Morgunblaðið - 24.07.1998, Page 23

Morgunblaðið - 24.07.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 23 LISTIR Bomerang Teatret sýnir í Norræna húsinu MÁLVERK eftir Laufeyju Vilhjálmsdóttur. Listaverk eftir Laufeyju á Mount Sinai-sjúkrahúsinu NÝVERIÐ fór fram afhending fímm málverka á Mount Sinai- sjúkrahúsinu í New York að við- stöddum gestum og starfsfólki sjúkrahússins. Listaverkin eru eftir íslenska listakonu, Laufeyju Vilhjálmsdóttur, sem búsett er í Bandaríkjunum. Málverkin eru abstrakt og máluð með olíu á striga. Kristján T. Ragnarsson, yfír- læknir endurhæfíngarstöðvar Mount Sinai-sjúkrahússins, hafði farið þess á leit við Laufeyju fyr- Ognarlegar ógnir KVIKMYJVPIR Langarásbfó ÓGN UNDIRDJÚPANNA „DEEP RISING" ★ ★ Leikstjórn og handrit: Stephen Sommers. Aðalhlutverk: Treat Williams, Famke Janssen, Wes Studi. ÆVINTYRA- og spennu- myndin Ógn undirdjúpanna eða „Deep Rising“ segir af risafar- þegaskipi, eins konar Titanic, niður í Kínahafi sem ógnarleg skepna úr undirdjúpunum, eins konar tuttugu arnia Anaconda, ræðst á með skelfilegum afleið- ingum. Þegar menn, sem ætluðu að ræna fjárhirslur skipsins, koma um borð, er varla nokkur maður eftir á lífi og brátt hefst eltingarleikur upp á' líf og dauða um ganga skipsins. Það er nokkuð vandað til framleiðslu B-myndar þessarar þótt fátt komi á óvart í henni. Svona skrímslamjmdir hafa alltaf verið gerðar. Það eina sem breyst hefur til batnaðar er tæknin, innihaldið er alltaf sami grauturinn. Hin bætta tækni hefur orðið til þess að myndum af þessu tagi hefur fjölgað um- talsvert á undanförnum árum, Godzilla er dýrasta dæmið, því tölvugrafíkin hefur séð til þess að engar tæknilegar hindranir eru lengur fyrir hendi; hægt er að gera allt sem hugur B-mynda- höfundanna girnist. Tölvuteikn- aða skrímslið í Ógn undir- djúpanna er vel úr garði gert og fylgja því óhljóð mikil. Leikstjór- inn og handritshöfundurinn Stephen Sommers hefur lag á að brúka það svo úr verður viðun- andi spenna og byggir að nokkru kunnáttu sína á Alienmyndun- um. Hann hefur hins vegar ekki lag á að gera brúklegt handrit um þá aðila myndarinnar sem búa í mannheimum. Persónurn- ar eru samsafn úr öðrum og álíka B-myndum, glettilega klisjukenndar og, þótt ljótt sé frá að segja það, aðeins nothæf- ar sem skepnufóður. Treat Willi- ams fer fyrir liðinu sem eins konar Indiana Jones líki, held ég, Wes Studi tekst að vera ljót- ari á svipinn en skrímslið og Famke Janssen tekst yfirleitt að horfa angistarfull þangað sem skrímslinu verður síðar bætt í myndina. Auðvitað á ekki að gera kröfur til annars. Sommers tekur starf sitt ekki alltof hátíðlega og veit hvað hann hefur í höndunum svo úr verða óvæntir brandarar og svartir. Það heldur manni einnig við efnið. Arnaldur Indriðason ir nokkru að hún málaði myndir til að prýða þjálfunarstöð og ganga deildarinnar. Tilgangur- inn var að koma með list og liti inn í umhverfi sjúklinga og starfsfólks, sem myndi verða þeim til gleði og hvatningar. Tríó Sigurðar Flosasonar á Jómfrúnni ÁTTUNDU sumardjasstónleikar veitingahússins Jómfrúrinnar við Lækjargötu fara fram sunnudag- inn 26. júlí kl. 16-18. Að þessu sinni leika Sigurður Flosason saxófón- leikari, Björn Thoroddsen gítar- leikari og Gunnar Hrafnsson bassaleikari. BOMERANG Teatret sýnir leikritið „Under brudslöjanAInder bru- deslpret" í Norræna húsinu á föstudag og laugardag kl. 16. Bomerang Teatret er danskt-sænskt leikhús og hefur sýnt þetta verk víða um Norðurlönd og Eystrasaltsríkin. I kynningu segir: „Maria er að fara að gifta sig og er komin í skrúðann. En henni finnst hún ekki alveg til- búin. Enn er ýmsum spurningum ósvarað. Hvað er ást? Er hægt að lofa því að elska ein- hvern þar til „dauðinn aðskilur oss“? Hvernig fer maður að því að láta samband endast? Þess- um grundvallarspurn- ingum um lífið og tilver- una veltir hún fyrir sér síðustu klukkustundina áður en hún giftir sig. Konur á Norðurlönd- um hafa náð miklu BOMERANG Teatret sýnir leikritið „Under brudslöjan/Under brudesloret" í Norræna húsinu á föstudag og laugardag kl. 16. frelsi, en hvaða gjald hafa þær þurft að greiða? Ef til vill er svarið að finna í okkar sameiginlegu norrænu arfleifð? Maria leitar svara í söngv- um, þjóðsögum og ævintýrum. A vegi hennar verða harmfullar, fyndnar og heillandi kvenpersónur. Leikformið er sambland af leikhúsi, dansi og frásögn. Tónlist er einnig veigamikill þáttur í sýningunni.“ Lisa Brand leikur Mariu og fiðlu- leikari er Kerstin Backlin. Lisa Brand og Birgitte Norholt gerðu handrit. Aðgangur er 700 krónur og gildir miðinn einnig á sýninguna „Þeirra mál ei talar tunga“ í sýningarsal Norræna hússins. Stundum er betra að láta blómin um það að tala! ÍSLENSK GARÐYRKJA - okkar atlra vegna Performance Boof Technology ivioimt skórnir ganga lengra! Performan At>3°0' PICOS GTX P' 9 4í # ® ® ffi' & » *#•««•«» » * « * # r # • • •• *.*■* Stærðir: 40-46 Ytrabyrði: 2.6 mm Nubuk leður með goretex Þyngd: 1760 gr * * SYNCRO GTX Stærðir: 35-47 Rúskinn/nylon með goretex Þyngd: 573 gr BRONCO PLUS Stærðir: 38-47 Ytra byrði: 2.4 mm Full grain Þyngd: 1380 gr Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKIN N Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.