Morgunblaðið - 24.07.1998, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Ævintyri og*
lærdómur
ÆTLI þessar yngismeyjarlangi að prófa prinsessukjólinn?
Zirkús Zimsen er
hópur ungmenna með
brennandi áhuga á leik-
------7--------------
list. I sumar eru þau
með götuleikhús fyrir
Reykj avíkurborg,
og síðasta sýningin
þeirra var Stjörnuferð-
in, sem þau sýndu í
Hlj ómskálagarðinum.
STJÖRNUFERÐIN er fyrir börn á
ýmsum aldri. Auk þess að sýna fyrir
gesti og gangandi komu leikskól-
arnir, íþrótta- og leikjanámskeiðin
og fleiri hópar á sýninguna og oft
voru börnin allt að 400 talsins og
stemmningin að vonum góð.
Ungu áhorfendumir lifðu sig af
öllu hjarta inn í örlög góðu
prinsessunnar Sesselíu og Olgeirs
J klaufa sem bjargar henni og verður
þar með hetja. A úrslitastundum
hjálpuðu áhorfendur einnig hetjun-
um sínum að taka rétta ákvarðanir.
Og allt endaði vel, öllum til mikillar
gleði.
Ekki var verra að eftir sýninguna
gátu krakkarnir hitt Olgeir, Sessel-
íu og alla hina og spurt þau um lífið
á hamingjuplánetunni þar sem allar
persónurnar enduðu saman í sátt og
samlyndi, þrátt fyrir að vonda
drottningin Argentæta reyndi að
koma í veg fyrir það.
Áralöng reynsla
Götuleikhúsið er gert út af menn-
ingarsveitar Hins hússins með
styrk frá Reykjavíkurborg. Markús
H. Guðmundsson í forsvari fyrir
sveitina en sérlegur aðstoðarmaður
leikaranna er Helga Rós Hannam.
Ungmennin sem stofnuðu Leikskól-
ann í vetur og sýndu Sumargesti
eftir Maxím Gorkí, fengu nokkra
kunningja til liðs við sig og stofnuðu
Zirkús Zimsen og tóku að sér götu-
leikhúsið í sumar. Þau hafa flest
áralanga reynslu að baki, og eru
sum að vinna við götuleikhús fjórða
sumarið í röð. Nú voru þau ráðin í
tvo mánuði og settu upp eina sýn-
ingu á viku fyrir borgina. Maríanna
Clara Lúðvíksdóttir, Unnur Ösp
Stefánsdóttir og Björn Thors út-
skýrðu hópinn og sýninguna betur.
' Maríanna: Við erum ósköp glöð að
hafa fengið tækifæri til að vinna við
þetta, sumarið er búið að vera frá-
bært.
Unnur: Og endar alveg stórvel með
þessari sýningu því bömin em svo
ánægð.
Bjöm: Fóstrurnar eru alveg himin-
lifandi og koma til okkar í hrönnum
og þakka kærlega fyrir.
Skemmtileg vinna
Unnur: Við emm alltaf í vinnunni
frá níu til fimm. Við ráðum okkur
sjálf og emm í hugmynda- og
spunavinnu. Við komum þessari
sýningu saman á bara einni viku.
Maríanna: Við vinnum einnig mikið
í búningunum með hönnuðinum Hu-
grúnu Amadóttur og leggjum mik-
inn metnað í þá.
Bjöm: Við eram með eina sýningu á
viku sem við skilum til borgarinnar,
og svo seljum við Zirkús Zimsen
hópinn utan vinnutíma. Við eram þá
.... ii—-SB^B^BBBBSBBI^BBBí^BBm
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SVEFNPURKUR góði konungurinn sem leikinn er af Aðalsteini Bergdal, sefur þegar stálstúlkan Herkimera, Ilmur Kristjánsdóttir, talar við
Herminu hundakonu sem Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur. Olgeir klaufi, Ólafur Steinn Ingunnarson, er kominn á axlir eldflaugamannsins Apollós ,
sem er Hlynur Páll Pálsson.
SESSELÍA prinsessa með Þanosi úka. Þau leika Maríanna Clara Lúð-
víksdóttir og Orri Huginn Ágústsson.
TEKST Olgeiri klaufa að buga Arg Esther
sápukúlum? Ólafur Stemn Ingunnarson
bæði að skemmta úti á landi og í
ýmsum fyrirtækjum.
Hið sígilda ævintýri
Björn: Leikritið fjallar um baráttu
góðs og ills.
Maríanna:Við förum alveg ókannað-
ar lendur í umfjöllun okkar, þar
sem prinsessunni er rænt, klaufinn
bjargar henni og verður hetja! Helí-
os konungur hitans, sem Stefán
Hallur Stefánsson leikur, kennir
honum að nota slökkvitæki og að
vera ekki hræddur við það sem
hann þekkir ekki.
Unnur: Svo eram við með alls konar
frumlega tónlist eins og úr Stjörnu-
stríði, klassíska tónlist, rapp, rokk
fleira, en um hana sér hljóð- og
tæknimaðumn Úlfur Chaka.
Björn: Eg er sögumaðurinn og ann-
KRAKKARNIR fylgdust grannt með öllu sem fram fór.
ars er þetta mikill látbragðsleikur,
mikil kómík og hentar mjög breið-
um áhorfendahópi. Það er kannski
helst að við ýkjum hættuatriðin að-
eins hjá eldri hópunum.
Tími fyrir aðra
Björn: Næsta sumar verðum við
orðin rík og fræg.
Unnur: Þá verður eitthvert fram-
hald á og við munum fara skrefinu
lengra, hvort sem það verður
einmitt þessi hópur eða einhver
breyting verður þar á.
Björn: Við erum búin að toppa það
sem við getum gert hér. Við höfum
haft yfirmenn, nú gerðum við þetta
sjálf, og þá er kominn tími til að
hleypa yngra fólki að sem hefur jafn
gaman af þessu og leyfa þeim að
öðlast sömu reynslu.