Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 16
16 C ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐ Haukalind í Kópavogi er fasteignasalan Hóll í Reykjavík með í sölu raðhús, sem eru ea 144 ferm. á tveimur hæðum og með bílskúrum, sem
eru um 30 ferm. að stærð. Húsin skilast fullbúin að utan og fokheld að innan. Það er einnig hiegt að fá húsin lengra komin.
Verð á íbúðarhúsnæði
„Sem dæmi má nefna, að við höfð-
um opið hús í þessum raðhúsum
eins og kallað er um fyrri helgi og
þá seldust tvö hús,“ sagði hann.
„Það er fólk á ö'llum aldri, sem sæk-
ist eftir þessum húsum.“
Ágúst kvað verð vera að hækka,
vegna þess að eftirspum eftir íbúð-
um væri meiri en framboð. „Þeir era
margir, sem ekki vilja setja eignir
sínar í sölu, þó að þeir hafí huga á að
selja, vegna þess að þeir eru ekki
búnir að finna sér eign við hæfi til
að kaupa þar sem framboðið er lít-
ið,“ sagði hann. „Þó er aðeins að
rætast úr framboðinu, því að það er
að koma meira af eignum í sölu núna
en fyrir eins og einum mánuði síðan.
Það standa yfir miklar bygginga-
framkvæmdir í Staðahverfi og í
öðrum áfanga Lindahverfisins í
Kópavogi og nýbyggingar í þessum
hverfum eru nú sem óðast að koma
í sölu. Sala á þeim á vafalaust eftir
að ganga mjög vel.“
titsýnisíbúðir
við Gnípuheiði
hækkandi vegna
mikillar eftirspurnar
Við Gnípuheiði 5-7 í Kópavogi er
fasteignasalan Ásbyrgi með til sölu
6 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum,
þrjár íbúðir í hvoru húsi. Húsin
standa í grónu hverfi nærri verzl-
unum, grunnskóla og leikskóla á
Digraneshæðum. Húsin eru múr-
húðuð og máluð að utan með full-
frágengnu bárujárnsþaki.
Sérbýlið einkennir þessar íbúðir,
Stakfell
Fasteignasala Sudurlandsbraut 6
568-7633 if
Lögfræðingur
Þórhildur Sandholt
Sölumaður
Gísli Sigurbjörnsson
Opið laugardaga kl. 11-14.
FYRIR ELDRI BORGARA ■ 4RA-5 HERBERGJA
HJALLASEL Parhús 69,1 fm, sem
tengist þjónustumiðstöðinni í Seljahlíð er
til sölu. Stofa, svefnherbergi, flísalagt bað,
eldhús og geymsla. Korkur á gólfum.
EINBÝLISHÚS
LAMBASTEKKUR Gott 112 tm
timburhús á einni hæð. Stofa og 3 svefn-
herbergi. Fallegt endurnýjað baðherbergi.
Góður garður. Verð kr. 11,0 millj.
SEFGARÐAR
SELTJARNARNESI Sérlega
vandað og vel um gengið 212,4 fm ein-
býlishús á einni hæð með rúmgóðum inn-
byggðum bílskúr. Skiptist i stóra stofu, 3
góð svefnherbergi, stórt eldhús, sjón-
varpshol, þvottaherbergi, baðherbergi og
gestasnyrtingu. Húsið stendur á fallegri,
gróðurríkri og vel skipulagðri lóð. Hiti I
stéttum. Friðsæll staður.
SOGAVEGUR Einbýlishús á tveim-
ur hæðum 128,6 fm. Stofur og eldhús á
neðri hæð, 2-3 svefnherbergi á efri hæð
og fallegur garður.
SÓLVALLAGATA Til sölu einbýl-
ishús kjallari og tvær hæðir alls 229,5 fm
ásamt 19,2 fm bílskúr. Þarfnast endurnýj-
unar. Laus nú þegar. Lyklar á skrifstof-
unni.
VESTURTÚN - ÁLFTA-
NESI Nýtt og glæsilegt 191,4 fm.
timburhús á einni hæð ásamt
innbyggðum bílskúr. I húsinu eru mjög
vandaðar innréttingar og tæki. Stór
stofa og stórt eldhús. Möguleikar á 5
svefnherbergjum Stór lóð. Áhvílandi
húsbréalán 6.576 þús.
RAÐHÚS/ PARHÚS
GRENIBYGGÐ MOS, Faiiegt
170,4 fm parhús á einni hæð ásamt inn-
byggðum bílskúr. Fallegar innréttingar i
eldhúsi, góð stofa með garðskála, 3
svefnherbergi, mjög gott flísalagt bað,
fiísar og parket á gólfum. Hitalögn I stétt-
um. Gróðurrlkur og skjólgóður garður.
Áhvíl. 5,4 millj. Verð 13,2 millj.
HNOTUBERG HFJ. tii söiu par-
hús með innbyggðum bílskúr á þessum
vinsæla stað alls 186 fm. Þrjú svefnher-
bergi, góðar innréttingar, parket og flísar á
gólfum.
BÚLAND FOSSVOGI Mjög gott
endaraðhús 190,1 fm ásamt 23,8 fm bíl-
skúr. Stofa með arni og svölum í suður.
Eldhús, borðstofa og gestasnyrting, Fjög-
ur svefnhrbergi og baðherbergi á neðri
hæð. Góður garður í suður. Verð 14,5
millj.
HÆÐIR
BÁSENDI Góð 111,4 fmsérhæðál.
hæð. Skiptist i góðar stofur, þrjú svefn-
herbergi, eldhús og bað. Suðursvalir. Sér-
geymsla í kjallara.Verð 9,3 millj.
ÁLFTAMÝRI Falleg 100 fm íbúð á
1. hæð ásamt góðum 21 fm bílskúr.
Þvottahús í íbúðinni. Fallegt fllsalagt bað-
herbergi. Suðursvalir. Parket á gólfum.
Verð 8,8 millj.
BREIÐAVÍK Gullfalleg 4ra herbergja
íbúð á 3. hæð, 94,8 fm. Sérinngangur.
Fallegar innréttingar. Fullbúin án gólfefna.
Tilbúin til afhendingar. Verð 8,7millj.
KRÍUHÓLAR Gullfalleg 4ra her-
bergja íbúð á 7. hæð í lyftuhúsi. Nýlegt
eldhús með viðarinnréttingu og graníti á
borðum. Marmari á baði. Allt gler nýlegt.
Glæsilegt útsýni. Bílskúr fylgir. Verð 8.8
millj.
3 HERBERGJA
EIÐISTORG Gullfalleg íbúð á tveim-
ur hæðum 106 fm. Á neðri hæð er m.a.
glæsileg stofa með suðursvölum og fal-
legt eldhús. Á efri hæð eru tvö góð svefn-
herbergi og fallegt flísalagt bað. Parket á
gólfum. Góð lán.
BERJARIMI NÝJAR ÍBÚÐIR
Nýjar 2ja og 3ja herbergja íbúðir með sér-
inngangi og bilskýli. Til afhendingar fljót-
lega, fullbúnar án gólfefna.
LAUFBREKKA KÓP Góð 3ja
herbergja íbúð 76,6 fm með sérinngangi
og sérbilastæði. Nýlegt eldhús, nýlegt gler
og gluggar. Suðuríbúð. Verð 6,8 millj.
NÝBÝLAVEGUR + BÍLSKÚR
Mjög góö 3ja herb. íbúð um 90 fm á efri
hæð í fjórbýli. Ibúðin er öll mikið endurnýj-
uð. Sérþvottahús. gott útsýni. Nýleg sam-
eign. Góður bílskúr. Malbikað bílastæði.
Verð 8,5 millj.
SELVOGSGRUNN 3ja herbergja
íbúð á jarðhæð með sérinngangi 78,2 fm.
Ibúðin er stofa/borðstofa, tvö herbergi,
forstofa og gangur.
2 HERBERGJA
HRAUNBÆR Góð 2ja herbergja
íbúð á 1. hæð 57 fm. íbúðin snýr öll í suð-
ur með góðum suðursvölum. Áhv. 2.9
millj. Byggsj.rík. og húsbr. Verð 5.3 millj.
LINDARGATA Vorum að fá í sölu
58 fm íbúð í kjallara í þribýlishúsi. Parket á
stofu, flísar i forstofu og eldhúsi. Endur-
nýjað baðherbergi. Áhvilandi 2,5 millj.
Verð 4,4 millj.
FLYÐRUGRANDI Gullfalleg 2-3ja
herbergja íbúð 65,1 fm með sérverönd.
Parket á gólfum. Góðar innréttingar. Verð
6.5 millj.
MIÐBÆR íbúð á 2. hæð og risi i bak-
húsi við Laugaveg. Stofa, eldhúskrókur
og baðherbergi á hæðinni, ( risi svefnloft
með nýju parketi og nýjum panil í lofti.
Nýtt járn og einangrun á þaki.
Mikil umframeftirspurn einkennir nú
fasteignamarkaðinn og nýjar íbúðir
seljast ekki ósjaldan á teikniborðinu.
Magnús Sigurðsson fjallar hér um
nýbyggingamarkaðinn í viðtölum við
nokkra kunna fasteignasala.
MIKIÐ líf hefur verið í nýbygg-
ingum í sumar, enda eftir-
spurn mikil eftir nýjum íbúðum,
ekki hvað sízt í Lindahverfi í Kópa-
vogi. Þar og raunar víðar hafa nýj-
ar íbúðir gjarnan selzt á teikni-
borðinu, eins og sagt er á fagmáli.
Þetta svæði er með góðu útsjmi og
snýr yfirleitt vel við sólu.
I Smárahvammi fyrir vestan
Reykjanesbraut er að rísa mjög öfl-
ugur verzlunarkjarni, þannig að
stutt verður í verzlun og þjónustu.
En uppbyggingin í Kópavogi er
ekki bara bundin við Lindahverfið.
Á grónari stöðum eins og við
Gnípuheiði eru í smíðum íbúðh- á
miklum útýnisstað, sem vel hefur
gengið að selja.
Staðahverfi fyrir neðan
Korpúlfsstaði er líka mikið framtíð-
arsvæði. Þar hefur átt sér stað
mjög ör uppbygging í sumar og
íbúðir í þessu nýjasta hverfi
Reykjavíkur eru farnar að koma á
markað og seljast mjög vel. Staða-
hverfi er með mjög fallegu útsýni
út á sjóinn og til fjalla, en sömu
sögu má raunar einnig segja um
bæði Borgahverfi og Víkurhverfi.
Meiri eftirspurn er nú eftir ein-
býlishúsum en áður. Það má vænt-
anlega þakka batnandi efnahag og
meirþ bjartsýni í þjóðfélaginu en
var. Áhuginn er þó mestur á litlum
eða meðalstórum einbýlishúsum,
gjarnan á verðbilinu 14-17 millj. kr.
Góð staðsetning skiptir að
sjálfsögðu miklu máli. Þar má
nefna ný einbýlishús á svonefndum
Einarsreit í Hafnarfírði, sem er
mjög miðsvæðis í gamla bænum í
Firðinum.
Raðhús við Haukalind
Hvergi er meira byggt en í Kópa-
vogi. Við Haukalind 7-15 er fast-
eignasalan Hóll í Reykjavík með í
sölu raðhús, sem eru um 144 ferm.
á tveimur hæðum og með bílskúr-
um, sem eru um 30 ferm. að stærð.
„Þetta eru afar skemmtileg
raðhús. Þau eru hönnuð af Kristni
Ragnarssyni arkitekt og standa á
miklum útsýnisstað í Lindunum,"
sagði Ágúst Benediktsson hjá Hóli.
„Haukalind er fyrir miðju í Lindun-
um og stendur tiltölulega hátt og
þaðan er afar gott útsýni til vesturs
eftir Kópavogsdal og alveg út á
sjó.“
„Húsin skilast fullbúin að utan og
fokheld að innan og kosta þannig
9,2 millj. kr. nema endahúsin, en
þau kosta 9,7 millj. kr. Það er
einnig hægt að fá þau lengra komin
á fokheldisstiginu og loks er hægt
að fá húsin fullbúin að utan sem
innan en án gólfefna. og með
grófjafnaðri lóð. Þá kosta miðju-
húsin 14,2 millj. kr. en endahúsin
14,5 millj. kr.
„Það er mikið lagt í þessi raðhús,
en byggingaraðili er Borgarsmíði,"
sagði Ágúst ennfremur. „Múrað
verður með gipsi og innveggir úr
gipsplötum og hitalögn verður með
rör í rör kerfi, sem er ein aðal nýj-
ungin í lögnum innanhús nú og
þykir mikil framför.“
Að sögn Ágústs er geysilegt líf í
markaðnum nú og eftirspurn mikil.
en þær eru allar með sérinngangi.
íbúðh-nar eru seldar tilbúnar undh-
tréverk að innan en fullfrágengnar
að utan. Áætlaður afhendingartími
vegna íbúða í Gnípuheiði 7 er fyrir
lok þessa árs en vegna Gnípuheiði 5
fyrir lok marz 1999.
Möguleiki er á kaupum á
nokkrum ca 23-24,5 ferm. bílskúr-
um, sem eru sameiginlegir með
fjölbýlishúsunum við Gnípuheiði 1,
3, 5 og 7. Bflskúrarnir eru afhentir
sérstaklega og er þeim skilað full-
frágengnum að utan með ísettri
hurð en fokheldum að innan.
Áætlað verð er 1.250.000 kr. á
bílskúr, en möguleiki er á að semja
um frekari frágang.
„Byggingaraðili er Birgir R.
Gunnarsson, en hann hefur yfir 25
ára reynslu í byggingum ibúðar-
húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu,"
sagði Ingileifur Einarsson hjá Ás-
byrgi. „Útsýni frá þessum stað er
mjög gott bæði til Bláfjalla, yfir
Reykjanes og út á flóann. Þetta eru
hvað síðustu nýju íbúðirnar á þessu
svæði, en það hefur gengið mjög vel
að selja þar.“
Ingileifur kvað eftirspurn nú
vera rneiri en framboðið og verð á
íbúðarhúsnæði færi hækkandi af
þeim sökum. „Verði áframhald á
þessu ástandi, hlýtur verð að halda
áfram að hækka,“ sagði hann. „Það
er ekki bara mikil eftirspurn eftir
nýjum íbúðum, heldur er eftir-
spurnin einnig mjög mikil eftir not-
uðumn íbúðum en þó einkum á
ákveðnum svæðum.
Mest er ásóknin í gróin hverfi í
Vestur- og Austurbæ Reykjavíkur,
en eftirspurn eftir íbúðum í út-
hverfunum fer einnig vaxandi. Fólk
virðist hafa peninga milli handanna,
enda hefur verið betra atvinnu- og
efnahagsástand sl. tvö ár en áður.
Það er að skila sér núna.“
Sérbýlisíbúðir
í Víkurhverfi
Uppbygging Víkurhverfis er
mjög vel á veg komin, en hún hófst
fyrir um fimm árum, er níu reynd
verktakafyrirtæki og bygging-
AUSTLÆG HLID
VIÐ Gautavík 33-35 í Víkurhverfi er fasteignasalan Gimli að heíja sölu á 3ja til 4ra herb. íbúðum í átta
íbúða Qölbýli. I húsinu eru fjórar 3ja herb. íbúðir, sem eru 87 ferm. að stærð og fjórar 4ra herb. íbúðir, sem
eru 100,5 ferm. að stærð.