Morgunblaðið - 20.06.1998, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.06.1998, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 ERLENT MORGUNB LAÐIÐ Enn vekur Starr deilur Washington. Reuters. KENNETH Starr, sérstakur sak- sóknari í Bandaríkjunum, olli frekari deilum á fimmtudag er kviðdómur, er rannsakar meint kynlífshneyksli í Hvíta húsinu, yfirheyrði Frank Cart- er, sem var fyrsti lögfræðingur Mon- icu Lewinsky. Carter aðstoðaði Lewinsky við að skrifa eiðsvama yf- ii'lýsingu þar sem hún fullyrti að hún hefði aldrei átt í kynferðislegu sam-' bandi við Bill Clinton forseta. Carter kom fyrir kviðdóminn eftir að hafa reynt árangurslaust að fá dómsúrskurð um að Starr gæti ekki krafist þess að Carter legði fram skjöl og bæri vitni við rannsóknina á meintu sambandi Lewinskys og Clintons. Rannsókn Starrs beinist að því hvort Clinton hafi staðið að samsæri um að hefta framgang málsóknar Paulu Jones með því að fá Lewinsky til mein- særis. Máli Jones hefur verið vísað frá dómi. Hikaði aldrei Carter sagði í viðtali við The Washington Post í gær að Lewin- sky hefði ekki sagt sér að hún hefði þegið gjafir af Clinton eða að vinur forsetans, Vemon Jordan, hefði hjálpað sér við að finna starf. Cart- er sagði ennfremur að Lewinsky hefði ekki gefið í skyn á nokkum hátt að hún hefði staðið í nánu sam- bandi við forsetann. „Hún hikaði aldrei. Hún gaf mér aldrei neinar upplýsingar sem stangast á við það sem segir í yfir- lýsingunni," sagði Carter. „Nú er hálft ár síðan og holskefla stað- reynda og viðtala og skjala riðin yf- ir, en hver veit? Á sínum tíma hafði ég enga ástæðu til að efast um það sem hún sagði mér.“ Carter hélt því fram að ákvæði um trúnað lögmanns og skjólstæð- ings kæmi í veg fyrir að greina mætti frá því sem honum og Lewin- sky fór á milli. Lögmaður hans, Charles Ogletree, segir að Carter hafi ekkert vitað um mögulegar lyk- ilvísbendingar, svonefnd „spjallat- riði“, sem Lewinsky er sögð hafa látið vinkonu sína, Lindu Tripp, hafa og fólu í sér tillögur að því sem Tripp skyldi segja lögfræðingum Jones. Eftir því sem rannsókn kvið- dómsins hefur undið fram hafa vaknað nýjar spurningar varðandi yfirlýsingar Starrs í 19 síðna bréfi til Steve Brills, ritstjóra, sem skrif- aði grein þar sem hann gaf í skyn að Starr hefði í viðtali gengist við því að hafa lekið upplýsingum til frétta- manna. Grein Brills hefur valdið uppnámi, vegna þess að saksóknur- um er óheimilt að greina frá upplýs- ingum sem rannsóknarkviðdómur hefur undir höndum. Leki eða ekki Starr neitar því að hafa greint frá slíkum upplýsingum, en bandamenn Clintons hafa veist að sanngimi SL arrs og óhlutdrægni með því að gera mildð úr því að hann hafi viðurkennt að hafa veitt nokkrum fréttamönn- um innanhússupplýsingar án þess að gefa upp hvaðan þær bærust. I bréfinu til Brills neitar Starr hverri ásökuninni á fætur annarri. Hann segir m.a. að embætti hans hafi aldrei farið þess á leit við Lewinsky að hún bæri segulband innan klæða í þeim tilgangi að afla upplýsinga sem gætu nýst gegn Clinton eða Vemon. Rannsóknin verði rannsökuð Þetta stangast á við það sem fram kom í Time 16. febrúar sl. Þar fullyrtu lögfræðingar Lewinskys að saksóknari krefðist þess að hún „hleraði" gegn því að vera hlíft við málshöfðun. „Stjómvöld vildu ekki einungis að skjólstæðingur okkar segði frá, heldur vildu þau að hún hleraði, að hún tæki upp símtöl við forseta Bandaríkjanna, Jordan og fleiri - að kröfu yfirvalda." Grein Brills hefur orðið til þess, að bandamenn Clintons, og fleiri, hafa krafist þess að rannsókn St- arrs verði rannsökuð. Janet Reno, dómsmálaráðherra, sagði á fimmtu- dag að hún hefði ekki enn tekið ákvörðun um hvernig bragðist yrði við þessari kröfu. Sagði hún að ásökunum gegn Starr hefði verið vísað til fagábyrgðarskrifstofu ráðuneytisins, sem hefiu- með hönd- um innra eftirlit, en þar hefði ekki verið hafin rannsókn. Miðlunar- tilraun OAU árang- urslaus Addis Ababa. Reuters. TALSMENN Einingarsamtaka Af- ríku, OAU, tilkynntu í gær að ekk- ert hefði miðað í tilraunum þeirra tii að miðla málum í landamæradeiiu Eþíópíu og Erítreu. „Sendinefndinni tókst ekki, að svo komnu máli, að mjaka málinu áfram í þá átt sem lagt var upp með sem takmark,“ tjáði Salim Áh- med Salim, framkvæmdastjóri OAU, fréttamönnum, en hann vís- aði með þessum orðum sínum til friðaráætlunar sem fulltrúar stjórna Bandaríkjanna og Rúanda höfðu sett saman. Salim sagði samningamenn Erít- reu hafa hafnað tillögum friðará- ætlunarinnar, sem gengur út á fjögur meginatriði, í viðræðum gærdagsins. Stjóm Erítreu hefur sett sig upp á móti áætluninni allt frá því hún kom fyrst til tals fyrir hálfum mánuði og svo virtist sem átök gætu brotizt út á ný milli ná- grannaríkjanna eftir að miðlunar- tilraun OAU fór út um þúfur með þessum hætti. Reuters Sirkustjaldið hrundi BJÖRGUNARSVEIT flytur hér fjölleikasýningu í Wisconsin í ir á sjúkrahús eftir að súlurnar slasaðan mann á sjúkrabörum eftir Bandaríkjunum vegna storms. brotnuðu með þeim afleiðingum að að sirkustjald féll niður í miðri Hátt í 30 sýningargestir voru flutt- tjalddúkurinn féll yfir áhorfendur. Ný samtök franskra Evrópuandstæðinga Franska þingið hunzar ESB-lög París. Reuters.A FRANSKA þingið lét í gær undan þrýstingi hagsmunasamtaka veiði- manna og samþykktu, þvert á að- varanir framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins (ESB) og um- hverfisverndarsamtaka, að lengja veiðitímabilið fyrir farfugla framyf- ir það sem leyfilegt er samkvæmt löggjöf ESB. Atkvæði féllu þannig, að 92 þing- menn samþykktu lagafrumvarp, sem kveður á um að farfuglaveiðitímabil- ið hefjist 14. júlí, mánuði fyrr en leyfilegt er samkvæmt samþykktum ESB. 20 greiddu atkvæði á móti. Frumvarpið leyfir líka að vissar fuglategundir verði veiddar fram yfir 31. janúar, sem er síðasti dagur veiðitímabilsins samkvæmt reglum ESB. Það hefur þegar hlotið sam- þykki efri deildar franska þingsins. Talsmaður framkvæmdastjómar- innar í Brussel upplýsti í gær að frönsk stjómvöld ættu von á bréfi, þar sem þau væru hvött til að hlíta ESB-lögum, ella eigi þau yfir höfði sér málaferli fyrir Evrópudómstóln- um og háar fjársektir. París. Reutera. CHARLES Pasqua, fyrrverandi innanríkisráðherra Frakklands og einn þekktasti frammámaður franskra efasemdamanna um Evr- ópusamranann, greindi frá því í blaðaviðtali í gær að hann hygðist stofna nýja hreyfingu hægrimanna, sem hefði það að takmarki að berj- ast gegn stækkun Evrópusam- bandsins (ESB) til austurs. Pasqua sagði i viðtali við viku- blaðið Le Point, að samtökin Dema- in ia France (Frakkland á morgun) yrðu stofnuð formlega á ráðstefnu helgaðri fullveldi hins franska þjóð- ríkis. „Fram að þessu vorum við aðeins umræðuhópur, en nú eram við að breyta honum í virka hreyfíngu sem berst fyrir fullveldi Frakk- lands,“ var haft eftir Pasqua, sem jafnframt er einn af leiðtogum Gaullistaflokksins RPR, sem Jacques Chirac forseti tilheyrir einnig. Pasqua, sem hefur áður látið til sín taka í baráttu gegn öðrum þátt- um Evrópusamranans, svo sem myntbandalaginu (EMU) og sam- þykkt Maastricht-sáttmálans, sagði að hann myndi þrýsta á Chirac að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárbreytingu, sem Am- sterdam-sáttmálinn svokallaði kall- ar á, en hann samþykktu leiðtogar ESB og felur í sér breytingar á stofnsáttmála sambandsins sem nauðsynlegar eru til að búa í haginn fyrir fjölgun aðildarríkja. Ellefu ríki Mið- og Austur-Evrópu bíða aðild- ar. Chirac og Jospin samstiga Samkvæmt frönskum lögum þarf slík stjórnarskrárbreyting að vera samþykkt annað hvort af meirihluta þingmanna beggja deilda þjóð- þingsins á sameiginlegum fundi þeirra, eða með þjóðaratkvæða- greiðslu. Til stendur að báðar deild- ir þingsins komi saman í þessum til- gangi strax eftir sumarhlé í haust. Chirac og Jospin forsætisráðherra hafa gefið til kynna að þeir kæri sig ekki um að bera málið undir þjóðar- atkvæði. Aukin spenna á Kýpur ÞRJÁR tyrkneskar F-16 orr- ustuþotur fóra í gær frá Norð- ur-Kýpur, eftir stutta heim- sókn sem var svar við komu sex grískra herflugvéla til Suður- Kýpurs fyrr í vikunni. Hefur þetta auldð spennuna í sambúð Grikkja og Tyrkja á eynni. Ut- anríkisráðherra Tyrklands, Ismali Cem, hét því í gær að stjómvöld myndu svara öllum þeim aðgerðum sem Grikkir kynnu að grípa til í deilum ríkj- anna um eyjuna. Bandaríkja- menn og Þjóðverjar gáfu út yf- irlýsingar þar sem þeir lýstu áhyggjum sínum vegna vaxandi spennu í samskiptum Kýpur- Grikkja og Kýpur-Tyrkja. Stjóm Grikkja á suðurhluta eyjarinnar er viðurkennd á al- þjóðavettvangi, en einungis Tyi’kir viðurkenna stjóm Kýp- ur-Tyrkja á norðurhlutanum. Tekið á bullunum BRESK stjómvöld tilkynntu í gær um nýjar ráðstafanir er miða að því að koma í veg fyrir vandræði vegna bulluskapar breskra knattspymuaðdáenda á HM í Frakklandi. Voru hert viðurlög við broti á banni við að fara á knattspyrnuleiki erlend- is. Geta þeir sem brjóta lögin átt yfir höfði sér allt að hálfs árs fangelsi. Nauðlending á Kastrup BOEING 737-300 frá flugfélag- inu Air Europe nauðlenti á Kastrupflugvelli við Kaup- mannahöfn í gær vegna bilunar. 146 farþegar vora um borð og sex manna áhöfn og sakaði eng- an. Vélin var á leið frá Ósló til Malaga á Spáni. Skömmu eftir flugtak frá Gardemoen kom í ljós bilun í vökvakerfi og að sprungið var á hjóli. Vélin er 10 ára. Önnur flugvél flutti farþeg- ana á áfangastað. Vilhjálmur kvartar VILHJÁLMUR prins á Bret- landi hefur í fyrsta sinn lagt fram kvörtun vegna framgangs fjölmiðla, bálvondur vegna „stórkostlega meiðandi og óá- reiðanlegrar" umfjöllunar af því tagi sem Díana móðir hans mátti þola. Það var grein í Mail on Sunday um 16 ára afmæli prinsins sem gerði honum svona gramt í geði. Sagði þar m.a. að starfsfólk athugaði sér- staklega þær stúlkur sem hon- um geðjaðist að áður en þeim væri boðið í te. Fylgið aldrei minna HÆGRIFLOKKURINN í Noregi hefur aldrei áður mælst með eins lítið fylgi í skoðana- könnunum og nú. Þá hefur Kristilegi þjóðarflokkurinn einnig misst fylgi. Verkamanna- flokkurinn og Framfaraflokkur- inn bæta hins vegar við sig. Skoðanakönnunin var gerð fyrir Aftenposten.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.