Morgunblaðið - 05.07.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.07.1998, Blaðsíða 2
2 E SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ SJ Ú KRAH Ú S REYKJAVÍKUR Hjúkrun þekking í þína þágu Á Sjúkrahúsi Reykjavíkur eru lausar stöður á hjúkrunarsviði. Boðið er upp á margvísileg spennandi atvinnutækifæri fyrir metnaðargjarna og glaðlynda hjúkrunarfræðinga. Sjúkrahús Reykja- víkur er fjölbreyttur vinnustaður þar sem hjúkrunarfræðingum gefst tækifæri til að þjálfa huga og hönd í hinum fjölmörgu sérgreinum hjúkmnar. Mörg tækifæri gef- ast til símenntunar og þátttöku í rann- sóknarvinnu. Við leggjum áherslu á vin- samlegt og faglegt starfsumhverfi þar sem hver einstaklingur fær að njóta sín. Geðsvið Á geðsviði er rekin þjónusta við bráðveika og langveika geðfatlaða. Þjónustan er í formi inn- lagna, dagvistunar, hópvinnu og endur- hæfingar. Þar gefst því tækifæri til að kynna sér mörg mismunandi meðferðarform á flóknum og krefjandi viðfangsefnum. Nánari upplýsingar veitir Guðný Anna Amþórsdóttir hjúkmnarframkvæmda- stjóri í síma 525 1405 eða deildarstjórar í síma 525 1000. Lyflækninga- og endurhæfingarsvið Á lyflækningasviði eru almennar og sérhæfðar lyflækningadeildir með mjög fjölbreytt verkefni. Þar er einnig barnadeild sem leggur áherslu á heildstæða þjónustu við börn og fjöl- skyldur þeirra. Á Grensásdeild eru sjúklingar með ýmsa taugasjúkdóma og verkjavandamál ásamt sjúklingum sem þarfnast umfangs- mikillar endurhæfingar vegna sjúkdóma eða slysa. Nánari upplýsingar veitir Margrét Bjömsdóttir hjúkmnarframkvæmdastjóri í síma 525 1555 eða deildarstjórar í síma 525 1000. Skurðlækningasvið Áskurðlækningasviði eru legudeildir fyrir að- gerðarsjúklinga, skurðstofur, svæfingadeild, gjörgæsludeild, sótthreinsunardeild, göngu- deild og dagdeild. Dæmi um aðgerðir sem gerðar eru á sjúkrahúsinu eru heila- og taugaaðgerðir, háls-, nef- og eyrnaaðgerðir, brjósthols- og kviðarholsaðgerðir, bæklunar- aðgerðir og aðgerðir á þvagfærum. Tækifæri til aukinnar þekkingar og þjálfunar eru því fjöl- mörg og spennandi. Heilsugæslustöð Eskifjarðar- læknishéraðs Staða heilsugæslulæknis við heilsugæslustöð- ina í Eskifjarðarlæknishéraði er laustil umsókn- ar. Æskileg sérgrein heimilislækningar. Héraöið hefur á að skipa tveimur heilsugaeslustöðvum á Eskifirði og á Reyðarfirði og þjónar 1700 ibúum. Héraðið er þægilegtyfirferðar þar sem staðirnir er rómaðir fyrir mikla veðursæld. Á Neskaupstað, sem er í 30 km fjarlægð, er fjórðungssjúkrahús og annað sjúkrahús á Egilsstöðum sem er í 50 km fjarlægð. Á stöðvunum er góð starfsað- staða og mjög vei tækjum búin (ný og glæsileg heilsugæslustöð á Eskifirði). Góð laun eru í boði. Húsnæði og bifreið fyrir vakt- hafandi lækni. Atvinnulif er blómlegt og mannlíf gott á báðum stöðum. Góðir grunn- skólar með föstum kennarakjarna, góðir leikskólar, tónlistarskólar og félagsmiðstöðvar. Menntaskóli er á Egilsstöðum og Verkmenntaskóli á Neskaupstað. Skíðasvæðið í Oddskarði er við bæjardyrnar, með þvi besta á land- inu. Frábærar brekkur með stórkostlegt útsýni og náttúrfegurð. Mjög góður 9 holu golfvöllur, fjölbreyttur, erfiður, skemmtilegur, allt í senn! Umsóknarfrestur er til 1. ágúst nk. Nánari upplýsingar veitir Svava I. Svein- björnsdóttir, framkvaemdastjóri, í síma 476 1630 eða Stefán Óskarsson, formaður stjórnar, í síma 476 1426. Umsóknum skal skilað til: Stjórnar heilsugæslustöðvar Eskifjarðarlæknishéraðs, Strandgötu 31, 735 Eskifirði. Nánari upplýsingar veitir Gyða Halldórsdóttir hjúkrunarframkvæmda- stjóri í síma 525 1305 eða deildarstjóri í síma 525 1000. Slysa- og bráðasvið Deildir slysa- og bráðasviðs sinna mörgum spennandi og krefjandi verkefnum. Má þar nefna móttöku og hjúkrun bráðveikra og slasaðra, forgangsröðun, símaráðgjöf, áfalla- hjálp og hjúkrun þolenda kynferðisofbeldis. Göngudeildir G-3 sinnir eftirliti og ráðgjöf. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 525 1705 eða deildarstjórar í síma 525 1000. Öldrunarsvið Deildir öldrunarsviðs eru flestar staðsettar á Landakoti en ein legudeild er í Fossvogi. Starfsemin er mjög fjölbreytt. Unnið er í teymisvinnu að því að finna bestu meðferðar- úrræði fyrir hvern einstakling og fjölskyldu hans. Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 525 1888 eða deildarstjóri í síma 525 1800. Kjörár Tilgangur kjörárs er að veita nýjum hjúkrunar- fræðingum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur markvissa aðlögun og faglegan stuðning á nýjum vinnu- stað. Þeir hjúkrunarfræðingar sem skrá sig á kjörár starfa í 1 ár í 80—100% starfi, velja tvær valdeildir (5,5 mán. x2) og eina sérdeild í 2 vikur. Markviss aðlögun, fyrirlestrar og les- dagar eru hluti af dagskrá kjörárs. Boðið er upp á reglubundna fundi með reyndum hjúkr- unarfræðingum. Verið velkomin að leita upplýsinga á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í Fossvogi í síma 525 1221 eða beint hjá viðkomandi hjúkiunarframkvæmdastjóra eða deildar- stjóra. Myndgreininga- og rannsóknasvið Læknaritari Staða læknaritara á röntgendeild Sjúkrahúss Reykjavíkur Fossvogi er laustil umsóknar. Góðir skipulags- og samstarfshæfileikar eru mikilvægir. Umsóknarfrestur er til 20. júlí nk. Umsóknir, ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, sendist til Steinunnar Önnu Oskarsdóttur, deildarstjóra lækna- ritara röntgendeildar, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar í síma 525 1441. Við ráðningar i störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf og hvetja það kynið, sem er í minnihluta i viðkomandi starfsgrein, til að sækja um. Söiumaður Framsækið framleiðslu- og þjónustufyrirtæki á sviði umbúða og rekstrarvöru leitar að sölu- manni til sjálfstæðrar umsjónar með verslunar- og þjónustufyrirtækjum. Starfið fellst í uppbyggingu og viðhaldi við- skiptasambanda fyrirtækisins innan viðkom- andi geira. Um er að ræða starf blandað af kynningum og heimsóknumtil viðskiptavina og við móttöku pantana, tilboðsgerð o.þ.h. Starfið gefurvirkum og áhugasömum einstakl- ingum mikla möguleika á að ná góðum árangri í starfi. Við leitum að: dugmiklum einstaklingi, með góða almenna viðskiptamenntun og tölvuþekkingu. Viðkom- andi þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi. Reynsla af sölu- og/eða þjónustustörfum æskileg. Við bjóðum: Lifandi og áhugavert starf í tryggu starfsum- hverfi hjá framsæknu fyrirtæki. Reyklaus vinnustaður. Vinsamlegast leggið inn skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf til auglýsingadeildar Morgunblaðsinsfyrir 10. júlí 1998 merktar: „E—5266". Eræðslumiðstöð Reykjavíkur Lausar eru kennara- stöður í eftirfarandi kennslugreinum: Engjaskóli, sími 510 1300 & í GSM síma 899-7845 Almenn kennsla, á mið- og unglingastigi. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Tónmennt. Umsóknarfrestur ertil 19. júlí. Foldaskóli, sími 567 2222 & heimasími 565-6651 Almenn kennsla yngsta stig, 1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Almenn kennsla miðstig, 1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Sérkennsla við sérdeild unglinga. Umsóknarfrestur er til 13. júlí. Hamraskóli, sími 567 6300 & í GSM síma 895 9468 Almenn kennsla, miðstig, 2/3—1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Langholtsskóli, sími 553 3188 Almenn kennsla, yngsta stig, 2/3—1/1 staða. Umsóknarfrestur ertil 19. júlí. Handmennt (smíðar), yngsta- og miðstig, 1/2— 2/3 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Handmennt (saumar), 2/3—1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Enska á unglingastigi, 1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 12. júlí. íslenska og samfélagsfræði á unglingastigi, 1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 4. ágúst. Danska á unglingastigi, 1/2Staða. Umsóknarfrestur er til 4. ágúst. Sérkennari í sérdeild einhverfra. Umsóknarfrestur er til 4. ágúst. Selásskóli, sími 567 2600 & í GSM síma 895 8926 íþróttakennari, 1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Heimilisfræði, 2/3 staða. Umsóknarfrestur er til 4. ágúst. Seljaskóli, sími 557 7411 Alm. kennsla, yngsta stig, 2/3 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Almenn kennsla, miðstig, 1/1 staða. Umsóknarfrestur er til 19. júlí. Raungreinar á unglingastigi. Umsóknarfrestur er til 4. ágúst. Ölduselsskóli, sími 557 5522 Alm. kennsla 7. bekk, 1/1 staða. Umsóknarfrestur ertil 19. júlí. Talkennarar óskast til starfa í Grunnskólum Reykjavíkur næsta skólaár. Upplýsingar veitir Auður Hrólfsdóttir í síma 535 5000, netfang audurh@reykjavik.is. Umsóknarfrestur er til 12. júlí. Upplýsingar gefa skólastjórar og aðstoðar- skólastjórar og Ingunn Gísladóttir á Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur í síma 535 5000, netfang ingunng@reykjavik.is, og ber að senda um- sóknirtil skólanna. Laun skv. kjarasamningum KÍ og HÍKvið Launanefnd sveitarfélaga. Við ráðningar í störf vilja borgaryfirvöld stuðla að því að þau flokkist ekki í sérstök kvenna- eða karlastörf. Þessar auglýsingar sem og annan fróðleik er að finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur: www.reykjavik.is/fmr. • Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.