Morgunblaðið - 20.06.1998, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Ný upplýsinga- og tilboðsþjónusta fyrir neytendur og fyrirtæki landsins
Tilboðslínan
í GÆR var opnað nýtt fyrirtæki,
Tilboðslínan, sem sérhæflr sig í
þjónustu við neytendur og fyrir-
tæki. Markmið fyrirtækisins er að
auðvelda neytendum aðgengi að
upplýsingum um verð á vörum hjá
mismunandi fyrirtækjum og að auð-
velda tilboðsgerð bæði fyrir ein-
staklinga og fyrirtæki.
Axel Axelsson framkvæmdastjóri
Tilboðslínunnar var tekinn tali í til-
efni opnunar íyrirtækisins og hafði
hann eftirfarandi um starfsemina að
segja:
„Kjarni Tilboðslínunnar er tví-
þættur, annars vegar gott símkerfí,
sem er stækkanlegt á alla kanta og
hins vegar gagnagrunnur Til-
boðslínunnar sem er sérsmíðaður af
Margmiðlun hf. Gagnagrunnurinn
verður upplýsingamiðstöð íyrirtæk-
isins en er rekinn af Margmiðlun hf.
og verður auk þess á Netinu. Fyrir-
tæki gera árssamning við Til-
boðslínuna og hafa þá aðgang að
gagnagrunninum og geta sett sín
tilboð og verð inn um leið og þau
verða til eða breytast," segir Axel.
Þjónusta sem virkar fyrir
neytandann
Axel segir að Tilboðslínan veiti
þjónustu sem byggist á víxlverkun
á milli neytenda og fyrirtækja.
„Neytendum er mikill hagur að því
að í boði sé mikið af vörum og mörg
fyrirtæki séu tengd Tilboðslín-
unni.“ Þessi víxlverkun verður að
vera í lagi til að þjóna hagsmunum
bæði neytenda og fyrirtækja. „Ef
neytandinn hringir inn og ekkert
aðildarfyrirtæki Tilboðslínunnar
hefur vöruna sem spurt er um mun-
um við aðstoða við að finna viðkom-
andi vöru. Við erum þjónustufyrir-
tæki fyrst og fremst og leggjum
mikla áherslu á þann þátt fyrirtæk-
isins vegna þess að þetta er þjón-
usta sem virkar fyrir neytendur,"
segir Axel. „Ef neytendum líkar
þjónustan verður efth-leikurinn
auðveldari."
Ef fjölskylda ákveður að kaupa
t.d. sjónvarp eða tölvu er það fyrsta
sem gert er að reyna að átta sig á
markaðnum og athuga verð á mis-
munandi stöðum. Eins og allir vita
sem hafa keypt inn stærri hluti fyr-
ir heimilið tekur þetta sinn tíma og
oft er heilu tímunum eytt í síman-
um til að kanna tilboðin sem bjóð-
ast. „En nú getur fólk með einu
símtali hringt inn og fengið þessar
upplýsingar. Neytandinn sparar
því bæði tíma og peninga," segir
Axel.
Morgunblaðið/Þorkell
AXEL Axelsson framkvæmdastjóri Tilboðslínunnar.
„Við bindum ekki síður vonir við
hinn hluta þjónustunnar sem er til-
boðsmarkaður, þar sem menn geta
óskað eftir tilboðum í hvað sem er.
Fjölskylda sem ætlar að láta gera
innkeyrslu hjá sér getur haft sam-
band við okkur, og við skráum upp-
lýsingar um hvað eigi að gera og
hvernig, og síðan sendum við þessar
upplýsingar út til okkar aðildarfyr-
irtækja eða leitum tilboða." Tilboðs-
gerðin er að auki þjónusta sem fyr-
irtæki geta nýtt sér sem þurfa að
kaupa inn einhverjar vörur í miklu
magni.
Mikill hluti starfsemi Tilboðslín-
unnar fer í gegnum Netið, en Axel
leggur samt áherslu á að fyrirtækið
sé ekki síður símaþjónusta. „Ekki
hafa allir aðgang að Netinu, og þjón-
ustan verður að ná til sem flestra,“
segir Axel. Hins vegar segir Axel
verða mikið var við hjá fyrirtækja-
stjómendum hve meðvitaðir þeir
séu orðnir um mikilvægi Netsins og
um þá möguleika sem það býður
upp á í viðskiptum. „En aðalatriðið
hjá Tilboðslínunni er að þjónusta
vel, hvort sem það er í gegnum síma
eða Netið,“ segir Axel.
Sækið sumarið til okkar
Bökubotn
250 g mjöl (heilhveiti eða spelt)
Fæst í heilsubúðum
1 Vi tsk malað cumin
2 msk sesamfræ
2 tsk cuminfræ
2 msk olía
1 dl vatn (meira ef með þarf)
VS> tsk salt
Byrjað er með hálfan dl af vatninu
og aukið síðan við ef með þarf. Best
1
-
Nýtt kínakál
í verslanir
NÝTt íslenskt kínakál kom í versl-
anir í gær, föstudag. I samtali við
Aðalstein Guðmundsson, sölustjóra
Ágætis hf., kom fram að þetta er
óvenjusnemmt, því í venjulegu ár-
ferði kemur kínakálið ekki á mark-
að fyrr en upp úr miðjum júlí.
í fyrra kom kálið reyndar á
markaðinn mjög snemma líka, eða
25. júní, en þetta ár slær öll met.
Góð tíð, og meginlandsveðurfarið
sem hefur yljað landsmönnum und-
anfarna daga, gerir að verkum að
kálið hefur sprottið óvenjuvel.
Aðalsteinn segir að fyrsta kálið á
markaðinn sé frá Þorvaldi bónda í
Fossvoginum í Reykjavík og sé gam-
an fyrir Reykvíldnga að verða nú í
fyrsta skipti á undan landsbyggðinni
með ldnakálið í verslanir landsins.
• Trjáplöntur, sumarblóm
og fjölærar plöntur
Opnunartímar:
• Virka daga kl, 9-21
• Um helgar kl. 9-18
GROÐRA RSTOÐIN
' © tí?
STJÖRNVGRÓF18, SÍMl 5814288, FAX 5812228
• Tvö ný fræðslurit komin: g
„Gróðursetning" og S
„Ræktaðu garðinn þinn“ m
• Glæsileg veggspjöld, “
um skrautrunna,
lauftré og barrtré i
Nýtt efni fyr-
ir íþróttafólk
NÝTT EFNI ætlað íþrótta- og
vaxtarræktarfólki er nú komið á
markaðinn. Creatine
Plus með Chitosan
er flutt inn af Inn-
fiutningi og dreif-
ingu hf. Samkvæmt
upplýsingum inn-
flytjenda stuðlar
notkun Creatine að
kröftugri líkamsæf-
ingum með því að
endumýja orkusam-
eindirnar ATP, og
eins jafnar efnið
mjólkursýrustig
vöðvanna svo hægt
er að æfa lengur án
þess að finna fyrir
þreytu. Chitosan er
náttúrulegt efni sem
dregur í sig fitu í meltingarvegin-
um og veldur því að líkaminn nær
að vinna betur úr þeirri fitu sem
fyrir er í líkamanum. Creatine Plus
er selt í 375 hylkja skömmtum og
fæst í Lyfju, Lágmúla 5, Reykja-
vík.
Sætar kartöflur
MARGIR hafa velt því fyrir sér hvers
konar grænmeti sætar kartöflur séu.
Nafnið bendir til sætleika bragðs og
ýtir undir þá skoðun að þetta sé ekki
almennilegt gi-ænmeti, heldur einhver
bastarður sem sé einhvers staðar mitt
á milli grænmetis og sykurs. Víst er
það rétt að sætu kartöflumar bera
nafn með rentu og eru talsvert sætari
á bragðið en hinar venjulegu, en hins
vegar eru þær ekki eins hitaeininga-
ríkar og nafnið gæti gefið til kynna.
Bryndís Eva Birgisdóttir næringar-
fræðingur rannsakaði næringargildi í
100 g af venjulegum kartöflum og í
100 g af sætum kartöflum og afrakst-
urinn má sjá á meðfylgjandi töflu.
Eins og sjá má eru sætar kartöfl-
ur aðeins þéttari í sér en venjulegar
kartöflur og innihalda aðeins meiri
orku, en það er mjög lítið og varla
vert að minnast á. Magn helstu
vítamína og steinefna er mjög svipað
í báðum tegundunum. Bryndís Eva
segir að sætar kartöflur séu gæða-
matur og góð viðbót við það úrval
rótarávaxta sem fyrir er á markaðn-
um.
Ilvernig á að
matreiða þær?
Sætar kartöflur eru meðhöndlaðar
í eldamennsku á mjög svipaðan hátt
og venjulegar. Þær þurfa svipaðan
suðutíma, nema ef þær eru soðnar í
bitum, en þá þarf að fylgjast vel með
þeim því þær meyrna örlítið fyrr en
venjulegar kartöflur.
Sætar kartöflur eru mjög góðar á
grillið og tilvalið að prófa þær næst
þegar fjölskyldan hyggst borða glóð-
arsteiktan mat. Þær eru einnig góð-
ar í alls kyns grænmetissúpur og
eins í hina íslensku kjötsúpu, en þær
gefa bæði gott og örlítið sætt bragð
auk þess að þykkja súpuna.
Sólveig Eiríksdóttir á veitinga-
staðnum Grænum kosti við Skóla-
vörðustíg er landsmönnum vel kunn
fyrir góða og holla grænmetismatar-
gerð. Hún segist nota sætar kartöfl-
ur mikið í sinni matreiðslu, en eins
og flestir vita notar Sólveig hvorki
hvítt hveiti né sykur í matargerð.
Sólveig segir að ef hún hafi hug á að
fá örlítið sætan bragðkeim af matn-
um séu sætar kartöflur góður kost-
ur. Sólveig gaf Neytendasíðunni
uppskrift að böku með fyllingu úr
sætum kartöflum.
Samanburðartafla
Kartöflur Sætar kartöflur
100 g 100g
Vatn 79,7 g 73,7g
Hitaeiningar 304kJ 372kJ
73 kcal 87 keal
Prótein 2,2 g 1,2 g
Fita 0,3 g 0,3g
Kólesteról 0g 0g
Kolvetni 15 g 21,3 g
Trefjar 2 g 2,2 g
Spurt og svarað
Nýtt
Nýtt
Lilan Fourré
samlokukex
KEXVE RKSMIÐJAN Frón hefur
fengið umboð fyrir Lilan Fourré
samlokukex með
súkkulaðikremi frá
belgiska framleið-
andanum Dryon
Biscuits. Hægt er
að kaupa kexið í
mismunandi stór-
um pakkningum,
annars vegar í 300
g pakkningum og
hins vegar í 500 g.
Lilan Fourré sam-
lokukexið fæst í
öllum helstu mat-
vöruverslunum
landsins.
Fyrir
veiði-
manninn
KOMINN er á
markað svokallaður
„túbuhaldari“ frá
danska fyrirtækinu
Danvise. Það er
Veiðimaðurinn í
Hafnarstræti sem
selur vöruna.
er að nota soðið, heitt vatn sem bú-
ið er að láta kólna. Deigið á að
verða viðkomu eins og mjúkur
eyrnasnepill. Deigið er flatt út í
bökuform og bakað í 3 mínútur við
200° hita.
Fylling
1 bolli (11/2 dl) soðnar, sætar
kartöflur sem búið er að mauka
1 hvítlauksrif
2 tsk karrí
______________1/2 tsk kanill__________
1 tsk salt
2 msk ferskur kóriander, saxaður
V4 bolli (1 dl) soyajógúrt,
eða venjulegt jógúrt
%-1 dl. af rifnum soyaosti
eða venjulegum
Fyllingin hrærð saman og sett í for-
bakaðan bökubotninn og bökuð í
u.þ.b. 10 mín. í 180° heitum ofni. Ef
bakan er orðin mátulega stíf eftir 10
mínútur er hún tekin út, annars
bökuð fimm mínútum lengur. Borið
fram sem aðalréttur, með salati og
hrísgrjónum, eða borið fram sem
meðlæti með aðalrétti hvort sem
það er grænmetisréttur, fisk- eða
kjötréttur.
Ef fólk hefur aldrei borðað sætar
kartöflur getur verið ágætt að
helminga sætu kartöflumar á móti
venjulegum kartöflum, eða jafnvel
nota blómkál til helminga.