Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ _________________________________FRÉTTIR Átta kærur vegna sveitarsljórnarkosninga Hlutkesti varpað í Sveinsstaðahreppi FÉ L AGSMÁLARÁÐUNE YTIÐ hefur staðfest niðurstöðu sérstakr- ar úrskurðarnefndar og ógilt eitt at- kvæði sem greitt var í sveitarstjórn- arkosningunum í Sveinsstaða- hreppi. í kjölfarið hefur verið varp- að hlutkesti milli tveggja manna um það hvor þeirra skyldi hljóta sæti í sveitarstjórninni. Niðurstaðan varð sú að sá sem tapaði kærumálinu heldur engu að síður sæti sínu í hreppsnefndinni. Málið var sprottið af því að kjör- stjóm í Sveinsstaðahreppi, þar sem gengið var til óbundinna kosninga, úrskurðaði að atkvæði þar sem skrifað var nafn, sem ekki fannst á kjörkrá, skyldi teljast tilheyra ákveðnum manni. Með því móti hlaut sá maður eitt atkvæði umfram næsta mann og var talinn rétt kjör- inn til setu í hreppsnefnd. Málið var kært og sérstök úr- skurðarnefnd komst að þeirri niður- stöðu að vafaatkvæðið skyldi ógilt og varpað hlutkesti milli mannanna tveggja. Sá sem eignað hafði verið atkvæðið kærði til félagsmálaráðu- neytisins, en að sögn Sesselíu Árna- dóttur, lögfræðings í ráðuneytinu, staðfesti ráðuneytið úrskurðinn og ógildingu atkvæðisins. í kjölfarið var varpað hlutkesti um hvor mannanna tveggja skyldi hljóta atkvæði í hreppsnefnd og kom upp hlutur þess sem upphaf- lega hafði verið eignað vafaatkvæð- ið. Fjórar kærur afgreiddar en fjórar ekki Að sögn Seselíu Arnadóttur, bár- ust alls 8 kærumál í kjölfar sveitar- stjórnarkosninganna. Afgreiðslu fjögurra mála er lokið. I Þórshafnarhreppi var kært vegna meints vanhæfís formanns kjörstjómar. Þeirri kröfu hefur ver- ið hafnað. I Arnarneshreppi við Eyjafjörð vom ýmis framkvæmdaatriði við kosningarnar kærð, svo sem auglýs- ing um hvar skila bæri framboðum, en j)eirri kröfu var hafnað. I Kelduneshreppi í N-Þingeyjar- sýslu var deilt um hvernig ætti að raða varamönnum, sem teldust rétt kjörnir í óbundnum kosningum. Þar hefur ráðuneytið fellt þann úrskurð að kjörstjóm beri að telja atkvæði á ný hvað varðar úthlutun varasæta í hrejípsnefnd. Oafgreidd eru í ráðuneytinu kæmmál sem tengjast Vestur- byggð, Gerðahreppi, Raufarhafnar- hreppi og A-Eyjafjallahreppi. Morgunblaðið/Jónas Heimta sopann sinn HEIMALNIN G ARN AR á bænum Fagradal í Mýrdal koma heim að bænum á vissum tíma á morgn- ana og kvöldin og heimta mjólk- ursopann. Er það vinsæl vinna hjá gestum, ekki síst ungviðinu, að sinna þessum þörfum og stundum verður áhuginn svo mikill að börnin vilja helst fá að taka Iömbin heim með sér sem gæludýr. Það er hins vegar ekki vinsælt hjá foreldrunum. Mynd- in var tekin þegar María Grét- arsdóttir var að gefa Bjartlind pelann sinn og fjær er Erlendur Sigurþórsson að gefa Tölva. íbúar Sigtúns 23 Afþakka styrkinn ÍBÚAR hússins við Sigtún 23 hafa ákveðið að afþakka 300 þús. króna styrk úr Húsvemdunarsjóði til viðgerða á þaki. Styrkveitingin hefur verið gagnrýnd, þar sem Margrét Hallgrímsdóttir borgarminjavörður er einn fjögurra eigenda hússins. „Það var alltaf á hreinu í mínum huga að ég tæld ekki við neinum hluta af þessum styrk,“ sagði Margrét. „Nágrannar mínir em til vitnins um það. Ég kom þessu einnig til skila til vinnuhópsins. Ég kom ekkert nálægt þessari vinnu en nágrannar mínir hafa ákveðið að afþakka styrkinn. Þeir segjast ekki hafa ánægju af að taka við þessum peningum vegna þessarar ómálefnanlegu umræðu sem farið hefur fram. Þau voru í góðri trú um að þau hefðu rétt á að sækja um þennan styrk eins og hver annar þrátt fyrir að ég byggi í húsinu. Þeim finnst ómaklega að sér vegið,“ sagði Margrét. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Vænir fiskar víða fyrir norðan Ljósmynd/Lárus Kr. Jónsson ODDUR Ólafsson með 24 punda hæng sem hann fékk nýlega í Laxá í Aðaldal. Laxá í Aðaldal LAXÁ í Aðaldal hefur tekið vel við sér. Lax- veiðisvæðið er þrískipt, neðst er Laxárfélags- svæðið, þá Núpasvæðið og síðan Árnessvæðið. Þar fyrir ofan tekur síðan Laxárfélagið aftur við. „Það hefur verið jöfn og góð veiði í sumar, miklu betri en í fyrra,“ sagði Þórunn Alfreðsdótt- ir, ráðskona í Veiðiheimil- inu Vökuholti á Laxa- mýri. Á þriðjudagsmorg- un voru komnir á land 660 laxar á Laxárfélags- svæðinu og mikið af því stór fiskur. Pétur Bjama- son á Akureyri átti þann stærsta, 23 punda, en alls hafa veiðst átta laxar yfir 20 pundum það sem af er sumri. Þórunn segir að nú sé smálaxinn farinn að ganga. Menn sjái mikinn fisk í ánni þótt vatnið hafi verið kalt, 6-7 gráður. Það er spáð hlýnandi veðri og þá er líklegt að laxinn fari að taka enn betur. Sigríður Sigurðardóttir á Núp- um sagði að á þeirra veiðidögum í sumar hefðu fengist 35 laxar og er það mun betra en á sama tíma í fyrra og sumarið þar áður. Stærsta laxinn til þessa fékk Odd- ur Ólafsson úr Reykjavík, 24 punda hæng. Oddur var í félagi við Láras Kr. Jónsson um stöng og festu þeir í öðrum álíka stór- um laxi. Sá sleit sig af við ár- bakkann, en viðureignin náðist á myndband og frásögnin því ræki- lega staðfest. Alls fengu þeir fé- lagar 12 laxa á þremur dögum. Á svæðinu er ein og hálf stöng og veiðitímabilinu skipt á milli Núpa og Áraess. Að sögn Sigríðar glæddist veiðin mjög eftir 14. júlí ojg var góð fram til þess 19. þegar Árnessmenn tóku við svæðinu. Vigdís Álfheiður Stefánsdóttir í Straumnesi sagði í samtali við Morgunblaðið á miðvikudag, að frá byijun væru komnir 75 laxar í Árnessbókina, en það er mjög gott miðað við sama tíma í fyrra. Erlendur veiðimaður veiddi stærsta laxinn, 23 punda hæng, á fluguna Black Rabbit á Núpafoss- brún. Þá hafa þrír 22 punda veiðst. Sá stærsti var raunar áætlaður, því honum var sleppt að glímu lokinni. Mokveiði í MiðQarðará Mokfískirí hefur verið í Mið- fjarðará undanfarið, að sögn Þrá- ins Ársælssonar, kokks í veiðihús- inu. Komnir eru á land 430 laxar en á sama tíma í fyrra voru veiddir 117 laxar. Árin eru því ekki sambærileg. „Þetta er fimmta árið mitt hér i veiðihúsinu og ég hef aldrei séð annað eins, áin er pökkuð af fiski og allt grá- lúsugt sem veiðist," sagði Þráinn. Nú er einungis veitt á flugu í ánni og sagði Þráinn að ef einnig væri leyfður maðkur og spúnn væru tölurnar miklu hærri. Ingólfur Ásgeirsson, leiðsögu- maður í Vatnsdalsá, lét vel af veiðinni í sumar. Þegar rætt var við hann á miðvikudag var holl að klára Ijórðu vaktina og þá komnir 40 laxar á sex stangir. Áin er að nálgast 300 laxa veiði í sumar. Laxasvæðið komið í 245 laxa og milli 30 og 40 laxar hafa fengist á silungasvæðinu og fimm fyrir ofan Stekkjarfoss. Taldi Ingólfur að veiðin væri um 60 löxum betri en á sama tíma í fyrra. Beinn lyfjainnflutningur Lyfju og Lyfjakaupa frá Norðurlöndum takmarkaður Telja EES-reglur hugsanlega brotnar INGI Guðjónsson, framkvæmda- stjóri Lyfju, telur að takmarkanir heilbrigðisyfirvalda á beinum inn- flutningi lyfja frá Norðurlöndum geti stangast á við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Að sögn Inga hafa heilbrigðisyfirvöld tekið fyrir innflutninginn hafi íslenskir heildsalar sem eru með sömu lyf í sölu sótt um og fengið með þeim ís- lenska fylgiseðla. Fyrirtækin Lyfja og Lyfjakaup, sem rekur lyfjaverslanir Hagkaups, hófu beinan innflutning lyfja frá Norðurlöndum fyrir nokkrum mán- uðum og segir Ingi að með því hafi náðst 20-30% lægra verð heldur en þegar sömu lyf voru keypt frá ís- lenskum heildsölum. Hann segir að heildsalar hafi brugðist við með því að sækja um íslenska fylgiseðla hjá lyfjanefnd ríkisins til að setja í þær pakkningar sem þeir flytja inn. „Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisyfirvöldum er okkur ekki lengur heimilt að kaupa þessi lyf beint að utan, en við erum að kanna þetta betur, því með tilkomu Evr- ópska efnahagssvæðisins á að vera frjálst flæði vöru milli landa og hér er auðvitað um sömu vöru að ræða, frá sama framleiðanda. Við teljum því að hér sé um tæknilega hindrun að ræða og erum að kanna það hvort lyfjayfirvöldum og lyfjaheild- sölum sé stætt á þessu,“ segir Ingi. Ingi nefnir sem dæmi að mikið notað þunglyndislyf, sem nefnist Cipramil, hafi Lyfja fengið töluvert ódýrara frá Norðurlöndum en ís- lenskum heildsölum, en nú sé það komið með íslenskan fylgiseðil og því hafí innflutningur Lyfju verið stöðvaður. Einnig er búið að sækja um íslenskan fylgiseðil fyrir mígrenilyfíð Imigran og þunglynd- islyfið Efexor, sem bæði eru mikið notuð og Lyfja kaupir ódýrt inn frá Norðurlöndum og sama gildir um fleiri lyf, að sögn Inga. Fylgiseðlar í samræmi við Evrópureglur Guðrún S. Eyjólfsdóttir, forstöðu- maður Lyfjaeftirlits ríkisins, segir að reglugerð um íslenska fylgiseðla hafi verið sett hér á landi árið 1994, í kjölfar samningsins um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við ákvarðanir Evrópusambandsins um að með öllum lyfjum eigi að fylgja greinargóðar upplýsingar á því tungumáli sem notað er í viðkom- andi ríki. „Hér eru á markaði yfir 3.000 lyfjapakkningar og fyrirtækin hafa verið stig af stigi að koma með fylgiseðla, en það er gífurleg vinna. Innflytjendur lyfjanna byrja á því að gera tillögu að fylgiseðli, senda hann til Lyfjanefndar ríkisins, sem skoðar hann og gerir hugsanlega at- hugasemdir. Hann fer síðan aftur til fyrirtækisins, er lagaður og þarf að lokum að fá endanlegt samþykki yf- irvalda. Það er miðað við að árið 2000 eða 2001 verði öll lyf komin með íslenska fylgiseðla. Oll ný lyf sem koma inn á markaðinn, eða nýj- ar pakkningar, verða líka frá upp- hafi að vera með þá,“ segir Guðrún. Frumkvæði að því að setja ís- lenska íylgiseðla með lyfjunum kemur ýmist frá yfirvöldum eða fyr- irtækjum. Ekki fengust upplýsingar um það hjá Lyfjanefnd rljdsins í gær hvort aukning hefði orðið á beiðnum lyfjaheildsala um að fá fylgiseðla með lyfjum. Róbert Melax, framkvæmdastjóri Lyfjakaupa, hefur leitað eftir úr- skurði heilbrigðisráðuneytisins vegna þess að hann telur að útgáfa íslensku fylgiseðlanna hafi ekki verið nægilega kynnt íyrirfram. „Ég pantaði sendingu af lyfinu Cipramil í mars, fékk hana afgreidda 17. apríl, en 20. aprfl var sent út bréf frá umboðsmanni lyfsins þar sem hann segir frá því að frá og með þeim degi séu pakkningar með ís- lenskum fylgiseðli. Daginn eftir fór ég með mína innflutningspappíra til Lyfjaeftirlitsins og daginn þar á eftir úrskurðaði stofnunin að innflutning- urinn væri ólöglegur." Róbert segir að verðmæti lyfjanna sem hann hafi flutt inn sé um átta hundruð þúsund krónur. „Fyrst og fremst er það þó fordæmisgildið sem skiptir máli, það að yfirvöld geti krafist þess að við sjáum fram í tím- ann hvenær fylgiseðlar komi. Hið opinbera gefur ekki út neinar upp- lýsingar um það.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.