Morgunblaðið - 20.06.1998, Side 8

Morgunblaðið - 20.06.1998, Side 8
8 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Davíð Oddsson birtir bréf •i i J •! • TT W Málfarsráðunautur RÚV telur orðið „Internet“ étækt Mælir með orð- inu „lýðnet“ MÁLFARSRÁÐUNAUTUR Ríkisútvarpsins segist myndu vísa fólki á að nota orðið „lýðnet“ yfir „intemet", enda sé orðið þannig íslenskað í nýlegu tölvu- orðasafni, aðspurð um hvaða stefnu Ríkisútvarpið hafi í þeim efnum. Helga Jónsdóttir sagðist í sam- tali við Morgunblaðið vera ný í starfi málfarsráðunautar. Forveri hennar í starfi, Margrét Pálsdótt- ir, hefði verið hlynnt því að nota orðið „netið“ og hún væri sam- þykk því að nota það sem stytt- ingu. Helga sagði aðspurð að það væri stefna Ríkisútvarpsins að nota íslensk orð þegar þeirra væri völ og orðið „internet" væri ótækt vegna fyrri hluta orðsins sem væri ekki mótaður samkvæmt reglum íslensks máls. Hins vegar mætti velta því fyr- ir sér að þegar „Internet“ væri notað sem sérheiti eins og „Extrablaðið“ til dæmis, hvort þá giltu aðrar reglur, en sumir beittu því sem röksemd fyrir því að nota orðið. Það sem henni þætti hins vegar verst í þessu máli væri að það næðist ekki samstaða um það hvaða orð skyldi notað. Ekki bannað beinlínis Aðspurð hvort fréttamönnum og öðrum þeim sem töluðu í Rík- isútvarpið væri uppálagt að nota ekki „Intemet“ sagðist hún telja að þeim hefði ekki verið bannað það beinlínis, en mælt hefði verið með því af fyrri málfarsráðunaut að nota „netið“. Hennar stefna yrði sennilega sú að benda fólki á að nota það sem stæði í tölvuorða- safni, þ.e.a.s. „lýðnet“ og stytting- una „netið“. Ohapp í Reykjavíkurhöfn Litlu mátti muna LITLU munaði að tjón hlytist af þegar verið var að toga rækju- togarann Helgu RE upp í slipp Stálsmiðjunnar í Reykjavík á þriðjudagskvöld í síðustu viku. Togvír í skipið slitnaði og rann það vélarvana niður í höfnina. Lóðsbát- ur, sem fyrir tilviljun var nær- staddur, náði að stöðva skipið rétt áður en það skall á togaranum Snorra Sturlusyni RE sem lá við Grandahöfn. Tvö botnstykki á Helgu RE skemmdust við óhappið en skipið hélt til veiða daginn eftir. Hjá Vinnueftirliti ríkisins fengust þær upplýsingar að um hefði verið að ræða nýlegan vír sem engu að síð- ur hefði verið farinn að ryðga. Sýni úr vímum hefðu verið send til rannsóknar og búast mætti við nið- urstöðum inpan tíðar. Hjá Stálsmiðjunni fengust engar upp- lýsingar um málið. LU Gæðakex Maarud skrúfur HEIN • UM LAND ALLT Ráðstefna um drauga, skrímsli og tröll Itarlegt drauga- kort af Suður- landi í bígerð Bjarni Harðarson DRAUGA- og trölla- skoðunarfélag Evrópu gengst fyrir drauga-, trölla- og skrímslaráðstefnu í Skál- holti í dag, laugardaginn 20. júní, og hefst dagskrá- in klukkan 14. Ráðstefnuna setur Þór Vigfússon, einn stofnenda Drauga- og tröllaskoðun- arfélags Evrópu, og mun hann jafnframt útnefna heiðursdoktor félagsins, Evu Maríu Jónsdóttur. Þorvaldur Friðriksson skrímslafræðingur og fréttamaður segir enn- fremur frá vatnaskrímsl- um þeim sem sjá má af hlaði Skálholtsstaðar, þar sem þau flatmaga í Hvítá. Hefur Þorvaldur ferðast um Island um árabil og rannsakað sjóskrímsli og vatna- skrímsli. Erlingur Brynjólfsson sagnfræðingur segir frá Kamp- holtsmóra, sem hvað frægastur er meðal drauga á Suðurlandi, Þorfinnur Skúlason „trölli“ flytur erindi um fjallabyggja, en hann er talinn fremstur fræðimanna hérlendis í tröllafræðum. Þá flyt- ur Bjarni Harðarson blaðamaður erindi sem hann nefnir forynjur og landafræði, en hann hefur frá 1997 unnið að gerð drauga- og hindurvitnakorts af Suðurlandi. Um miðjan dag verður farið í hópferð að Bergsstöðum í Bisk- upstungum, þar sem sýruker Bergþórs risa í Bláfelli verður skoðað. Einnig verður gengið um Skálholtsstað og hlýtt á tíðasöng í Skálholtsdómkirkju. Að því búnu er boðið upp á kvöldverð og munu Eyvindur Er- lendsson og Eva María Jónsdótt- ir flytja færeyska tröllasögu und- ir borðhaldi. Ennfremur flytur Kristján Valur Ingólfsson rektor Snæfoksstaðarímu og Elísabet Jökulsdóttir skáld segir frá skrímslinu í okkur sjálfum. Þá gefst ráðstefnugestum tóm til þess að segja sögur. Ráðstefnan er haldin til heið- urs einum ágætasta draugafræð- ingi Sunnlendinga, Hreini heitn- um Erlendssyni frá Dalsmynni í Biskupstungum, og ber að til- kynna þátttöku til Ásborgar Am- þórsdóttur, ferðamálafulltrúa uppsveita Ái’nessýslu. - Hvers vegna er þessi ráð- stefna haldin? „Skipuleggjendumir vilja vekja áhuga fólks á þessum menningar- verðmætum, sem ekki eiga bara að tilheyra bókahillunum okkar, þótt þau eigi vel heima þar. Menn- ingarverðmætin tilheyra landinu okkar lika og með þessu móti má til dæmis tengja þau við ferða- mennsku, svo dæmi sé tekið. Við höfum horft til þess í ferðaþjónust- unni hér á Suðurlandi undanfarin ár að okkur vantar ekki endilega gistingu og fæði heldur eitthvað til þess að hafa fyrir stafni. Hugmyndin að ráðstefnunni kom upp í samtali við Ásborgu Amþórsdóttur ferðamálafulltrúa, þegar ég sagði henni frá áhuga mínum á því að að kort- leggja söguslóðir drauga, trölla og hindurvitna á Suðurlandi og vinnu minni í tengslum við það verk- efni. Það hafði verið gam- all draumur hjá mér að geta byij- að á þessu og þegar konan mín fór til náms í Hollandi síðasta vetur gafst mér loks tóm til þess að sinna því þar ytra. Margir töldu ► Bjami Harðarson fæddist í Ámýjarhúsi í Hveragerði árið 1961 og er alinn upp í Laugarási í Biskupstungum. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um á Laugarvatni árið 1981 og lagði að því búnu stund á sagn- fræði við Háskóla íslands í eitt og hálft ár. Hann ritstýrði Stúd- entablaðinu á sama tíma og hef- ur starfað við blaðamcnnsku upp ft-á því, meðal annars á NT og Helgarpóstinum. Ilann ritstýrði Bóndanum 1986-1987 sem og Bændablaðinu 1987-1993 og gaf það jaftiframt út sjálfur. Þá rit- stýrði hann ferðablaðinu Landi árið 1984 og hefur verið ritsljóri og aðaleigandi Sunnleska frétta- blaðsins á Selfossi frá 1991. Bjarai er kvæntur Elínu Gunn- laugsdóttur tónskáldi og eiga þau tvö böm. Bjarni átti tvö böm fyrir og hefur annað þeirra alist upp hjá þeim Elínu. Hann er einn félaga í Drauga- og tröllaskoðunarfélagi Evrópu. mig galinn að skipa út með mér 60 bókakössum. Ég setti mér það markmið í upphafi að geta sett að minnsta kosti 300 tákn inn á landa- kortið í þremur sýslum Suður- landsundirlendis en eftir að hafa farið í gegnum bækumar sem ég hafði meðferðis úti og heimildir á bókasöfnum hér er ljóst að þeir verða um 500 talsins. Tilefnið er mismerkilegt, allt frá sögusögnum um nykur eða álfabyggð upp í magnaðar drauga- og tröllasögur um viðkomandi stað og jafnvel merki þar um í landslaginu." - Hvers vegna heitir félagið Drauga- og tröllaskoðunarféhig Evrópu og hversu margir eru fé- lagsmenn? „Félagatal er í minni einstakra félagsmanna og allir sem hafa ver- ið útnefndir stofnfélagar mega taka inn nýja félagsmenn. Síðan geta draugar verið í félaginu, og eru einhveijir, svo lítið er vitað um raunverulegan fjölda félaga. Drauga- og tröllaskoðunarfélagið var stofnað íýrii' um það bil tveim- ur árum og með heiti félagsins var horft til þess að hægt væri að leita eftir styrkjum til Evrópusam- bandsins. Félagið hefur ýmis þjóð- þrifaverkefni á sinni könnu og hefur meðal annars ráðgert að endur- byggja leitarmannakofa rétt við Bláfell, þar sem var mjög rammur draugagangur, og þá að fá styrk til þess verkefnis. Utlendingar sem hafa dvalið í Tungunum hafa verið viðriðnir félagið og okkur þótt því rétt að hafa á því alþjóðlegan blæ.“ Nokkrir draugar í félaginu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.