þarf á morfínsprautum að halda, þá er leyfilegt að flytja þær inn ef við- komandi sýnir fram á að að hann þurfi að nota lyfið. Skammturinn þarf jafnframt að vera í samræmi við lengd dvalarinnar og dagskammt einstaklingsins." Jóhann sagðist telja að umrætt at- vik sem átti sér stað í Minneapolis í vikunni væri á misskilningi byggt þar sem hann grunaði að Rophinol væri ekki lengur bannað í Bandarfkj- unum. Hann benti á að lyfið hefði verið endurskoðað í kjölfar þess að það var bannað eftir tíða notkun þess í nauðgunarmálum, til þess að hægt væri koma því aftur á Banda- ríkjamarkað. Breytingar hefðu verið gerðar á lyfinu þannig að ef því væri blandað út í vökva skildi það eftir sig slikju í vökvanum auk þess sem hann breytti um lit. Jóhann vildi þó ekki fullyrða að lyfið væri aftur komið á bandarískan markað. Nýtt fyrirtæki í líftækniiðnaði til að vinna efnahvata úr hita- og kuldaþolnum bakteríum FYRR í vikunni var greint frá því að Kári Stefánsson hjá íslenskri erfðagreiningu og Jakob Kristjáns- son sérfræðingur hjá Iðntækni- stofnun hefðu áform um stofnun fyrirtækis til að vinna efnahvata úr hita- og kuldaþolnum bakteríum hér á landi. Fyrir nokkrum árum voru miklar vonir bundnar við fyrirtækið Genís sem vann svipað starf og þeir Kári og Jakob hafa í hyggju að stunda en starf þess skilaði ekki þeim árangri sem búist var við og hefur það nú snúið sé að öðrum verkefnum. Með tilkomu ÍE segir Jakob að aðstæður hafi breyst og tímabært sé að stofna nýtt fyrirtæki og hefja nýja sókn á þessum vettvangi. „Tilvera ÍE á þessum markaði er mikilvæg ástæða þess að raunhæft er að fara út í þetta núna. Fyrirtæk- ið er mikill stuðningur fyrir þessa grein og gefur tilefni til að fara aft- ur í þetta af krafti. ÍE notar svona ensím í dag og þeir gætu orðið mjög góður samstarfsaðili," segir Jakob þó ekki sé ljóst með hvaða hætti samstarf milli fyrirtækjanna gæti orðið. Jakob segir að samstarf iðn- tæknistofnunar og ÍE hafi hafist síðastliðinn vetur. „Við hófum sam- starf í litlum mæli í vetur og það er upphafið að þessum hugmyndum.“ Fyrsta verkefnið yrði endurbætur á ensímum Hita- og kuldaþolnu bakteríurnar sem íyrirtækið kæmi til með að Islensk erfðagreining skiptir sköpum * ■ Tilkoma Islenskrar erfðagreiningar skiptir sköpum fyrir framtíð í vinnslu hita- og kuldaþolinna baktería hér á landi að mati Jakobs Kristjánssonar sérfræðings hjá Iðntæknistofnun. Vegur líftækni mun verða mikill í framtíðinni að hans mati. nota finnast í ríkum mæli í hverum hér á landi. „Aðstæður á íslandi eru mjög góðar varðandi þennan efni- við. Við búum að fleiri og fjölbreytt- ari hverasvæðum en eru nokkurs staðar annars staðar í heiminum,“ segir Jakob. Möguleikarnir á þróun nýjunga í þessum iðnaði eru því miklar. Jakob segist vonast til að af stofnun fjrirtækisins verði nú í sumar. Hann segir að stofnun þess verði í sátt og samlyndi við Iðn- tæknistofnun og aðra sem að Genís standa. Fyrsta verkefni nýs fyrir- tækis yrðu endurbætur á ensímum sem unnin eru úr hveraefnum en ensímin eru síðan notuð við að fjöl- falda erfðaefni sem eru síðan notuð í ýmsum tilgangi, til dæmis við rannsóknir í bamsfaðemismálum og í tengslum við rannsóknir glæpa svo tekin séu vel þekkt dæmi. Verkefnið yrði góð kynning fyrir fyrirtækið ef vel tekst til en sam- keppni er mikil á markaðnum og mikilvægt að standa vel að mark- aðssetningu. „í hveraörverum era allskonar möguleg verðmæti. Til dæmis eru ensím notuð í þvottaefnum í sykur- iðnaði og í erfðatæknirannsóknum. Það er nokkuð sem tengist fyrir- tækinu íslenskri erfðagreiningu beint og spennandi er að þróa ný ensím til notkunar í erfðatækni í samstarfi við það fyrirtæki," segir Jakob. „Það er mikil eftirspum eftir þessari vöra og markaðurinn er stór, mun stærri en menn gera sér grein fyrir, og menn eru opnir fyrir nýjungum. Það sem við myndum leitast við er að gera ensímin okkar hraðvirkari og skilvirkari." Kári og hans menn hafa tengsl í Morgunblaðinu í vikunni sagði Kári Stefánsson að fyrirtæld sem þetta myndi byrja smátt og vaxa síðan hratt. Jakob segir að erfitt sé að segja til um stærð fyrirtækisins. „Það er almennt vitað að svona vex hratt. Það sem skiptir máli er að búa til pakka sem lítur vel út og fá menn til að fjárfesta í verkefninu. Ég held að Kári og hans menn hafi mjög góð tengsl inn í þennan heim og eigi því auðveldara með að afla þessa fjár en margir aðrir sem hingað til hafa komið að þessu máli hér á landi.“ Inntur eftir framtíðarsýn sinni á þessum vettvangi sagði Jakob að hann vildi nú ekki vera að nefna neinar tölur en sagði að menn væra enn á byrjunarreit og greinin væri því mjög spennandi. „Framtíðin er í þessu. Við sjáum það á öllu. Það er sama hvem þú spyrð, líftækni og allir hennai- angar eru farin að springa mikið út og það er bara byrjunin. Á næstu 20 áram eiga eft- ir að verða miklar breytingar. Framleiðsla á erfðabreyttum mat- vælum, nýjar lausnir á umhverfís- vandamálum með lífrænum hætti og vistvænar leiðir til að gera alla hluti eiga eftir að koma fram. í sambandi við tengsl hitakærra örvera við klónun sem mikið hefur verið í umræðunni, einkum í tengsl- um við skosku ána Dollý, segir Jak- ob að slík klónun sé ekki beint tengd örveranum, þar sé um aðra tækni að ræða. „Aftur á móti tölum við gjarnan um klónun þegar gen era flutt á milli lífvera og ef við finn- um eitthvað nothæft í hverabakter- ínum þá tökum við genin úr og flytj- um annað. Þarna eram við að klóna einstök gen. Gen eru tekin úr hverabakteríum og flutt í kólígerla." Aðspurður sagði Jakob að til að byrja með væri vinnuafl nægt hér á landi þó einhver skortur gæti orðið á h'ffræðingum. „Ég vil endilega hvetja fólk til að nema líftækni og betra er að byrja snemma því átta ár tekur að fullnuma sig í faginu, frá stúdents- prófi í doktorspróf,“ sagði Jakob Kristjánsson, prófessor við HÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.