Morgunblaðið - 25.06.1998, Blaðsíða 1
92 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
140. TBL. 86. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
íbúar Norður-Irlands kjósa í dag í fyrsta sinn fulltrúa á nýstofnað héraðsþing
Sprengjutilræði sagt sanna
mikilvægi kosninganna
Belfast. Morgunblaðið.
Reuters
NORÐUR-írsk öryggissveit gaumgæfir vettvang í bænum Newtownhamilton skammt frá landamærunum við
írska lýðveldið í gær. Tveir særðust þar í sprengjutilræði, sem beint var gegn kosningunum í dag.
SPRENGJA sprakk í bifreið í bæn-
um Newtownhamilton í suðurhluta
Armagh-sýslu á N-írlandi í gær og
urðu tveir fyrir minniháttar meiðsl-
um, en jafnframt urðu miklar
skemmdir á nærliggjandi bygging-
um. INLA, klofningshópur úr Irska
lýðveldishemum (IRA), lýsti
ábyrgð á hendur sér í gærkvöldi og
er talið að mai'kmið hópsins hafi
verið að mótmæla kosningum sem
fram fara í dag í samræmi við frið-
arsamkomulagið sem náðist á föstu-
daginn langa og samþykkt var í
þjóðaratkvæðagreiðslu í síðasta
mánuði.
Séamus Mallon, þingmaður S-
Armagh-kjördæmisins á breska
þinginu og varaformaður flokks hóf-
samra kaþólikka (SDLP), sagði
árásina „skammarlegt og hættulegt
tilræði við lýðræðið“, en bætti við að
hún gæfi íbúum á N-írlandi enn
frekari ástæðu til að neyta kosn-
ingaréttar síns í kosningunum í dag;
góð þátttaka væri forsenda þess að
hægt yrði að þagga niður í ofbeldis-
seggjunum. I nóvember síðastliðn-
um var uppi orðrómur um að 35 hátt-
settir IRA-foringjar úr Armagh-
deild samtakanna hefðu sagt sig úr
samtökunum vegna andstöðu við
vopnahlé þeirra. Kemur því ekki á
óvart að sprengjan sprakk í Armagh,
sem er nærri landamærum írlands
og N-írlands, og mistókst þar reynd-
ar annað sprengjutilræði aðfaranótt
þriðjudags.
Lftill áhugi kjósenda
Eitt málefni hefur í raun gnæft
yfir önnur í kosningabaráttunni,
sem lauk í gær, en það er spuming-
in hvort þeim stjórnmálaöflum sem
beittu sér fyrir samþykkt samn-
ingsins í atkvæðagreiðslunni í maí
takist að láta kné fylgja kviði og
tryggja að til þingsins nýja veljist
frambjóðendur sem hlynntir eru
starfsemi þess. Reynst hefur þraut-
in þyngri að endurvekja þann mikla
áhuga sem kjósendur höfðu í maí en
þó er talið að kosningaþátttaka
verði með ágætum og er það talið
fylgjendum samningsins í hag.
Síðustu skoðanakannanir sem
birtar voru sýndu að flokkar hlynnt-
ir samkomulaginu myndu fá um
80% fylgi, Sambandsflokkur Ulster
(UUP) kom þar efst með 27% en
SDLP hafði einungis einu prósentu-
stigi minna samkvæmt könnunum.
David Trimble, leiðtogi UUP,
John Hume, leiðtogi SDLP, Gerry
Adams, leiðtogi Sinn Féin, og fleiri
áttu sér sameiginlegt markmið í
maí en nú þurfa þeir að gera tvennt
í senn; tryggja að andstæðingar
samningsins - með Ian Paisley og
flokk hans DUP í broddi fylkingar -
nái ekki of mörgum fulltrúum á
þingið, en jafnframt að berjast inn-
byrðis um fylgi kjósenda.
■ Vonast eftir/26
Kínaferð Clintons
Sendir
Kínastjórn
tóninn við
brottförina
Washington. Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti lét
það verða sitt síðasta verk áður en
hann lagði upp í umdeilda Kínaferð í
gær að gagnrýna kínversk stjórn-
völd.
Forsetinn, sem hefur harðlega
mótmælt þeirri ákvörðun kinverskra
stjórnvalda að afturkalla vegabréfsá-
ritun þriggja fréttamanna útvarps-
stöðvarinnar Radio Free Asia, tjáði
fréttamönnum rétt fyrir brottför frá
Washington að hann hefði ákveðið að
veita útvarpsstöðinni viðtal og senda
þannig skýr skilaboð um það að
„hugmyndir þyrftu ekki vegabréfs-
áritun".
Clinton sagðist þó vonast til þess
að þetta atvik yrði ekki til þess að
flækja samningaviðræður við kín-
verska ráðamenn. Hann ætti von á
því að hvert mál yrði rætt sérstak-
lega og hann hygðist ekki láta þetta
mál standa í vegi fyrir þjóðarhags-
munum. „Gildismat okkar er þó mik-
ilvægur þáttur í hagsmunum okkar,“
sagði hann. „Við lifum hvorki á pen-
ingum né völdum einum saman held-
ur einnig á hugmyndum okkar.“
■ Zhao Ziyang/22
----------------
Minni olía
Vín. Reuters.
OPEC, hagsmunasamtök oh'uút-
flutningsríkja, ákváðu í gær að
draga úr framleiðslu á olíu um nærri
5%, sem er meira en búizt var við að
aðildarríkin ellefu myndu ná sam-
komulagi um, í viðleitni þeirra til að
stöðva lækkun á heimsmarkaðsverði
olíu.
■ OPEC semur/Bl
Yiðræður IMF við Rússlandsstjórn
Afgreiðsla láns
nær því í höfn
Moskvu. Reuters.
RUSSNESKUM stjórnvöldum
tókst í gær að mjakast nær því tak-
marki, að fá Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn (IMF) til að afgreiða næsta
áfanga stórs láns, sem áður hafði
verið ákveðið að veita til styrktar
rússneskum efnahag, en talsmenn
IMF sögðu að viðræður um enn
stærra viðbótarlán til að vinna gegn
fjármálakreppunni sem nú ríkir í
landinu yrðu erfiðar.
Áhrifamikill rússneskur þing-
maður sagði í gær að ólíklegt væri
að neðri deild þingsins, Dúman,
myndi samþykkja neyðaraðgerða-
áætlun ríkisstjórnarinnar eins fljótt
og Borís Jeltsín forseti vill, en
gangi þetta eftir eykur það enn á
spennu í stjórnmálum landsins.
Eftir viðræður við Sergei Kíríj-
enkó, forsætisráðherra Rússlands,
sagði Stanley Fischer, varafram-
kvæmdastjóri IMF, á blaðamanna-
fundi að hann mælti með því að
stjórn sjóðsins leyfði afgreiðslu
næsta áfanga af 9,2 milljarða doll-
ara láni (um 660 ma kr.), sem áður
hafði verið samið um en afgreiðsl-
unni frestað vegna þess að umsam-
in skilyrði fyrir móttöku lánsins
vora að mati sjóðsstjórnarinnar
ekki uppfyllt af hálfu Rússlands-
stjórnar.
Sagðist Fischer gera ráð fyrir að
greiðslan, upp á um 48 ma kr., yrði
afgreidd áður en skrifstofum yrði
lokað í Washington í dag, fimmtu-
dag, en lokaákvörðunin lægi hjá
stjórn sjóðsins.
Rússar sækjast einnig eftir nýju
láni frá IMF upp á um 1000 ma kr.,
en Fischer sagðist búast við að við-
ræður um það yrðu erfiðar, og þær
yrðu háðar því að rússnesku stjórn-
inni tækist að hrinda í framkvæmd
róttækum endurbótum á skatt-
heimtunni og fleiri atriðum í efna-
hagsstjórnuninni.
Reuters
Holbrooke í Junik
RICHARD Holbrooke, sendifulltrúi Banda-
ríkjastjórnar á Balkanskaga, situr hér við hlið
ónafngreinds félaga í Frelsisher Kosovo í að-
albækistöðvum hans í Junik, sem er um 80 km
suðvestur af héraðshöfuðborginni Pristina.
Holbrooke hófst í gær handa við að miðla
málum í Kosovo-héraði, þar sem íbúar af al-
bönskum uppruna eiga í höggi við serbneska
öryggislögreglumenn.
■ Viðræður/22
Hr. Bean óska-
yfirmaðurinn
Lundúnum. The Daily Telegraph.
NÆRRI átta hundruð
manna úrval japanskra
embættismanna, sem
hafa komið bezt út úr
hæfniprófum tii að gegna
háttsettum embættum í
stjórnsýslunni, eru sam-
mála um að sá maður
sem þeir telja hæfastan
til að vera yfirmaður
þeirra sé hr. Bean, skop-
persónan sem brezki leik-
arinn Rowan Atkinson
hefur hlotið heimsfrægð
fyrir.
Iskoðanakönnun, sem
gerð var meðal úrvals-
embættismannanna, lenti
hr. Bean í efsta sæti lista
yfír fyrirmyndar-yfir-
inanninn. Þjálfarar
hornaboltaliða komu
næstir, en landsliðsþjálf-
arinn í knattspyrnu, Ta-
keshi Okada, var í sjötta
sæti. Ryutaro Hashimoto
forsætisráðherra var í ní-
unda sæti Iistans.
Engin skýring fylgdi
þessu vali embættismann-
anna, en hr. Bean nýtur
gífurlegra vinsælda í Jap-
an. Kaupsýslumaður
nokkur, sem á alla hr.
Bean-þættina á mynd-
bandi, telur hægt að
rekja vinsældir þessarar
fámálu og klaufsku per-
sónu til þess, að Japönum
þyki manngerðin lfkjast
sjálfum þeim svo mikið.
„Hr. Bean lendir í vand-
ræðum vegna þess að
hann á erfitt með að tjá
hug sinn og reynir að
laga það sem úrskeiðis
fer með frekar ruddaleg-
um hætti,“ sagði kaup-
sýslumaðurinn. „Eg held
að Japanir séu eins.“