Morgunblaðið - 20.06.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1998 41*
i
I
J
1
1
1
í
I
I
f
I
I
I
J
I
J
I
I
DIETER
ROTH
Dieter Roth, fullu
nafni Karl Dietrich
Roth, fæddist í
Hannover í Þýska-
landi 21. apríl 1930.
Hann varð bráð-
kvaddur í Basel í
Sviss 5. júní síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Karl Ul-
rich Roth, bókari, f.
6.7. 1903, og Vera
Ella Dolla Roth-
Feltman, húsmóðir
og ljóðskáld, f. 8.1.
1917. Bræður Diet-
ers eru Wolfgang
forstjóri, f. 2.5. 1931, og
Hartwig, f. 11.12. 1942. Þeir búa
báðir í Sviss.
Dieter kvæntist 31.7. 1957
Sigríði Björnsdóttur, listmálara
og Iistþerapista, f. 5.11. 1929.
Þau skildu 1965. Foreldrar
hennar voru séra Björn O.
Björnsson, f. 21.1. 1896, d. 19.9.
1975, og Guðríður Vigfúsdóttir,
f. 2.6. 1901, d. 12.4. 1973. Börn
Dieters og Sigríðar eru: 1) Karl,
f. 17.11. 1957, tölvunarfræðing-
ur. Hann er kvæntur Láru
Magnúsardóttur, sagnfræðingi,
f. 30.4. 1960. Börn þeirra eru
Solveig, Þórður og Karl Diet-
rich Roth. 2) Björn, listmálari, f.
26.4. 1961. Sambýliskona hans
er Þórunn Svavarsdóttir, kenn-
ari, f. 11.1. 1958. Börn þeirra
eru Oddur, Einar og Vera. 3)
Vera, jarðfræðinemi, f. 17.2.
1963. Sambýlismaður hennar
var Gísli Jóhannsson, garð-
yrkjubóndi í Dalsgarði. Þau
skildu. Börn þeirra eru Þor-
bergur, Þrándur og Þórunn.
Sljúpdóttir Dieters er Guðríður
Adda Ragnarsdóttir atferlis-
fræðingur, f. 23.4. 1950.
Fyrstu 13 árin bjó Dieter í
foreldrahúsum í Hannover. Árið
1943 var hann, ásamt hópi
bama með svissneskan ríkis-
borgararétt, sendur til Sviss til
að forða þeim frá
hörmungum stríðsins.
í Ziirich hlaut hann
klassíska menntun til
sautján ára aldurs. I
stríðslok settist fjöl-
skylda hans að í Sviss.
Hann lauk námi í
auglýsingateiknun í
Bern, en vann jafn-
framt að eigin mynd-
list. Þar kynntist
hann verðandi stór-
jöxlum í svissneskri
myndlist, svo sem
Tinguely, Lugenbuhl
og Eggenschwiller.
Árið 1955 hóf hann störf sem
hönnuður í Kaupmannahöfn. I
byrjun árs 1957 fluttist Dieter til
Reykjavíkur og stofnaði þar
heimili. Þar vann hann við ýmis-
legt, meðal annas við módelsmíði
á skartgripum hjá Halldóri gull-
smið, með Herði Ágústssyni, list-
málara og fræðimanni, að ýmsum
hönnunarverkefnum. Hann vann
einnig með Andrési Kolbeinssyni
tónlistarmanni að tilraunaljós-
myndun. Árið 1958 stofnaði hann
í félagi við Einar Braga skáld list-
bókaforlagið forlag ed (Einar
Bragi og Dieter). Á árunum
1957-1959 vann hann við lóða-
hönnun fyrir Alaska, glerhönnun
og við keramikframleiðslu í Gliti,
með Ragnari Kjartanssyni mynd-
höggvara. Upp úr 1962 störfuðu
þeir Magnús Pálsson myndlistar-
maður saman að ýmiskonar mód-
elsmíði.
Dieter tengdist Fluxus-hreyf-
ingunni í gegnum Daniel Spoerri
á 6. áratugnum. Hann vann að
þróun bókverka og hreyfilistar,
tengdri konkretlistinni, og gerði
m.a. skúlptúra úr mat. Þessi verk
voru sýnd víða og veittu honum
heimsfrægð. Dieter fór fyrst til
Bandaríkjanna 1958 og kenndi þá
við Philadelphia Museum College
of Art. 1964 var hann gestagagn-
rýnandi í Yale School of
Architecture og 1965 kenndi
hann við Rhode Island School of
Design og vann að hönnun fyrir
efnafyrirtækið Ciba-Geigy. Árið
1968 var hann skipaður prófess-
or við Akademie der Kunst í
Dusseldorf, en sagði starfínu
lausu skömmu síðar. Dieter
starfaði oft með öðrum og fór
þá ekki í manngreinarálit. Má
þar nefna Hermann Nitsch,
Gunter Brus, Richard Hamilton,
Arnulf Rainer, Ingrid Wiener,
Stefan Wewerka og Björn Roth.
Hann vann einnig að listsköpun
með börnum, vinum og fjöl-
skyldu. Hann gerði tilraunir
með ýmis efni. Bókmenntapyls-
ur hans, súrmjólkurmyndir og
ostaorgel vöktu athygli. Árið
1970 hélt hann fræga sýningu á
ostum í 40 ferðatöskum í Eugeni
Butler-gallernnu í Los Angeles.
Árið 1975 hóf hann útgáfu á
Tímariti fyrir allt, þar sem hver
sem er gat fengið hvað sem er
birt. Með tveggja áratuga milli-
bili lét hann taka myndir af öll-
um húsum í Reykjavík. Meðal
verka hans eru ljóð, tónlist,
skúlptúrar, uppákomur, kvik-
myndir, Ijósmyndir, dagbækur,
málverk og bókverk. Síðustu ár-
in vann hann mest með Birni
syni sínum og hélt sýningar
víða. Hann bjó í Basel, Stutt-
gart, Vín og Hamborg, en dvaldi
hluta af árinu á íslandi. Hann
hafði sérstök tengsl við Hellna á
Snæfellsnesi, Seyðisfjörð, Loð-
mundarfjörð og Mosfellssveit.
Síðasta meistaraverk Dieters,
að mati Daniels Spoerri, er af-
mælisgjöf til hins síðarnefnda.
Það er dyrabjöllutónlist, stýrt af
símbréfum. Fyrsta einkasýning
hans var í Reykjavík 1958. Hann
var viðstaddur opnun sýningar
sinnar í Ziirich 22. maí síðastlið-
inn. Hún verður opin fram í
ágúst.
Til minningar um Dieter Roth
verður haldið teiti í Þingholti á
Hótel Holti laugardaginn 20.
júni klukkan 14. Aska hans
verður grafín í kyrrþey á Helln-
um á Snæfellsnesi. Bálförin hef-
ur farið fram.
Með nokkrum orðum vil ég minn-
ast tengdaföður míns og velgjörða-
manns, Dieters Roth. Kannski er
ekki hægt að greina á milli manns-
ins og listamannsins, en ég kynntist
aðallega fjölskyldumanninum Diet-
er. Opinberu hliðina á honum sá ég
miklu sjaldnar. Þó grunar mig að
munurinn hafi ekki verið mikill,
enda held ég að hann hafi verið
sjálfum sé samkvæmari en flestir
aðrir.
Hann var áhrifamikill maður í
listaheiminum og ekki að ófyrir-
synju. Hann hlaut að hafa áhrif á þá
sem hittu hann. Hann var með ólík-
indum víðlesinn.
Hugmyndaauðgi hans var engu
lík. Utsjónarsemi, drifkraftur og
þrek voru óviðjafnanleg. Gjafmildi
og hjálpsemi hans var mikil. Ég get
aldrei fullþakkað þann stuðning
sem hann veitti mér í því sem ég hef
tekið mér fyrir hendur.
Áhrifamest var samt, að allt sem
hann sagði og gerði var satt. I
einkalífinu, eins og í listinni, notaði
hann engar líkingar og aldrei
reyndi hann að breiða yfír ókosti
eða veikar hliðar. Það var ekki alltaf
auðvelt, enda er sannleikurinn af-
stæður. Flestir eru líka óvanir því
að leggja kosti og galla, tilfinningar
og rökhyggju að jöfnu. Við vitum
ekki hvemig á að taka því. En það
var sannarlega lærdómsríkt.
Dieter var oftast búsettur erlend-
is, en var jafnan á Islandi þegar því
varð við komið. Hann mat fjöl-
skyldu sína meir en nokkuð annað
og þótt hann væri oft fjarri tókst
honum að halda nánu sambandi við
börnin sín og barnabörnin níu. Afi í
útlöndum var stór hluti af lífi okkar
allra og hans er sárt saknað.
Honum hefur verið valinn leg-
staður á Hellnum á Snæfellsnesi.
Þar átti hann ávallt athvarf langt
frá skarkala heimsins, sem var oft
meiri en við gerum okkur í hugar-
lund, sem fórum í gegnum lífið sem
óbreyttir borgarar.
Takk fyrir mig.
Hvíl í friði.
Lára Magnúsardóttir.
Draumur er rofinn um nótt þegar
eldlitað lauf fellur af sveigðri grein
og myndar gust sem bærir bifhár á
lausri fjöður fugls og feykir henni á
væng sofandi hugarflugs sem vakn-
ar með andfælum og ánetjast dögg
og angan.
Þannig er viðbragð manns við
dánarfregn Dieters Roth, snillings-
ins Ijúfa, höfðingjans sem kom fær-
andi hendi og dreifði gliti í slóð sína
um lendur listarinnar.
Þegar Dieter Roth fluttist til fs-
lands 1957 má segja að hann hafi
borið í farteski sínu áhrif alþjóð-
legrar hreyfilistar, og um leið bylt-
ingarkennda grafíska hönnun undir
áhrifum strangflatarlistar, - og
jafnframt fyrsta bókverk sitt: kind-
erbuch, sem hann lagði drög að
1954.
Sambönd hans við útlönd opnuðu
nýjar leiðir í tjáskiptum fyrir ungt
fólk á íslandi og fyrir hans tilstilli
voru margir víðkunnir listamenn
fúsir að senda verk á sýningar
SÚM-hreyfingarinnar tíu árum síð-
ar. Þá átti Dieter Roth mikinn þátt í
því að koma ungum listamönnum í
sambönd erlendis og bauð þeim
sjálfur á sýningar víða í Evrópu.
Þegar Nýlistasafnið var stofnað
1978 léði hann nafn sitt á félagatalið
og var þar alla tíð í miklu uppáhaldi
og fyrsti heiðursfélagi ásamt Herði
Agústssyni, vini sínum. Dieter Roth
efldi safnið með mikilfenglegum
gjöfum, margítrekað, þannig að
menn stóðu agndofa yfir örlæti
hans og skörungsskap. Síðan fylgdi
í kjölfarið ýmislegt smálegt, falleg
kort með innilegum kveðjum,
myndskreytt bréf, sýningaskrár.
Allt þetta fór í hirslur með bókum
hans, grafík og teikningum sem að-
dáendum hans þykir sérstök unun
að draga fram og handfjatla af var-
færni, með blæ af lotningu, því
ræktarsemi Dieters Roth var ein-
stök: hann sáði í akur nágranna
sinna, þeir uppskáru. Segja má að
verk Dieters Roths í Nýlistasafninu
séu kjarni listaverkaeignar þess og
sá grunnur sem skapar því nokkurt
alþjóðlegt vægi, dýrmætt yfirbragð.
Sköpun er hreyfing og hreyfing
er sköpun. Listaverk er ekki endan-
leg niðurstaða, það er ávísun til
næsta áfanga, skref í ákveðinni þró-
un sem stöðvast aldrei.
Með grafíkmyndum sínum vann
Dieter Roth stórvirki sem er ein-
stætt í listasögu vesturlanda, að-
ferðimar eru margvíslegar, bæði
venjuleg, hefðbundin skólatækni
eins og steinprent, koparstunga,
þurrnál, æting og silkiþrykk, en
jafnframt útvíkkun á þessari tækni:
Framúrstefna sem er lifandi hluti af
myndvinnslunni; seríur þar sem
ákveðinni mælingu eða viðsnúningi
er beitt í teikningunni og hvert ein-
tak er frábmgðið því næsta í röð-
inni; þrykkt er yfir blaðið oftar en
einu sinni, og óhrein eða misheppn-
uð afrit em talin fullgild listaverk;
sama undirlagið er notað aftur og
myndefninu er breytt lítilsháttar og
þrykkt þannig trekk í trekk; málað
þunnt yfir með olíulitum, eggja-
hræru, sykurlegi, bráðnum osti og
súkkulaði; mynd prentuð þar til
svertan er horfin af steininum; unn-
ar kjötvörur pressaðar inn í pappír-
inn; unnið er með ljósmyndatækni-
legum aðferðum og yfirlögum á
myndefnið þannig að útkoman er
ýmist gagnsæ, mött eða glansandi
og einstakir myndhlutar skera sig
frá og draga athyglina að sér. En
það sem einkennir öll grafíkverk
Dieters Roth er sjálfsprottin heild-
arsýn, staðsetning myndefnis, lita-
val, og snilldarleg teikning. Hið
sama má segja um málverk hans og
höggmyndir, - og raunar allt sköp-
unarstarf. Dieter Roth lagði fyrir
sig gjöminga, innísetningar, skrif,
ljóðagerð, upptökur á myndbönd og
filmur, tónsköpun, -stjóm og hljóð-
færaleik, útgáfur bóka, tímarita og
hljómplatna. Þar fengu ýmsir tæki-
færi sem höfðu lítinn sem engan
bakgmnn í námi og þekkingu, en
höfðu köllun og þráðu einhverja
frægð. Dieter Roth gaf þessu fólki
tækifæri til að láta ljós sitt skína
vegna þess að hann trúði á manninn
og skildi löngun hans til að afreka
eitthvað sérstakt og gefa heiminum
hlutdeild í því.
Persónuleiki listamannsins er
skuggsjá sem speglar blik fmm-
legrar hugmyndar, í henni skín hún;
einfaldur, gagnsær kjarni.
Listamaðurinn hefur sagt frá því
í viðtali hve snortinn hann varð eitt
sinn af hugmynd sem lá að baki sér-
stökum matseðli, sem honum var
réttur á veitingahúsi í Barcelona, og
heyrði um leið ámátlegt væl og
spangól úr næsta nágrenni. Þjónn-
inn sagði honum að selt væri af
matseðlinum til styrktar hæli fyrir
munaðarlausa hunda. Upp úr þessu
spratt fmmlegt verk sem var byggt
á sólarhringslangri hljóðupptöku
inni á hælinu af gelti, urri og ýlfri,
sem síðan var spiluð í sýningarsal í
Sviss, og tekið upp allt tal þar á
staðnum og blandað saman. Þessu
fylgdu um 2.000 teikningar hsta-
mannsins af sjálfum sér sem hundi
og auk þess 1.400 ljósmyndir af
þessum umkomulausu skepnum.
I mörgum öðrum verkum gerði
Dieter Roth út á þefnæmi fólks,
lagði kjötsneiðar inní ljóðabækur,
setti saman sérstakt lyktarhljóðfæri
eða flautu, mótaði héra úr héraskit
og hálmi, hellti súrmjólk í glerkassa
eða yfir verk sem honum þótti ekki
nógu góð, og náði þannig fram sér-
stæðri fegurð. I sælgætisverk-
smiðju í Basel í Sviss er salur sem
geymir kynstrin öll af htlum skúlpL
úrum og afsteypum úr súkkulaði. I
öllum þessum listaverkum er það
virkni efnisins sem skiptir höfuð-
máli: gerjun, rotnun, þurrkun, sem
smám saman breytir áferð og yfir-
borði, riðlar heildarmyndinni. Lista-
verkið er í sífelldri mótun, - sem
leiðir jafnvel til upplausnar, hruns
og algerrar eyðileggingar einhvern
tímann. I fáeinum tilfellum afhjúpar
brotthvarf yfirborðsins óvænt und-
irlag, teikningu, málverk eða grafík.
Endurvinnsluverk Dieters Roth
voru gerð m.a. til að koma saman
því mikla safni sem hann dró að sér
um ævina, breyta því í lífrænar
heildir með nýrri skírskotun.
Þannig teygði hungrað hug-
myndaflug Dieters Roth sig inn í
hvem krók og kima, öll viðfangsefni
eru jafn rétthá og merkileg. I
myndgerð hans bregður stundum
fyrir hæðni, sem er hugsanlega stíl-
bragð eða listvörn gegn óþægilegu
áreiti fólks og umhverfis.
Arfleifð listamannsins er sköpun-
arstarf hans, gáfa, frumlag, kveikja
og hugljómun, verk reist af djúpum
skilningi og mannúð, ríkri sam-
kennd. Þau lýsa hugrekki viturs
manns og snilhngs í leit og baráttu
á þeirri hvössu egg sem aðskilur líf
og dauða.
Með þessum orðum og sýningu á
bókverkum senda félagar og vinir
Dieters Roth í Nýlistasafninu börn-
um hans og öðrum aðstandendum
samúðarkveðjur við leiðarlok. Megi
nafn hans ljóma skært í listasögu^
heimsins.
Níels Hafstein, Safnasafninu
á Svalbarðsströnd.
Ætli nokkur hafí þekkt hann skár
en ég? Kannski Jón Gunnar?
Kannski Magnús Pálsson - og
kannski systir mín, hún Sigga, sem
eitt sinn var gift honum. Og senni-
lega börnin hans - amk. Bjöm. En
hversvegna ég tel mig þekkja hann
svo vel er trúnaðarmál - og það
hundgamalt. Við höfðum satt að
segja þekkst í hálfan mannsaldur -
þegar hann tníði mér fyrir því að
Brahms (af öllum!) væri eitt albesta
tónskáld sem Guð hafði skapað. En
þennan trúnað (sem ég er nú að
svíkja - að gefnu tilefni) sýndi hann
mér að vetrarlagi þegar við vorum á
leiðinni í stórum rússajeppa út á
Snæfellsnes. Nemahvað, hefði þetta
nú verið söngvar eða kammermúsík
- eða jafnvel seinni píanókonsertinn
eða sú Fjórða - nei: þetta voru Ást-
arsöngvamir - og það eftir mann
sem músíkólógar fullyrða að hafi
verið kvenhatari! Til að milda þetta
skildist mér að hann elskaði
Hándel, einkum Vatna- og
Flugeldasvítuna - af því þær hljóm-
uðu svo vel í rússajeppa í íslensku
landslagi. Mér skildist einnig - í
þessari sömu ferð - að Þórbergur
Þórðarson ætti ekki sinn líka í
heimslitteratúmum, og það skildi
ég enn betur þegar við náðum loks
að Hellnum i húsið hans á sjávar-
kambinum. Vegna þess að þar var
Heimslitteratúrinn upp um alla
veggi - og það í vönduðum og fal-
legum útgáfum. Og loks trúði hann
mér fyrir því, sem hann staðfesti
með dæmum, að hann væri farinn
að mála landslagsmálverk! Þetta • -
átti ég auðvitað ekki að segja.
Fyrirgefðu mér, gamh vinur. Enn
og aftur!
Ein fyrsta minning mín um Diet-
er (þá skrifaði hann nafnið sitt með
litlu d-i og engu e-i) var göngutúr
um svæði sem nú flokkast undir
Garðahrepp: mitt í heimspekilegum
hugrenningum rákumst við allt í
einu á rosalega ryðgaðan vegg af
gömlum skúr. Þennan vegg vildi Di-
eter kaupa gegn fullu gjaldi og rúm-
lega það og selja þekktu listasafni í
henni Evrópu. í dag er þessi vinur
minn meðal þekktari listamanna í
heiminum. En það sem skiptir máli
er hinsvegar að þar fór yndislega
skemmtilegur og ótrúlega gáfaður,,
örlátur og vandaður maður, sem
átti einkar auðvelt með að fá menn
á móti sér, einkum ef þeir voru hér-
umbil jafn gáfaðir og viðkvæmir og
hann sjálfur. Sem betur fer fyllti ég
ekki þann litla flokk. Sennilega tók
hann aðeins minna mark á heimin-
um en sjálfum sér. Afturámóti tók
hann einhverra hluta vegna mark á
íslandi. Hann var satt að segja
ótrúlegur! Eftilvill ofnæmur - sbr.
Kjarval.
Blessuð sé hans minning!
Oddur Björnsson.
• Fleirí minningargreinar um
Dieter Roth bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærs föður, tengdaföður og
afa,
GUÐNA ERNST LANGER
stýrimanns,
Gullsmára 11,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til séra Gunnars Sigurjónssonar og starfsfólks krabba-
meinsdeildar Landspitalans fyrir einstaka umhyggju og hlýhug í hans
garð.
Halldór Ivar Guðnason, Ása Magnúsdóttir Blöndahl,
Edda Guðrún Guðnadóttlr, Sveinn Vignisson,
Magndis, fvar, Breki,
Sigrún Arna og Ásta Guðný.
4
(