Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Viðbúnaður vegna hatið- arinnar Halló Akureyri MIKILL viðbúnaður verður af hálfu Akureyrarbæjar vegna hátíð- arinnar Halló Akureyri sem hefst á fimmtudag í næstu viku, 30. júlí. Þjónustudeildir af ýmsu tagi verða, að sögn Áma Steinars Jóhannsson- ar umhverfisstjóra, í viðbragðs- stöðu. Þannig verður stöðugt unnið að hreinsun bæjarins, strætisvagn- ar verða á ferðinni fram undir morgun, starfsfólk ráðgjafardeild- ar verður til taks komi upp barna- vemdarmál og þá verður sett upp stjórnstöð í íþróttahöllinni þar sem fólk verður á vakt allan sólarhring- inn. Forsvarsmenn hátíðarinnar kynntu dagskrá og viðbúnað vegna fjölskylduhátíðarinnar Halló Akur- eyri á fundi í gær. Líðum ekki unglingadrykkju Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn, sagði að líkt og á síðasta ári yrði öflug löggæsla á Akure.yri. Tiltækt lögreglulið í bænum yrði að störfum auk þess sem liðsauki bærist að, m.a. sér- þjálfaðir menn sem vel þekktu til í fíkniefnaheiminum og þá fengi lög- regla aukabíla til afnota. „Við mun- um ekki líða unglingadrykkju, við framfylgjum lögum og reglu og munum hiklaust taka áfengi af unglingum og hella niður,“ sagði Ólafur. Eftirlit með umferðinni verður hert, hraðamælingar verða tíðar og íylgst grannt með ástandi öku- manna. Vísaði Ólafúr til landsmóts- ins á dögunum þar sem öflugt um- ferðareftirlit skilaði árangiá, varð ekki svo mikið sem einn árekstur. Breið fjölskyldudagskrá Magnús Már Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar, sagði að boðið yrði upp á mjög fjöl- breytta dagskrá og reynt hefði ver- ið að höfða til allrar fjölskyldunnar við val á atriðum. Dagskrá verður á Ráðhústorgi og í miðbæ Akureyrar frá fimmtudegi til sunnudags og kennir þar margra grasa; tónlist af ýmsu tagi, brúðuleikhús, sirkus, gospelkór og fleira, en meðal hljómsveita má nefna Pál Óskar og Casino, Sálina hans Jóns míns, Greifana, Skítamóral og Reggie on Ice. Morgunblaðið/Björn Gíslason FJÖLBREYTT dagskiá verður í boði á hátíðinni Halló Akureyri, en hún og öflug gæsla sem henni er samfara var kynnt á fundi í gær, en á myndinni er Sigríður Elsa Kjartansdóttir fulltrúi sýslumanns og Ólafúr Ásgeirs- son aðstoðaryfirlögregluþjónn. Morgunblaðið/Magnús J. Mikaelsson Laus leigubíll í Hrísey Sálmar í Lög- mannshlíð MESSAÐ verður í Lögmanns- hlíðarkirkju næstkomandi sunnudagskvöld, 26.júlí kl. 21. I Lögmannshlíð hefur staðið kirkja frá fornu fari, ef til vill frá því skömmu fyrir kristni- töku. Kirkjan sem þar stendur nú var byggð árið 1860 af Þor- steini Danielssyni á Skipalóni og félögum hans og leysti af hólmi torfkirkju sem þar stóð áður. í aldarminningu Lög- mannshlíðarkirkju komst sr. Sigurður Sigurðsson vígslubisk- up svo að orði um sögu kirkj- unnar: „En svo er önnur saga, saga fólksins sem hingað hefur sótt á liðinni öld í gleði og sorg, á björtum sólskinsstundum og í dimmu skammdegi. Hér var ekki alltaf þröng fyrir dyrum né fullt hús. En veit samt nokkur tölu þeirra sem hingað komu og geymdu síðan þær miningar í hjarta sínu ævilanga tíð?“ Kunnastur þeirra sem þjónað hafa í Lögmannshlíðarkirkju er án efa þjóðskáldið sr. Matthías Jochumsson og verða sálmar, sem sungnir verða í messunni á sunnudagskvöld, eftir hann. Messa LAUFÁPRESTAKALL: Guðs- þjónusta verður í Grenivíkur- kirkju næstkomandi sunnudag, 26. júlí, kl. 11. LEIGUBÍLARNIR í Hrísey eru dálítið öðruvísi en annars staðar, en í eynni eru dráttarvélar í hlut- verki leigubíla, a.m.k. þegar íbú- ar eyjarinnar gera sér og gestum sfnum glaðan dag og efna til full- veldishátíðar. Þó svo að verið hafi fremur kalt um liðna helgi BÆJARRÁÐ Akureyi'ar heimilaði bæjarstjóra í gær að ganga til samninga við Þórgný Dýrfjörð, sem verið hefur framkvæmdastjóri reynslusveitarfélagaverkefnisins, um að gegna stöðu deildarstjóra búsetu- og öldrunardeildar Akureyrarbæjar. Björn Þórleifsson, sem gegndi stöðunni, var nýlega ráðinn skólastjóri í Brekkuskóla. í samræmi við starfsmannastefnu Akureyrarbæjar fór fram mat á því hvort tilefni væri til tilfærslu á starfsmanni bæjarins í starfið og var niðurstaðan sú að rétt væri að slík tilfærsla ætti sér stað nú. í framhaldi af því var gerð tillaga um að ráða Þórgný í stöðu deildarstjóra þegar blásið var til fullveldishá- tíðar í annað sinn lagði fjöldi fólks leið sína út í eyju og tók þátt í hátíðarhöldum sem voru fjölbreytt. Þar sem fremur svalt var í veðri einkum á kvöldin var bryggjuball flutt inn í salthús þar sem allir skemmtu sér hið besta. búsetu- og öldrunardeildar. Tillit var tekið til þess að stóri hluti af þeim verkefnum sem undir deildina heyra hafa flust frá ríki til bæjarins og hafa því fallið undir starfssvið hans. Oddur Helgi Halldórsson, sem sæti á í bæjarráði, bókaði á fundinum að hann teldi að auglýsa ætti þær stjórnunarstöður sem lausar eru hjá Akureyrarbæ. AKSJÓN Föstudagur 24. júlí 21.00ÞSumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Akureyringa í ferðahug. Deildarstjóri búsetu- og öldrunardeildar Þórgnýr Dýrfjörð ráðinn Ljósmynda- maraþon LJÓSMYNDAMARAÞON verð- ur haldið í sjötta sinn á Akureyii næstkomandi laugardag, 25. júlí, en að því stendur Áhugaljós- myndai-aklúbbur Akureyrai' í samvinnu við Pedromyndir og Kodak-umboðið, Hans Petersen. Keppnin felst í því að taka ljós- myndir af fyrirfram ákveðnum verkefnum eftir tiltekinni röð á ákveðnum tíma. Við rásmark fá keppendur í hendur 12 mynda lit- filmu og fyrstu þrjú úrlausnarefn- in en þurfa síðan á þriggja tíma fresti að mæta á ákveðnum áfangastöðum til að fá næstu verkefni. Aðeins má taka eina mynd af hverju myndefni. Verðlaunaafhending og sýning á öllum myndunum verður á sunnudag, 26. júlí kl. 15. Fyrir bestu filmu keppninnar er mjmda- vél í verðlaun og einnig fyrir bestu mynd keppninnar, en auk þess verða veitt verðlaun fyrir bestu mynd hvers verkefnis. Verðlaunamyndirnar verða bh-tar í Morgunblaðinu. Keppnin er öllum opin og er þátttökugjald 800 krónm- fyrir þá sem skrá sig fyrirfram, en 1.000 krónur fari skráning fram sam- dægurs. Innifalið í þátttökugjaldi er litfilma, fi-amköllun, giillveisla á einum áfangastaðanna, þátttaka í Ijósmyndasýningu auk möguleika á að vinna til veglegra verðlauna. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Pedromyndum á Akureyri. Sumartónleikar á Norðurlandi Danskur stúlknakór FRAMUNDAN er fjórða og næst> síðasta tónleikahelgi sumartón- leika á Norðurlandi. Að þessu sinni koma góðir gestir frá Horsens í Danmörku í heimsókn er þar eru á ferð stúlknakórinn Cantica ásamt Klaus Lyngby stjómanda og Ninu Udsen flautuleikara. Kórinn heldur tónleika í Reykja- hlíðarkirkju við Mývatn laugar- daginn 25. júlí kl. 21 og í Akureyr- arkh'kju á sunnudag kl. 17. Á efnisskránni verða verk eftir Dunstable, Victoria, Lassus, Mendelssohn, Johnsen, Bliss, Ny- stedt, Jón Nordal, Áhlén og Weyse. í kórnum eru 19 stúlkur á aldr- inum 13 ti 19 ára. Kórinn hefur að leiðarijósi að kynna danska kór- tónlist en einnig eru gamlar óg nýjar tónbókmennth' i háum gæða- flokki á dagskránni og hafa mörg dönsk tónskáld sérstaklega skrifað verk fyrir kórinn. Kútter Jólianna á förum til Færeyja Síðustu siglingar SÍÐUSTU siglingai' með fær- eyska kútternum Jóhönnu verða í dag, föstudaginn 24. júlí, og eru tvær siglingar í boði. Annars veg- ar verður þriggja tíma sjóstanga- veiðiferð sem hefst kl. 9 og svo kvöldferð út í fjarðarmynni og verður lagt af stað kl. 18, en um nokkuð langa siglingu er að ræða, 8-9 tíma. Færeyski kútterinn hefur verið á Akureyri síðustu sex vikur og vakið mikla athygli þar sem hann hefur legið við Torfunefsbryggju, en eftirspumin eftir siglingu á þessu glæsta fleyi hefur verið minni en vonir stóðu til, en þar á veðrið ekki síst sök á. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort kútter Jóhanna verður feng- in til Akureyrar næsta sumar. Sýningu Krist- ínar að ljúka SÝNINGU Kristínar Þorkels- dóttur, „Norðan heiða“, í Gallerí Svartfugli í Grófargili, lýkur á þriðjudag, 28. júlí. Sýningin hefrn- verið fádæma vel sótt og er fjölsóttasta sýning sem haldin hefur verið í Svartfugli til þessa, en Kristín segh- Akureyi'- inga hafa tekið sér afar vel. Á sýningunni, sem er sölusýn- ing, eru vatnslitamyndir sem Kristín hefur málað á vettvangi á ferðum sínum undanfarin ár um norðanvert landið, allt frá Strönd- um til Vopnafjarðar, ásamt ný- gerðum myndum frá Akureyri, en þær málaði hún þegar hún dvaldi í Davíðshúsi í júní síðastliðnum. Gallerí Svartfugl er opið alla daga frá kl. 14 til 18 nema mánu- daga. Þai- að auki er opið þegar dyr gallerísins eru upp á gátt. Að- gangur er ókeypis. Listadagar ungs fólks LISTADAGAR ungs fólks á aldr- inum 16 til 25 ára verða haldnir á Akureyri um næstu helgi og eru þeir í tengslum við Listasumar. Þeir hefjast með rokktónleikum og listasýningu föstudaginn 31. júlí kl. 17.30 í Deiglunni, en margt spennandi verður á dagskránni, s.s. tónlist, myndlist, ljóðalestur, gjörningar, söngur og persónu- leikasýning. Einnig verður ljós- myndasýning þar sem viðfangs- efnið er „hið jákvæða og hið nei- kvæða við Halló Akureyri". Ungt fólk sem hefur áhuga á að vera með er eindregið hvatt til að hafa samband við Maríu í Kompaníinu. Leit að vatni ÞRIÐJI og síðasti hluti sýningar Jorisar Jóhannesai' Rademaker í Gallerí+ í Brekkugötu 35 á Akur- eyri verður opnaður á laugai'dag, 25. júlí, með söng Kristjáns Pét- urs. Sýningin er þrískipt og er um að ræða innsetningar á þrívíðum verkum. Þessi síðasti hluti sýn- ingarinnar ber nafnið Leit að vatni. Sýningin er opin frá kl. 16 til 18 á laugardag og 14 til 18 á sunnudag. Þetta er síðasta sýn- ingin í Gallerí+ í ár að minnsta kosti en eigendur eru á förum til útlanda. Galleríið hefur verið starfrækt í tvö og hálft ár. Kínverskur landslagsmálari KÍNVERSKA listakonan Lu Hong sýnir blek- og vatnslita- myndir á Café Karólínu en sýn- ingin hefst næstkomandi laugar- dag, 25. júlí, og stendur til 22. ágúst. Myndefnið er sótt í íslenskt landslag, en verkin eru unnin með aðferðum hefðbundinnar kín- verskrar myndlistar. Undanfarin ár hefur Lu Hong haldið allmarg- ar sýningar á Islandi sem tileink- aðar hafa verið íslenskri náttúru en af henni hefur hún heillast mjög. Þetta er fyrsta sýning hennar á Akureyri. Gróðursetning og grill VÖRÐUR, félag ungra sjálfstæð- ismanna, heldur í fimmta skipti í gróðursetningar- og giillferð að Varðarlundi í Gullbrekku í Eyja- fjarðai'sveit en ferðin verður á laugardag, 25. júlí, og verður lagt af stað frá Kaupangi á einkabílum kl. 13.40. Um kvöldið verður gleðskapur fyrir Varðai-félaga og er nýtt fólk velkomið í félagið, en meðal atriða er hlutavelta þar sem aðalvinning- urinn er GSM-sími. Aðalfundur Varðar verður haldinn á sunnudag, 26. júlí, kl. 14 í félagsheimilinu í Kaupangi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.