Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 31 linna fullt í sumar Morgunblaðið/Jónas Erlendsson i gistir Mýrdalinn. ;ra ginni morgnana. „Þetta styður hvað ann- að,“ segir Þórir. Umhverfið í Mýrdalnum, landslag og fuglalíf, er helsta aðdráttarafl svæðisins. Og afþreyingin byggist í kringum það. Sigling á hjólabátum hefur verið vinsælasta dægradvölin og er væntanlega enn. Gísli D. Reyn- isson hjá Mýrdælingi hf. sem á hjóla- bátana og býður ferðir út í Reynis- dranga og Dyrhólaey segir að stöðug aukning hafi verið í þessum ferðum undanfarin ár eða þar til í fyn-a en þá fældi veðrið fólk frá. í sumar hefur aftur orðið aukning en Gísli telur að varla vinnist upp það sem tapaðist á síðasta ári. Hann segist ekki vita skýringuna en telur að framboð á hvalaskoðunarferðum og siglingum í öðrum héruðum hafí eitthvað dregið úr sérstöðu þessarar starfsemi. Bílaleigan Geysir býður upp á vélsleðaferðir á Mýrdalsjökul og í sveitarfélaginu eru hestaleigur, hjólaleiga og boðið er upp á jeppa- ferðir inn á afréttinn, skoðunarferðir með rútu, skipulegar gönguferðir og veiði, svo nokkuð sé nefnt. Sumt ferðaþjónustufólk telur að auka þurfi afþreyingannöguleika, telja að sá þáttur hafi setið eftir á meðan gist- ingin hefur verið í uppbyggingu. Kol- brún Hjörleifsdóttir telur þó að ekki megi ofskipuleggja hlutina. Ferða- _______ fólkið sæki einkum í nátt- veður úruna. „Þeir þurfa ekkert . , . annað, vilja bara vera í >kyrmg fnðj hjá fuglinum á lli um- ströndinni." Hún telur þó >umar“ mikilvægt að auka .. fræðsluafþreyingu, með uppsetningu upplýsingaskilta, enda séu erlendu gestimir upp til hópa af- ar fróðleiksfúst fólk. Vill selja aðgang Hafsteinn sveitarstjóri segir að það sé vandi að nýta umhverfið þannig að fólk geti haft af því tekjur að bæta aðstöðu fyrir ferðafólk. Bendir á að ef selja mætti aðgang að Dyrhólaey væri hægt að bæta þjón- ustuna með því að merkja göngu- stíga, veita leiðsögn og gefa út upp- lýsingabæklinga. Ekkert s£ þessu sé mögulegt án tekjustofna. I þessu ljósi segist hann vera því fylgjandi að breyta reglum og heimila gjaldtöku á friðlýstum svæðum eins og Dyrhóla- ey. Bandarísk stjórnvöld sýna verndun hafsins aukinn áhuga Hætta á að hvalveiði- JÓN Baldvin Hannibalsson segir að hætta sé á að sagan af hvalveiðunum endurtaki sig; utanaðkomandi öfl taki ráðin af fískveiðiríkjum. Bandarísk stjórnvöld sýna verndun hafsins aukinn áhuga og þar í landi er í vaxandi mæli rætt um alþjóðlega stjórnun fiskveiðiauð- linda. Ólafur Þ. Steph- ensen kynnti sér málið og ræddi við Jón Bald- vin Hannibalsson, sendi- herra í Washington. AÐ UNDANFÖRNU hefur í auknum mæli borið á þeim málflutningi banda- rískra stjómvalda að ástand lífríkis hafsins sé alvarlegra en talið var og að þetta sé jafnalvar- legt eða jafnvel alvarlegra umhverf- isvandamál en hlýnun andrúmslofts- ins af völdum gróðurhúsaáhrifa. Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra íslands í Washington, segir að þessi aukni áhugi bandarískra stjórnvalda á höfunum sé ekki einvörðungu til góðs, heldur geti líka falizt í honum sú hætta að vegna áhrifa valdamik- illa umhverfissamtaka verði gripið til alþjóðlegra aðgerða gegn fisk- veiðum án þess að hagsmuna fisk- veiðiríkja sé gætt, með svipuðum hætti og gerðist í hvalveiðimálum. í tilefni þess að Sameinuðu þjóð- irnar hafa lýst árið 1998 ár hafsins hafa margvíslegir fundir og ráð- stefnur um ástand hafanna verið haldin á vegum bandarískra stjórn- valda og hátt settir stjórnmálamenn hafa látið falla orð, sem þykja bera vott um breyttar áherzlur. Jafnmikilvægt og loftslagsbreytingar D. James Baker, aðstoðarráð- herra í bandaríska viðskiptaráðu- neytinu, sem fer með málefni haf- anna og andrúmsloftsins, flutti t.d. við Virginíuháskóla síðastliðið vor ræðu um vernd hafanna. Þar vitnaði hann til skoðanakönnunar, sem sýn- ir að 85% Bandaríkjamanna líta á „eyðileggingu hafanna“ sem ógnun við lífskjör sín. Sama könnun sýnir að 80% telja of mikið af skólpi, olíu og áburði renna út í hafið og 55% töldu hafrannsóknir mikilvægara verkefni fyrir Bandaríkin en geim- rannsóknir. I ræðu sinni sagði Baker að vegna mengunar frá landi væri efnasam- setning og lífríki hafsins að taka breytingum. „Ég tel að þessi breyting sé jafnmikilvæg og breytt efnasamsetning andrúms- loftsins, sem veldur lofts- lagsbreytingum, og að við verðum að taka hana jafnalvarlega," sagði hann. Baker gerði jafnframt að umtals- efni margumtalaða skýrslu FAO, matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, frá 1995 þar sem því er haldið fram að fiskafli á heimsvisu sé nú hættur að aukast og samdráttur sé framundan, einkum í úthafsveiðum, vegna ofnýtingar fisk- stofna. Bandaríska utanríkisráðuneytið gekkst skömmu áður fyrir sýningu á kvikmynd um lífríki hafsins og við það tækifæri sagði Strobe Talbott aðstoðarutanríkisráðherra í ræðu; „Ekkert málefni er táknrænna um það einkenni á samtímanum hversu þjóðir heims eru í auknum mæli hver annarri háðar, en ástand um- hverfisins almennt - og ástand heimshafanna sérstaklega. Við tök- um þennan málaflokk mjög alvar- lega hér í utanríkisráðuneytinu. Við hyggjumst tvinna umhverfissjónar- mið saman við meginstefnu Banda- ríkjanna í utanríkismálum.“ Undir áhrifum þeirra, sem vilja ganga lengst Jón Baldvin Hannibalsson, sendi- herra Islands í Washington, sagði í samtali við Morgunblaðið, að ekki væri hægt að fullyrða að verið væri að breyta formlegri stefnu Banda- ríkjanna varðandi verndun hafanna. „Það era hins vegar mjög margar vísbendingar, sem berast um að um- hugsun og umfjöllun bandarískra stjómvalda sé undir mjög sterkum áhrifum frá þeim öflum, sem þarna vilja ganga lengst,“ segir hann. Jón Baldvin segir að þegar full- trúar bandarískra stjórnvalda séu spurðir út í stefnuna hvað varðar verndun hafanna fáist ekki sam- ræmd svör. „Ég hef spurt háttsetta menn hvort þetta sé stefnubreyting og fengið bæði jákvæð og neikvæð svör.“ Sendiherrann segir aðalatriðið vera það að þunginn í umræðunni sé mikill og margt, sem bendi til að áhrifamikil öfl ætli sér að koma fram breytingum á utanríkis- stefnu Bandaríkjanna á skömmum tíma. „Hugsan- lega tekst þeim það, sér- staklega ef menn átta sig ekki í tæka tíð. Ég tek gjarnan dæmið af hval- veiðunum, þótt umdeilanlegt sé. Þar gerðist það að utanaðkomandi öfl, sem ekki áttu hagsmuna að gæta, lögðu undir sig alþjóðastofnun [Al- þjóðahvalveiðiráðið], sem átti að stýra nýtingu auðlinda á vísindaleg- um grundvelli og breyttu henni í friðunarstofnun. Þar með hafa utan- aðkomandi öfl tekið af fullvalda ríkj- um valdið til þess að nýta auðlindir á grundvelli sjálfbærrar þróunar. Við stöndum bara frammi fyrir orðnum hlut,“ segir Jón Baldvin. Ef verst gegnir geta svipaðir hlutir átt sér stað varðandi fiskveiðarnar." Að sögn sendiherrans segja þeir, sem lengst ganga í þessum umræð- um, að strandríkin hafi bragðizt og ekki sinnt því hlutverki sínu að vernda fiskstofnana. I þeim skilningi hafi einnig meginstefna hafréttar- samnings Sameinuðu þjóðanna bragðizt, en í samningnum er strandríkjunum falin meginábyrgð á nýtingu og varðveizlu auðlinda innan efnahagslögsögu og 90% af heimsafla koma úr lögsögu strand- ríkja. „Það er ekki nokkur vafi á að mörg strandríki hafa bragðizt,“ seg- ir Jón Baldvin. „En síðan er sagt að vegna þess að þau hafi bragðizt, verði að nálgast þetta alþjóðlega vandamál ekki út frá einhverjum ímynduðum landamæram ríkja, heldur sem heimsvandamál á grand- velli alþjóðlegra samninga og fram- kvæmdar á grandvelli svæðisbund- innar stjórnunar. Þessi stefna kom þegar fram í úthafsveiðisamningi Sameinuðu þjóðanna.“ Ríkjablokk gegn flskveiðiríkjum? Jón Baldvin segir að eftir Ríó-ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna 1992 sé mikil stígandi í tillöguflutningi á vettvangi samtakanna, sem mótist af þessari hugsun. I nefnd SÞ um sjálf- bæra þróun sé sívaxandi flóð tillagna um sjálfbæra nýtingu auðlinda. „Þar er athyglinni í vaxandi mæli beint að fiskveiðum, að hugmyndum um friðun vaxtarstöðva fiskstofna, í sumum tilvikum land- granns ríkja, og að for- dæmingu á tilteknum veið- arfæram. Róttækasta tillagan er sú að virkja markaðsöflin, í bandalagi við sjónarmið verndunarsinna, nefnilega að setja upp svæðisstofn- anir, sem fengju umboð í alþjóða- samningum til að koma á fót vottun- arkerfi. Allur fiskur, sem færi á markað, yrði að bera vottorð um að stofninn væri ekki í hættu, fiskurinn væri afurð ábyi’gra fiskveiða, úr ómenguðu umhverfi o.s.frv.,“ segir Jón Baldvin og nefnir sérstaklega samstarf náttúruverndarsamtak- anna World Wide Fund for Nature og stórfyrirtækisins Unilever um að hrinda þessari hugmynd í fram- kvæmd. „Afleiðingin yrði sú að þetta myndi ráða framboði sjávarafurða og verði slíkra afurða á markaðnum. Þjóð eins og Islendingar, sem byggir afkomu sína í n'kum mæli á fiskveið- um, yrði algerlega háð því hvaða af- leiðingar þetta kerfi hefði í för með sér. Þá vaknar spumingin hverjir yrðu ráðamestir um framkvæmdina og stýra henni í reynd. Aftur gæti komið upp sú staða að utanaðkom- andi öfl, sem ekki ættu hagsmuna að gæta, tækju í reynd valdið á sjálf- þæmi nýtingu auðlinda innan lög- sögunnar af strandríkjunum,“ segir Jón Baldvin. Hann segir að Islendingar verði að draga þær ályktanir af öllu þessu að fyrr en vari geti orðið snögg breyting og einstakar ríkisstjórnir geri þessa stefnu að sinni. „Það get- ur orðið til blokk ríkja, sem fylgja fram þessari stefnu og ná yfirhönd- inni yfir þau ríki, sem eiga mestra hagsmuna að gæta, í líkingu við það sem gerðist varðandi hvalveiðarnar. Þá gætum við setið eftir með sárt ennið og staðið frammi fyrir orðnum hlut, ef við ekki grípum til aðgerða í tæka tíð, í bandalagi við þær þjóðir sem eiga hér mestra hagsmuna að gæta,“ segir Jón Baldvin. Hann segir að viðbrögð Islendinga við þessari þróun mála megi ekki verða þau að fara í ein- hverja styrjöld við allt og alla, sem vitað sé fyrir- fram að sé töpuð. „Við er- um fámenn þjóð og getum ekki staðið í styrjöld við voldug almannasamtök, fjársterka aðila og ríkja- blokkir um lífshagsmuni okkar,“ seg- ir Jón Baldvin. „Ég held að við þurf- um fyrst og fremst að róa að því öll- um áram fyrirfram að ísland fái á sig orð, og njóti viðurkenningar fyrir, að haga nýtingu sjávarauðlinda á ábyrgan hátt, að það sé trúverðugt og að við getum sannað það. Island þarf að njóta viðurkenningar fyrir að vera þar í fararbroddi.“ Jón Bald- vin segir að íslendingar þurfi því að leita sér bandamanna, sem eigi svip- aðra hagsmuna að gæta, megi hvergi láta umræður um þessi mál á alþjóðlegum vettvangi framhjá sér fara og verði að efla kynningu á mál- stað lslands til að beina málinu í hagstæðan farveg. „íslendingar þurfa að leita sér bandamanna“ „Áhrifamikil öfl vilja koma breytingum í gegn“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.