Morgunblaðið - 02.07.1998, Qupperneq 6
\6 C FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1998
BÖRN OG UNGLINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
v
Keflavfk í
sérflokki
LIÐ Keflavíkur hafði mikla yfír-
burði í stigakeppni félaga á aldurs-
flokkameistaramótinu í sundi sem
haldið var í Sundlaug Kópavogs
um síðustu helgi. Keflavíkurliðið
hlaut 1.413 stig, eða fleiri stig en
þau tvö lið sem á eftir komu fengu
samanlagt. Sundfélag Hafnarfjarð-
s-----i
Gígja Hrönn Árnadóttir
Keppti í
Frakklandi
GÍGJA Hrönn Ámadóttir,
sextán ára gömul sundkona
sem æfir með Aftureldingu,
er nýkomin úr strangri æf-
ingaferð til Frakklands ásamt
nokkrum félögum sínum, þar
sem hún tók meðal annars
þátt í gífurlega sterku móti,
þar sem nokkrir af fremstu
sundmönnum heimsins voru á
meðal keppenda. „Eg get ekki
sagt að mér hafi gengið neitt
sérstaklega vel, enda var ég í
ströngum æfíngum á þessum
tíma. En það var gaman að
keppa og sjá sterka sund-
menn, eins og Alexander
Popov,“ sagði Gígja Hrönn.
Hún sagðist vera þokkalega
sátt við árangurinn á AMÍ, en
sagðist búast við að verða í
enn betra formi á Sundmeist-
aramótinu, sem fram fer um
aðra helgi.
MÓTSSTJÓRANUM Eiríki
Jenssyni þakkað fyrir
góð störf.
Takk fyrir!
SUNDFÓLK hefur þann
skrýtna ávana að þakka fyrir
sig með því að fleygja við-
komandi út í sundlaug. Eirík-
ur Jensson mótsstjóri fékk að
kenna á þessum sið í mótslok.
Fyrst var honum hrint út í
laug og síðan var hellt yfír
hann. Eðvarði Pór Eðvarðs-
syni, þjálfara Keflavíkur,
voru þökkuð góð störf með
sama hætti, - lærisveinar
hans fleygðu honum út í laug-
ina.
ar sem hlaut 757 stig og Ægir sem
hlaut 589. Njarðvík, IA, KR og
Breiðablik komu í næstu sætum. 22
lið komust á blað á mótinu.
Þetta er annað árið í röð sem
Keflavíkurliðið sigrar í stiga-
keppninni á AMI og greinilegt er
að félagið er vel á veg komið með
góða uppbyggingu sem enn sér
ekki fyrir endann á og búast má
við því að liðið eigi góða möguleika
á að skáka SH á sundmeistaramót-
inu sem haldið verður um aðra
helgi.
Veðrið var með besta móti alla
þrjá keppnisdagana, nema hvað
nokkrir höfðu á orði að hitinn væri
of mikiil fyrsta keppnisdaginn.
Hitamælir sýndi þá átján stig í for-
sælu og loftið var það kyrrt að
vindmælir sem er í þriggja metra
hæð við Kópavogslaug hreyfðist
ekki. Góðar aðstæður í Kópavogs-
laug áttu einnig þátt í því að móts-
haldið var til fyrirmyndar. Hægt
var að bjóða keppendum upp á æf-
ingabrautir og aðstaða fyrir áhorf-
endur var íýrsta flokks.
Morgunblaðið/Frosti
Bættu met um rúmar tíu sekúndur
ÞÆR Elfa Björk Margeirsdóttir, Anna Björg Jónasdóttir, Birgitta Rún Birgisdóttir og íris Edda
Heimisdóttir skipuðu telpnasveit Keflavíkur sem sigraði í 4x100 m fjórsundi á AMÍ á laugardag-
inn á nýju telpnameti. Telpurnar syntu á fjórum minútum, 46 sekúndum og bættu eldra metið
um rúmar tíu sekúndur. Þær sögðust vera ánægðar með mótið og árangurinn, þrátt fyrir að til-
raun þeirra til að bæta telpnametið í 4x100 m skriðsundi hafi ekki gengið sem skyldi.
Hvað er Örn að
gera í sundbol?
SUMIR áhorfenda á Aldursflokka-
meistaramótinu ráku upp stór
augu þegar þeir sáu sundfötin hans
Amar Amarsonar úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar. Öm klæðist ekki
sundskýlu heldur sundbol, ekki
ósvipuðum þeim sem kvenfólk not-
ar.
- En af hverju í ósköpunum klæðir
Öm sig í sundbol?
„Þetta byrjaði allt á því að einn
félagi minn „manaði" mig í að fá
mér svona bol og eftir að hafa
reynt hann, fannst mér mjög þægi-
legt að synda í honum. Eg nota
hann í baksundi, bringusundi og
skinðsundi og finnst sem axlimar
verði stöðugri hjá mér þegar ég er
í bolnum. Hins vegar heftir hann
mig of mikið, til að ég geti notað
hann í flugsundi,“ sagði Öm sem
klæddist bolnum fyrst á alþjóðlegu
unglingamóti í Lúxemborg sl. vor.
Öm sagði að bolur eins og sá
sem hann er í, flokkist sem kven-
mannsbolur, þó hægt sé að fá
sundboli sem framleiddir em sér-
staklega fyrir karlmenn.
- En hvemig viðtökur skyldi bol-
urinn hafa fengið til þessa?
„Það er mjög misjafnt, sumir
hneykslast, en aðrir dást að þessu,
það fer greinilega allt eftir per-
sónuleikanum,“ segir Öm sem var
að keppa á sínu síðasta AMI-móti.
Hann kvaddi unglingaflokkinn á
viðeigandi hátt, - með þremur
piltametum.
ÖRN Arnarson úr SH.
Hörkuspenna
GÍFURLEG spenna var í 200 m
fjórsundi stúlkna, þar sem Kolbrún
Yr Kristjánsdóttir úr ÍA og Lára
Hmnd Bjargardóttir háðu einvígi
um sigurinn. Þær vom hnífjafnar
eftir 150 metra, en Kolbrún Yr
hafði vinninginn í fjórða sundinu,
sem var skriðsund og kom í mark á
2:20,31 sek., þriðjungi úr sekúndu
á undan Lára.
„Ég er alltaf spennt þegar ég
syndi gegn Kolbrúnu, en þetta er í
fyrsta skipti sem hún vinnur mig í
fjórsundi þegar við syndum sam-
an,“ sagði Lára Hmnd, sem sagði
að hún hefði ekki haft það úthald
sem til þurfti til að sigra Kolbrúnu,
vegna þreytu í fótum, en mundi ör-
ugglega læra eitthvað af þessu
sundi.
Kolbrún Ýr er mjög sterk í
skriðsundi og hún virtist eiga nóg
eftir fyrir lokasprettinn. „Ég
reyndi að setja allt í botn á
lokakaflanum," sagði Kolbrún Ýr,
sem er aðeins fjórtán ára gömul,
tveimur ámm yngri en Lára.
Báðar stóðu þær í ströngu á
mótinu. Kolbrún Ýr keppti í tíu
greinum en Lára Hmnd í sjö. Þær
KOLBRÚN Ýr Kristjánsdóttir og Lára Hrund Bjargardóttir.
vora sammála um að það hefði oft
verið meiri stemmning á AMI-mót-
um, en um helgina. „Þetta er að
öllu jöfnu eitt fjömgasta mótið á
árinu, en mér fínnst áhorfendur
vera of fáir. Sjónvarpið mætti
gjaman vera meira á svæðinu, því
það virðist alltaf vera svo að áhorf-
endur taki betur við sér þegar
sjónvarpað er,“ sagði Kolbrún Ýr.
Þau fengu
stigabikara
BIKARAR voru veittir til þeirra sem
áttu stigahæstu sundin í hverjum
aldursflokki. Miðað var við fjórar
stigahæstu greinar hvers sundmanns
samkvæmt ólympískri stigatöflu.
Eftirtaldir sundmenn urðu stiga-
kóngar og -drottningar 1 sínum ald-
ursflokki.
Sveinaflokkur (f. 1986 og síðar)
Hermann Unnarss., Njarðvik 1202
Meyjaflokkur (f. 1986 og síðar)
Anja Ríkey Jakobsdóttir, SH 1483
Drengjaflokkur (f. 1984-5)
Gunnar Steinþórsson, UMFA1835
Telpnaflokkur (f. 1984-5)
íris Edda Heimisd., Keflavík 2076
Piltaflokkur f. 1981-83
Öm Arnarson, SH 2337
Stúlknaflokkur (f. 1981-3)
Lára Hmnd Bjargard., SH 2372
Tveir með
EM-lágmörk
Tveir íslenskir sundmenn hafa náð
lágmörkunum fyrir Evrópumót ung-
linga sem fram fer í Antwerpen í
Belgíu í byrjun ágúst. Það era þau
Öm Amarson úr SH og Kolbrún Ýr
Kristjánsdóttir úr IA. Búast má við
því að fleiri unglingar geri atlögu að
lágmörkunum á Sundmeistaramót-
inu um aðra helgi.
Þrjú met í
boðsundum
ÞRJÚ aldursflokkamet féllu í boð-
sundum um helgina. A-piltasveit
Ægis setti met í 4 x 100 m fjórsundi
þegar sveitin kom í mark á 4:08,59
og bætti eldra metið um sléttar sex
sekúndur. í sveit Ægis syntu þeir
Tómas Sturlaugsson, Jakob Jóhann
Sveinsson, Láms Sölvason og Hjört-
ur Már Reynisson.
A-stúlknasveit SH setti met í
4x50 m skriðsundi. Sveitin kom í
mark á 1:54,08 sem er rúmum tveim-
ur sekúndum undir gildandi stúlkna-
meti. Sveitin var skipuð þeim Lám
Hrund Bjargardóttur, Halldóru Þor-
geirsdóttur, Kolbrúnu Hrafnkels-
dóttur og Sunnu Björg Helgadóttur.
Þess má geta að A-stúlknasveit
Keflavíkur kom í mark á 1:55,81 sem
einnig var undir gildandi meti.
A-telpnasveit ÆGIS sló metið í
4x100 m fjórsundi þegar hún kom í
mark á 4:08,59 sek. Sveitina skipuðu
þær Birgitta Rún Sigurðardóttir, ír-
is Edda Heimisdóttir, Ama Björg
Jónasdóttir og Elva Björk Margeirs-
dóttir.