Morgunblaðið - 24.07.1998, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Lúðrasveitin Snær
á hljómleika-
ferð í Englandi
Hellissandi. Morgunblaðið.
HAUSTIÐ 1994 réðst til Tónlistar-
skólans í Ólafsvík Englendingurinn
Ian Wilkinson og hóf kennslu á
blásturshljóðfæri og slagverk.
Fljótlega eftir komu hans hingað
beitti hann sér fyrir stofnun
Lúðrasveitarinnar Snæs í Snæ-
fellsbæ. A skömmum tíma hefur
hljómsveitin, sem er skipuð böm-
um og unglingum sem stunda nám
við tónlistarskóla bæjarins, náð
ágætum árangri og skipa hana nú
30-40 nemendur tónlistarskólanna í
Snæfellsbæ. Ian Wilkinson hefur
verið stjórnandi hljómsveitarinnar
en með honum hefur starfað að
þessu Kay Wiggs Lúðvíksson,
skólastjóri Tónlistarskólans á Hell-
issandi, ásamt fleirum. Hefur
lúðrasveitin stóraukið áhuga bama
hér í bænum fyrir öllu tónlistar-
námi.
Fljótlega fór hljómsveitin í tón-
leikaferð til Vestmannaeyja. Sum-
arið 1996 lagði hún síðan land undir
fót og tók þátt i hinni árlegu sumar-
hátíð í Sommersted í Danmörku og
tók árið eftir þátt í Landsmóti ís-
lenskra lúðrasveita 1997.
Nú í júlí hélt sveitin utan í annað
sinn og þá til að leika á The South
Tyneside Cathrine Cookson Festi-
val í Yorkshire í Englandi. Um 50
manns tóku þátt í förinni þar af um
30 hljóðfæraleikarar. Aðrir þátt-
takendur voru foreldrar og að-
standendur bamanna.
Haldið var utan 3. júlí og flogið
með Flugleiðavél til Glasgow. Það-
an var haldið með hópferðabílum
suður til Durham og gist á heima-
vistum Durham-háskóla en þar
fékk hópurinn morgun- og kvöld-
verð meðan á heimsókninni stóð.
Hljómsveitin kom fyrst fram við
opnunarskrúðgöngu Cathrine
Cookson Festival og hélt síðan
tónleika þann sama dag. I Cat-
hrine Cookson Festival tóku þátt
fjöldi lúðrasveita, m.a frá skátum,
hjálpræðishernum og ýmsar lúðra-
sveitir frá Yorkshire. Þá var á
sama tíma í heimsókn í South Ty-
neside þýsk hljómsveit ásamt
Lúðrasveitinni Snæ. Fyrir utan
þátttökuna í opnunarskrúðgöng-
unni kom lúðrasveitin fram alls 7
sinnum við margvísleg tækifæri,
lék m.a. á ströndinni í Durham,
þ. á m. lék hún í Amphitheatre og
á verslunargötunni King Street og
í verslunarhöllinni Metrocentre
sem mun vera ein stærsta verslun-
armiðstöð í Evrópu. Utan þess að
halda tónleika við margvísleg
tækifæri gerði lúðrasveitin sér
ýmislegt til upplyftingar, t.d. með
því að heimsækja sædýrasöfn,
vatnagarða, kastala og skemmti-
garða svo eitthvað sé nefnt. Þá var
henni boðið að heimsækja borgar-
stjórann í South Tyneside sem
reyndist, eins og í Snæfellsbæ,
vera orðinn annar maður en upp-
hafleg dagskrá tiltók. Engu
breytti það þó um góðar móttökur
borgarstj ómarinnar.
Ferð Lúðrasveitarinnar Snæs til
Englands þótti takast vel, alls stað-
ar hlutu þau góðar móttökur og
hlutu góða dóma fyrir leik sinn.
Auk þess hrepptu þau ágætt veður,
þótt Englendingum sjálfum þætti
þetta kalt sumar og báru þau hróð-
ur Snæfellsbæjar bæði með leik
sínum og framkomu og með því að
SONJA Elídóttir sýnir rýmisverk gerð dr límbandi
og bökunarpappír í Galleríi Stöðlakoti.
Rýmisverk í
Galleríi Stöðlakoti
SONJA Elídóttir opnar sýningu í
Gallerí Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6,
laugardaginn 25. júlí kl. 16. Sýnd
verða rýmisverk unnin úr límbandi og
bökunarpappír íyrir Gallerí Stöðlakot.
Sonja útskrifaðist frá skúlptúr-
deild MHÍ 1994 og leggur nú stund á
framhaldsnám við Det Fynske Kun-
stakademi í Óðinsvéum. Þetta er
fyrsta einkasýning Sonju, en hún
hefur tekið þátt í samsýningum hér
heima og í Danmörku.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14-18 og stendur til 9. ágúst.
Surnartónleikar í Skálkoltsle irkju 1998
ÞriSja tónleikahelgi
Laugardogur 25. júlí kl. 14:00. Erindi í Skálholtsskóla.
Árni Heimir Ingólfsson fjallar um tvísöng í íslenskum sönghandritum eftir siðaskipfi.
Tónleikar
Laugardagur 25. júlí kl. 15:00. íslensk og erlend sönglög og orgelverk.
Margrét Bóasdóttir sópran, Jörg Sondermann orgel, Nora Kornblueh selló.
Laugardogur 25. júlí kl. 17:00 og sunnudag 26. júlí. kl, 1ó;00,
Einleikur á fiðlu. Bach, Biber Westhoff. Andrew Manze barokkfiðla.
Sunnudagur 26. júlí. messa. kl. 17:00. Tónlistarflutningur hefst kl. 16:40.
Aðgangur ókeypis - allir velkomnir!
www.mbl.is
Menningarhátíð Fáskrúðsfírðinga
Franskir dagar með
spænsku ívafí
Á LIÐNUM árum hefur víða um
landsbyggðina skapast hefð fyrir
einhvers konar menningarhátíðum
yfir sumarmánuðina. Svo er og á
Fáskrúðsfirði en þar halda heima-
menn Franska daga yfir þessa
helgi, þriðja árið í röð.
Af því sem einna hæst ber á
Frönskum dögum í ár eru tónieikar
spænska gítarkvartettsins Mosaic
frá Barcelona sem nú er á ferð um
landið. Mosaic leikur í Fáskrúðs-
fjarðarkirkju á sunnudag kl. 16
verk eftir Ravel, Granados, Llobet
og fleiri.
Þá verða nokkrar sýningar opnar
yfir helgina. Franska sýningin Á
slóð saltsins verður í Templaranum,
ljósmyndasýning og verk eftir
Immu og Eygló Sörensen verða í
grunnskólanum og á lofti Ráðhúss-
ins verður áfram hægt að skoða
sýninguna Fransmenn á Islandi.
Sóri leikstýrir Götuleikhúsi Aust-
urlands, sem verður með nokkrar
uppákomur um helgina, hljómsveit-
irnar Geirmundur og Ringulreið
leika á sitt hvorum dansleiknum og
keppt verður í nokkrum óhefð-
bundnum írþóttagreinum eins og til
dæmis Tour de Fáskrúðsfjörður, Is-
landsmeistarakeppni í sveskju-
steinaspýtingum og dorgveiði.
Frakkarnir 40 sem hjóla um
þessar mundir hringinn í kringum
landið stefna að því að hjóla inn í
Fáskrúðsfjörð seinni part laugar-
dags. í hópnum eru meðal annarra
borgarstjóri Gravelines, sem er
vinabær Fáskrúðsfjarðar.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
SKRÚÐGANGA í Cathrine Cookson Festival.
TÓNLEIKAR á King Street.
klæðast bolum merktum Snæfells-
bæ sem Lionsklúbbur Olafsvíkur
hafði gefið þeim til fararinnar.
Fyrir lítið bæjarfélag eins og
Snæfellsbæ er það mikill menning-
arauki að hafa eignast svo ágæta
lúðrasveit á skömmum tíma. Því
auk þess að gera garðinn frægan
með ferðum sínum hefur hún leikið
hér innanbæjar við margvísleg
tækifæri og stóraukið áhuga fyrir
tónlist. Heim kom svo hljómsveitin
11. júlí fljúgandi frá Glasgow, ham-
ingjusöm og ánægð eftir vel heppn-
aða fór, sjálfri sér og bænum sín-
um til sóma.
Lj ósmyndasýningu
Friðþjófs að ljúka
UM helgina er síðasta sýningar-
helgi á ljósmyndum Friðþjófs
Helgasonar í versluninni Rammar
og myndir, Skólabraut 25, Akra-
nesi.
Friðþjófur sýnir þar 50 ljósmynd-
ir frá Akranesi. Sumar þeirra birt-
ust í bók Friðjófs og Gunnlaugs
Haraldssonar um Akranes, sem
kom út í sumar.
Verslunin er opin daglega frá kl.
10 til 18.
Friðþjófur Helgason
Sumartón- j
leikar í
Skálholti
ÞRIÐJA tónleikahelgi sumarsins í
Skálholti hefst á morgun, laugar-
daginn 25. júlí, kl. 14 í Skálholts-
skóla með erindi Árna Heimis Ing- j
ólfssonar, doktorsnema í tónvísind-
um við Harvard-háskóla. Erindið .
nefnist Guð faðir, vér þökkum þér I
og fjallar um tvísöng í íslenskum
sönghandritum eftir siðaskipti.
Enski fiðluleikarinn Andrew Manze
leikur síðan einleiksverk fyrir
barokkfiðlu á tónleikum kl. 15. Á
efnisskrá hans eru verk eftir Bach,
Biber og Westhoff. Kl. 17 flytja
Margrét Bóasdóttir sópran, Jörg
Sondermann orgelleikari og Nora |
Kornblueh sellóleikari trúarleg ein-
söngs- og orgelverk eftir Hild- .
egaard von Bingen, Jónas Tómas- '
son, Jón Hlöðver Áskelsson, Snorra
Sigfús Birgisson o.fl.
Sunnudaginn 26. júlí kl. 15 endur-
tekur Andrew Manze efnisskrá sína
og kl. 16. 40 hefst tónlistarflutning-
ur í kirkjunni. Kl. 17 verður messa
með þátttöku tónlistarmannanna
þar sem flutt verður úrval úr efnis-
skrám helgarinnar.
Myndlistarsýn- l
ingar í nýjum
veitingaskála
í Búðardal
SÍÐASTA sumar var opnaður nýr
veitingaskáli í glerviðbyggingu við
Dalakjör í Búðardal.
Fyrstur til að sýna málverk í sól-
skálanum var Eggert Kristinsson j
frá Tjaldanesi og lauk sýningu hans
4. júlí. Hinn 5. júlí byrjaði sýning á
vatnslitamyndum eftir Sigrúnu
Jónsdóttur frá Reykjavík og lýkur
henni 25. júlí.
Sunnudaginn 26. júlí sýnir Jó-
hanna Hákonardóttir frá Þingeyri
myndir unnar með olíu og vatnslit
og stendur sýningin yfir til 15. ,
ágúst. Jóhanna hefur haldið nokki'-
ar sýningar og m.a. einu sinni áður í
Búðardal. Hún sótti námskeið í
Myndlistarskóla Reykjavíkur, MHÍ
og Tómstundaskólanum.
16. ágúst sýnir síðan Vilborg
Eggertsdóttir frá Kvennabrekku
myndir unnar með olíu, vatnslit og
pastel.
Afgreiðslutími Dalakjörs yfir há-
sumarið er frá kl. 9-23. Grillið er op-
ið frá kl. 11.30 til kl. 20.30 alla daga. [
„Sentímentí“ j
H. HANNES opnar ljósmyndasýn-
ingu á Kaffi Frank laugardaginn 25.
júlí. Á sýningunni verða verk sem
H. Hannes hefur unnið að undan-
farið hálft ár. Þema sýningarinnar
er tilfinningar en um leið eru mjmd-
irnar sjálfsmyndir.
í kynningu segir: „Myndaröðin
„Sentímentí" er af meiði þeirrar
tegundar ljósmyndunar sem fæst |
ekki við sýnilegan veruleika heldur ■
þann innri. Ljósmyndaranum birt- '
ast hugmyndir sem hann síðan
verður að raungera svo þær birtist
áhorfandanum. Af trúmennsku við
hugsýnina tekur hann til við að end-
urskapa hana með ljósum, litum og
persónum".
Sýningin er opin frá kl. 10-01 alla
daga og lýkur 1. september.
Sýningu lýkur J
Ráðhúsið
SÝNINGU Birgis Schiöth í Ráð-
húsinu lýkur á föstudag eftir viku.
Á sýninguni eru pastelmyndir,
teikningar og portrettmyndir.
Sigurður Guðmundsson
í Ingólfsstræti 8
SÝNINGU Sigurðar Guðmunds-
sonar myndlistarmanns, sem staðið
hefur yfir í Galleríi Ingólfsstræti 8,
lýkur nk. sunnudag, 26. júlí.