Morgunblaðið - 24.07.1998, Side 25
MORGUNB LAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 25
Reykj avíkurborg
fær listaverkagjöf
SPÆNSKI listmálarinn Manuel
Moreno færði fulltrúa borgar-
stjóra málverk eftir sjáifan sig að
gjöf á mánudaginn, en sýning á
verkum hans er nýhafin í Gallerí
Horninu. Gjöfin er hugsuð sem
vináttuvottur og þakklæti fyrir
góðar móttökur, en þetta er
fyrsta íslandsheimsókn Manuels.
„Ég er sérstaklega hrifinn af
Reykjavík og birtunni í borg-
inni,“ segir Manuel „Hér er hægt
að sjá meiri litbrigði og tærleika
en annars staðar og mig langar
að koma hingað að vetri til þess
að bera saman andstæðurnar."
Verk Manuels sem hann gaf
Reykjavíkurborg nefnist Ar-
kítektúr-áferðir og er unnin með
blandaðri tækni á handgerðan
pappír og við. Manuel segir að
myndin tjái þá birtu sem er ein-
kennandi við Miðjarðarhafið og
að hún sé dæmigerð fyrir Ma-
laga, en sjálfur býr hann í litlu
þorpi, Churriana, í nágrenni Ma-
laga. „Gjöfin er viðleitni til að
halda tengslum við Island og ég
hef áhuga á að vinna myndaröð
með Island að yrkisefni eftir ljós-
myndum sem ég tek sjálfur," seg-
ir Manuel.
Ekki hefur myndinni verið val-
inn staður ennþá en hún verður til
sýnis í Gallerí Horninu þar til tek-
in verður ákvörðun um geymslu-
stað. Reykjavíkurborg hafa í
gegnum tiðina borist margar
merkar gjafir frá erlendum lista-
mönnum, einkum þeim er halda
sýningar á vegum Listasafns
Reykjavíkur, en hitt er fátíðara,
að listamenn sem ekki halda sýn-
ingar á vegum safnsins færi
Reykjavíkurborg listaverk að gjöf.
Morgunblaðið Árni/Sæberg
MANUEL Moreno listmálari með Arkítektúr-áferðir, sem
hann gaf Reykjavíkurborg.
Islands-
mynd í
Fiskinum
HEIMILDARMYND um ís-
land sem Sigurður Matthías-
son hefur gert í gervi banda-
rísks túrista verður sýnd í
Galleríi Fiskinum Skólavörðu-
stíg 22c á morgun, laugardag-
inn 25. júlí.
Myndin nefnist „In and out
of the blue“ og er 45 mínútur
að lengd. Hún verður sýnd á
klukkutíma fresti á opnunar-
tíma sýningarsalarinns á
morgun, laugardag, frá kl. 14
til 18.
• Fullkomnar eldsneytisbrunann
vegna hœkkaðrar cetanetölu.
• Dregur úr reyk- og hávaðamengun.
• Kemur í vegfyrir að olían
freyði við áfyllingu tanka.
* Stenst ströngustu kröfur
vélaframleiðenda - oggott betur!
• Héldur kuldaþóli olíunnar í hámarki.
Heldur kerfum vélanna hreinum
og hreinsar upp óhrein kerfi.
• Er umhverfisvæn - inniheldur ekki klór.
• Ver eldsneytiskerfið gegn sliti.
• Hindrar tæringu í
eldsneytiskerfinu.
• Fullkomnar bruna í vélum, hvort sem þœr
eru með eða án forbrunahólfs.
BESTA
DSELOLANI
FJÖLVIRK DÍSELBÆTIEFNI í FYRSTA SINN Á ÍSLANDI
ESSO Gæðadíselolía inniheldur:
ESSO bætir um betur
Stóraukin notkun díselvéla, auknar umhverfiskröfur, hertar reglur
um gceði eldsneytis og kröfur um spamað hafa flýtt fyrirþróun
fjölvirkra díselbcetiefna. Erlendis hefur blanda slíkra efna og dísel-
olíu, svokölluð „Premium Diesel" vakið mikla áncegju ökumanna
endafer hún fram úr ítrustu kröfum sem gerðar eru til díselolíu.
Olíufélagið hf. ESSO býður nú aðeins diselolíu sem uppfyllir
Evrópustaðalinn EN S90 um umhverfisvemd - og tiI að auka
endingartima og tryggja þýðan gang vélarinnar bcetir Olíufélagið
fjölvirkum bcetiefnum í alla sína díselolíu, fyrst íslenskra olíufélaga.
• Dreifi- og hreinsiefni.
• Cetanetölubœtiefni sem stuðlar að réttum
bruna eldsneytis við öll skilyrði.
• Smur- og slitvamarefni.
• Tœringarvamarefni.
• Antioxidant stöðugleikaefni.
• Demulsifier vatnsútfellingarefni.
• Froðuvamarefni.
• Lyktareyði.
• Bakteríudrepandi efni.
ESSO gœðaeldsneyti á bílinn - af hreinni hollustu við vélina og umhverfið. Oliufélagið hf
bamaföt við hliðina á Hagkaup í Skdfunni,
Laugavegi 20, Fjaröargötu 17 í Hafnarfirði og (Vestmannaeyjum