Morgunblaðið - 20.06.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.06.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 19 Morgunblaðið/Tómas Grétarsson TRYGGVI Ingólfsson, Björn Bjarnason og Bjarni Matthiasson undir- rita samningana. Meirihluti í sveitarstjórn Þjónustu- samningur undirritaður Holti - Björn Bjarnason mennta- málaráðherra, Bjarni Matthíasson, fyrir hönd héraðsnefndar V-Skaft- fellinga, og Tryggvi Ingólfsson, fyr- ir hönd héraðsnefndar Rangæinga, undirrituðu fyrir nokkru skipulags- ski'á um sjálfseignarstofnunina Skóga, þjónustusamning við menntamálaráðuneytið, ásamt leigusamningi um húsnæði fyrrum Héraðsskólans á Skógum. Ráðherra hafði boðið til þessarar undirritunar í Skógum og rakti hann aðdraganda og skýrði þær breytingar, sem þessir samningar hefðu í för með sér, en með þeim væri áframhaldandi rekstur Fram- haldsskólans í Skógum tryggður frá og með 1. ágúst nk. Þetta hefði ver- ið gert að ósk heimamanna, héraðs- nefnda og skólanefndar skólans, þar sem stefnt væri að nýjungum í skólastarfí, sem hann vænti að næðu fram. Skólameistari Framhaldsskólans í Skógum, Sverrir Magnússon, þakkaði ráðherra íyrir og sagði að nú væri skólinn að koma heim á ný, en upphaflega hefði skólinn verið stofnaður af Rangárvalla- og V- Skaftafellssýslum árið 1949 eftir að sýslurnar tóku við jörðinni Ytri- Skógum, sem gjöf frá eigendum til að stofna þar skóla. Árið 1962 hefði ríkið tekið við byggingum og rekstri skólans. Nú væri það heimamanna með stuðningi menntamálaráðu- neytisins að reka Framhaldsskól- ann í Skógum sem einkaskóla á framhaldsskólastigi. Samningurinn gerði ráð fyrir kennslu á starfs- brautum, sem væri nýjung, með al- mennu tveggja ára námi á bók- námsbraut. Þegar hefði tekið til starfa námsbraut í hestamennsku með góðum árangri og unnið væri að því að koma upp fleiri starfs- brautum við skólann. Með þessari breytingu myndi sjálfseignarstofn- unin Skógar væntanlega takast á hendur ný starfssvið, til að renna fleiri stoðum undir rekstur og upp- byggingu á staðnum í þágu skólans og Byggðasafnsins. Hvammstanga - Undirritaður hef- ur verið málefnasamningur milli B- lista framsóknarmanna, H-lista fé- lagshyggjufólks og Q-lista ungra eldhuga. Meirihlutann skipa því fjórir sveitarstjórnarmenn af sjö. Samkomulag er um að oddviti verði af B-lista fyrri tvö árin og H- listinn skipi formann Byggðaráðs sömu ár. Seinni hluta kjörtímabils- ins skipta listarnir um hlutverk. Q- listinn fær formennsku í nokkrum nefndum og mann allt kjörtímabilið í Byggðaráði. Auglýst hefur verið eftir sveitar- stjóra, en farið hefur verið fram á við núverandi sveitarstjóra, að hann gegni störfum um sinn. Um- sóknarfrestur var til 16. júní. I málefnasamningi er aðaláhersla lögð á atvinnumál og skólamál. Kanna á með atvinnuþróunarsjóð, einkum til stuðnings einstaklingum sem hefja vilja rekstur. Ráðning ferðamálafulltrúa í samvinnu við hagsmunaaðila er í málefnasamn- ingnum. Skólamálin markast af ráðningu fagaðila, sem geri fjárhagslega, faglega og félagslega úttekt á stöð- unni í dag og til að móta framtíðar- stefnu. Athugað verði hvort hefja skuli byggingu íþróttahúss á Hvamms- tanga og unnin áætlun þar um. Framkvæmdirnar hafi ekki for- gang fram yfir aðrar nauðsynlegri framkvæmdir, t.d. í atvinnumálum. Meirihlutinn er því þannig skip- aður: Elín R. Líndal oddviti, Guð- mundur Haukur Sigurðsson, for- maður Byggðaráðs, Agúst Jakobs- son og Gunnar Sveinsson. Minni- hluta skipa Olafur B. Oskarsson og Þorvaldur Böðvarsson af D-lista og af F-lista Þorsteinn B. Helgason. Aflmiklir, rúmgóðir, öruggir og einstaklega hagkvæmir í rekstri BALEf BALENO SWIFT BALENO VITARA GRAND VITARA TEGUND: VERÐ: TEGIJND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: TEGUND: VERÐ: GLS 3d 980.000 KR. 1,3GL 3d 1.140.000 KR. JLX SE 3d 1.580.000 KR. GR,VITARA 2,0 L 2.179.000 KR. GLX 5d 1.020.000 KR. 1,3GL 4d 1.265.000 KR. l,6GLX4d 1.340.000 KR. 1,6 GLX 4x4 4d 1.495.000 KR. 1.6GLXWAGON 1.445.000 KR. WAGON 4x4 1.595.000 KR. JLX SE 5d 1.830.000 KR. DIESEL 5d 2.180.000 KR. Sjálfskipting kostar 150.000 aukalega GR. VITARA 2,5 L V6 2.589.000 KR. Sjáifskipting kostar 150.000 aukalega Sjálfskipting kostar 100.000 aukalega ALLIR SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ: • vökvastýri • 2 lohpúða • aflmiklar vélar • samlæsingar rafmagn í rúðum og speglum • styrktarbita i hurðum • • samlitaða stuðara • $ SUZUKI SUZUKISÖLUUMBOD: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slml 431 28 00. Akureyrl: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 4G2 63 00. Egilsstaðir: Blla- 09 búvélasalan hf„ Miðási 19, slmi 471 2011. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. Isafjörður: Bilagarður ehf.,Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavlk: BG bllakringlan, Grðfinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, slmi 482 37 00. Hvammstanga: Blla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 2617. SUZUKIBILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.