Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 43

Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998 43 * KIRKJUSTARF Grafarvogskirkja. FRÉTTIR Grease-hátíð á Kringlutorginu Guðsþjónusta á útivistarsvæði Grafarvogsbúa INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri opnaði árið 1995 nýtt útivistarsvæði í Grafarvogi. Þetta skógi vaxna svæði er rétt austan við Sjúkrastöðina Vog. Til að nálgast svæðið er ekið framhjá Vogi, en þar við svæðið eru bifreiðastæði. Reykjavíkurborg hefur látið gera göngustíga í skóginum, bekkir eru til staðar, og einnig hefur þar verið komið upp útigrilli. Til að minna á þetta svæði verður haldin útiguðs- þjónusta á sunnudaginn, 25. júh', kl. 11. Kór Grafarvogskirkju syngur undir stjórn Harðar Bragasonar, organista og kórstjóra, og Birgir Bragason leikur á harmónikku. Ætlunin er að grilla, en óskað er eftir að fólk komi sjálft með mat- föng og drykki. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík. Safnaðarferð Fríkirkjunnar verður farin sunnudaginn 26. júlí. Lagt verður af stað kl. 9 árdegis. Sjá nán- ar auglýsingu í Morgunblaðinu 22. júlí. Upplýsingar og ski-áning í s. 552 7270, 5518208, 562 7020 eða 553 2872. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Ung- lingasamkoma kl. 20.30. Egilsstaðakirkja. Kvöldstund í kvöld kl. 21. Sjónvarpstrúboðar kristilegu sjónvarpsstöðvarinnar Omega, Koibrún og Guðlaugur Laufdal, sem leiða kvöldþáttinn Kvöldljós, þjóna ásamt gestum. Sjöunda dags aðventistar á fslandi: A laugardag: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti 19: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón- usta kl. 11.15. Ræðumaður Derek Beardsell. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Engin samkoma í dag, laugardag. Safnaðarlieimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað- ur Theodór Guðjónsson Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest- mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Jón Hjörleifur Jónsson. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfirði: Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu- maður Erling B. Snorrason. BORGARLEIKHÚSIÐ efnir í samvinnu við Ki’ingluna til Grease- hátíðar á Kringlutorginu og í Kr- inglunni á morgun, laugardag. Söngvarar og dansarar úr söng- leiknum Grease, sem nú er sýndur í Borgarleikhúsinu, koma fram, efnt verður til sérstakrar söngv- arakeppni, leiktæki verða á svæð- inu, boðið upp á veitingar og ýmis- legt fleira verður til skemmtunar. Hátíðin hefst kl. 13.30. M.a. munu söngvarar, leikarar og dans- arar úr Grease-sýninguni koma fram á útisviði, dansarar frá Dans- smiðju Hermanns Ragnars sýna Grease-dansa og úrslit verða í söngvarakeppni Kringlunnar og FM 95,7. Einnig verða leiktæki á svæðinu, boðið upp á grill, kók og ís og myndatöku í Grease-búningum. I samvinnu við Útvarpsstöðina FM 95,7 er efnt til söngvarakeppni um það hver syngur best lögin úr Sumarhátíð SKB í Vatnsdal HIN árlega sumarhátíð Samtaka ki-abbameinsveikra barna, SKB, verður haldin í Vatnsdal, A-Húna- vatnssýslu, helgina 24.-26. júlí. Sam- komugestir tjalda á engjum Hvamms við Vatnsdalsá og hefst dagskráin í kvöld með grillveislu. A morgun, laugardag, verður farið í veiði í Vatnsdalsá, útreiðartúr, út- sýnisflug ef veður leyfú’, og m.a. verða á dagskrá ýmsir leikir, íþrótt- ir, tónlist, grillveisla, kvöldvaka og varðeldur. Leiktæki fyrir hina yngstu verða á staðnum og munu meðlimir unglingahóps SKB aðstoða við notkun þeirra. Að lokum verðui’ farið í veiði í Vatnsdalsá á sunnudag. Þetta er fjórða árið í röð sem SKB heldur sumarhátíð í Vatnsdal og fer Grease. Nú fer fram forkeppni á FM 95,7. Valinn er vinningshafí hvers dags sem fær miða á söng- leikinn, matarborð á Hard Rock og hljómplata frá Skífunni. Jafnframt tekur vinningshafi hvers dags þátt í úrslitakeppninni á sviðinu á laug- ardaginn. Sérstök dómnefnd velur bestu söngvarana og veitt verða þrenn verðlaun, 25.000 kr. fataút- tekt í versluninni Sautján, 15.000 kr. úttekt í Gallabuxnabúðinni og 7.500 kr. fataúttekt í verslun Hard Rock. I tilefni Grease-dagsins hafa ver- ið útbúnar leikaramyndir í gamla stílnum með myndum af tíu aðal- leikurum í sýningu Borgarleik- hússins. Myndunum er dreift í verslunum og veitingastöðum í Kr- inglunni. A laugardaginn verður komið upp í Kringlunni sérstökum skiptimarkaði þar sem aðdáendur geta skipst á leikaramyndum. þátttakendum fjölgandi. Algengt er að heimamenn í Vatnsdal og ná- grenni líti við á laugardeginum. Mai’gir leggja af mörkum sjálfboða- vinnu og óeigingjarnt starf og mörg fyrirtæki styrkja hátiðina. Sumai’hátíð SKB verða gerð skil í máli og myndum á heimasíðu SKB, www.skb.is , undir liðnum „fréttir". Lokadagur leikjanámskeiða ÆTH Á VÍÐISTAÐATÚNI í Hafnarfirði verður í dag, föstudag, lokadagur leikjanámskeiða Æskulýðs- og tóm- stundaráðs Hafnarfjarðar. Dagski-áin hefst kl. 11 með kassa- bflai’alli. Hver dagskrárliðurinn rek- ur annan og lýkur dagskrá kl. 14.15. Skoðunarferð um hverasvæðið við Köldukvísl UM næstu helgi eru síðustu forvöð að sjá hverasvæðið austan Köldu- kvíslar og norðan Sveðju í sunnan- verðu Vonai-skarði. Hágöngumiðlun mun færa hverina í kaf um og uppúr næstu helgi. Að því tilefni mun ferðaþjónustu- fyrtækið Ultima Thule Expeditions (UTE) standa fyrir skoðunarferð á hverasvæðið helgina 25. til 26. júlí. Brottfór verður laugardag kl. 8 frá Teiti Jónassyni hf. Ekið er að miðl- unarlóninu og þátttakendur selfluttir að hverasvæði á stórum slöngubát. Um kvöldið er gist í svefnpokaplássi í skála Ferðafélags íslands í Nýjadal. Ef veðrn- er ákjósanlegt og áhugi til staðar á sunnudegi er fyrirhuguð ganga á hið litríka hverasvæðið við suðaustanverðan Tungnafellsjökul. Til baka verður ekið meðfram Þjórsá og litið yfír Þjórsái-ver og Kvíslaveit- ur. Áætluð heimkoma er upp úr kvöldmat. Þessu ferðalagi fylgir nokkur ganga. Fólk verður að hafa góð skjól- fót, gönguskó og stígvél. Þátttakend- ur skulu hafa með sér hitabrúsa og skrínukost en kvöld og morgunmatur í Nýjadal eru innifaldir. Farpantanir og miðasala eru hjá Teiti Jónassyni hf. www.mbl.is R A A U G L V S 1 N G A ATVINNU- AUGLÝSINGAR íþróttakennarar Okkur vantar íþróttakennara aö Varmahlíðar- skóla í Skagafirði næsta skólaár. Mjög góð kennsluaðstaða er við skólann. Mikil vinna og góðirtekjumöguleikar. Rúmgott íbúðar- húsnæði í Varmahlíð stendur til boða. Umsóknarfrestur er til 5. ágúst og skal um- sóknum skilað til Páls Dagbjartssonar skóla- stjóra sem gefur nánari upplýsingar í símum 453 8115 og 855 1612. Skólastjóri Varmahlíðarskóla. Kennarar Kennara vantar við Grenivíkurskóla næsta skólaártil að kenna ensku og fleiri greinar. Skólinn er fámennur, nemendur á næsta vetri verða um 50 í 1. —10. bekk. Aðstaða til kennslu er öll hin besta og gott hús- næði á lágu verði er til reiðu fyrir kennara. Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson, skóla- stjóri, í síma 463 3118 eða 463 3131. TILBDÐ/ÚTBOÐ KÓPAVOGSBÆR SIGLINGASTOFNUN Útboð Bryggjuþekja Hafnarstjórn Kópavogs óskar eftir tilboðum í lagnir og að steypa bryggjuþekju á hafnar- garð í Kópavogshöfn. Helstu magntölur eru: Bryggjuþekja 1875 m2 Steypa 375 m3 Járnamottur 3750 m2 Raflagnir Steypuvinnu skal lokið 15. október 1998 og verkinu að fullu lokið 30. nóvember 1998. Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Kópa- vogs, Fannborg 2, 3. hæð. Tilboðin skulu berast tæknideild Kópavogs fyrir kl. 11.00 fimmtudaginn 6. ágúst 1998 og verða þau opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Hafnarstjórn Kópavogs. www.mbl.is TIL SÖLU Til sölu jörð Til sölu er ca 600 ha jörð í Skaftárhreppi, V-Skaftafellssýslu. íbúðarhús byggt 1933, fjár- hús byggt 1955, hlöður byggðar 1954 og 1967 og hesthús byggt 1989. Ræktað land er um 40 ha. Kjarrlendi ca 35 ha. Sauðfjárkvóti fyrir um 200 fjár. Verð: Tilboð óskast. Nánari upplýsingar á skrifstofu Lögmanna Suðurlandi, í síma 482 2849. SMAAUGLYSINGAR FÉLAGSLÍF Oí Dagskrá helgarinnar 25.-26. Júlí 1998 Laugardagur Kl. 14.00 Lögbergsganga Gengið um hinn forna þingstað i fylgd sr. Heimis Steinssonar. Lagt verður upp frá hringsjá á Haki, gengið um Almannagjá á Lögberg og endað i Þingvalla- kirkju. Gangan tekur um 1 klst. Kl. 15.00 Gjár og sprungur Gengið verður frá þjónustumið- stöð um Snókagjá (Snóku), að Öxarárfossi og til baka um Fögru- brekku. Á leiðinni verður m.a. rýnt í fjölbreyttan gróður og fjallað um aðkomuleiðir til þing- staðarins forna. Snókagjá er erfið yfirferðar á köflum, því er nauð- synlegt að vera vel skóaður og gjarnan má taka með sér nesti. Gangan tekur 2Ví—3 klst. Sunnudagur Kl. 11.00 Gönguferð fyrir börn Spjallað verður um þjóðgarðinn. náttúruna og hinn forna þing- stað. Þetta er auðveld ferð fyrir krakka á öllum aldri. Gangan hefst við Flosagjá (Peningagjá) og tekur 1 —2 klst. Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þingvallakirkju Prestur sr. Heimir Steinsson, sóknarprestur, organisti Ingunn Hildur Hauksdóttir. Kl. 15.00 Skógarkot — Ijóð og sögur Gengið í Skógarkot og farið með sögur og Ijóð frá Þingvöllum, auk þess sem spjallað verður um það sem fyrir augu og eyru ber. Gangan hefst við Flosagjá (Pen- ingagjá) og tekur u.þ.b. 3 klst. Þetta er róleg og auðveld ferð en þó er nauðsynlegt að vera vel skóaður og gott er að hafa með sér nestisbita. Kl. 15.30 Litast um af lýð- veldisreit Sr. Heimir Steinsson tekur á móti gestum þjóðgarðsins á grafreit að baki kirkju og fjallar um náttúru og sögu Þingvalla. Allar nánari upplýsingar veita landverðir í þjónustu- miðstöð þjóðgarðsins, sem er opin frá kl. 8.30—20.00, fl sími 482 2660.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.