Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 19

Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 19 Herstjórnin í Nígeríu boðar kosningar á næsta ári Fjöldi nýrra flokka í burðarliðnum HAGKAUP AHtaf betri kaup Abuja, Harare. Reuters. UNDIRBÚNINGUR er hafinn fyrir stofnun nýrra stjórnmála- flokka í Nígeríu eftir að herstjórn- in í landinu gaf fyrirheit um enda- lok valdatíma hersins. Margir stjórnmálamenn sögðu að fjöldi nýrra flokka myndi líta dagsins ljós á næstunni. Abdusalam Abu- bakar herstjóri ákvað sl. mánudag að horfið skuli aftur til lýðræðis í Nígeríu. Að minnsta kosti tveir hópar hafa tilkynnt að þeir myndu lýsa yfir stofnun stjórnmálaflokks og herstjórnin var hvött til að skrá alla nýja flokka sem stofnaðir yrðu. „Eg vona að ný og óháð yfirkjör- stjórn muni skrá alla flokka - og ég meina alla flokka,“ sagði Edwin Obeku, reyndur stjórnmálamaður, í sjónvarpi í fyrradag. Hann sagði að þar eð Abubakar hefði ákveðið að stjórnmálaflokkar yrðu ekki ríkisstyrktir væri engin rökrétt ástæða til að takmarka fjölda þeiri-a sem tækju þátt í væntanlegum kosningum. „Litlu flokkarnir munu hverfa á eðlilegan hátt,“ sagði hann. Margir Nígeríubúar hafa sakað fyrrverandi herstjórnir um að leyfa einungis flokkum, sem hlynntir ei*u forráðum hersins, að starfa og telja þetta vera eina helstu ástæðu þess að illa hefur gengið að binda enda á stjórn hermanna sem hafa setið að Norskir togarar í hættu vegna heræfinga ÞRIR norskir togarar lentu 6. júlí sl. óafvitandi á svæði þar sem rússneski herinn stóð fyrir eld- flaugaæfingum. Norsk stjórnvöld vissu af æfingunum en höfðu ekki tilkynnt sjómönnum um þær. Fram kemur í frétt Aftenposten í gær að þrír norskir togarar voru við veiðar innan rússnesku efna- hagslögsögunnar 6. til 10. júlí sl. þegar rússneski herinn stóð fyrir æfingum sem fólust í því að óþekktum fjölda eldflauga var skotið inn á svæði norður af Kóla- skaga. Það var ekki fyrr en fjórði togarinn, sem var á leið inn á svæðið, var stöðvaður af rússnesk- um togara að norsku sjómönnun- um varð ljóst að þeir voru við veið- ar á hættusvæði. „Það er einungis tímaspursmál hvenær illa fer,“ sagði Jan Ivar Marak, varaformaður Samtaka út- gerðarmanna. Sagði hann samtök- in enga hugmynd hafa haft um æf- ingarnar. I gær viðurkenndu bæði norska forsætisráðuneytið og utanríkis- ráðuneytið að upplýsingar skorti vegna æfinga rússneska hersins en sögðu að það væri hins vegar ekki í verkahring ráðuneyta að að- vara togara sem væru í lögsögu annarra landa. völdum allar götur síðan 1960, að frátöldum tíu árum. Þegar kosið var 1979 fóru rúmlega 50 flokkar fram á að verða skráðir, en aðeins fimm var leyft að starfa. Tveir ríkisflokkar kærðu kosn- ingarnar 1993 og þær voru á end- anum úrskurðaðar ógildar. Þá hafði stóreignamaðurinn Moshood Abiola, sem er frá suðurhluta landsins, náð afgerandi forystu og lýsti hann sig forseta landsins. Hann var handtekinn og hafður í varðhaldi þar til 7. júlí sl., er hann lést. I kjölfar ógildingar kosninganna tókst hershöfðingjanum Sani Abacha að komast til valda. Eftir að hann lést 8. júní tók Abubakar við völdum. Flestir herstjóranna sem hafa verið við völd í Nígeríu hafa verið frá norðurhluta lands- ins. Abubakar áætlar að forseta- kosningar verði haldnar á fyrsta fjórðungi næsta árs og ný stjórn taki við völdum 29. maí. Utanríkis- ráðherrar Samveldislandanna lýstu á miðvikudag ánægju sinni með fyrirætlanir Abubakars. Sam- veldin era Bretland og fyn-verandi nýlendur þess, en Nígería var rek- in úr samtökunum 1995 fyrir að líf- láta níu réttindabaráttumenn. Banatil- ræði við forseta Tsjetsjníu Grosní. Reuters. ASLAN Maskhadov, forseti Tsjetsjníu, slapp lítið meiddur þegar honum var sýnt banatilræði í gærmorgun. Sprengja sprakk þar sem bílalest forset- ans ók um Grosní, höfuð- borg Tsjetsjníu, og varð bílstjóra og lífverði hans að bana. Maskhadov sagði við frétta- menn í gær að tilræðið gæti verið verk rússneskra sérsveita, sem væru handbendi undirróð- ursafla utan Tsjetsjníu. Tvö ár eru síðan stríðinu í Tsjetsjníu lauk en spenna hefur magnast og átök blossað upp á liðnum vikum á milli vopnaðra hópa og öryggissveita hersins. I byrjun júlí lýsti Maskhadov yfir neyðarástandi í landinu í til- raun til að koma friði á milli stríð- andi hópa. Það hefur nú verið framlengt um tíu daga. Reuters Maskhadov Varð falsað frí- merki Himmler fjötur um fót? Lundúnum. Reuters. FALSAÐ frímerki, sem brezk- ir leyniþjónustumenn bjuggu til í síðari heimsstyrjöld, hefur sennilega átt þátt í því að eyði- leggja vonir Heinrichs Himml- ers, innanríkisráðherra naz- istastjórnarinnar á stríðsárun- um og yfirmanns SS, um að taka við völdum af foringjan- um, Adolf Hitler. Þetta litla sex pfenniga-frí- merki með áprentaðri mynd Himmlers er talið vera eitt bezt heppnaða bragðið sem sérsveit brezkra leyniþjónustu- manna (Special Operations Ex- ecutive, SOE) létu sér detta í hug, samkvæmt skjölum sem brezka ríkisskjalasafnið (Public Record Office) lyfti leynd af í fyrradag. Þegar frímerkið góða stakk upp kollinum í Sviss um mitt ár 1943 veltu dagblöð heimsins því fyrir sér, hvort það væri til merkis um að Himmler hefði sjálfur látið prenta þau, sem lið í undirbúningi hans að valdaráni í Berlín. „Þetta dularfulla frímerki, sem aldrei sáust meira en tvö eða þrjú eintök af, gáfu í skyn að Himmler hefði lagt á ráðin um valdarán og svo virtist sem ein eða tvær arkir af nýprent- uðum frímerkjunum hefðu „lekið“ út og þau notuð fyrir rnistök," skrifaði starfsmaður SOE á sínum tíma í skýrslu um aðgerðina, sem hann sagði hafa borið „stórkostlegan árangur". Jafnvel sjálft utanríkisráðu- neytið brezka hafði ekki hug- mynd um að menn í þess eigin þjónustu stæði á bak við Himmler-frímerkin. Þótt ekki sé fullljóst hvort fregnir af frímerkjunum bárust mönnum til eyrna í höfuðstöðv- um nazista í Berlín, þá er víst að metnaði Himmlers voru settar miklar hömlur á síðustu mánuðum Þriðja ríkisins. Þeg- ar Hitler frétti af leynilegum umleitunum Himmlers eftir friðarsamningum við Breta var hann snarlega sviptur öllum embættum og rekinn út í kuld- ann. I ringulreiðinni í stríðslok reyndi Himmler að komast undan dulbúinn, en lenti í haldi Breta, þar sem hann framdi sjálfsmorð með því að gleypa eitur í lok maí 1945. Styttri biðlistar Milljarða- sparnaður LÖNG bið eftir læknisaðgerð- um veldur því, að fólk er lengur frá vinnu en ella væri. Er það niðurstaða norskrar könnunar og kemur ekki á óvart en auk þess hefur verið reiknað út, að með því að minnka biðlistana í Noregi megi spara allt að sex milljarða ísl. kr. árlega. Það var SINTEF Unimed, sem vann að könnuninni, og voru niðurstöðurnar birtar í heilbrigðistímaritinu Velferd. Þar er í fyrsta sinn reiknað út hvaða áhrif biðlistarnir hafa á fráveru frá vinnu. Út úr því kemur, að sé biðin eftir aðgerð íjórar vikur eða skemmri muni langvarandi fjai-vistir frá vinnu minnka um 6% og sjúkradag- peningarnir um sex milljarða ísl. kr. Um 16% þeirra, sem eru frá vinnu vegna sjúkleika í átta vik- ur eða lengur, segja, að biðin eftir rannsókn eða aðgerð hafi aukið fjarvistirnar og í þessum hópi eru karlmenn helmingi fleiri en konur. Læknar og norska tryggingastofnunin telja hins vegar, að biðlistarnir hafí enn alvarlegri áhrif hvað þetta varðar en sjúklingarnir geri sér sjálfir grein fyrir. I Noregi bíða stærstu hóp- arnir eftir bæklunar- og al- mennum skurðaðgerðum en hjartasjúklingar verða að bíða í lengstan tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.