Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ VERIÐ 1,5 milljónir tonna af kolmunna eru innan íslensku lögsögunnar Morgunblaðið/Muggur FÆREYINGAR hafa talsverða reynslu af kolmunnaveiðum, en þar eins og hér á landi er aflanum að mestu landað til bræðslu. Hér á landi eru aðeins fá skip, sem geta heilfryst kolmunnann um borð. Mörg skip hyggja á kolmunnaveiðar eftir loðnuvertíð Kolmunnaveið- arnar eru enn ekki bundnar kvóta í TVEIMUR síðustu rannsókna- leiðangrum Hafrannsóknastofnunar hafa mælst um 1,5 milljónir tonna af kolmunna innan íslensku fiskveiði- landhelginnar. Rannsóknaskipið Arni Friðriks- son er nú í síldar- og kolmunnaleið- angri, sem hófst 13. júlí sl. Að sögn Sveins Sveinbjömssonar, leiðang- ursstjóra, var byrjað að leita að kolmunna í Skerjadýpi og meðfram djúpkantinum á suðausturlandi og á Rósagarðssvæðinu út að landhelgis- línu Islands og Færeyja. Á þessu svæði mældist rúm ein milljón tonna af kolmunna. Gengur ekki út úr lögsögunni á næstunni Ámi Friðriksson rs. var einnig í kolmunnaleiðangri í júní og mældi þá um 490 þúsund tonn af kolmunna nokkm norðar en kolmunninn fannst nú. Sveinn segir kolmunnann einnig hafa gengið nokkru norðar en í fyiTÍ leiðangrinum. „Það er ekki mikil hreyfmg á kolmunnanum, sem er suður og suðaustur af landinu og ég á ekki von á að hann gangi út úr landhelginni á næstunni. Þó að við höfum ekki farið yfir allt það svæði, sem skoðað var í fyrri leiðangrinum, sýnist mér að það megi leggja þá mælingu við mælinguna, sem við fengum. Þannig að allt í allt era hér líklega á ferðinni um 1,5 milljónir tonna af kolmunna." Sveinn segist auk þess hafa verið í sambandi við norskt rannsókna- skip, sem hefur einnig orðið vart við mikinn kolmunna nokkru austar. Margir í kolmunnann eftir sumarloðnuna Eftir- að sumarloðnuvertíðinni lýkur 15. ágúst nk. er líklegt að mörg loðnuskip fari á kolmunna- veiðar. Kolmunnaveiðar eru ekki bundnar kvóta en sækja þarf sér- staklega um leyfi til veiðanna. Sam- kvæmt upplýsingum frá sjávarút- vegsráðuneytinu hefur ekkert skip enn sótt um leyfið og væntanlega muni útgerðirnar ekki huga að því fyrr en loðnuvertíð lýkur. Á síðasta ári veiddust um 10.500 tonn af kolmunna hér við land og var verðmæti aflans um 68 milljónir króna. Kolmunninn veiðist aðeins í flottroll en aðeins fá skip í nóta- skipaflotanum era nægilega öflug til að geta togað með flottrolli. Til þessa hefur kolmunni aðallega farið í bræðslu hérlendis, en hann er mun verðmætari sé hann heilfrystur um borð í skipunum. Enn færri íslensk skip geta unnið kolmunnann um borð. Ekki séð neina sfld I rannsóknaleiðangrinum í júní varð einnig vart við síld djúpt aust- ur af landinu, en Sveinn segir að nú sé hún gengin af þessu svæði. Hann segist ekki hafa orðið var við neina síld í leiðangrinum en í fyrra- dag var skipið statt norðaustur af landinu, rétt vestan við landhelgis- línu Islands og Jan Mayen. „Næstu daga munum við leita í vestur og athuga hvort þessi síld hafi gengið vestur úr og áleiðis til Islands. Eins hvort ennþá verður vart við síld 50-100 mílur norður úr Mel- rakkasléttu." Hann segir norska leiðangurinn hafa fundið síld skammt frá Jan Mayen, eða við 69. breiddargráðu, og því líklegt að síldin sem fannst austan við land fyrir um mánuði hafi gengið þangað. Fengu makrfl djúpt norður af landinu Sveinn segist hafa keyrt fram á talsvert stóra torfu djúpt norðaust- ur af landinu sem hann telur hafa verið makríl. „Við toguðum í gegn- um þennan flekk og fengum nokkra stóra og fallega makrfla. Yfirborðs- hiti sjávar er hér 8-9 gráður og makríllinn lá alveg við yfirborðið. Makríll gengur svona norðarlega austar í Noregshafinu en ég hef ekki heyrt af honum á okkar haf- svæði á þessum slóðum," segir Sveinn. Meðaldrægar íranskar eldflaugar Gætu hæft skot- mörk í Israel Washington, Tel Aviv. Reuters. BANDARÍKJASTJÓRN staðfesti í gær að Iranir hefðu gert tilraunir með meðaldrægar eldfiaugar, sem gætu meðal annars hæft skotmörk í Israel. Varnarmálaráðherra Israels lýsti í gær yfir áhyggjum vegna þessa, og hét því að gripið yrði til allra ráða til að verja landið. Mike McCurry, blaðafulltrúi Hvíta hússins, skýrði frá því í gær að bandarískur njósnahnöttur hefði náð myndum af tilraunum Irana á mið- vikudag. Hann sagði að meðal ann- ars væri um að ræða eldflaug af gerðinni Shehab 3, sem svipar mjög til Norður-Kóreskrar Rodong eld- flaugar, sem di-egur allt að 1.300 kílómetra. Það þýðir að Iranir gætu gert árásir á Israel, Saudi-Ai-abíu, stóran hluta Tyrklands og nokkurn hluta Rússlands. McCurry sagði að Bandaríkjastjóm hefði nokkrai' áhyggjur af því að Iran- ir virtust vera að koma sér upp meðal- drægum eldflaugum, en sagðist ekki telja að valdajafnvægi í Mið-Austur- löndum hefði verið raskað. Eldflaugarnar frá Norður-Kóreu Dagblaðið The New York Times hefur eftir heimildamönnum innan bandarísku leyniþjónustunnar að eldflaugamar séu frá Norður-Kóreu, en Iranir hafi einnig keypt tækni- þekkingu af Rússum og Kínverjum um árabil. Markmið þeirra með til- raununum sé fyrst og fremst að styrkja stöðu sína sem stórveldis í Mið-Áusturlöndum, og ætlunin sé meðal annars að ógna Israel. Fram kemur að íranir hafi sennilega ekki keypt nema fáeinar eldfiaugar, og bent er á að það sé tvennt ólíkt að framkvæma tilraunaskot annarsveg- ar, og að byggja upp fullbúinn eld- flaugastyrk hinsvegar, en það gæti tekið þá mörg ár. Bandarískir embættismenn sögðu að talið væri að Iranir ynnu að þróun kjarnaodda, en að þeir væru ennþá langt frá því að búa yfir tækni til að smíða og gera tilraunir með slík vopn. Eldflaugatilraunirnar nú bentu því ekki til að bein ógnun væri yfirvofandi af þeirra hálfu. fsraelar áhyggjufullir VarnaiTnálaráðheira Israels, Yit- zhak Mordechai, sagði fréttamönnum í gær að ísraelsstjórn hefði miklar áhyggjur af eldflaugatilraunum írana, og hét því að gripið yrði til alh-a ráða til að verja landið. Hann sagðist óttast að valdajafnvægi í Mið- Austurlöndum raskaðist ef Rússar héldu áfram að veita Irönum hemað- araðstoð, og hvatti Bandai-íkjastjóm til að knýja Rússa til að láta af því. Bandaríkjastjórn deilir nú við full- trúadeild þingsins um hvort grípa eigi til refsiaðgerða gegn fyrirtækj- um sem selja Irönum eldflauga- tækni. Bill Clinton Bandaríkjaforseti beitti í síðasta mánuði neitunarvaldi gegn frumvarpi þess efnis, og sagði það trafla viðræður við Rússa um að þeir geri ráðstafanir til að stöðva slíka sölu til Irans. Fulltrúadeildin hefur samþykkt að fresta atkvæða- greiðslu um málið þar til niðurstaða hefur fengist í viðræðunum. Gore í Tsjernóbíl Tsjernóbfl. Reuters. AL GORE, varaforseti Banda- ríkjanna, skoðaði kjarnorkuver- ið í Tsjernóbfl í Ukraínu í gær. Enn sjást þar glögg merki kjarnorkuslyssins sem varð í Tsjernóbfl í aprfl 1986. Varafor- setinn flaug fyrst yfír kjarn- orkuverið í þyrlu en rannsakaði svo verksummerki á jörðu niðri, bæði við kjarnorkuverið og í nágrenni þess. Gore, sem er kunnur umhverfísverndar- sinni, lét ekkert eftir sér hafa að lokinni skoðunarferðinni. --------------- EPA urðu á mistök Washinglon. Reuters. ALRÍKISDÓMARI í Bandaríkjun- um hefur komist að þeirri niður- stöðu að bandarísku Umhverfis- verndarstofnuninni (EPA) hafi orðið á framkvæmda- og vísindaleg mistök er hún lýsti því yfir 1993 að óbeinar reykingar væru valdar að allt að 3.000 dauðsföllum á ári með- al þeirra sem ekki reykja. Wall Street Journal greindi frá þessu. William Osteen, umdæmis- dómari í Norður-Karólínuríki, seg- ir starfsmenn EPA hafa gert mis- tök er þeir kölluðu til vísindamenn til að rannsaka áhrif óbeinna reyk- inga. Umsvifamiklir sígarettufram- leiðendur hafa höfðað mál til þess að reyna að fá niðurstöðum EPA hnekkt. Ofbeldishneigöar unglings- stúlkur skapa nýja kvenímynd London. The Daily Telegraph. UNGLINGSSTÚLKUR virðast vera að endurskilgreina kvení- myndina með því að taka upp hegðun sem hingað til hefur þótt „karlmannleg". Meðal annars beita þær nú frekar ofbeldi en áður, samkvæmt niðurstöðum rannsókn- ar bresks sálfræðings. „Þær eru ekki að reyna að vera eins og karlmenn“, sagði Antoin- ette Hardy í erindi á þingi breska sálfræðingafélagsins. „Þær eru mjög kvenlegar, með sítt hár og nota andlitsfarða“. Hún sagði að stúlkurnar beittu ofbeldi til að sýna fram á að þær gætu séð um sig sjálfar, til að standa vörð um ímynd sína og til að sýnast öðrum fremri. Hardy segir það hafa vakið at- hygli sína að fjöldi unglingsstúlkna sem hlaut fangelsisdóm fyrir of- beldisglæpi hafi nær tvöfaldast frá árinu 1991. Fyrirfram taldi hún að stúlkurnar reyndu að hegða sér eins og strákar þar sem „karl- mennska" væri meira metin í sam- félaginu en „kvenleiki". Hún komst þó á aðra skoðun eftii- að hafa tekið djúpviðtöl við 40 stúlkur á aldrin- um 14 til 18 ára. Komast í sæluvímu I ljós kom að 32 þeirra höfðu að minnsta kosti einu sinni tekið þátt í slag. Ekki var aðeins um að ræða hártog og klór, heldur sögðust þær hafa sparkað og kýlt af öllu afli, og jafnvel beitt brotnu gleri. Einungis fjórðungur þeirra sá eftir því og 15% stúlknanna sögðust meira að segja hafa komist í „sæluvímu“ á eftir. Hardy túlkar niðurstöður sínar á þann veg að breyting sé að eiga sér stað á viðteknum kynímyndum. Unglingsstúlkum virðist ekki finn- ast það brjóta í bága við kynímynd sína að beita ofbeldi, sem hingað til hafi þótt í hæsta máta „ókvenlegt“. Því telur hún að ofbeldishneigð sé stúlkum eins eðlislæg og piltum, en samfélagsgerðin hafi hins vegar séð til þess að slíkar tilhneigingar hefðu lengst af verið bældar niður hjá stúlkum. Hún segir fleiri rannsóknir hafa sýnt fram á að konur séu að minnsta kosti jafn árásargjarnar og karlmenn. Stúlkur neyta nú einnig meira áfengis og tóbaks en piltar. 1 i > I > > \ i i i i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.