Morgunblaðið - 20.06.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.06.1998, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Þjóðlagadagar á Akureyri hefjast á mánudag Fjölbreytt dagskrá verður alla næstu viku Morgunblaðið/Björn Gíslason PJÖLMARGIR hafa komið að undirbúningi þjóðlagadaganna. Á mynd- inni er hluti hópsins, fremri röð f.v. Hrefna Harðardóttir, Valgerður Hrólfsdóttir, Arna Ýrr Sigurðardóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Atli Guðlaugsson. Aftari röð f.v. Valdfs Viðarsdóttir, Alice Zackarias- sen, Guðrún Kristinsdóttir og Björn Steinar Sólbergsson. í Deiglunni. Þangað mun Kvæða- mannafélagið Iðunn úr Reykjavík fjölmenna, kveðandi og yrkjandi og er búist við blóðugum átökum við kvæðamenn og hagyrðina í héraði. Kl. 22 hefst harmonikkuball á Foss- hótel KEA. Þjóðlagadögum lýkur með þjóð- lagamessu í Akureyrarkirkju sunnudaginn 28. júní kl. 21. Fjölmargir aðilar standa að þjóðlagadögum á Akureyri og má þar nefna Gilfélagið, Listasumar, Listvinafélag Akureyrarkirkju, Minjasafnið, Norræna félagið, Sumarháskólann á Akureyri, Nor- rænu upplýsingaskrifstofuna, Jass- klúbb Akureyrar, Tónslistarskól- ann á Akureyri og Þórarin Hjart- arson. ALLS hlutu 55 mjólkurframleiðendur frá 54 búum á svæði Mjólkursamlags KEA sérstaka viðurkenningu fyrir að framleiða úrvalsmjólk allt árið 1997 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Kiwanisklúbburinn Grímur 20 ára Samráðsfundur Mjólkursamlags KEA og bænda Brýnt að auka mjólkurframleiðsluna ÞJÓÐLAGADAGAR verða haldnir á Akureyri alla næstu viku, þar sem boðið verður upp á mjög fjölbreytta dagskrá. Fjölmargir aðilar hafa komið að undirbúningi þjóðlagadag- anna, sem tengjast Listasumri í bænum og er mikill áhugi á því að standa fyrir slíkum viðburði árlega. Valdís Viðarsdóttir, sem tekið hefur þátt í undirbúningi þjóðlaga- daganna, sagði að dagskráin hafi verið kynnt víða, m.a. í öllum tón- listarskólum landsins og innan FÍH. Valdís sagði að í tónlistarskólum hafi verið rætt um að íslensk þjóð- Iagatónlist hafi ekki fengið að vaxa og dafna þar innan dyra. Eitthvað þurfi að gera til að vekja áhuga á þeirri tónlist og séu þjóðlagadagar liður í þeirri viðleitni. Dagskráin hefst mánudagskvöld- ið 22. júní kl. 20.30, en þá verður boðið upp á námskeið í vikivökum og þjóðdönsum í Brekkuskóla. Námskeiðið verður endurtekið á sama tíma þriðjudaginn 23. júní. Messur AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjón- usta í Akureyrarkirkju sunnudag- inn 21. júní kl. 11.00. Kór Akureyr- arkirkju syngur, organisti Björn Steinar Sólbergsson. Guðsþjónusta verður á hjúkrunarheimilinu Hlíð kl. 16.00. Sr. Birgir Snæbjömsson. GLERÁRKIRKJA: Messa í Glerárkirkju sunnudaginn 21. júní kl. 11.00. Athugið breyttan tíma. Sr. Gunnlaugur Garðarsson. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræðissamkoma sunnudaginn 21. júní kl. 20.00. Majór Knut Gamst frá Reykjavík prédikar. At- hugið breyttan samkomutíma í sumar. Allir hjartanlega velkomnir. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sunnudagaskóli fjölskyldunnar sunnudaginn 21. júní kl. 11.30. Ald- ursskipt biblíukennsla fyrir alla fjölskylduna. Jóhann Pálsson predikar. Samkoma kl. 20.00; mikill og líflegur söngur. Snorri Óskars- son predikar. Barnapössun fyrir börn frá eins til 5 ára. Unglinga- samkoma fóstudaginn 28. júní kl. 20.00. Aksjón Laugardagur 20. júní 21 .OOÞ’Sumarlandið Þáttur ætlaður ferðafólki á Akureyri og Akureyringum í ferðahug. Sunnudagur 21.júní 21 .OOÞ-Sumarlandið Þáttur ætlaður ferðafólki á Akureyri og Akureyringum í ferðahug. Mánudagur 22. júní 21.00Þ-Sumarlandið Þáttur ætlaður ferðafólki á Akureyri og Akureyringum í ferðahug. Tríó Björns Thoroddsen og flnnsk þjóðlagasveit Kl. 23.30 þriðjudaginn 23. júní verða miðnæturtónleikar í Akureyr- arkirkju, sem tengjast opnunarhátíð Listasumars og setningu þjóðlaga- daga. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri mun setja Listasumar. Bjöm Steinar Sólbergsson orgelleikari leikur norræn þjóðlög og -dansa. Um kl. 00.30 verður boðið upp á Jóns- messunæturdans á flötinni fyrir utan kirkjuna. Hópur ungmeyja dansar spuna og túlkar Jónsmessunóttina. Miðvikudaginn 24. júní verður Jónsmessuhátíð á Nýhöfn, uppfyll- ingunni við Strandgötu og hefst hún kl. 18.00. Þar verður boðið upp á snúningsbrauð, varðeld, þjóðdans og söng. Kl. 21.00 verða tónleikar í Samkomuhúsinu. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju flytja þjóðlög í kórútsetningu og Tríó Björns Thoroddsen og Egill Ólafsson flytja „Halla kerling í heimsreisu". Meira en 100 gestir koma Grímsey. Morgunblaðid KIWANISKLÚBBURINN Grímur í Grímsey heldur upp á 20 ára afmæli sitt í dag. Að sögn Bjarna Magnússonar, sem sæti á í undirbúningsnefnd, er búist við miklu fjölmenni. I vikunni höfðu um 130 manns tilkynnt komu sína til Grímseyjar í tilefni afmælisins en það er fleira fólk en allir íbú- ar eyjarinnar í dag. Eyja- skeggjar búast við að hýsa bróðurpartinn af gestunum en þeir sem kjósa útilegu geta búið um sig á tjaldsvæði. Fimmtudaginn 25. júní verður heitur fimmtudagur í Deiglunni kl. 21.30, þar sem finnska þjóðlaga- sveitin Gjallarhom stígur á svið en hún hefur vakið mikla athygli á síð- ustu misserum. Sveitin skemmtir gestum með goðsagnasöng og áköf- um fiðlutónum og trumbuslætti. Málþing um fslenska þjóðlagið Föstudaginn 26. júní verður fyrri dagur málþings um stöðu íslenska þjóðlagsins í fortíð, nútíð og framtíð. Málþingið fer fram á sal Tónlistar- skólans á Akureyri og stendur frá kl. 10-12 og 13.30-16. Um kvöldið, eða kl. 21, verða tónleikar í Deiglunni, þar sem Ragnheiður Ólafsdóttir og Þórarinn Hjartarson syngja Pál Ólafsson og fleira. Bára, Diddi og Njáll kveða, syngja og spila þjóðlög. Laugardaginn 27. júní er seinni dagur málþings um stöðu íslenska þjóðlagsins í Tónlistarskólanum og stendur frá kl. 10-12 og 13.30-16. Kl. 21 um kvöldið verður svo kvöldvaka ÁRLEGUR kynningar- og sam- ráðsfundur Mjólkursamlags KEA með bændum var haldinn á Foss- hótel KEA í vikunni. Á fundinum var farið yfir afkomu Mjólkursam- lagsins á síðasta ári og veittar við- urkenningar fyrir úrvalsmjólk. Einnig fluttu framkvæmdastjór- ar mjólkur- og kjötiðnaðarsviða KEA, aðstoðarkaupfélagsstjóri og kaupfélagsstjóri framsöguerindi um ýmis hagsmunamál bænda og KEA. Hjá þeim kom fram sú skoð- un að vinna bæri að aukinni sam- vinnu og jafnvel sameiningu kaup- félaga á Norðurlandi og hafa könn- unarviðræður í þeim efnum átt sér stað. Rekstur Mjólkursamlags KEA var með mjög svipuðu sniði á liðnu ári og árið á undan. Mjólkurmagn var nánast óbreytt, jókst um 0,43% og var 19,8 milljónir lítra. Afkoman batnaði milli ára og skilaði rekstur- inn tæpum 4 milljónum króna í hagnað á móti tæplega 2 milljóna króna tapi árið á undan. Eigna- staða samlagsins er sterk og er það eitt best búna mjólkursamlag landsins. í máli Þórarins E. Sveinssonar, aðstoðarkaupfélagsstjóra og fráfar- andi mjólkursamlagsstjóra, kom fram að þrátt fyrir hagnað þurfi af- koman að batna og er brýnt að ná fram meiri samstöðu og samstarfi afurðastöðva í mjólkuriðnaði á Norðurlandi. Framtíð mjólkur- framleiðslu björt Gæðamál hafa verið ofarlega á baugi hjá Mjólkursamlagi KEA á undanförnum árum. Bæði er þar um að ræða innra starf samlagsins og samvinnu við bændur við að auka gæði mjólkur. Hefur mikill árangur náðst í þeim efnum, mjólk- ursamlaginu og bændum til hags- bóta. Þrátt fyrir að uppfylla þurfi afar ströng skilyrði ná stöðugt fleiri bændur því marki að fram- leiða úrvalsmjólk og á síðasta ári voru það 55 framleiðendur á 54 bú- um. Voru þeim veittar sérstakar viðurkenningar á fundinum. Fimm bú hafa náð þeim einstaka árangiá að leggja inn úrvalsmjólk í tíu ár eða oftar. Hólmgeir Karlsson, fram- kvæmdastjóri mjólkuriðnaðarsviðs KEA, fór yfir stöðuna í mjólkur- framleiðslu svæðisins og sagði brýnt að auka framleiðsluna eins og frekast er kostur. Hann sagðist meta stöðuna þannig að framtíð mjólkurframleiðslu í Eyjafirði sé björt. Staða bænda hafi verið að styrkjast og styrkur svæðisins felist m.a. í að hér eru bú óvenjustór ef miðað er við landsmeðaltal. Meðalbú í Eyjafirði framleiðir 115 þúsund mjólkurlítra árlega en meðaltalið fyrir landið í heild er 80 þúsund lítrar. „Við höfum allt sem þarf til vaxtar og ég tel mikilvægt að bændur og samlagið sameini krafta sína í framtíðinni,“ sagði Hólmgeir. Vilji til sameiningar kaupfélaga Helgi Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri kjötiðnaðarsviðs KEA, fór yfir stöðuna á kjötmark- aði og horfur í þeim málum. Hann sagði nauðsynlegt að halda vel vöku sinni, enda samkeppnin um hylli neytenda hörð. Miklar framkvæmd- ir hafa verið hjá Kjötiðnaði KEA að undanförnu og sóknarhugur ríkj- andi. í máli Eiríks S. Jóhannssonar kaupfélagsstjóra kom fram að KEÁ muni einbeita sér að gæða- málum og því að stækka fram- leiðslueiningar sínar. Liður í því eru m.a. áðurnefndar könnunarvið- ræður við önnur kaupfélög um samvinnu og samruna og er KEA tilbúið að skoða alla kosti í þeim efnum. Opinn fýrirlestur Þriðjudagur 23. júní 1998 klukkan 20.30. Staður: Oddfellowhúsið við Sjafnarstíg. Bjarni Tryggvason geimfari. Bjarni segir frá ferð sinni með geimferjunni Discovery og sýnir myndir. Ath.: Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn meöan húsrúm leyfir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.