Morgunblaðið - 20.06.1998, Síða 9

Morgunblaðið - 20.06.1998, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 9 FRÉTTIR Astand rjúpna- stofnsins vorið 1998 Aukin verkefni hjá Flugleiðum Nokkuð á annan tug flugmanna ráðinn FLUGLEIÐIR hyggjast á næstunni ráða nokkuð á ann- an tug flugmanna. Verða þeir bæði ráðnir á þoturnar til millilandaflugs og á Fokker vélarnar sem leigðar eru Flugfélagi íslands ásamt áhöfnum. Jens Bjarnason, flug- rekstrarstjóri Flugleiða, seg- ir að vegna aukinna verkefna þurfi að fjölga flugmönnum um nokkuð á annan tug en ekki sé á þessari stundu hægt að segja nákvæmlega hversu margir verða ráðnir. Ný 757-200 þota bætist í flota Flugleiða í apríl á næsta ári og segir Jens þennan langa aðdraganda nauðsynlegan til að ráða nýja flugmenn og til að fá ráðrúm til þjálfunar flugmanna þegar þeir flytjast milli véla. Umsóknarfrestur er til 1. júlí næstkomandi. Umsækj- endur skulu hafa gilt íslenskt atvinnuflugmannsskírteini með blindflugsáritun, hafa lokið bóklegu námi til rétt- inda atvinnuflugmanns I. flokks og hafa lokið fullgildu stúdentsprófi eða öðru námi sem félagið metur sambæri- legt. RJÚPNATALNINGAR á vegum Náttúrufræðistofnunar Islands nú í vor sýna samfellda fjölgun um norðanvert, norðaustanvert og austanvert landið og hefur varp- stofninn á þessum svæðum ekki verið jafnstór síðan 1988. Á Suð- vestur- og Vesturlandi virðist hins vegar vera mikil fækkun í rjúpna- stofninum. Þessa fækkun má rekja til mikilla vetraraffalla, einkum þungs veiðiálags á þeim svæðum. „Islenski rjúpnastofninn sveiflast mikið og hafa yfírleitt liðið um tíu ár milli toppa. Munur á stofnstærð milli hámarks- og lágmarksára hef- ur verið fímm- til tífaldur. Síðasta hámark var 1986, síðan fækkaði ár frá ári og lágmarki var náð á árun- um 1991 til 1994,“ segir í fréttatil- kynningu frá Náttúrufræðistofnun Islands. „Vortalningar hafa sýnt að stofn- breytingar voru samstiga um allt land á 7. og 8. áratugnum en síð- ustu 15-20 árin hefur þar orðið nokkur breyting á. Stofnbreytingar rjúpna á taln- ingasvæðum á Norður-, Norðaust- ur- og Austurlandi hafa verið sam- stiga frá upphafi mælinga 1963; á þessum svæðum var rjúpnastofn- inn í lágmarki 1993 og 1994 en síð- an hefur verið samfelld aukning. Aukningin í varpstofninum í Hrísey 1997-1998 er um 20% og sömu sögu er að segja á talningasvæði austur á Héraði, en á sex talningasvæðum í Þingeyjarsýslum reyndist aukn- ingin mun meiri, eða 40% að meðal- tali. Mikið er orðið um rjúpur í þessum landshlutum og þarf að fara aftur til ársins 1988 til að fínna stærri varpstofn. Síðustu 15 árin hafa stofnbreyt- ingar á Kvískerjum í Öræfum verið um tveimur árum á undan því sem mælist á talningasvæðum á Norð- ur-, Norðaustur- og Austurlandi. Þannig var rjúpnastofninn á Kvískerjum í lágmarki 1991 og 1992, síðan varð aukning til ársins 1997 en nokkur fækkun milli 1997 og 1998, eða 27%. Aðra sögu er að segja af rjúpum á Suðvestur- og Vesturlandi; þar hefur ríkt kyrrstaða eða jafnvel fækkun síðustu ár. Fækkunin 1997- 1998 var um og yfír 40% á þremur talningasvæðum og á einu svæði stóð stofninn í stað. Þessar niður- stöður eru athyglisverðar í Ijósi þess að rannsóknir hafa sýnt ágæta viðkomu rjúpna á Suðvesturlandi en aftur á móti mikil afföll yfir vetr- artímann. Merkingar hafa sýnt að rjúpan er tiltölulega staðbundin og veiðiálag virðist vera mismikið á milli svæða. Þannig sýndu rann- sóknir vetuma 1995 til 1996 og 1996 til 1997 að allt að 70% fugla sem voru á lífi í nágrenni Reykjavíkur í upphafí veiðitíma, féllu fyrir hendi veiðimanna. Veiðiálagið virðist því vera mjög þungt á sumum svæðum og ekki við því að búast að stofninn á Suðvesturlandi vaxi meðan affóll- in eru svo mikil,“ segir jafnframt. Ástand rjúpnastofnsins á islandi 1963-98 STOFNVfSITALA ijúpu á Norðausturlandi, í Hrísey og á Kvískerjum. Talningar á Kvískeijum spanna tímabilið 1963-1998, í Hrísey 1963-1976 og 1983-1998 og á Norðausturlandi 1981-1998. Tölur fyrir Norðausturland eru samanlagður ijöldi karra á 6 talningasvæðum. Til að gera kvarðann sambærilegan fyrir svæðin var 1983 valið sem viðmiðunarár og sett sem 1. Þakdúkar og vatnsvarnarlög Þakdúkar og vatnsvarnarlög á ► þök ► þaksvalir ► steyptar rennur ►► ný og gömul hús - unnið við öll veðurskilyrði Coð Þjónusta °9 f*9 leg ábyrgð unóanfarin 18 ár f FAGTÚN Brautarholti 8 • sími 562 1370 Heildversluxi til sölu Lítil og rótgróin heildverslun. Góð vörumerki og viðskiptavild. Vaxandi velta. Gæti hentað sem stækkun fyrir önnur fyrirtæki. Aðeins fjársterkir aðilar koma til greina. Áhugasamir leggi inn nafn og síma á afgreiðslu Mbl. merkt: „H — 5077" fyrir 27. júnf. Sumar 20% afsláttur af öllum vörum í dag. Opið frá kl. 10-16. SUMARSPRENGJA á lagernum niðri 20-27. júní SKOVERSLI KÓPAV0GS HAMRABORG 3 . SÍMI 554 1754 FL UG TIL S VÍÞJÓÐAR ...kr. 16.900' Btll i eina viku kr. 17.9001. « *Flugvallaskattur innifalinn. 'Verð fyrir VW Polo með tryggingum og ótakmörkuðum akstri Bjóðum takmarkaðan fjölda sæta til UMEÁ í Svíþjóð í brottför 16. júlí og heimkomu 26. júlí. Einstakt tækifæri til að heimsækja náttúruperlur norður-Skandinavíu á verði sem ekki á sér hliðstæðu. Bílaleigubíll veitir ótakmarkað frelsi til að ferðast um og njóta þess besta sem Skandinavía hefur upp á að bjóða. NDRRÆNA FERÐASKRIFSTD FAN Laugavegur 3 • Sími 562 6362 smyril-iceland@isholf.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.