Morgunblaðið - 24.07.1998, Page 40

Morgunblaðið - 24.07.1998, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRÍÐA HJÁLMARSDÓTTIR, Lækjargötu 34b, Hafnarfirði, lést miðvikudaginn 1. júlí sl. á St. Jósefs- spítala í Hafnarfirði. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elín J. Elíasdóttir, ívar H. Elíasson, Elsebeth E. Elíasdóttir, Guðlaug Elíasdóttir, Linda Elíasdóttir, Eva Elíasdóttir, Ingibjörg Halla Elíasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn Örn Jónsson, Ólafía lllugadóttir, Frímann Helgason, Sigurjón H. Valdimarsson, Christopher R. Bowen, Bragi Sveinsson, J + Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og frændi, ATLI HILMARSSON, Hlíðarvegi 5a, Kópavogi, lést þriðjudaginn 14. júlí sl. Útförin hefur farið fram. Þökkum öllum auðsýnda samúð og hlýhug. Hilmar Lúthersson, Kolbrún Guðmundsdóttir, Auður Hilmarsdóttir, Sveinn Hilmarsson, Guðrún Garðarsdóttir, Hrafnhildur Hilmardóttir, Sína Oddsdóttir, Kristín Kjartansdóttir og systkinabörn. Ástkær eiginmaður minn og elskulegur faðir okkar, SIGFÚS ÞÓRIR STYRKÁRSSON, Ægisíðu 50, lést miðvikudaginn 22. júlí á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Guðríður Þorvaldsdóttir, Lovísa Sigfúsdóttir, Unnur Ingibjörg Sigfúsdóttir. + Ástkær sambýlismaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, GESTUR KARL KARLSSON, Eyrargötu 28, Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laug- ardaginn 25. júlí kl. 13.30. Jónína Kjartansdóttir, Aðalheiður Gestsdóttir, Sigurður Þór Sigurðsson, Hafþór Gestsson, Emma G. Eiríksdóttir, Finnlaugur Pétur Gestsson, Ditte Poulsen, Marteinn Arnar Heimisson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, sonar míns og bróður, föður okkar, tengdaföður og afa, ÞÓRKELS GUNNARS BJÖRGVINSSONAR, Eyravegi 5, Selfossi. Friðsemd Eiríksdóttir, Sigríður Þórðardóttir, Sigurður Björgvin Björgvinsson, Þórður Þórkelsson, Lilja Hjartardóttir, Sigurvin Þórkelsson, Sveinbjörn Þórkelsson, Halla Thorlacius, Eiríkur Þórkelsson, Unnur Lísa Schram, Kristrún Þórkelsdóttir, Anton Örn Schmidhauser, Helga Þórkelsdóttir, Arnar Halldórsson og barnabörn. GUÐRUN HÓLMFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR + Guðrún Hólm- fríður Jónsdótt- ir, Gígja, fæddist á Ljótsstöðum á Höfð- aströnd í Skaga- firði, 30. mars 1914. Hún lést á kvenna- deild Landspítala mánudaginn 13. júlí síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Pá- lína Guðrún Páls- dóttir húsfreyja, f. á Ljótsstöðum 10. nóv. 1884, d. 19. júní 1971, og Jón Björnsson, bóndi og trésmíðameistari á Ljótsstöð- um, síðar á Siglufirði, f. að Gröf á Höfðaströnd 2. febr. 1879, d. 10. mars 1961. Foreldrar Pálínu voru Friðrika Guðrún Friðriks- dóttir, húsfreyja á Ljótsstöðum, f. 12. janúar 1854, d. 25. maí 1939, og Páll Gísli Sigmunds- son, verslunarmaður og bóndi á Ljótsstöðum, f. 6. maí 1854, d. 5. júní 1884. Friðrika Guðrún gift- ist síðar Gísla Páli Sigmunds- syni, albróður Páls og bónda á Ljótsstöðum, f. 23. JÚ1Í 1851, d. 31. mars 1927. Dóttir þeirra var Sigríður Gísladóttir, f. 8. júlí 1896, d. 4. des. 1977. Foreldrar Jóns voru Hólmfríður Jónatans- dóttir, ljósmóðir og húsfreyja að Gröf á Höfðaströnd, f. 22. ágúst 1835, d. 8. des. 1901, og Björn Jónsson, bóndi að Gröf, f. 21. okt. 1845, d. 27. júlí 1895. Börn Pálínu og Jóns, auk Guð- rúnar Hólmfríðar, eru Margrét Ingibjörg, kaupmaður, f. 19. des. 1915, m. Þorgrímur Brynj- ólfsson, f. 15. febr. 1908, d. 27. des. 1994; Páll Gísli, húsasmíða- meistari, f. 12. okt. 1917, d. 26. mars 1988, k. Eivor Jónsson, f. 24. maí 1927; Björn Jónsson, í fornu kvæði íslensku standa þessar ljóðlínur: List eina besta og lukku ég tel, að lifa hér guðlega og deyja burt vel. Þegar getið er slíkra fordæma að trú og breytni um lífsins stig, allt til enda, þá kemur mér í hug tengdamóðir mín, elskuleg, frú Guðrún Hólmfríður Jónsdóttir, sem nú er látin á áttugastaog- fimmta aldursári. Einhver litur skal á þvi sýndur hér, þó daufur verði, að minnast hennar örfáum orðum á kveðju- stund. Hins vegar er það svo þegar ástvinir látast, að öll orð ná jafn- skammt, því margvíslegar tilfínn- ingar sækja að í senn. Traustir og gróskumiklir ætt- stofnar stóðu að Guðrúnu í báðar ættir. Hún var Skagfirðingur að ætt og uppruna. Foreldrar hennar voru hin nafnkunnu og mikilsvirtu sæmdarhjón Jón Björnsson og Pá- lína G. Pálsdóttir, sem bjuggu fyrst rausnarbúi á Ljótsstöðum á Höfða- strönd í Skagafirði. Síðar fluttu þau kaupmaður, f. 12. okt. 1919, d. 26. sept. 1995, k. Guðrún Kristinsdóttir, f. 11. apríl 1914; Davíð Sig- mundur, forsljóri, f. 1. sept. 1922, d. 11. maí 1998, k. Elísabet Sveinsdóttir Björns- son, f. 22. júní 1922, d. 5. júní 1996; Óskírð Jónsdóttir, f. 25. apríl 1927, d. 23. okt. 1927. Guðrún Hólmfríð- ur var tvígift. Fyrri maður var Halldór Vídalín Magnússon, kennari og síðar verslunarmaður á Siglufirði, f. 15. janúar 1898 að Löngumýri í Vallhólmi, Skaga- firði, d. 14. apríl 1946. Börn Guð- rúnar og Halldórs eru Jón Vídalín, f. 7. ágúst 1934, k. Birna Á. Olsen, f. 16. feb. 1939, dóttir þeirra er Guðrún Halldóra, henn- ar dóttir er Guðrún Birna Jak- obsdóttir; Magnús Vídalín, f. 21. mars 1936, d. 7. sept. 1996; Alda, f. 1. jan. 1939, m. Árni Þ. Árna- son, f. 6. sept. 1936, dóttir þeirra er Helga, sambýlismaður hennar er Björn Víglundsson. Fyrri kona Halldórs Vídalín var Valgerður Rögnvaldsdóttir, f. 16. okt. 1892, d. 28. ágúst 1927. Seinni maður Guðrúnar var Björgvin Sigurjónsson vélstjóri, f. 21. okt. 1911 í Norður-Búðar- hólshjáleigu í V-Landeyjum, d. 18. júlí 1992. Sonur þeirra er Ein- ar Helgi, f. 6. okt. 1949, k. Hall- dóra Guðrún Haraldsdóttir, f. 13. des. 1948. Synir þeirra eru Sveinn Trausti Helgason; Björg- vin Ragnar, unnusta hans er Guð- ný Baldursdóttir, barn þeirra er Gabríel Örn; Ingimar Valur. Synir Björgvins Sigurjónsson- ar frá fyrra hjónabandi eru Árni, búferlum til Siglufjarðar ásamt fimm mannvænlegum og sam- heldnum börnum sínum: Guðrúnu, Ingibjörgu, Bimi, Páli og Davíð Sigmundi. Almælt er, að æsku- heimili Guðrúnar bar jafnan svip rótgróinnar festu og menningar. Guðrúnu var gefið ílest það at- gervi, sem unga stúlku getur prýtt. Hún var ágætlega af Guði gerð og hafði til að bera höfðingslund og mannkosti mikla, eins og þau systkin öll. Hún var fríð kona og fönguleg, tápmikil, gáfuð og fjöl- hæf. Að eðlisfari var hún glaðlynd, hrifnæm, stillt, ósérplægin og drenglunduð. Listfengi var ríkur þáttur með Guðrúnu, sem í reynd kom meðal annars fram í því, að um skeið hafði hún viðurværi sitt og barna sinna af saumaskap og skrautskrift. Alla ævi setti Guðrún fyrirmann- legan brag á þau kjör, sem lífið bauð hverju sinni, hvort sem var við erfiðleika að etja eða velsæld. Fyrri maður Guðrúnar, Halldór Vídalín Magnússon, var af skag- firskum ættum, hagyrðingur góð- Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A- 4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. f. 26. maí 1936, f.v.k. María Erla Kjartansdóttir. Börn þeirra eru Kjartan, k. Edda Ólafsdóttir, börn þeirra eru Ólafur Sverrir, María Erla og Marta; Helga Aðalbjörg, m. Finnur Frímann Pálmason, börn þeirra eru Árni Þór, Guð- rún og Kristjana. Sambýliskona Árna er Sigrún Stefánsdóttir, f. 9. maí 1943; Steingrímur Vikar, f. 31. maí 1941, f.v.k. Anna Há- konardóttir, börn þeirra eru Björgvin og Helga Sigurborg, barn hennar er Elvar Örn Hjaltason. Sambýlismaður Helgu er Ivar Ómar Atlason, barn þeirra er Sindri Máni. Steingrímur er kvæntur Eddu ísfold Jónsdóttur, f. 1. maí 1940. Móðir Árna og Steingríms var Helga Aðalbjörg Ingimars- dóttir, f. 26. jan. 1915 á Sauða- nesi, Sauðaneshr., N-Þing., d. 26.júní 1945. Guðrún Hólmfríður, Gígja, ólst upp hjá foreldrum sínum, ásamt Ijórum yngri systkinum á Ljótsstöðum í Skagafirði. Hún stundaði nám á Ljótsstöðum og á Hofsósi, en jafnan dvöldu á Ljótsstöðum heimiliskennarar. Auk þess var móðir hennar, Pá- lína, óvenju vel menntuð á þess tíma mælikvarða, en hún hafði stundað nám bæði í Reykjavík, Kaupmannahöfn og í Banda- ríkjunum. Á árinu 1934 fluttist Guðrún, ásamt fyrri cigimanni sínum, Halldóri Vídalín, til Siglufjarðar. Á árinu 1944 urðu síðan þáttaskil í lífi Guðrúnar er hún fluttist til Reykjavíkur. Þar stundaði hún lengst af verslunarstörf, sauma og skrautritun. Seinni eiginmanni sínum, Björgvin Sigurjónssyni, giftist hún árið 1949. Bjuggu þau mestan sinn búskap í Þing- holtunum í Reykjavík. Síðustu æviárin áttu þau heimili sitt að Logafold 46 í Reykjavík. Utför Guðrúnar var gerð frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 21. júlí síðastliðinn. ur, kennari í Skagafirði og síðast verslunarmaður á Siglufirði. Hann varð ekki langlífur. Þau Guðrún áttu þrjú börn: Jón Vídalín, Magn- ús og Óldu. Síðar giftist Guðrún Björgvin Sigurjónssyni, vélstjóra, ættuðum úr Landeyjum. Hann var þekktur iðnaðar- og athafnamaður. Fyrir- tæki Björgvins, Kæli- og frystivél- ar sf., hafði umsvif um allt land og starfsmenn þekktir af verklagni og samviskusemi. Björgvin lést fyrir réttum sex árum. Þau Guð- rún eignuðust einn son, Einar Helga. Af fyrra hjónabandi átti Björgvin tvo syni: Arna og Stein- grím Vikar. Þegai’ tengdabörnin svo og barnabörnin og síðar þeirra börn bættust við naut Guðrún bæði ást- ar og virðingar yngri kynslóðanna, en ættrækni og sívakandi um- hyggja fyrir fjölskyldunum sem og velferð vina og vandamanna var henni í blóð borin ásamt rausn og einstakri gjafmildi. Guðrún var vinsæl mjög og vin- mörg, enda prúð í framgöngu og með afbrigðum hjálpsöm og ósér- hlífin. Á öllu viðmóti hennar var svo laðandi og ljúfmannlegur þokki, að sérstakt mátti heita. Guð- rún var einkar skemmtileg í við- ræðum, orðheppin og fróð, en hún talaði þó lítt um sjálfa sig og hafði til að bera þann fágæta hæfileika að vera góður hlustandi. Guðrún var höfðingi heim að sækja, sérlega gestrisin og ávallt viðbúin heim- sóknum. Hún hafði yndi af að fagna gestum. I kringum hana var aldrei tómlegt. Ekki verður mynd hennar dreg- in án þess að leggja áherslu á hversu tilfinninganæm, viðkvæm og raungóð Guðrún var. Hún hafði til að bera meyrt hjarta og hlýju gagnvart öllum og öllu minni mátt- ar, og réttlætiskennd hennar var næm. Guðrún bjó yfir dýpri skoð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.