Morgunblaðið - 20.06.1998, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Heimsmeistara-
mót í tölvutækni
ÞAÐ ER ekki
hlaupið að því að
halda annað eins
mót og heims-
meistarakeppnina
í Frakklandi. Ekki
bara að geta tekið
á móti á áttunda
hundrað leik-
mönnum og millj-
ónum áhorfenda,
heldur þarf einnig
að mæta kröfum
um nýjustu tækni
og til að mynda
geta tekið á móti
tugmilljónum
gesta á heimasíðu
mótsins.
Til marks um
umfang keppninn-
ar má nefna að Hewlett-Packard
leggur mótshöldurum til 2.000
Vectra HP tölvur, 100 HP Unix og
NT nettjóna, 500 Unix vinnustöðv-
ar og 500 Laserjet geislaprentara.
Þá er ótalinn ýmis búnaður sem
sjúkrastofur á völlunum um allt
Frakkland geta gripið til og jaðar-
tæki til að tengja saman þau 150
net sem sett voru upp í Frakklandi
vegna mótsins. Mælingar vegna
lyfjaprófa eru einnig gerðar með
Hewlett-Packard efnagreiningar-
tækjum.
Gagnagrunnur keppninnar er
frá Sybase og breytir hann gögn-
unum í HTML jafnharðan og beðið
er um þau á vefsetrinu með
PowerDynamo vefþjóni Sybase.
Blaðamenn hafa sérstakan aðgang
að grunninum og einnig átta millj-
ón áskrifendur að Minitel-tölvuneti
Frakka, sem er umfangsmesta
upphringinet í heimi.
Speglaður
gagnagrunnur
Til að tryggja að ekkert fari úr-
skeiðis notast aðstandendur við
OpenView-tækni Hewlett-Packard
sem gerir þeim kleift að fylgjast
með álagi og bregðast við á réttu
augnabliki, en einnig er gagna-
grunnurinn speglaður samhliða til
tólf staða í Frakklandi, sem þýðir
að gögnin ættu að vera óhult, og að-
algrunnurinn, sem liggur á bak við
vefsetrið, er speglaður til Texas og
svarar þar beiðnum frá Bandaríkj-
unum. Ahugi var síðan svo mikill á
keppninni austur í Asíu að önnur
spegilmynd er í uppsetningu þar.
Mikill gagnagrunnur hefur verið
byggður upp um það sem fram fer
og þannig hafa skráðir blaðamenn
aðgang að tölvutækum mynd-
bandabanka þar sem þeir geta séð
leikina í bútum til að skoða aftur
umdeild atvik frá öllum hliðum.
Þeir geta þannig skoðað í vafra
þegar Zidane trampar á leikmann-
inum arabíska, sem kom honum út;
af og í tveggja leikja bann. í
gagnabankanum geta þeir einnig
fengið alla upplýingar aðrar um Zi-
dane; hvenær hann var síðast rek-
inn útaf í landsleik, hversu mikil-
vægur hann er franska liðinu í
markaskorun og fyrirgjöfum og
svo má lengi telja. Hvað hreyfi-
myndabankann varðar þá sitja
tveir sérþjálfaðir starfsmenn
keppninnar með Hewlett-Packard
Omnibook fartölvur og skrá leikinn
jafnóðum með sérstökum stafalykli
sem síðar er samkeyrður með upp-
töku til að búta hana niður í rétta
hluta.
Heimsmeistarakeppnin er nú
haldin í ljósi nýrra aðstæðna í sam-
skiptum þar s_em Netið kemur
sterkt inn. A Olympíuleikunum í
Atlanta reyndu menn að setja upp
lifandi vefsetur en tókst ekki, með-
al annars vegna þess að tölvukerfið
stóðst ekki álagið, en að þessu
sinni segjast aðstandendur keppn-
innar geta tekið við 70 milljón
heimsóknum á dag á vefsetrið.
Uppsetningu kerfisins er síðan
þannig háttað að hægt er að bæta
við vél- og hugbúnaði án mikillar
fyrirhafnar og ef nauðsyn krefur er
hægt að bæta við kerfið nánast fyr-
irvaralaust getunni til að taka við
100 milljón heimsóknum á dag.
/g i * | • *
• »»
' jÁ l'
Verð frá 14.900 hmum
Afl 0,8 ti! 2,5 hestöfl
Éígum^ö'rkutaeki fyrír
erfiðustu áðstæðurnar
VETRARSÓL
Hamraborg 1-3 (norðanmegin)
Kópavogur • Sími 564 1864
Kaldur sviti
Næsta lota er framund-
an í baráttu skotleikj-
------?---------------
anna. Arni Matthíasson
komst yfir forútgáfu af
Unreal og segir hann
skemmtilegasta og
magnaðasta leik ársins.
FÁRRA leikja hefur verið
beðið með annarri eins eftir-
væntingu og Unreal frá
Epic. Á sínum tíma var Unreal
kynntur sem arftaki Quake, en
hálft annað ár er síðan Quake kom
út og þó að myndir hafi. birst úr
leiknum í auglýsingum með reglu-
legu millibili ætlaði margur að Un-
real biðu sömu örlög og svo margra
leikja annarra; að daga uppi og
gleymast smám saman. Annað kom
á daginn, því Unreal er loks kom-
inn út þegar þetta birtist og eftir
að hafa skoðað rækilega forútgáfu
leiksins er óhætt að segja að hann
standist allar væntingar og vel það.
Hönnuðir Unreal hafa látið þau
orð falla að þeir hafi hvað eftir ann-
að tekið leikinn upp og breytt graf-
íkvélinni sem liggur á bakvið hann
í ljósi nýrrar tækni. Þar kom að
þeir töldu nógu langt gengið, enda
ekki ljóst hvort hægt hefði verið að
fara lengra í þessa átt á meðan 400
MHz Pentium Il-tölvur eru ekki
orðnar almenningseign.
I upphafi leiks er hægt að
velja á milli
tveggja grunngerða
stúlkna og þriggja
grunngerða karla,
sem síðan má
velja ýmsan
fatnað á, alls
36 afbrigði.
Byrjun leiksins
er drungaleg, enda
rankar sá sem leikur við
sér í flaki geimskips sem flutti
fanga til fanganýlendu. Á leiðinni
gekk ýmislegt á, meðal annars
urðu deilur fanganna sín á milli æ
illvígari og blóðugri. Áður en sauð
endanlega uppúr lenti skipið í seg-
ulgeisla frá óþekktri plánetu og
brotlenti þar á endanum með þeim
afleiðingum að flestir eða allir,
nema sá sem leikur vitanlega, fór-
ust voveiflega. Þessi saga kemur
smám saman fram eftir því sem
ráfað er um skipið í leit að vopnum
og verjum, en einn helsti kostur
leiksins er einmitt þéttur sögu-
þráður sem er einskonar blanda af
vísindaskáldskap og ævintýri.
Einstök stemmning
Stemmningin í leiknum er ein-
stök; bæði eru áhrifshljóð eftir-
minnileg og svo er ljósanotkun ein-
staklega markviss, ekki síst þegar
reykur eða gufa er með í spilinu.
Þannig slær köldum svita út á leik-
anda þar sem hann ráfar um
rangala loftræsingar skipsins,
stundum í grænni þoku, eða á móti
sterkum ljósum, og heyrir neyðar-
óp og stunur í fjarska. Upphafsat-
riðið er reyndar alls ekki fyrir við-
kvæma, því flestir um borð fórust
þegar skipið hrapaði og ekki alltaf
smekklega; þannig eru sumir í
mörgum hlutum á víð og dreif um
sali, en aðrir eins og brotnar dúkk-
ur.
í Quake, sem flestir þekkja, var
lítið um útiatriði og þau helst líkust
því að vera í óvenjustórum sal. Jedi
Knight, aftur á móti, sem all-
marg-
VERÐHRUN
Trjáplöntur
runnar - túnþökur
Tilboð á efitirtöldum tegundum:
runnamura, gljámispill, alparifs, blátoppur, birki, hansarós, rifsberja-
runnar, fjallaíura, birkikvistur, sírena, yllir, sólbroddur, skriðmispill,
rauðblaðarós, himalayaeinir, gljávíðir, dökk viðja, brekkuvíðir,
hreggstaðavíðir, aspir.
Verðhrun á alaskavíði, brúnn(tröllavíðir)
Einnig túnþökur, sóttar á staðinn eða fluttar heim.
Mjög hagstætt verð.
Veríð velkomin Æ
Trjáplöntu- og túnþökusalan,
Núpum, Ölfusi. (Beygt til hægri við Hveragerði).
. Sími 892 0388 og 4834388.
ir þekkja, var með bráðvel heppn-
uð útiatriði, en á kostnað smáat-
riða. Unreal aftur á móti leysir úti-
atriði frábærlega; leikandi fær til-
finningu fyrir því að vera staddur
utan dyra, himinninn sýnist óend-
anlega hár, klettar raunverulegir,
gil og gljúfur og grænar sléttur.
Ekki er minna lagt í smáatriði, því
hreistur óskepanna er fíngert og
þétt, jafnvel þegar þær eru augliti
til auglitis má greina húðflúr og
andlitsdrætti. Veggir eru ekki
legokubbastæða við nánari skoðun
líkt og í Quake og svo má telja.
Vissulega gerir þessi grafík nokkr-
ar kröfur til vélbúnaðar og þó leik-
urinn væri reyndir í nokkuð
sprækri vél, 266 MHz Pentium II
með 64 MB minni og 4 MB 3Dfx-
skjákorti, átti hann að til að hökta
þegar mest gekk á. Með því að
draga eitthvað úr í skrauti og flúri
gekk betur, en þegar Creative 8
MB Voodoo 2 kort var sett í vél-
ina tók hún
rækilegan kipp. Un-
real lagar sig þannig að
tölvunni sem hann er keyrð-
ur á, og eins hægt að keyra
hann með hefðbundnu skjá-
irti.
Umfangsmikil borð
Borðin í Unreal era gríðarlega
umfangsmikil og þrátt fyrir að hafa
verið í leiknum allmikið sást ekki
nema toppurinn á ísjakanum. Mik-
ill kostur er og að fleiri en ein leið
er út úr hverju borði. Olíkt Hexen,
sem leiddi mann áfram í endalaus-
an sparðatíning, er hægt að kom-
ast í gegnum borðin í Unreal á
methraða, en miklu skemmtilegra
er að gefa sér góðan tíma og njóta
ekki bara umhverfisins heldur og
einnig borðahönnunarinnar og
andrúmsloftsins í leiknum. Olíkt
Quake þar sem allt gengur út á að
drepa eða verða drepinn borgar
sig að gefa sumum veranum líf í
leiknum; þannig geta fjögurra
arma infæddir sem kallast Nali
:omið að góðum notum, meðal
nnars vísa þeir á leynisvæði
sem geyma ýmislegan hagnýt-
an búnað.
Vopnin era ekki ýkja spennandi
og ekki finnast þar vopn sem jafn-
ast á við BFG sælla minninga hvað
þá kjamorkusprengjuna sem lyfti
Shadow Warrior úr því að vera
venjulegur skotleikur í eitthvað
meira.
Ekki gafst mikill tími til að prófa
Unreal sem netleik, en þó nógur til
að komast að því að hann á nokkuð
í land á því sviði. Uppsetning var
óþarflega snúin og klunnaleg.
Skemmtilegt útspil höfundar er að
hægt er að fara í einskonar netleik
með tilbúna andstæðinga, Bot, sem
virkuðu ansi eðlilegir á köflum.
Unreal verður vísast víðast með í
vali yfir leiki ársins, ef hann kemst
þá ekki í fyrsta sæti. Ef greitt er út
netleikjaflækjum er ekkert að hon-
um að finna; tvímælalaust
skemmtilegasti og magnaðasti leik-
ur sem komið hefur út á árinu.
Kemur ekki á óvart að framleið-
endur Duke Nukem Forever, sem
áður höfðu lýst þeirri ætlan sinni
að nota Quake II vélina, hafa samið
um aðgang að Unreal.