Morgunblaðið - 05.07.1998, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1998 E 3
\iivna sem vit er
SIIVHSTAMIR REYKJAVÍKIJR
Sundhöll Reykjavíkur - forstöðumaður
Staða forstöðumanns Sundhallarinnar er laus
til umsóknartil afleysinga í 12 -14 mánuði.
Staðan er laus strax.
Verksvið:
* Annast daglegan rekstur, uppgjör og skil
fjármála.
* Umsjón með öllu er viðkemur
starfsmannahaldi, þ.e. ráðningar og skil
launagagna.
Hæfniskröfur:
* Menntun og/eða reynsla á sviði stjórnunar og
rekstrar er æskileg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður
í síma 551-4059.
Laugardalslaug - starfsmaður í afgreiðslu
og afleysingar á kvennaböð
Um eraðræða 100% starf ívaktavinnu.
Staðan lausfrá 1. ágúst.
Laugardalslaug - starfsmaður í veitingasölu
Um er að ræða 87,5% starf í vaktavinnu.
Staðan erlausfrá 1. ágúst.
Upplýsingar veitirforstöðumaður
í síma 553-4039.
Vesturbæjarlaug - laugarvörður
Um er að ræða vaktavinnu. Staðan er laus
frá 1. ágúst. Umsækjandi þarf að standast
hæfnispróf sbr. öryggisreglugerð fyrir
sundstaði.
Vesturbæjarlaug - næturvörður
Starf næturvarðar í 87% stöðu er lausttil
umsóknar strax.
Upplýsingar veitir forstöðumaður
í síma 561-5004.
ÍTMGSMIÐSTÖÐVAR ÍTR
Eftirfarandi félagsmiðstöðvar óska eftir
tómstundaráðgjöfum/tómstundaleiðbeinendum
til starfa:
Ársel 100% starf
Bústaðir 100% starf
Frostaskjól 100% starf og hlutastörf
Hólmasel hlutastörf
í starfinu felst m.a.
* Umsjón og skipulagning félagsstarfs unglinga
í miðstöðinni.
* Að kynna og stuðla að heilbrigðum lífsvenjum
og tómstundum unglinga.
* Umsjón og skipulagning forvarnarstarfs.
* Samskipti við foreldra, kennara og yfirstjórn
grunnskólanna.
Hæfniskröfur:
* Háskólamenntun á uppeldissviði og/eða
sambærileg menntun æskileg.
* Góð reynsla í starfi með unglingum og
ungmennum.
* Almenn tölvukunnátta auk skipulagshæfileika.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi störf þar
sem áhersla er lögð á jákvætt starfsumhverfi og
sterka liðsheild.
Félagsmiðstöðin Tónabær - starfsmaður í
ræstingar
Óskum eftir starfsmanni til ræstinga í hlutastarf.
Laun samkvæmtkjarasamningi
Reykjavikurborgar og Framsóknar.
Störfin eru laus frá 1. september.
Upplýsingar veita forstöðumenn
félagsmiðstöðvanna.
SKÍÐASVÆÐI
VERKEFNISSTJÓKIUV6S FÓLKS
ÍEVRÓPU
ÍTR auglýsir eftir verkefnisstjóra vegna erlendra
verkefna. ísland er aðili að áætlunum
Evrópusambandsins sem varða ungt fólk,
gegnum samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið (EES). ÍTR annastframkvæmd
tveggja slíkra áætlana fyrir hönd
menntamálaráðuneytisins.
Verksvið:
* Verkefnisstjóri sér um daglegan rekstur
verkefna og samskipti við þá aðila
sem málið varðar, s.s. ungtfólk, æskulýðsfélög
og aðra sem starfa með ungu fólki.
* Verkefnisstjóri skipuleggur framkvæmd
verkefna.
* Verkefnisstjóri sér um fjármál, s.s.
áætlanagerð, styrkveitingartil hópa
og mat á fjárhagsuppgjöri hópa.
* Verkefnisstjóri ber ábyrgð á ráðgjöf og
kynningu á verkefnum, ásamt útgáfumálum.
* Verkefnisstjóri þarf að geta sótt námskeið og
fundi erlendis og einnig að ferðast
innanlands.
Hæfniskröfur:
* Háskólamenntun er skilyrði og sérlega góð
ensku- og íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Frönsku- eða þýskukunnátta er æskileg. Góð
tölvukunnátta skilyrði.
Starfið er laust nú þegar.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri ÍTR
í síma 510-6600.
Verkefnisstjóri á skíðasvæði
Verksvið:
* Annast daglegan rekstur skíðasvæðis og
þjónustu við gesti.
Hæfniskröfur:
* Þúsundþjalasmiður.
Starfið er laustfrá 1. september. Upplýsingar
veitir Þorsteinn Hjaltason fólkvangsvörður í
Bláfjöllum í síma 852-1679
SKRIFSTOFA ÍTR
Deildarstjóri fræðslu- og jafnréttismála
Verksvið:
* Vinnur með fræðslustjóra ÍTR.
* Kennsla á námskeiðum og útgáfa fræðsluefnis.
* Umsjón með gerð og úrvinnslu kannana.
Hæfniskröfur:
* Háskólapróf á uppeldissviði eða sambærileg
menntun æskileg.
Starfið er laustfrá 1. október.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri ÍTR
í síma 510-6600.
Deildarstjóri starfsmannaþjónustu
á skrifstofu ÍTR
Starfið er auglýsttil afleysinga í 18 mánuði.
Verksvið:
* Umsjón með launaafgreiðslu.
Hæfniskröfur:
* Háskólamenntun æskileg.
* Góð almenn tölvu- og stærðfræðikunnátta.
* Góð íslensku- og tungumálakunnátta.
* Reynsla á því sviði sem í starfinu felst.
Starfið erlaustnú þegar.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri ÍTR
í síma 510-6600.
Deildafulltrúi almennrar afgreiðslu
Verksvið:
* Almenn afgreiðsla og símavarsla
Hæfniskröfur:
* Skrifstofu og ritaranám eða sambærilegt nám.
* Reynsla á því sviði sem í starfinu felst.
* Góð almenn tölvukunnátta.
Starfið er laustfrá 1. september.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri ÍTR
í síma 510-6600.
Umsækjendur skulu vera sjáifstæðir og skipulagðir í starfi, hafa góða framkomu,
eiga auðvelt með að starfa með öðrum og tjá sig í töluðu og rituðu máli.
Umsóknarfrestur ertil og með 20. júlí 1998.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu ÍTR að Fríkirkjuvegi 11, á þartil gerð
umsóknareyðublöð. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Athygli er vakin á því að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar-
og ábyrgðastöðum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og í fyrirtækjum.
Upplýsingar veita Snorri Jóelsson, starfsmannastjóri og Steinþór Einarsson,
markaðs- og þjónustustjóri í síma 510-6600.
***v*0*i0*+*i**i***i0***0*im*0**mmm^m*0*^**0'***.
Starfsmenn ÍTR vinna á sviði íþrótta og tómstunda og eru lykiilinn að því að ÍTR geti veitt
fyrsta flokks þjónustu við viðskiptavini sína.
ÍTR leggur mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk, jafnrétti og
starfsmannastefnu. Allir starfsmenn taka þátt í fræðslustarfi ÍTR og eru upplýstir um
jafnréttisáætlun og starfsmannastefnu fyrirtækisins og Reykjavíkurborgar.
íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur starfrækir m.a. sjö sundlaugar, níu félagsmið-
stöðvar, þrjár íþróttamiðstöðvar, Laugardalshöll, Miðstöð nýbúa, Hitt Húsið,
Þjónustumiðstöð, þrjú skíðasvæði, skíðasvæði í hverfum, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn,
tómstundastarf í grunnskólum borgarinnar, sumarstarf fyrir börn, smíðavelli, sumargrín
og siglingaklúbbinn í Nauthólsvík.
ÍTR, Fríkirkjuvegi 11,101 Reykjavík. Sími 510-6600, fax 510-6610.
Netfang: itr@rvk.is Veffang: www.rvk.is/itr