Morgunblaðið - 24.07.1998, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Slæmur kafli
slökkti HM-vonir
BRIPS
Vfn
EM 25 ÁRA OG YNGRI
Evrópumót spilara 25 ára og yngri er
haldið í Vín f Austurríki dagana 16.-
26. júlí. Hægt er að fylgjast með mót-
inu á Netinu og er slóð-
inhttp://wbf.bridge.gr/tourn/Vienna
•98/vienna.htm
EFTIR slæman miðkafla á Evr-
ópumótinu í Vín á íslenska liðið
varla raunhæfa möguleika á að ná
einu af fjórum efstu sætunum sem
gefa keppnisrétt á heimsmeistara-
mót í þessum aldursflokki. Eftir
ágætis byrjun tapaði íslenska liðið
fimm leikjum í röð og er nú í 12.
sæti af 22 þátttökuþjóðum, 44 stig-
um á eftir fjórða sætinu.
Islenska liðið var í 6. sæti eftir
átta umferðir og vantaði aðeins 4
stig í fjórða sætið. En í næstu um-
ferð tapaði liðið illa fyrir Tyrkjum
og missti við það taktinn og tapaði
fjórum næstu leikjum sínum. Is-
lendingarnir náðu að setja undir
lekann með fullnaðarsigri á Spán-
verjum í 14. umferð á miðvikudags-
kvöld. Ekkert var spilað í gær. Hér
á eftir fara úrslit umferða 8-14:
fsland - Finnland 25-5
ísland - Tyrkland 3-21
ísland - Ungverjaland 14-16
ísland - Króatía 12-18
ísland - Rússland 5-25
ísland - Ítalía 10-20
ísland - Spánn 25-5
Staðan að loknum 14 umferðum er þessi:
Rússland 261
Ítalía 260
Noregur 258,5
Danmörk 256
Svíþjóð 246,5
ísrael 245
Holland 234
Tyrkland 232
Austurríki 224
Hvíta-Rússland 223
Pólland 221
ísland 214,5
Örugg þvingun
Ungu mennirnir í Vín hafa marg-
ir sýnt glæsileg tilþrif. Norðmenn
hafa þar Evróputitil að verja og
Danir eru núverandi heimsmeistar-
ar í þessum flokki. Þessi lið eru til
alls líkleg eins og þetta spil ber með
sér:
Norður
A KD32
V Á82
♦ D74
*974
Vestur Austur
*G7
V DG10964
♦ 109
*D82
* 109854
v k
* 632
* 10653
Suður
* Á6
V 753
♦ ÁKG85
*ÁKG
Sömu spilin eru spiluð í öllum
leikjum og við tvö borð tókst NS að
segja og vinna 6 tígla. Annað parið
voru Danirnir Freddi Bröndum og
Morten Lund Madsen en hitt voru
Norðmennirnir Oyving Saur og
Boye Brogeland.
Spili austur aldrei laufi vinnst
þessi slemma nokkuð auðveldlega á
tvöfaldri kastþröng. Sagnhafi tekur
öll trompin og hendur tveimur lauf-
um í blindum og þar sem austur
þarf að gæta spaðans og vestur
hjartans verða báðir að henda lauf-
um.
En við bæði borðin náði vömin að
spila laufi. Gegn Saur spilaði vestur
út hjartadrottningu, Saur gaf í
borði og inni á hjartakóng spilaði
austur laufi. Sagnhafi drap og tók
fjórum sinnum tromp og henti laufi.
Þá tók hann hjartaás, spaðaás og
spilaði síðasta trompinu:
Norður
* KD3
V 8
♦ -
+ 9
Vestur Austur
* G * 984
VG10 V -
♦ - ♦ -
*D8 * 106
Suður
* 6
*7
♦ 8
* KG
Vestur sá að hann yrði þvingaður
tveimur slögum síðar þegar Saur
tæki spaðahjónin í blindum. Hann
henti því laufi í trompið og það varð
austur að gera líka. Þegar Saur tók
síðan spaðahjónin og sá spaðaleg-
una var hann með leguna á hreinu,
spilaði laufi á kóng og vann sitt spil.
Bröndum vann einnig 6 tígla með
svipuðum hætti.
Guðm. Sv. Hermannsson
I DAG
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hræðsla meðal
kvótakarla
HRÆÐSLA virðist hafa
gripið um sig meðal kvóta-
karla í Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokknum,
vegna brottrekins banka-
stjóra, sem á sínum tíma
sat á þingi. Hann segist
hafa, iUu heilli, samþykkt
kvótalög Haildórs Ás-
grímnssonar, en ekki verið
haldinn þeirri framsýni að
sjá fyrir hverslags óværa
það yrði. Nú keppast þeir
kvótaunnendur við að rétt-
læta gerðir sínar með alls
kyns „kruðiríi“ í blöðum,
allt frá Halldóri og niður í
Einar Odd, sem þó hefir
gefið sig út fyrir að vera
andstæður kvótalögum, að
minnsta, kosti er hann
messar fyrir vestan. Hann
óttast líklega að hrapa af
þingi vegna boðaðrar end-
urkomu Sverris Her-
mannssonar í pólitíkina.
Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra vill
þakka góða fiskgengd fisk-
veiðistjómun sinni, sem
byggist á hinum illræmdu
kvótalögum. Þorsteinn
vann það afrek að koma á
ævarandi eign sægreif-
anna á fiski á Islandsmið-
um. Nú er þeim heimilt að
veðsetja kvótaeign sína.
Þegar Þorsteinn gumar
sem mest af hinum blóm-
lega rekstri sjávarútvegs-
fyrirtækja, væri fróðlegt
að vita hvaða nauður rak
hann þá til að Iögleiða veð-
setningarheimild til kvót-
hafa á eign sem Þorsteinn
segir enn vera alþjóða-
eign? Eða var verið að
auðvelda kvótabröskurun-
um að koma hinum
svokölluðu veiðiheimildum
í verð vegna þess að eign-
arheimildin var ekki nógu
afdráttarlaus?
Það er víst að það getur
orðið erfiður róður í næstu
kosningum fyrir frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins
að réttlæta fyrir kjósend-
um framvindu kvótamáls-
ins undir stjórn Þorsteins
Pálssonar, því ég held að
kjósendur verði þá búnir
að átta sig á blekkingun-
um. Að minnsta kosti sé ég
ekki ástæðu til að stuðla að
kosningu þeirra manna
sem ekki taka skilyrðis-
lausa afstöðu gegn kvóta-
lögum sem nú eru til
stjórnunar fiskveiðum Is-
lendinga.
Jón Hannesson
190921-3609.
Vasapeningar á
sjúkrahúsum
ÉG vil taka undir með
Gígju, sem kvartar undan
rýrum vasapeningum á
sjúkrahúsunum í Reykja-
vík. Til dæmis voru engir
fatastyrkir um sl. jól og
verð ég að ganga í af-
gangsfötum af öðrum. Það
er allsendis óviðunandi að
sjúklingar sem fá vasapen-
inga þurfi að lepja dauð-
ann úr skel og eiga tæp-
lega fyrir strætó.
Sjúklingur
Franskur
frímerkj asafnari
FRANSKUR drengur,
sem á við heilsuleysi að
stríða, hefur fengið áhuga
á íslenskum frímerkjum og
biður góðfúslega einstak-
linga eða fyrirtæki að
senda sér frímerki. Nafn
og heimilisfang: Bernard
Perigault, c/o 125 Av. Jean
Lolive, 93500 Pantin, Par-
is, Frnace.
Tapað/fundið
Sj óstanga veiðidót
hvarf
PLASTPOKI, með hlut-
um er tilheyra sjóstanga-
veiði, „píka“, axlarbönd,
sökkur, færi, önglar og
fagrar flugur, hurfu af
bryggjunni í Olafsvík að
loknu sjóstangaveiðimóti
sl. laugardag. Einnig
hvarf fjólublá Speedo-
iþróttataska með
regnjakka, myndavél og
fatnaði. Sá/sú sem þekkir
pokann eða töskuna eða
hefur tekið þetta í mis-
gripum, hringi vinsam-
lega í Helgu Guðrúnu
síma 554 4904 eða
5691290.
Grænn jakki tapaðist
GRÆNN, vind- og vatns-
heldur jakki tapaðist af
kvennasnyrtingunni í
Veiðivötnum sl. mánu-
dagskvöld. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
561 2355.
Kvenreiðhjól
tapaðist
GAMALT ljósmyntugrænt
kvenreiðhjól, 3ja gíra með
körfu framan á, hvarf frá
Kárastíg 6 sl. þriðjudag.
Þeir sem hafa orðið hjóls-
ins varir vinsamlega hafið
sambandi við Emilíu, síma
552 5389 eða 5601580.
Fundarlaun.
Gleraugu fundust
í Árbænum
GLERAUGU í álumgjörð
með hliðarhlífum fundust í
Árbænum í vikunni. Eig-
endur fá upplýsingar í
síma 483 4272 eftir kl. 20.
Dýrahald
Páfagaukur flaug
að heiman
GRÆNN og gulur páfa-
gaukur af tegundinni gári
tapaðist frá Nesvegi á mið-
vikudag. Finnandi hringi í
síma 552 9185.
Svart og hvítt
fress tapað
STÓR, svartur og hvítur
fressköttur týndist frá
heimili sínu, Klukkurima
39, fimmtudaginn 9. júlí sl.
Kötturinn er að mestu
svartur, hvítur í framan,
undir kvið og á maga, hann
hefur líka hvíta sokka á
öllum fótum. Hann er
eymamerktur, R7086. Ef
einhver hefur séð hann
vinsamlegast hringja í
síma 567 1642.
Kettlingur
í óskilum
GRÁBRÖNDÓTTUR og
hvítur kettlingur fannst
við sundlaugina í Laugar-
dal á miðvikudag. Upplýs-
ingar í síma 568 4244.
SKAK
IJmsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á norska
meistaramótinu í ár. Stig
Tjomsland (2.255) hafði
hvítt og átti leik gegn Teije
Johansen (2.260)
27. Rxe6! - Dxe6 28. Dxh5+
- Kg7 29. Hc7+ - Rd7 30.
H7c6 - Bd6 31. Bf4 - Hgc8
32. Hxc8 - Bxf4 33. Hxa8?
(33. Dh8+ Kf7 34. Dg8+ -
Kf6 35. Dxe6+ - Kxe6 36.
Hlc6+ vann strax) 33. -
Bxcl 34. He8 - Dc6? (Svart-
ur gat veitt viðnám með 34.
- Dd6 35. Dxf5 - Rf6) 35.
He7+ - Kf6 36. Hf7+ - Ke6
37. Dg6+ og svartur gafst
upp.
Roy Harald Fyllingen
(2.390), ungur og efnilegur
skákmaður, vann óvæntan
sigur á mótinu með 7'/2 vinn-
ing af 9 mögulegum, eftir
harða keppni við Simen Ag-
destein (2.570) sem hlaut 7
vinninga. Rune Djurhuus
(2.510) varð þriðji með 6 v.
HVÍTUR leikur
og vinnur.
Tískuverslun Kringlunni
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir
Víkveiji skrifar...
LESANDI Víkverja hringdi og
kvaðst viija láta í ljós öndverða
skoðun við það, sem komið hefði
fram í Víkverja á dögunum um gos-
brunninn í Tjöminni. Hann taldi
þennan gosbrunn vita þarflausan.
Hann sagði:
„Tjömin og umhverfi hennar að
fjallahringum meðtöldum er ein-
hver fegursti staður í borginni. Gos-
brunnurinn sem Víkverji vék að í
dálki sínum nýlega eykur ekki á þá
fegurð nema síður sé. Hann raskar
hinni undursamlegu kyrrð og næði
sem einkennir þennan stað. Gos-
brunnurinn var án efa gefinn af
góðum hug en slíkt fyrirbrigði er
þarflaust í náttúmperlu eins og hér
um ræðir.“
Já, þannig hljóðaði umsögn les-
andans um gosbrunninn í Tjörn-
inni í Reykjavík. Sitt sýnist hverj-
um, en Víkverji þekkir til ungra
barna, sem búa í nágrenni Tjarn-
arinnar, sem eru afskaplega upp-
tekin af gosbrunninum og þau
voru búin að spyrja foreldra sína
æði oft í vor, hvernig á því stæði
að gosbrunnurinn væri bilaður.
Nú mun viðgerð hins vegar lok-
ið sumum til ánægju og öðrum til
ama. Guði sé lof eru ekki allir
sammála.
VÍKVERJI fór um Hvalfjarðar-
göngin á meðan akstur um þau
var gjaldfrjáls. Þetta mannvirki er
stórkostleg samgöngubót og þeim
aðilum, sem að hafa staðið, til mikils
sóma. En hjátrúin er ekki langt
undan á þessari miklu tækniöld.
Göngin eiga sér sem sé verndara,
sem er síðskeggjaði einbúinn í
Staupasteini.
í pésa, sem Spölur ehf. hefur gef-
ið út, er fjallað sérstaklega um
vemdara Hvalfjarðarganga,
Staupa-Stein. Þar segir: „Einbúinn
Staupa-Steinn er sérstakur vinur og
verndari Hvalfjarðarganga. Þessi
geðþekki, síðhærði og skeggjaði
karl er fáum sýnilegur. Hann er
kenndur við bústað sinn, Staupa-
stein á Skeiðhóli, nálægt Hvamms-
vík í Hvalfirði, og unir sér vel á
þeim slóðum. Erla Stefánsdóttir
sjáandi hefur oft staldrað við hjá
karli og lýsir honum sem góðlynd-
um, gamansömum og sérlega barn-
góðum.
Best skemmtir hann sér þegar
fjölskyldufólk staldrar við nálgæt
Staupasteini og krakkar leika sér
með bolta á meðan foreldrar njóta
útilofts og náttúrufegurðar. Staupa-
Steinn veit nefnilega ekkert
skemmtilegra en atast í boltaleikj-
um með krökkum."
OG ÁFRAM segir um Staupa-
Stein: „Þórhildur Jónsdóttir
teiknaði Staupa-Stein með hliðsjón
af vatnslitamynd frá Erlu sjáanda.
Hugmyndin að því að ráða einbúann
til kynningarstarfa fyrir Spöl ehf.
kviknaði í almannatengslafyrirtæk-
inu Athygli ehf. Erla gerði sér ferð
upp í Hvalfjörð um páskahelgina
1997 til að kanna hvernig þetta
legðist í karlinn. Skemmst er frá að
segja að hann varð bæði upp með
sér og glaður. Erla veit einungis um
8 einbúa sömu ættar á Islandi. Einn
býr t.d. við Brynjudalsá í Hvalfirði,
tveir eru í Kópavogi og einn nálægt
þjóðveginum við Blönduós.
Kletturinn Staupasteinn er frið-
lýstur sem náttúruvætti. Á honum
eru þekkt að minnsta kosti fjögur
nöfn: Prestur, Steðji, Karlinn í
Skeiðhól og Staupasteinn.
Mörg dæmi eru um að huldufólk
og álfar hafi látið til sín taka ef þeim
þykir vegagerðarmenn gerast nær-
göngulir við híbýli sín og verustaði.
Engin slík vandamál komu upp við
gerð Hvalfjarðarganga."
Þetta var frásögnin af verndara
Hvalfjarðarganga. Hvað sem öllu
líður er ljóst að einstakt lán hefur
verið við gerð ganganna. Ekkert al-
varlegt slys varð við gerð þein-a á
meðan á verktíma þeirra stóð.