Morgunblaðið - 20.06.1998, Síða 37

Morgunblaðið - 20.06.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 20, JÚNÍ 1998 37^ + Anna Kristjáns- dóttir fæddist í Hafrafellstungu í Oxarfirði 14. nóv- ember 1908. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík 9. júní siðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Kristján Pét- ur Jónsson, f. 25. maí 1868 í Voladal, d. 13. maí 1947, og Herborg Sigvalda- dóttir Eiríkssonar bónda í Hafrafells- tungu, f. 21. janúar 1867, d. 2. janúar 1945. Þau bjuggu í Ha- frafellstungu frá 1899 til dauða- dags. Systkini Onnu voru Sig- valdi Eiríkur, f. 11. mars 1899, d. 29. júlí 1966, bóndi í Hafra- fellstungu, Guðrún, f. 5. ágúst 1900, d. 9. nóvember 1991, tal- símakona á Kópaskeri, Ingi- björg Kristveig, f. 29. maí 1902, d. 21. ágúst 1902, Guðný, f. 30. mars 1904, d. 20. júní 1933, ljós- Þegar horft er til hinnar öru þró- unar á ýmsum sviðum menningar- og atvinnumála þjóðarinnar á þess- ari öld, sem nú er að renna sitt skeið, má segja að þeir sem fengu að kynnast íslensku sveitalífí fyrir miðbik aldarinnar hafi notið fágætr- ar reynslu. Vinnuaðferðir við bú- skapinn, heimilishald og ýmsir siðir, sem nú eru aflagðir og eru að hverfa í gleymsku, voru þá hluti af hinu daglega lífí og höfðu þannig verið nær óbreyttir um aldir. A stuttu tímabili um og eftir miðja öldina varð breyting á öllum atvinnuháttum til sveita og mörg handtök sem áður voru unnin hurfu og nýr tími véla og rafmagns gekk í garð. Við bræðurnir, sem áttum þann góða kost að vera sendir í sveit til frændsystkina okkar í Hafrafells- tungu 1 Öxarfirði í samtals tíu sum- ur á árunum 1933-1943 fengum að kynnast þessum gamla og horfna tíma. Sumardvöl í fallegri sveit, fjöl- breytt mannlíf og þátttaka í hinum almennu sveitastörfum voru hlunn- indi og ævintýri, sem enn standa ljóslifandi í hugum okkar þó liðin séu 55-65 ár. Systkinin í Hafrafellstungu, Sig- valdi, Sigurður og Anna, ásamt for- eldrum þeirra Kristjáni og Her- borgu, meðan þau lifðu, mynda þungamiðju þessara minninga. Það hefúr sjálfsagt ekki ætíð verið létt verk, í önn hins daglega lífs við bú- skapinn, að fá til sumardvalar böm, móðir, og Sigurður, f. 12. maí 1906, d. 21. jan. 1985, bóndi í Hafrafellstungu. Anna ólst upp á heimili foreldra sinna, og sá þar um húsfreyjustörf eftir að móðir hennar gat ekki sinnt þeim vegna veikinda. Hún bjó siðan með bræðrum sínum Sigvalda og Sigurði í Hafrafellstungu til ársins 1964, er þau systkinin hættu búskap og flutt- ust til Kópaskers. Þar hélt hún heimili fyrir bræður sína meðan þeir lifðu og hún bjó á Kópa- skeri til ársins 1992, en fluttist þá í Hvamm, heimili aldraðra á Húsavík og dvaldi þar síðustu árin. Utför Önnu Kristjánsdóttur fer fram frá Skinnastaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. allt frá fimm ára aldri, sem þurftu umönnun og aðgæslu í ókunnu um- hverfi. Þetta tókst þeim systkinun- um með ágætum. Dvölin í Hafra- fellstungu (Tungu), þátttaka í störf- um þeirra sem þar bjuggu varð hluti af þroska okkar og uppeldi, sem við höfum búið að allt til þessa dags. Anna Kristjánsdóttir, sem nú hef- ur kvatt þessa lífsbraut tæplega níutíu ára að aldri, átti stóran þátt í því að minningar okkar um þessar sumardvalir eru svo bjartar og ánægjulegar. Anna ólst upp á heimili foreldra sinna í Hafrafellstungu og gekk þar að öllum störfum með systkinum sínum. Eftir að móðir hennar gat ekki lengur sinnt húsmóðurstörfum sökum aldurs og veikinda, sá Anna um innanhússstörf heimilisins. Hún var góð húsmóðir, með afbrigðum gestrisin, var hispurslaus og glað- vær í framkomu. Það þekkti m.a. sá fjöldi fólks, sem á hverju hausti við göngur og réttir þáði veitingar hjá Önnu í Tungu. Hún bjó bræðrum sínum og öðru heimilisfólki myndarlegt heimili þar sem gott var að koma og gott að dvelja og þar ríkti einlæg lífsgleði. Má í því sambandi minnast þess að mjög var sótt eftir því að koma bömum í sveit til systkinanna í Ha- frafellstungu, svo um nær þrjátíu ára skeið var alltaf a.m.k. eitt barn sem hafði sumardvöl hjá þeim systkinum. Þegar þau systkinin hættu bú- skap árið 1964, fluttust þau til Kópaskers, komu sér þar upp ein- býlishúsi sem þau nefndu Tungu. Þó umhverfið væri annað en suður í Öxarfirði, varð engin breyting á gestrisni húsfreyjunnar, glaðlegu viðmóti hennar og myndarskap. Hún hafði ætíð mikla ánægju af því að taka á móti vinum og kunn- ingjum og minnast margir góðra heimsókna í Tungu á Kópaskeri. Sigvaldi lést eftir aðeins tveggja ára búsetu á Kópaskeri, Sigurður vann í mörg ár við afgreiðslu hjá KNÞ, en hann lést 1985. Anna var þá orðin ein eftir í Tungu og heilsan farin að bila. Fvrii- nokkrum árum ánafnaði hún Hvammi, heimili aldr- aðra á Húsavík eigur sínar og bjó hún á Hvammi hin síðustu ár. Anna er kvödd með einlægu þakklæti fyrir hennar góða þátt í því að gera sumardvöl okkar í Ha- frafellstungu um tíu ára skeið að gróðurreit góðra minninga. Hugheilar þakkir eru færðar hjónunum Kristbjörgu og Óla Birni Einarssyni á Kópaskeri, sem ætíð voru Önnu til aðstoðar þegai’ á þurfti að halda síðustu árin sem hún bjó á Kópaskeri. Sigurður og Sverrir Jóhannessynir. Það er júnímánuður 1954 og Douglas Dakota-flugvél frá Akur- eyri er að lenda á flugvellinum á Kópaskeri. Níu ára drengur bíður þess kvíðinn hvað við tekur, hvort nokkur muni birtast til að taka á móti honum og hvernig muni ganga að komast á áfangastað til sumar- dvalar hjá ókunnugu fólki á ókunn- ugum stað. Grænn vörubíll rennir upp að flugvélinni. Hann er að sækja vörur og drenginn. Komið var við á nokkr- um bæjum á Ieiðinni til að afhenda varninginn. Alls staðar voru fram bomar veitingar. Loks var ekið í hlaðið á bæ undir fallegu fjalli í hlý- legu umhverfi. Á bæjarhlaðinu stóðu búsældarleg kona og tveir karlar. Þarna sá ég í fyrsta sinn Önnu í Tungu og „pilta“, bræður hennar tvo, þá Sigvalda og Sigurð (Valda og Sigga) sem öll bjuggu í Hafra- fellstungu í Axarfirði. Hjá þeim átti ég eftir að dvelja mörg sumur og kynni mín af þeim áttu eftir að hafa mikil áhrif á mig, lífsviðhorf mitt og skoðanir. Á heimilinu hjá Önnu, Sigga og Valda var óformleg en samt nokkuð ákveðin verkaskipting þó svo að all- ir gengju til þeirra starfa er bú- skapurinn krafðist hverju sinni. Sigvaldi var bóndinn, íhugull, varfærinn og fyrirhyggjusamur. Hann lét sér afar annt um búið og bústofninn og greinilegt var að hon- um var eðlilegt og það veitti honum mikla ánægju að annast umhirðu búfjár. Þetta var honum í blóð bor- ið, byggt á reynslu kynslóða, enda voru margir þættir í búskaparhátt- um að ýmsu leyti með svipuðum hætti og verið hafði í íslenskum landbúnaði um aldir. Sigvaldi var elstur systkinanna og þó svo að þau ættu og rækju búið í sameiningu, var Ijóst að hann var fremstur með- al jafningja. Engin ákvörðun sem máli skipti var tekin án hans sam- þykkis. Þó að Sigurður væri að sjálfsögðu einnig bóndi og virkur þátttakandi í bústörfum, var það á annan hátt því hann var jafnframt tæknimaðurinn á búinu. Vindrafstöð til Ijósa og hleðslu á útvarpsrafhlöðunni og til- koma díselrafstöðvar nokkrum ár- um síðar voru ný viðfangsefni. Þó svo að heyvinnslutækni sem búið réð yfir á þessum tíma þætti ekki merkileg í dag, krafðist viðhald og rekstur þessa búnaðar þekkingar sem ekki varð tekinn af reynslu for- feðranna. Hana varð að sækja ann- að. Þennan þátt sá Sigurður um. Hann var á vissan hátt dæmigerður fyrir þá íslensku bændur sem á einu æviskeiði voru tengiliðir aldagam- alla búskaparhátta við fyrstu skref tæknivæðingar í nútíma landbúnaði. Anna var húsmóðirin og ráðskon- an og gekk til bústarfa inni og úti eftir því sem á þurfti að halda. Það var ekki lítið verk og vinnudagur oft langur. Hún sá oftast um að mjólka kúna og hluta af geitunum. Matar- gerð og úrvinnsla við heimaslátrun, mjólkurvinnsla öll, skyr-, smjör- og ostagerð, þvottar og fjöldamörg önnur heimilisstörf voru dæmigerð viðfangsefni Önnu auk ábyrgðarinn- ar á bömum sem dvöldu hjá þeim allmörg sumur. AJlt eru þetta verk- efni sem mörgum þætti meira en nóg að annast í dag, þó að nú sjái rafmagnið okkur fyrir tækni sem gerir sum þeirra auðveld og þægileg eða að þau eru raunverulega horfin og gleymd og annað komið í^taðinn. Frá fyrsta degi gerði Anna sér far um að ég aðlagaðist nýju um- hverfi. Hún setti mig inn í gang mála á heimilinu, fékk mér verkefni að vinna og var óþreytandi að vara mig við hættunum sem alls staðar leyndust að hennar sögn. Meðal þess sem mér bar að var- ast var hættan á að drukkna í ánni, detta af hestbaki, hrapa í gjánni, skera mig á vasahnífnum eða vera sleginn af hesti. Þetta kom mér á óvart, fannst jafnvel ólíklegt að ég lifði til hausts jafnhættulegt og sveitalífið virtist í byrjun. Eg skildi það fyrst löngu seinna að stöðug áminning um hættur í umhverfinu endurspeglaði þá ábyrgð sem Anna fann til, að skila þeim börnum sem hjá henni dvöldu heilum á húfi að hausti. Sú ábyrgð sem Anna fann til mín vegna meðan ég dvaldi í Tungu og sú umhyggja sem hún sýndi mér alla tíð var ein- læg og hlý. Það sama á við um Valda og Sigga, en þegar á leið voru verkefni mín flest tengd þeirra dag- legu störfum. Dró þá líka nokkuð úr - lífshættunni. Það var mikil reynsla fyrir mig að kynnast lífi og störfum heimilis- fólksins í Tungu. Breytingin á at- vinnuháttum í landbúnaði frá þess- um tíma er ótrúleg. Rafvæðing og vélbúnaður til allra verka er sýni- legast á yfirborðinu í dag, en minna ber á ýmsu öðru sem smám saman gleymist. Geitabúskapur á gamla mátann er aflagður. Fráfærur á miðju sumri, að smala geitunum í stekk kvölds og morgna til að mjólka og heimavinnsla allra afurð- f anna tíðkast ekki lengur. Varla eru þeir bændur heldur margir nú til dags, sem horfa með stolti og ánægju á fallega hlaðinn og vel frágenginn taðhrauk í lok vinnu- dags, enda annað eldsneyti heppi- legra til nútímanota. Það var líka sérkennilegt fyrir mig er ég lærði síðar nútímaaðferð- ir við húsbyggingar, að hafa sjálfur tekið þátt í því í Tungu að byggja fjárhús þar sem ekkert byggingar- efni var aðkeypt nema naglar og tvær litlar gleri’úður. Torf og grjót í hlöðnum veggjum, rekaviður í burð- arvirki, skógarhríslur og torfþökur til að klæða þakið. Húsið þjónaði samt lengi og vel sínum tilgangi. Efst er mér þó í huga fólkið sjálft, Anna, Valdi og Siggi, og kynni mín af lífsviðhorfum þeirra og tilfinning- um. Þau voru í senn sjálfstæðir bændur, stolt af búskapnum meðan aðstæður leyfðu að honum væri haldið áfram, en um leið voru þau lítillát og nægjusöm. Um allar væntingar þeirra og drauma getur enginn vitað þó eflaust hafi nokkuð á vantað að allir hafi draumar þeirra ræst. Það var ekki í þeirra eðli að vera með barlóm. Þraut- seigja þeirra og þolinmæði, gott geð og bjartsýni hafa vonandi hjálpað þeim til að mæta vonbrigðum lífs- ins. Samviskusemi og heiðarleiki var þeim eðlislægur. Þau voru hrekklaus og öll samskipti þeirra við aðra byggðu á trausti á þvi að þeir hefðu sömu sjónarmið í heiðri. Það vai’ mannbætandi að kynnast og eiga systkinin í Tungu að vinum. Nú þegar Anna, síðust systkin- anna, er jarðsett á Skinnastað vil ég þakka okkar löngu og góðu kynni. Ég er þakklátur forsjóninni fyrir að hafa fengið að kynnast þessu góða fólki. Þau tilfinningatengsl sem við bundumst á þessum árum hafa ver- ið og verða mér ætíð mikils virði. Ég og fjölskylda mín öll biðjum ~ góðan Guð að blessa minningu Önnu og bræðra hennar um leið og við þökkum af einlægni hlýhug þeirra og vináttu alla tíð. Axel Gíslason. ANNA KRIS TJÁNSDÓTTIR + Guðni Einarsson var fæddur á Eskifirði 23. nóvem- ber árið 1916. Hann lést á legudeild Sundabúðar 16. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Ingibjörg Stefáns- dóttir, húsmóðir, f. 2. febrúar 1890, d. 23. mars 1921, og Einar Baldvinsson, kennar og sjómað- ur, f. 4. okt. 1882, d. 23. okt. 1923. Guðni kvæntist Dóru Hjörleifsdóttur frá Unn- arholtskoti í Hrunamanna- hreppi og bjuggu þau um tíma í Fagradal í Vopnafirði, en þau slitu samvistum. Þau eignuðust tvo syni, Sigurð, f. 9. febr. 1956, Við systkinin viljum með nokkr- um orðum minnast vinar okkar Guðna Einarssonar en hann lést á og Ólaf, f. 6. febr. 1959. Kona Ólafs er Fanney Rut og eiga þau þrjár dætur. Guðni ólst upp hjá foreldrum sínum meðan þeirra naut við, en var eftir það í fóstri hjá skyld- fólki á Eskifirði í fjögur ár. Þá fluttist hann upp á Velli og var m.a. á Freyshól- um þar í sveit til fermingaraldurs. Þá fluttist hann í Fögruhlíð í Hlíðar- hreppi og var þar um nokkurra ára skeið. Eftir það bjó hann og starfaði víða bæði á sjó og landi. títför Guðna fer fram frá Vopnafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði hinn 16. júní sl. Þó að Guðni væri ekki tengdur okkur blóðböndum var hann samt ávallt órjúfanlegur hluti af fjölskyldu okkar og var okkur í raun alltaf sem eins konar afi. Góðmennska og hjálpsemi voru áberandi eiginleikar í fari hans þó ekki væri hann mikið fyrir að þiggja hjálp sjálfur. Ef hann vissi hins vegar að einhvern vanhagaði um eitthvað var hann fljótur að taka upp símann og gera það sem hann gat til að bjarga mál- unum. Þegar Guðni var á besta aldri fór hann að missa máttinn í fótunum og ágerðist sá sjúkdómur eftir því sem árin liðu. Þrátt fyrir mikla fótlun af þessum sökum kom aldrei annað til greina hjá honum en að gera alla hluti upp á eigin spýtur og fór hann allra sinna ferða á jeppanum sínum þar til fyrir tveimur árum, en þá höfðu fæturnir nær alveg gefið sig. Hann hafði fengið ríkulegan skammt af sjálfsbjargarviðleitni í vöggugjöf sem fleytti honum langt og hjálpaði honum að takast á við fötlun sína. Hann var náttúrubarn og veiðieðlið var honum í blóð bor- ið. Hann lá fyrir hreindýrum, rjúpu og gæs þrátt fyrir að fæturnir væru farnir að svíkja og var áhuga hans fyrir hvers kyns veiðiskap við- brugðið. Hann hafði alltaf mikinn áhuga fyrir því hvernig fiskaðist hjá trillunum og naut þess mjög að fá að taka þátt í veiðiskapnum með óbeinum hætti, t.d. með því að fella net og þræða netanálar fyrir vini sína. Mörg vor dvaldi Guðni í Bjarnarey við veiðar og eftirlit með æðarvarpi. Þrátt fyrir að hann kæmist ekki sjálfur í eyjuna síðustu árin var áhuginn enn til staðar og ekki eru nema nokkrir dagar síðan hann var að hringja og spyrjast fyr- ir um hvernig miðaði byggingu á nýju húsi í Bjarnarey. Þannig var Guðni, fylgdist vel með sínu fólki allt til hinstu stundar. Guðni Einarsson bjó yfir mikilli skapfestu og gat verið þrjóskur ef svo bar undir. Hefði hann tekið ákvörðun varð honum ekki hnikað svo auðveldlega. Hann var glað- sinna og hafði gaman af því að glettast og kunni þá góðu list að gera grín að sjálfum sér. Hann var hjartahlýr, barngóður og sannur vinur vina sinna. Hann hafði komið víða við á langri ævi og kunni marg- ai’ sögur af samferðafólki og at- burðum og naut þess á góðum stundum að segja sögur frá liðinni tíð. Undir það síðasta þegai- heilsan fór að bila talaði hann um að nú væri komið nóg og það er okkar vissa að hann er hvíldinni feginn. Við minnumst Guðna með virðingu og viljum að leiðai’lokum þakka honum öll gæðin í okkar garð allt frá fyrstu tíð. Við vottum sonum hans og barnabörnum svo og öðr- um ættingjum hans og vinum okkar dýpstu samúð. Við kveðjum Guðna með eftirfarandi ljóðlínum og ósk- um honum velfamaðar á veiðilend- um eilífðarinnar. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin, á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvaðgeturgrættossþá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja og gott er allt sem Guði’ er M. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur teQa, ídauðans dimmum val. Ur inni harms og hryggða, til helgra ljóssins byggða, far vel í Guðs þíns gleðisal. (V. Briem) Magnús, Brynja og Signý Björk. GUÐNI EINARSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.