Morgunblaðið - 31.07.1998, Qupperneq 8
8 B FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998
DAGLEGT LIF
MORGUNBLAÐIÐ
uðum. „Samkeppni milli þeirra
ljósmyndara sem sækja sýningarn-
ar er rosaleg. Eg bíð oft í löngum
röðum og reyni að láta karlana
ekki troða mig undir. Eg kaupi
miða upp á von og óvon, fæ
kannski lélegt stæði eða kemst
hreinlega ekki inn,“ segir Katrín.
„Það er líka spuming um heppni
hvort maður „veðjar“ á réttan
tískuhönnuð þannig að fjárhagsleg
afkoma af þessum ferðum er frem-
ur ótrygg. Eg lít frernur á sýning-
arnar sem spennandi reynslu, mér
fínnst gaman að fylgjast með nýj-
ustu tískustraumum og það kemur
sér vel í kennslunni," en Katrín
kennir tískuljósmyndun í fatahönn-
unardeild Danish College of
Design á Jótlandi. Ofan á allt ann-
FRA Sankti Nikulásarkirkjunni í Prag. Verkið er Polaroid-þrykk á vatnslitapappír og er að finna á sýningunni Sköpun 1998 á Isafirði.
Myndar
konur í sturtu
og felur vélina innan klæða
Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari
kemur víða við með linsuna.
Hún myndar gamla kirkjugarða,
heimsfrægar fyrirsætur, íþrótta-
landslið og Lego-kubba en segist
fá minnst borgað fyrir skemmti-
legustu verkefnin. Hún hefur hald-
ið sýningar í Boston, New York og
Flórída og nú bætast æskuslóðirn-
ar á Vestfjörðunum við. I spjalli
við Sigurbjörgu Þrastardóttur
segir Katrín frá líflegri vinnu sinni
beggja vegna Atlantsála.
Morgunblaðið/Arnaldur
KATRÍN Elvarsdóttir hefur bú-
ið erlendis í áratug en kemur
heim á hverju sumri.
EITT af fimm verkum Katrínar sem skreyta
nýstofnaða tölvudeild Lego í Danmörku sýnir
tölvukóða og þrívíddarskynjun.
AUGLÝSINGAMYND eftir Katrínu fyrir tísku-
verslunina Allston Beat í Boston, en í þeirri
borg stundaði Katrín ljósmyndanám sitt.
EFRI tvær myndirnar tók Katrín á sýningu breska
hattahönnuðarins Philippe Tracy. Undir slæðunni
er ofurfyrirsætan Naomi Campbell. Á neðstu mynd-
inni er latexkjóll eftir fatahönnuðinn Tunji Dada í
New York en Katrín ákvað að taka myndina í sturtu
til þess að undirstrika gúmmíáferð efnisins.
ÞEGAR ég var beðin að taka myndir af
norska landsliðinu í knattspymu rétt
fyrir HM var ég mjög efins því ég hef
hverfandi áhuga á fótbolta," segir Katrín
Elvarsdóttir ljósmyndari. „Svo ákvað ég að
slá til enda er íþróttaljósmyndun kannski
ekki svo frábrugðin því að taka myndir á líf-
legum tískusýningum eins og ég er vön.“
Myndimar af norska liðinu vora fyrir
Scanorama, tímarit SAS-flugfélagsins, en
síðustu mánuði hefur Katrín unnið ýmis
verkefni fyrir ritið. Hún er þó ekki í fastri
vinnu þar frekar en annars staðar - býr í
Danmörku og sinnir lausamennsku allt frá
París til New York.“
Katrín lauk BFA-gráðu í ljósmyndun frá
Art Institute of Boston árið 1992, en hafði
áður stundað ljósmyndanám um tveggja
ára skeið í Flórída. Hún sérhæfði sig í
tískuljósmyndun og starfaði í Bandaríkjun-
um að námi loknu. „Eg myndaði fyrir DNR,
Stuff Magazine og fleiri blöð sem öragglega
enginn þekldr hér heima,“ útskýrir Katrín
og hlær. „I hitteðfyrra ákvað ég svo að
breyta til, flutti til Danmerkur og tók til við
ýmis verkefni enda lifír enginn þar á tísku-
Ijósmyndun eingöngu."
Eiginmaður Katrínar, Kristinn R. Þóris-
son, starfar hjá leikfangafyrirtækinu Lego
við rannsóknir á gervigreind. Þar hefur nú
verið stofnuð ný deild, Lego Digital, sem
tengir tölvur og hefðbundna kubba í nýjum
leikfóngum. Katrín var beðin að skreyta að-
setur deildarinnar með listaverkum og not-
aði sem myndefni tölvukóða, Legokubba,
mannslíkamann og fleira.
Aðþrengd af
áköfum karlmönnum
Á haustin og vorin bregður Katrín sér
gjarnan til Parísar eða New York og festir á
fílmu nýjustu hátísku frá frægum fatahönn-
að.
Vestur um haf fer Katrín að
jafnaði þrisvar á ári og sem dæmi
myndar hún nánast alla fram-
leiðslu tískuhönnuðarins Tunji
Dada. Nýjasta nýtt frá honum eru
flíkur úr latexi með handmáluðu
mynstri sem Katrín myndaði í
sturtuklefa.
Laumulegasti
Ijósmyndarinn
„í Ameríku er meira litið á ljós-
myndun sem listgrein og hærra
verð fæst fyrir myndir en í Evr-
ópu. I tískuljósmyndun er hins
vegar meira að gerast í Evrópu,
þar er mikil tilraunastarfsemi í
gangi og nýjar stefnur í deiglunni.
Svo er margt spennandi að gerast í
Ungverjalandi, Rússlandi og öðr-
um austlægum Evrópulöndum.
Ljósmyndarar þaðan era í það
minnsta famir að vera meira áber-
andi nú þótt þeir hafi kannski alltaf
verið að gera áhugaverða hluti,“
segir Katrín en sjálf er hún nýkom-
in frá Tékklandi þar sem hún
myndaði af miklum móð í Prag.
„Oft þurfti ég að stelast á milli
staða með myndavélina falda undir
jakkanum því í borginni er víða
bannað að taka myndir. Mér fannst
það mjög skrýtið en eflaust eru
þetta leifar frá kommúnistatíman-
um þegar allir óttuðust að verið
væri að njósna um sig.“
Afraksturinn af njósnafór sinni
til Tékklands sýnir Katrín nú í
Slunkaríki og Edinborgarsal á ísa-
fírði. í samsýningunni Sköpun 1998
taka þátt auk Katrínar þær Guð-
björg Kr. Ingvarsdóttir, skart-
gripahönnuður, og Guðrún Hall-
dórsdóttir, leirlistakona. ,,Við þrjár
eram frænkur og allar Isfirðingar
að upplagi," út-
skýrir Katrín en
fj ölskyldusýning-
unni lýkur þann 12.
ágúst n.k.
Nýjasta tækni
og trúarbrögð
Verkin sem
Katrín sýnir fyrir
vestan era unnin
þannig að hún
þrykkir Polaroid-
filmu á vatnslita-
pappír og málar of-
an í myndirnar eft-
ir á. „Stundum
fríska ég upp á lit-
ina sem fyrir era
eða ýki þá í ein-
hveija átt. Ég hef
líka verið dugleg
við að bæta við gyllingum eða kop-
arlit,“ segir Katrín og bendir á
ljósrit af verkunum sem í verunni
eru stærri og grófari. Katrín ljós-
myndaði sögufræga staði í Prag og
féll sérstaklega fyrir gömlum
kirkjum og kirkjugörðum sem era
með þeim elstu í heiminum. „Þem-
að í verkunum er menning, saga,
trúarbrögð og arkitektúr í Prag en
borgin er fjársjóður sem gaman
var að uppgötva ogjgramsa í.“
Þótt sýningin á ísafírði sé sölu-
sýning segist Katrín ekki einvörð-
ungu getað helgað sig slíkri list.
„Það er eiginlega minnst upp úr
því að hafa sem manni þykir
skemmtilegast. Þess vegna verð ég
að hafa fjölmörg og fjölbreytt járn
í eldinum og það gengur prýði-
lega.“