Morgunblaðið - 25.06.1998, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Aldarafmæli
Fitjakirkju
í Skorradal
Grund - Haldið var upp á 100 ára
vígsluafmæli Fitjakirkju í Skorra-
dal með hátíðarguðsþjónustu síð-
astliðinn sunnudag. Þar voru
mættir átta prestar og yfir 300
kirkjugestir.
Athöfnin hófst kl. 14 með því að
prestamir gengu í hið aldna og ný-
uppgerða guðshús. Auk sóknar-
prestins, Sigríðar Guðmundsdótt-
ur, og nú þjónandi prests í veik-
indaforföllum hennar, Geirs
Waage, voru eftirtaldir prestar við
guðsþjónustuna: Sigurður Sigurð-
arsson, vígslubiskup, Guðmundur
Þorsteinsson, dómprófastur, Þor-
bjöm Hlynur Arnason, prófastur,
Agnes Sigurðardóttir, Arni Sig-
urðsson og Brynjólfur Gíslason.
Guðmundur, Agnes og Ámi hafa
öll þjónað Hvanneyrarprestakalli,
sem Fitjakirkja tilheyrir, um
lengri eða skemmri tíma.
Við guðsþjónustuna vígði Sig-
urður Sigurðarson nýja altaristöflu
sem listakonan Æja, Þórey Magn-
úsdóttir, hefur gert. Altaristaflan
er gjöf og helguð minningu Sverris
S. Einarssonar, rektors Mennta-
skólans við Hamrahlíð, eiginmanns
annars kirkjubóndans á Fitjum,
Karólínu Huldu Guðmundsdóttur.
Sverrir lést fyrir tveimur mánuð-
um. Systkinin Karólína Hulda og
Jón Amar Guðmundarbörn em
eigendur og skógarbændur á Fitj-
um.
Organisti kirkjunnar, Gyða
Bergþórsdóttir, lék á orgelið við
guðsþjónustuna, en hún hefur ver-
ið organisti kirkjunar síðan 1958
eða í 40 ár.
Karólína Hulda flutti ávarp í lok
guðsþjónustunar. Fór hún yfir
kirkjusögu Fitja, sem vígð var af
Sr. Þórhalli Bjamasyni biskup, en
þar hefur verið kirkja frá 12. öld.
Lýsti hún kirkjunni og ástandi
hennar þegar ákveðið var að rífa
hana á árinu 1989, en síðan var
þeirri ákvörðun breytt og farið í að
gera hana upp í staðinn. Allir sem
að þeirri ákvöðran stóðu eiga hrós
skilið, því það verk hefur tekist frá-
bærlega vel.
Að lokum minntist Hulda fóður-
bróður síns, Stefáns Stefánssonar
á Fitjum, sem lést árið 1996. Þátt-
taka hans við endurgerð kirkjunn-
ar og lagfæringu kirkjugarðsins
verður seint fullþökkuð. Stefán
heitinn hafði t.d. slegið kirkjugarð-
inn með orfi og ljá og hirt hann
samfleytt í 62 ár, þegar hann lést.
Kirkjukaffi að gömlum
og góðum sið
Að athöfninni í kirkjunni lokinni
var öllum boðið í stórglæsilegt
kirkjukaffi að gömlum og góðum
Morgunblaðið/Davíð
GEIR Waage var meðal þeirra átta presta sem sáu um guðsþjónustuna í Fitjakirkju á 100 ára vígsluafmælinu.
sið, en kaffisamsætið var í boði
Fitjasóknar og kirkjubændanna á
Fitjum. Stórri skemmu hefur verið
breytt í veislusal með ómetanlegri
aðstoð félaga í Sumarbústaðafélagi
Fitjahlíðar, sem sáu meðal annars
um að mála allt gólfið. Þeir kirkju-
gestir, sem ekki var pláss fyrir í
kirkjunni, gátu fylgst með gusð-
þjónustunni á sjónvarpsskermi úti
í skemmunni.
Bæði mynd og tal var með ágæt-
um, og á rafvirkinn, Friðrik Karl
Friðriksson, sem sá um uppsetnin-
ugu búnaðarins, þakkir skildar fyr-
ir gott starf.
Þarna gátu hátt á annað hund-
rað kirkjugestir drukkið kaffi í
einu. Undir borðum voru haldnar
ræður og rifjaðar upp gamlar end-
urminningar.
Þeir sem töluðu vora sr. Guð-
mundur Þorsteinsson, sr. Þorbjörn
Hlynur Arnason, Sigríður Skarp-
héðinsdóttir og Ingibjörg Krist-
leifsdóttir, sem gat um söfnunar-
sjóð í minningu Sverris S. Einars-
sonar. Söfnunarféð gengur óskipt
til að greiða altaristöflu og annan
kostnað vegna viðhalds og endur-
bóta á kirkju, kirkjumunum og
búnaði, kirkjunni tengdri.
Að ræðum loknum sungu nokkr-
ir fyrrverandi félagar Sverris heit-
ins Einarssonar úr Karlakór
Reykjavíkur nokkur lög við hrifn-
ingu veislugesta.
Kirkjugestir þakka húsbændunum
á Fitjum fyrir frábæran messudag
og „Hulduhernum" hennar Huldu
og öðram hjálparhellum góða þjón-
ustu í kirkjukaffinu.
}
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
SIGURGEIR, „Geiri í Múla“, fyrir utan verslun sína á Selfossi.
Hættur með rekst-
ur eftir 51 árs
verslunarferil
Selfossi - Sigurgeir Ingvarsson í
versluninni Múla á Selfossi er Sunn-
lendingum kunnur. Hann hefur
starfað við verslun á Selfossi í 51
ár. Fyrst hjá Kaupfélagi Árnesinga
en fór si'ðan yfir í sjálfstæðan rekst-
ur og hefur rekið tvær verslanir
óslitið í tæp 40 ár.
Fyrst opnaði Sigurgeir verslun-
ina Brú á Eyrarvegi 7, en þar versl-
aði hann að mestu með vefnaðar-
vöru. Síðan var það árið 1971 sem
hann byggði nýja verslun og íbúð-
arhús á Eyrarvegi 9. Verslunina
nefndi hann Múla og hefur verslað
þar með fatnað siðan. Sigurgeir
lætur nú af störfum á laugardaginn
eftir langan og árangursríkan
verslunarferil þegar hann lokar
versluninni Múla.
Sigurgeir segir oft hafa verið
mjög gaman að starfa við verslun á
Selfossi. „Verslunin hefur alltaf
gengið vel þrátt fyrir mikla sam-
keppni," segir Sigurgeir. Hann seg-
ir að í dag sé verslun með breyttu
sniði en telur hlutina vera að þróast
í rétta átt. „Eg vil ekkert vera að
finna að hlutunum, þetta er allt á
réttri leið.“ Sigurgeir segist örugg-
lega eiga eftir að sakna þeirra fjöl-
mörgu og tryggu kúnna sem hann
hefur haft í gegnum árin. „Mínum
tryggu viðskiptavinum á Selfossi og
í nærsveitum vil ég færa bestu
þakkir fyrir að hafa gert mér kleift
að starfa við verslun öll þessi ár.
Þakklátur hætti ég störfum," segir
Sigurgeir Ingvarsson, verslunar-
maður á Selfossi.
Sumarstemmning í Eyjum
Vestmannaeyjum - Það var sann-
kölluð sumarstemmning í Vest-
mannaeyjum um helgina. Veðrið lék
við Eyjamenn og gesti þeirra með
glaðasólskini og hægum vindi. Mik-
ill fjöldi ferðafólks var í Eyjum enda
Pæjumótið í kattspyrnu í gangi en
ýmislegt fleira var á döfinni í Eyj-
um. Á laugardag var Bylgjulestin á
ferð í Vestmannaeyjum og efndi til
skemmtunar á Stakagerðistúni. Þar
komu fram tónlistarmenn og
skemmtikraftar auk þess sem boðið
var upp á þátttöku í ýmiskonar upp-
ákomum.
Kraftakarlar voru á ferðinni og
héldu Hálandaleika sína á Staka-
gerðistúni þar sem þeir kepptu í
ýmiskonar aflraunum.
Mikill fjöldi fólks fylgdist með
skemmtuninni í góðviðrinu og
Bylgjan útvarpaði beint frá fjörinu í
Eyjum þar sem allir voru í sannköll-
uðu sumarskapi.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
SUMARSTEMMNING í Eyjum.
Námskeið í jarðrækt og plægingu
Egilsstaðir - Námskeið í jarðrækt
og plægingu var nýlega haldið á
Egilsstöðum. Þátttakendur voru
bændur á Héraði en Bændaskólinn
á Hvanneyri hélt námskeiðið í sam-
vinnu við RALA og Búnaðarsam-
band Austurlands.
Námskeiðið tók tvo daga og bæði
var farið inn á bóklega og verklega
þætti. Bændaskólinn hefur haldið
fjölda slíkra námskeiða víða um
land en megininntak námskeiðsins
er að bændur læri að þekkja alla
möguleika þeirra dýru og tæknilega
fullkomnu tækja sem þeir eiga.
Námskeiðið hentar vel þeim bænd-
um sem þurfa að endurrækta tún,
eru í kornrækt eða nytjaskógrækt.
Leiðbeinendur voru Grétar Ein-
arsson frá RALA, Ríkharð Brynj-
ólfsson frá Bændaskólanum á
Hvanneyri, Þórarinn Lárusson frá
Búnaðarsambandi Austurlands og
Ólafur Eggertgson frá Þorvaldseyri_
undir Eyjafjöllum.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
HLUTI þátttakenda á námskeiðinu. Frá vinstri: Sigvaldi Ragnarsson,
Lárus Dvalinsson, Benedikt Arnórsson og Gísli Pálsson.
>
\
1