Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 MORGUNB LAÐIÐ r VIÐSKIPTI Þrír bankar munu fjármagna stækkun verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar Kostnaður nemur um 1.800 milljónum króna FJÁRFESTINGARBANKI at- vinnulífsins hf., Landsbanki Islands hf. og Union Bank of Norway hafa samið við Eignarhaldsfélagið Kringl- una hf. um að fjármagna fram- kvæmdir vegna stækkunar Rringl- unnar. Áætlað er að kostnaður við framkvæmdirnar muni nema um 1.800 milljónum króna. Þetta mun vera stærsta lánveiting, sem íslensk- ir bankar hafa haft forgöngu um, til einkaaðila hérlendis. Með framkvæmdunum verða Kringlan 4-6 (norðurhús) og Kringl- an 8-12 (suðurhús/Borgarkringlan) sameinaðar með 9.200 fermetra tengibyggingu. Með henni bætast 28 nýjar einingar við Kringluna fyrir verslun og þjónustu og tíu önnur svæði eru ætluð fyrir verslunarrekst- ur. Stefnt er að því að Ijúka fram- kvæmdum við tengibyggingu milli suðurhúss og norðurhúss í byijun nóv- ember nk. en framkvæmdum við torg- byggingu í september á næsta ári. Bílastæðahús á tveimur hæðum, sem rúmar 400 bíla, verður byggt við Kr- inglutorg en fyrir eru 1.550 bílastæði á lóð Kringlunnar. Samið hefur verið við Istak hf. um að annast verkið. Stór útilífsverslun Stærsta verslunareiningin verður um 2.500 fermetrar að stærð og er fyrirhugað að opna þar verslun með útilífsvörur. Sex einingar verða á milli 200-750 fm en aðrar einingar verða minni. Nýbyggingin verður hluti af verslunarmiðstöðinni Kringl- unni og rekin af Húsfélagi Kringl- unnar. Forráðamenn þess segja að fjölmargir aðilar hafí sýnt því áhuga að taka umrædd rými á leigu. Að auki mun Eignarhaldsfélagið byggja hús við Borgarleikhúsið þar sem opnuð verða útibú frá Borgar- bókasafninu og nýr salur fyrir leik- húsið. Húsið mun tengja Kringluna og Borgarleikhúsið og er ætlunin að blanda menningu og verslun saman á um 60 þúsund fermetra svæði. FBA lánar mest Að loknu útboði var Fjárfestingar- banka atvinnulífsins fahn umsjón með fjármögnun framkvæmda og TEIKNING innan úr fyrirhugaðri torgbyggingu Kringlunnar. Framkvæmdir við hana hefjast 1. janúar 1999 og stefnt er að því að ljúka þeim í september sama ár. fékk hann Landsbanka íslands og Union Bank of Norway til liðs við sig. Samtals munu bankamir þrír lána Eignarhaldsfélaginu 1.800 milljónir króna til 25 ára. Fjármögnunin skipt- ist þannig að FBA útvegar 1.030 milljónir, Landsbankinn 610 milljónir og norski bankinn 160 milljónir. Öll nýbyggingin verður samtals 9.200 fermetrar að stærð á þremur hæðum. Byggingin er hönnuð af er- lendum og innlendum hönnuðum og er kappkostað að sameina glæsilegt útlit og þægilegt verslunarumhverfi. Eftir stækkunina verður heildar- stærð Kringlunnar um fimmtíu þús- und fermetrar. Eftir breytingamar fer Eignar- haldsfélagið Kringlan hf. með um 66% af eignarhlut í Kringlunni. Heildareignir félagsins nema 3.800 milljónum króna og er eigið fé um 1.500 milljónir. Eigendur félagsins Morgunblaðið/Arni Sæberg SAMNINGAR voru undirritaðir í gær vegna fjármögnunar framkvæmda við stækkun Kringlunnar. Frá vinstri: Bjarni Ármannsson, forstjóri FBA, Sigurður Gísli Pálmason, sljómarformaður Eignarhaldsfélagsins Kringlunnar, Ragnar Atli Guðmundsson, framkvæmdastjóri Eignar- haldsfélagsins, og Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans. eru sextíu og tengjast þeir allir Kringlunni. Stefnt er að því að gera Eignarhaldsfélagið að almennings- hlutafélagi á næsta ári og skrá það á Verðbréfaþingi Islands. Nú eru 127 aðilar með rekstur í Kringlunni og á síðasta ári sóttu hana 4,4 milljónir viðskiptavina samkvæmt upplýsingum Eignarhaldsfélagsins. Ánægjulegar breytingar á fjármálamarkaði Við undirritun samninga í gær lýsti Sigurður Gísh Pálmason, stjórnarformaður Eignarhaldsfé- lagsins Kringlunnar, yfir ánægju sinni með samstarfið við bankana. Sagði hann fjármögnunina óneitan- lega vera nokkuð ólíka því þegar ráðist var í byggingu Kringlunnar fyrir rúmum áratug. Þá hefði hinn íslenski fjármagnsmarkaður verið nokkuð vanþróaður og erfitt, ef ekki ómögulegt, hefði verið að fá löng lán hér innanlands til að fjármagna svo stórar framkvæmdir. Leita hefði þurft til opinberrar nefndar, svokall- aðrar langlánanefndar, og að lokum til ráðheira til að fá undanþágu fyrir löngu erlendu láni. Vegna hinna miklu breytinga, sem orðið hefðu á íslenska fjármálamarkaðnum síðan, hefði ekki verið þörf á slíku vinnulagi nú. „Nú er meiri atvinnubragur á verkinu og það er ánægjulegt að hægt sé að ganga til fjármögnunar með þessum hætti hér innanlands," sagði Sigurður Gísli. Bjarni Ármannsson, forstjóri Fjárfestingarbankans, lýsti einnig yfir ánægju sinni með samstarfið og sagði að um væri að ræða stærstu lánveitingu sem íslenskir bankai’ hefðu haft forgöngu um til einkaaðila hérlendis. Lánið væri dæmi um aukna samvinnu fjármálafyrirtækja við að leysa stór fjármögnunarverk- efni og dreifa þannig áhættu milli að- ila. Með yfirstandandi breytingum á bankakerfinu og slíkri samvinnu yrðu bankarnir betur í stakk búnh’ en áður að taka að sér fjármögnun stórra framkvæmda íslensku at- vinnulífi til heilla. „Slíkt samstai’f banka mun vonandi verða einkenn- andi fyrir framtíðina á íslenskum fjármálamarkaði,“ sagði Bjarni. Sögulegu verki í verslun lokið Halldór J. Rristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, lýsti og yfir ánægju með að koma með þessum hætti að fjármögnun framkvæmd- anna. Með þeim væri verið að ljúka miklu og sögulegu verki í verslunar- sögu landsins. Jákvæð þróun ætti sér nú stað á fjármálamarkaði með því að bankar stækkuðu og bættu eiginfjárstöðu sína og vonandi gætu Islendingar sjálfir haft forgöngu um slík stórlán hér eftir. Auglýsing þessi er eingöngu birt í upplýsingaskyni Tæknival Skráning skuldabréfa Tæknivals hf. 1. flokkur 1998 á Verðbréfaþingi íslands Verðbréfaþing íslands hefur ákveðið að taka skuldabréf Tæknivals hf., 1. flokk 1998, á skrá. Heildarnafnverð útgáfunnar er 250 m.kr. Bréfin verða skráð þann 28. júlí næstkomandi. Skráningarlýsingu og önnur gögn er hægf að nálgast hjá umsjónaraðila skráningarinnar, viðskiptastofu (slandsbanka hf., Kirkjusandi, 155 Reykjavík. ISLAN DSBAN Kl Skeljungur hf. gerir athugasemdir við niðurstöðu Samkeppn- isstofnunar um auglýsingar Essó á „bestu dísilolíunnia Lætur framkvæma vísinda- legan samanburð á olíunum SKELJUNGUR hf. hefur sent Samkeppnisstofnun bréf, þar sem fram eru færðar athugasemdir við þá niðurstöðu stofnunarinnar að ekki sé ástæða til þess að gera at- hugasemdir við notkun lýsingar- orðsins „best“ um þá dísilolíu með bætiefnum sem Olíufélagið býður. Niðurstaðan kom fram í bréfi Sam- keppnisstofnunar varðandi erindi Skeljungs þar sem kvartað var undan því að Olíufélagið auglýsti „bestu dísilolíuna". Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, segir að Samkeppnis- stofnun hafí með niðurstöðu sinni fallist á að í þessu máli eigi við öfug sönnunarbyrði. „Það er að sá, sem á sig telur hallað í auglýsingum og málílutningi Olíufélagsins hf., í þessu tilviki Skeljungur hf„ þurfí að færa sönnur fyrir því, að fullyrð- ingar Olíufélagsins standist ekki.“ Olíufélaginu ber að sjá um samanburðinn Kristinn segist vera á þeirri skoðun að þegar aðili setji fram Telur að sönnun- arbyrði hafí verið snúið við fullyrðingu í auglýsingum og mál- flutningi þurfi hann að færa sönnur á að hann hafi rétt fyrir sér. „Hon- um á ekki að nægja að sýna fram á ágæti sinnar vöru. Hann verður að gera það i samanburði við aðrar sams konar vörur. Að mínu mati er algjörlega óeðlilegt og óviðunandi að við eigum að gera þennan sam- anburð. I málflutningi Olíufélags- ins er verið að halla á okkur og 01- íufélaginu ber að sjá um saman- burðinn sjálft." Að sögn Kristins vita Olíufélags- menn ekki hvaða dísilolíu Skelj- ungur kaupir inn. „Þeir hafa ekki einu sinni hugmynd um hvar við kaupum hana. Þeir kaupa svokall- aða „krakkaða" dísilolíu frá Nor- egi, en við kaupum okkar olíu frá Rússlandi. Til þess að þeirra olía sé í sama gæðaflokki og okkar, sem er „ókrökkuð“, þurfa þeir að bæta í hana efnum,“ segir Krist- inn. Lætur fram- kvæma rannsókn Kristinn segir að þessi öfuga sönnunarbyrði sem hann kallar svo brjóti í bága við allar almennar reglur hér á landi. „Verið er að bera á okkur að við seljum lakari olíu og við eigum að bregðast við og sanna að svo sé ekki. Við hlítum ekki þessari niðurstöðu, eins og segir í bréfi okkar til Samkeppnis- stofnunar. Þess vegna munum við láta bera þessar olíur saman með vísindalegum aðferðum, en ítrek- um jafnframt að auðvitað á það samt ekki að vera í verkahring okkar.“ Skeljungur biður um frest til að skila niðurstöðum rannsóknarinnar til 10. ágúst næstkomandi. Þá er farið fram á að Olíufélaginu verði gert að birta ekki umrædda aug- lýsingu á meðan rannsóknin fer fram. ► i I i i I i i i i i I I i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.