Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Ibúðalánasjóður tekur við verkefnum
Húsnæðisstofnunar um næstu áramót
Starfsmönnum
boðin ný störf
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins
verður lögð niður um næstu áramót
og leggjast þá niður störf 43 starfs-
manna hennar. Ibúðalánasjóður
tekur við verkefnum Húsnæðis-
stofnunar, samkvæmt nýjum lögum
um húsnæðismál sem samþykkt
voru á síðasta þingi. Hluta starfs-
manna verður boðin störf þar.
Gunnar S. Bjömsson er formað-
ur undirbúningsnefndar sem skip-
uð var fyrir hálfum mánuði til að
vinna að stofnun sjóðsins. Auglýst
hefur verið eftir framkvæmda-
stjóra og segir Gunnar stefnt að
ráðningu hans sem fyrst eftir að
umsóknarfrestur rennur út um
miðjan ágúst. Er hugmyndin að
hann starfi með undirbúnings-
nefndinni að stofnun Ibúðalána-
sjóðs sem taka á til starfa á nýju
ári.
„Það liggur ekki fyrir ennþá
hversu mörgum verða boðin störf
hjá Ibúðalánasjóði, það er ekki það
langt síðan undirbúningsnefndin
var skipuð og við erum því rétt að
komast í gang,“ sagði Gunnar.
Hann segir ljóst að starfsmenn
Húsnæðisstofnunar ríkisins eigi
rétt á biðlaunum, mismunandi
miklum eftir starfsaldri og öðru,
það fari eftir lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins enda
sé stofnunin lögð niður og störfin
þar með. Gunnar segir að ekki
verði þörf fyrir alla 43 starfsmenn
Húsnæðisstofnunar hjá Ibúðalána-
sjóði en það verði eitt af verkefnum
undirbúningsnefndarinnar ásamt
nýjum framkvæmdastjóra að kom-
ast til botns í því.
I frétt frá félagsmálaráðuneytinu
í gær segir að félagsmálaráðherra
muni í samráði við undirbúnings- "
nefndina ganga frá starfslokum við
Sigurð E. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóra Húsnæðisstofnunar
ríkisins, sem verði í árslok. Eru
Sigurði þökkuð vel unnin störf á
sviði húsnæðismála á þeim liðlega
þremur áratugum sem hann hefur
starfað í þágu Húsnæðisstofnunar
ríkisins. Einnig eru öðrum starfs-
mönnum stofnunarinnar þökkuð vel
unnin störf.
Lauga-
vegur
opnaður
á morgun
LAUGAVEGURINN, á milli
Frakkastígs og Barónsstígs, verður
opnaður fyrir umferð bíla og gang-
andi fólks á morgun, laugardag.
Með þeim endurbótum sem gerðar
hafa verið á götunni mun ásýnd
hennar gjörbreytast frá því sem áð-
ur var. A þessum kafla Laugavegar-
ins eru 60 verslanir.
Akbrautin hefur verð endur-
byggð og nýjar gangstéttar lagðar.
Þá hafa verið gerð tvö torg á þess-
um kafia Laugavegarins, annað á
móts við Kjörgarð, Laugavegi 59,
hitt á móts við Landsbankann,
Laugavegi 77. Allar lagnir í götunni
hafa verið endumýjaðar, þ.e. síma-
lagnir, raflagnir ásamt hitaveitu- og
vatnsveitulögnum. Þá hefur full-
í GÆR var lögð lokahönd á endurbætur á Laugaveginum.
komið snjóbræðslukerfi verið lagt í
götuna.
Áætlað er að fjöldi þeirra teina og
gangstéttarhellna sem lagður hefur
verið í Laugaveginn við endurbygg-
ingu hans, sé um 200 þúsund tals-
ins.
Kostnaður við verkið verður um
140 milljónir króna. Verktaki er
Istak, ásamt undirverktökum, en
hönnuður er Örn Sigurðsson arki-
tekt. Verkfræðistofa Stefáns Ólafs-
sonar sá um eftirlit með fram-
kvæmdum.
Morgunblaðið/Kristínn
UNDIRBÚNINGUR fyrir Þjóðhá-
tiðina í Vestmannaeyjum stendur
sem hæst þessa dagana og í Herj-
ólfsdal trónir Keikó á mynd-
skreytingu.
Keikó á
Þjóðhátíð
48 manns
um hvert
Playboy eintak
5.500 eintök hafa selst af
ágústhefti tímaritsins Playboy
hér á landi frá því blaðið kom
í verslanir fyrir tveimur vik-
um. Þá komu í verslanir 3.000
eintök og seldust þau upp á
einum degi. Margir pöntuðu
þá blaðið og bárust 2.500 ein-
tök í flugi frá Bandaríkjunum
í gærmorgun og ruku þau
einnig út frá dreifingaraðila
sama dag. Miðað við að 5.500
eintök seljist eru 48 Iands-
menn um hvert eintak. Meðal
efnis í blaðinu eru nektar-
myndir af íslenskum konum
og umíjöllun um land og þjóð.
Guðmundur H. Sigmunds-
son, framkvæmdasfjóri Blaða-
dreifingar ehf., sem hefur
umboð fyrir Playboy, hefur
þegar pantað fleiri eintök.
Hann segir að venjulega sé
sáralítil sala á tímaritinu og
eru ekki flutt inn nema 150
eintök að jafnaði af hveiju
hefti. Guðmundur kvaðst geta
trúað því að endanleg sala á
ágústheftinu yrði 7-8 þúsund
eintök.
Guðmundur segir blaðið
greinilega höfða til íslendinga
núna vegna umfjöllunarinnar
um íslensku konurnar. „Það
er mjög sérstakt í sjálfu sér
að stúlkur frá svo litlu landi
skuli fá umfjöllun í svo stóru
blaði,“ segir Guðmundur.
Hann segir að sama hafi
verið uppi á teningnum í
Finnlandi sl. vor þegar tíma-
ritið birti nektarmyndir af
finnskri stúlku sem er þekkt í
heimalandi sínu fyrir klassísk-
an fiðluleik og er í rniklu dá-
læti meðal landa sinna.
Að jafnaði eru flutt inn um
1.500 eintök af Playboy til
Finnlands en þetta hefti seld-
ist í 34 þúsund eintökum.
Guðmundur kvaðst hafa
heyrt af því að útgefendur
tímaritsins hefðu hugleitt
það að gefa út sérstakt blað
með umfjöllun um norrænar
konur.
Sýknaður af kröfu um
sviptingu ökuleyfís
ÖKUMAÐUR á Vestfjörðum var í
gær sýknaður í Héraðsdómi Vest-
fjarða af kröfu ákæruvalds um
sviptingu ökuréttar. Hann var
sviptur ökurétti til bráðabirgða 5.
júní fyrir að hafa mælst aka á 67
km hraða þar sem hámarkshraði er
35 km. Bar hann ákvörðun lög-
reglustjóra undir Héraðsdóm Vest-
fjarða sem felldi hana úr gildi.
Sýslumaðurinn á Isafirði ákveður í
dag hvort málinu verður áfrýjað.
Málavextir eru þeir að umrædd-
ur ökumaður, sem var á leið írá
Bolungarvík til ísafjarðar síðdegis
föstudaginn 5. júní, var að komast
út úr íbúðarhverfinu í Hnífsdal og
taldi sig eiga eftir 50 til 100 metra í
umferðarmerki sem tilgreinir 70
km leyfilegan hámarkshraða. Þar
sem umferð hafi verið lítil og engir
gangandi vegfarendur nærri hafi
hann aukið hraða bflsins á ný.
Kvaðst hann ekki vera í aðstöðu til
að véfengja réttmæti hraðamæl-
ingarinnar.
I skýrslu lögreglunnar segir um
aðstæður á vettvangi að dagsbirta
hafi verið, sólskin, yfirborð vegar
þurrt, slétt og bundið slitlag.
Einnig að lögreglumennimir hafi
prófað ratsjána fyrir og eftir mæl-
ingu og engar athugasemdir skráð
við niðurstöðu hennar. Hraði bfls-
ins hafi mælst 67 km þar sem
leyfður er 35 km hámarkshraði.
Ökumaðurinn var sviptur öku-
leyfi til bráðabirgða í mánuð. Hann
bar ákvörðun lögreglustjóra undir
Héraðsdóm Vestfjarða sem felldi
hana úr gildi 8. júní. Ákærði hafn-
aði tveimur dögum síðar að ljúka
málinu með sáttargerð lögreglu-
stjóra með greiðslu 20 þúsund
króna sektar og sviptingar öku-
réttar í mánuð.
Kvikmyndað á vettvangi
Áður en málflutningur hófst fóru
dómari og sakflytjendur á vettvang
í fylgd ákærða, lögreglumannanna
sem stóðu að mælingunni og
tveggja rannsóknarlögreglumanna.
Voru aðstæður á vettvangi ljós- og
kvikmyndaðar, lögreglubíll og bfll
ákærða staðsettir í samræmi við
Sýslumaður
íliugar áfrýjun
framburð þeirra. Tæpir 170 metrar
hafi verið frá þeim stað sem lög-
reglumenn fullyrða að bfll ákærða
hafi verið mældur á í umferðar-
merki sem sýndi hækkaðan há-
markshraða úr 35 í 70 km.
I dóminum er greint frá reglu-
gerðum sem settar hafa verið um
sektir og önnur viðurlög vegna um-
ferðarlagabrota og hvemig lögfest
hefur verið valdaframsal til dóms-
málaráðherra til að ákveða í reglu-
gerð sektir allt að 100 þúsund
krónum fyrir umferðarlagabrot.
Telur dómurinn umrætt valda-
framsal ekki svo víðtækt að það
bindi hendur dómstóla við ákvörð-
un refsinga.
Segir einnig að framsal hins al-
menna löggjafa til dómsmálaráð-
herra eigi sér ekki lagastoð og
svipting ökuréttar á grundvelli
ákvæða 101. greinar umferðarlaga
verði ekki studd ákvæðum reglu-
gerðar nr. 280/1998 sem sett var
14. maí. „Verðm- og trauðla séð
hver ávinningur væri af svo víð-
tæku valdaframsali, en í því fælist
meðal annars lögákveðið mat á
orðunum „mjög vítaverðan akstur“
sem væri bindandi fyrir dómstóla
með þeim fyrirvara einum sem
fælist í niðurlagsákvæði 4. mgr.
100. gr. umferðarlaga,“ segir í
dóminum. Segir að slík lagaregla
myndi hefta sjálfstæði dómstóla og
gera þá tortryggilega í augum hins
almenna borgara.
Niðurstaða dómsins varð sú að
hæfileg refsing þyki 12 þúsund
króna sekt og að sýkna ákærða af
kröfu ákæruvalds um sviptingu
ökuréttar. Sakarkostnaður greiðist
úr ríkissjóði, þar með talin 100 þús-
und króna málsvarnarlaun skipaðs
verjanda, Tómasar Jónssonar
hæstaréttarlögmanns. Dóminn
kvað upp Jónas Jóhannsson.
Miðað verður við hugtakið
mjög vítaverður akstur
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Isafírði, segir að við
bráðabirgðasviptingu ökuleyfis
verði framvegis miðað við hugtakið
mjög vítaverður akstur og mál
metin hveiju sinni. Eftir sem áður
verði þó boðin lögreglustjórasátt í
málum sem þessum og gangi menn
ekki að henni sé ekki önnur leið
fær en að ákæra. Sagði hann svipt-
ingu því ekki fara fram nema eng-
inn vafi léki á þvi að um vítaverðan
akstur hefði verið að ræða. Hann
segir sektarupphæðir hins vegar
ákvarðaðar eftir reglugerðinni.
Sýslumaður segir það hafa vakið
athygli sína við dóminn að máls-
kostnaður skuli ekki vera látinn
falla á þann sem sakfelldur er.
Venjan sé sú að sá sem sakfelldur
er sé látinn bera kostnað af mál-
sóknar- og málsvarnarlaunum.
Ólafur Helgi segist ákveða það í
dag hvort málinu verður áfrýjað.