Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 C 17
Morgunblaðið/Golli
TVÖ hús við Kjóahraun eru þegar seld og flutt inn í annað þeirra.
Gert er ráð fyrir, að sex hús til viðbótar verði tilbúin fyrir áramót og
þau sem eftir eru snemma á næsta ári. Hægt er að fá húsin afhent á
mismunandi byggingarstigum, en þau eru til sölu hjá H-gæði.
HUSIN eiga að falla inn í gömlu byggðina í Hafnarfírði, svo að úr
verði ein hefld. Neðri hæðin er um 90 ferm., risið um 60 ferm. auk
bflskúrs, sem er um 30 ferm. Samkvæmt skipulagi verður forðast að
hreyfa við hraunlandslaginu á þessu svæði. »
araðilar tóku sig saman og stofnuðu
sérstakt félag um uppbyggingu
þessa hverfis.
Aðkoma að Víkurhverfi er eftir
Víkurvegi, sem liggur frá Vestur-
landsbraut til sjávar, en hverfið
liggur niður með sjónum með góðu
útsýni í átt til Esju og upp í Mos-
fellssveit. Hverfið er í góðum
tengslum við fjöruna fyrir norðan,
en þar er afar skemmtilegt fjöru-
svæði.
Við Gautavík 33-35 er fasteigna-
salan Gimli að hefja sölu á 3ja til
4ra herb. íbúðum í átta íbúða fjöl-
býli. í húsinu eru fjórar 3ja herb.
íbúðir, sem eru 87 ferm. að stærð
og fjórar 4ra herb. íbúðir, sem eru
100,5 ferm. að stærð.
Risloft fylgir íbúðum efri hæða
til viðbótar, en bflskúrai- fylgja
tveimur íbúðum og er annai' þeirra
27 fei-m. og hinn 31 ferm. Þeir eru
seldir sér. Allar íbúðirnar eru með
sérinngangi. Ibúðirnar á efri hæð
eru með vestursvölum og góðu
útsýni og tvær íbúðir neðri hæðar
eru með sérgarði og ein endaíbúð
með svölum á neðri hæð.
Verð á íbúðunum er á bilinu 8,3
til 9,5 mfllj. kr. eftir stærð, en þær
afhendast fullbúnar en án gólfefna.
Þvottahús verður í íbúðunum og
innréttingar að eigin vali hjá
ákveðnu innréttingafyrirtæki. Að
utan er húsinu skilað fullbúnu og
það kvarsað.
Ibúðirnar verða afhentar næsta
vor og sumar. „Byggingaraðili er
Húsafl, sem er mjög traust fyrir-
tæki með mikla reynslu í nýbygg-
ingum,“ sagði Ólafur B. Blöndal hjá
Gimli. „Við hjá Gimli höfum selt
mikið fyiir þetta fyiirtæki í gegn-
um tíðina, bæði sérbýli og fjölbýli
og allar tímasetningar þess hafa
staðizt fullkomlega."
„Sameignin í þessum húsum
verður lítil, sem gerir íbúðirnar
ódýrari,“ sagði Ólafur B. Blöndal
ennfremui'. „Ávinningurinn af
stórri sameign er oft ekld í réttu
hlutfalli við það, sem hún kostar.
Stór sameign nýtist gjarnan illa, en
verður til þess að gera íbúðirnar
miklu dýi'ari. Þá má ekki gleyma
því, að kostnaðurinn við að reka
stóra sameign er mikill."
„Það hefur þegar komið fram
mikill áhugi á þessum íbúðum úti á
markaðnum," sagði Ólafur B. Blön-
dal að lokum. „Þetta er mjög góður
sölustaður og mestallt er þegar selt
í hverfinu í kring. Markaðurinn í
heild er „sjóðandi heitur“ eins og
við köllum það fasteignasalarnir og
ég man varla eftir öðru eins. Ég
held, að á því verði ekkert lát, því
að húsbréfin eru affallalaus að
kalla, sem er mjög hagstætt fyrir
markaðinn."
Ný timburhús í Hafnarfírði
Ásókn í timburhús er alltaf tölu-
verð. Margir telja, að þau andi bet-
ur en steinhús eins og sagt er á fag-
máli og af þeim sökum sé í þeim
betra loft. Mörgum finnst líka mik-
ið til um þann hlýleika, sem gjarn-
an einkennir timburhús.
Hjá fasteignasölunni H-Gæði eru
nú til sölu ný einbýlishús á svo-
nefndum Einarsreit í Hafnarfirði,
sem er mjög miðsvæðis í gamla
bænum í Firðinum. Að sögn
Hafþórs Kristjánssonar hjá H-
Gæði eru þetta timburhús, sem eru
hæð og ris á steyptum grunni og
um 190 ferm. að stærð með bflskúr.
Byggingaraðili er Grafis ehf., en
húsin eru úr timbri, sem flutt er
hingað frá Noregi.
Neðri hæðin er um 90 ferm., risið
um 60 ferm. auk bflskúrs, sem er
um 30 ferm. Hægt er að fá húsin af-
hent á mismunandi byggingarstig-
um. Fullbúin kosta þau 16.650.000
kr., en það er líka hægt að fá þau
skemmra komin og þá er verð
þeirra frá 10,9 millj. kr.
Húsin skiptast þannig, að á aðal-
hæð er mjög góð stofa, eldhús og
aðal svefnherbergi með baði auk
forstofu, hols og þvottahúss, en
uppi eru þrjú svefnherbergi með
baði. Húsin eru því hentug fyrir
venjulega fjölskyldu, þar sem eru
tvö til þrjú börn. Hægt er að breyta
herbergjaskipan uppi.
Húsin eru hönnuð af Friðrik
Friðrikssyni, arkitekt í Hafnarfirði.
Yfirbragð þeirra minnir á gamla
aldamótastflinn á timburhúsum.
Aldamótapanell gefur þeim sér-
stakt yfirbragð með tilheyrandi
skreytingum, en húsin verða með
útskurði á veggjum, Húsin eru líka
máluð í fallegum litum.
Svæðið er frábrugðið öðmm ný-
byggingarsvæðum, þar sem öll
þjónusta er þegar fyrir hendi í
nágrenninu og ekki þarf að bíða
eftir því að skólar og íþróttamann-
virki verði reist eins og oftast er í
nýjum hverfum. Ekki er nema 200-
300 metra göngufjarlægð í alla al-
menna verzlun og þjónustu í miðbæ
Hafnarfjarðar. Skólar og íþrótta-
hús eru í svipaðri fjarlægð og
íþróttasvæðið í Kaplakrika er líka í
aðeins um 600 metra fjarlægð.
Staðurinn liggur þar að auki mjög
vel við samgöngum.
„Samkvæmt skipulagi verður
forðast að hreyfa við hraunlands-
laginu á þessu svæði en einkenni
þess látin halda sér,“ sagði Hafþór
Kristjánsson. „Þessi hús eiga að
falla inn í gömlu byggðina í Hafn-
arfirði, svo að úr verði ein heild.“
Hafþór bætti því við, að þegar
væru seld tvö hús við Kjóahraun og
flutt inn í annað þeÚTa. Gert er ráð
fyrir, að sex hús til viðbótar verði
tilbúin fvrir áramót og þau sem eft-
ir eru snemma á næsta ári, en alls
verða reist 14 hús af þessum bygg-
ingaraðila.
„Það er greinilega mikill áhugi til
staðar úti á markaðnum á þessum
húsum,“ sagði Hafþór ennfremur.
„Mestur er áhuginn á meðal fólks,
sem þekkir til í Firðinum, en hann
er þó alls ekki eingöngu bundin við
það. Möguleiki er á lánafyrir-
greiðslu fyrir allt að 70% af kaup-
verði húsanna eða meiru, sem við
aðstoðum fólk með í gegnum lána-
stofnanir.“
„Það er stanzlaus umferð um
helgar um byggingarsvæðið af
fólki, sem vill kynna sér þessi hús,“
sagði Hafþór Kristjánsson að lok-
um. „Þetta er svæði, sem er að
mörgu leyti einstakt í sinni röð. Það
liggur norður af gamla bænum og
einkennist af hraunlendi með böl-
um og bollum, sem eru svo áber-
andi í Hafnarfii'ði."
Morgunblaðið/Halldór
VIÐ Gnípuheiði 5-7 í Kópavogi eru fasteignasalan Ásbyrgi með til
sölu 6 íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum, þrjár íbúðir í hvoru húsi. Þessi
mynd er af byggingaraðilanum, Birgi R. Gunnarssyni og Ingileifi
Einarssyni, fasteignasala í Ásbyrgi með húsin í baksýn.
Hlutabréf í
Canary Wharf
sett í sölu
London. Reuters.
KANADÍSKI fasteignajöfur-
inn Paul Reichmann hyggst
koma hlutabréfum í Canary
Wharf-húsaþyrpingunni í
London í sölu fyrir allt að 1,4
milljarða punda að því er fram
kemur í blaðinu Sunday Tel-
egraph.
Alþjóðleg samtök fjárfesta
undir stjórn Reichmanns
keyptu Canary Wharf 1995
fyrir 800 milljónir punda.
Helsti ráðgjafi þeirra verður
bandaríski fjárfestingar-
bankinn Morgan Stanley
Dean Witter, að sögn blaðs-
ins.
Nokkrir bankar og verð-
bréfafyrirtæki hafa bundist
samtökum til að starfa með
Morgan Stanley og er talið að
þar á meðal séu Crédit Suisse
First Boston og Cazenove &
Co.
I Sunday Telegraph segir
að Reichmann voni að með
sölu hlutabréfanna megi
takast að afla fjár til að ljúka
við framkvæmdirnar í Canary
Wharf.
Skiptameðferð
Framkvæmdimar þai’
hófust 1987 á vegum Olympia
& York, sem var í eigu Reich-
mann-fjölskyldunnar. í maí
1992, á samdráttarárunum í
byrjun þessa áratugar, var
Olympia & York Canary
Wharf Ltd tekið til skiptameð-
ferðar, en í október 1993
björguðu fyrirtækinu samtök
banka sem höfðu fjármagnað
áætlunina.
Árið 1995 seldu þessh- bank-
ar hlut sinn fyrirtækjasamtök-
um undir stjórn Reichmanns
með samningi að verðmæti
800 milljónir punda. I samtök-
unum var saudi-arabíski
auðjöfurinn al-Waleed bin
Talal prins.
MEÐ SÖLU hlutabréfa í Canary Wharf er
vonazt til, að takast megi að afla fjár til að
ljúka við þessar miklu byggingafram-
kvæmdir.
EIGNABORG * 5641500
FASTEIGNASALA if
Hamraborg 12, Kópavogi, simi 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
2JA HERBERGJA IBÚÐIR
Skúlagata. 52 tm & 3. hæð, suð-
ursvalir, laus strax. V. 4,3 m. (640)
Kleppsvegur. 52 fm á 2. hæð, ný-
legt gler, vestursvalir, laus strax. V. 4,5
m. (639)
Engihjalli. 62 fm á 5. hæð, vest-
ursvalir, laus strax. (340)
Þverbrekka. 45 fm á 6. hæð, iaus
strax. (638).
Ásbraut. 82 fm góð (búð á 4. hæð
með sér inngangi af svölum, nýlegt bað,
áhv. 1,9 m. í Byggsj. (617)
Engihjalli. 78 fm á 6. hæð, mikið
endum. Skipti á 2ja herb. í Engihjalla
möguleg. Laus samkv. samkomulagi. V.
6,4 m. (469).
Engihjalli. 90 fm falleg íbúð á 3. hæð,
parket á stofu, stórar svalir. Laus samkv.
samkomulagi. Áhv. 3,4 m. [ húsbr. V. 6,4
m. (618).
3JA HERBERGJA ÍBÚÐIR H.4RA OG 5 HERBERGJA IBUÐIR.
Kríuhólar. 79 fm á 4. hæð í lyftuhúsi,
góðar innréttingar, vestursvalir. Laus
strax, lyklar á skrifst. V. 5,5 m. (623)
Kjarrhólmi. 75 fm mjög góð íbúð á
l. hæð, bað nýlega endurnýjað, parket á
herb., suðursvalir, þvottahús f ibúð. V, 6,5
m. (641)
Vallarás. 83 fm á 4. hæð í lyftuhúsi,
góðar innréttingar, flísar á baði, vest-
ursvalir. Laus fljótlega. (621)
æði. (1532).
Hraunbraut. 70 fm neðri hæð i
tvíbýli, mikið endurnýjuð. V. 6,9 m. (636).
Vallartröð. Vinaleg 3ja herb. risíbúð,
parket, laus fljótlega. V. 5,350 m. (591)
Ljósheimar. 96 fm á 7. hæð, laus
fljótlega. (633).
Hamraborg. 95 fm á 3. hæö, 3
svefnherbergi, mjög góöar innréttingar,
vestursvalir. (627)
SERHÆÐIR
Fitjasmári. 134 fm neðri hæð, ásamt
28 fm bílskúr. V. 12,5 m. (625)
Holtagerði. 103 fm efri hæð, nýleg
innrétting í eldhúsi, nýlegir gluggar og
gler, bílskúr. Skipt á minni íbúð t.d. 3ja
herb. í Hamraborg. (619)
Hlíðarvegur. Þrjár sérhæðir í húsi
sem er i byggingu. ( húsinu er þrjár íbúðir
hver um 131 fm. Bílskúrar fylgja íbúðum
á 2. og 3. hæð. Húsið verður afhent til-
búið að utan án málningar, en „fokhelt"
að innan. Teikningar og allar nánari upp-
lýsingar á skrifstofu.
EINBYLISHUS
Birkigrund- einbýli. 234 fm á
tveimur hæðum, á efri hæð eru 3 rúmgóð
svefnherbergi, stofa, eldhús og baðher-
bergi. Á neðri hæð eru tvö rúmgóð her-
bergi og stofa og bilskúr um 29 fm. Hægt
er að hafa 2ja herbergja íbúð á neðri hæð.
Eign i mög góðu ástandi, fallegur garður.
V. 18,8 m. (626)
Klapparberg. 205,6 fm einbýiishús,
ásamt 30 fm bílskúr. Á neðri hæð er m.a.
stofa, 2 svefnherbergi, gesta wc, eldhús,
búr og þvottahús.
Efri hæð: 2 svefnherbergi (möguleiki á
þriðja herberginu), baðherbergi og sjón-
varpshol. Húsið stendur i neðstu húsaröð
við Elliðaár, frábært útsýni í austur og
suður. (231)
ATVINNUHUSHÆÐI
Hlíðasmári. Til sölu eða leigu Hlíða-
smári 12, Miðjan. Um 358 fm skrifstofu-
húsn. tilbúið til innréttingar í nýju lyftuhúsi,
öll sameign fullfrágengin. (1031)
Norðurland. Vélsmiöja í fullu rekstri í
360 fm eigin húsnæði. öll tæki fylgja,
næg atvinna, lagtímalán geta fylgt með.
Mikil vinna framundan. Einnig er hægt að
fá keypt einbýlishús. Tiboð óskast.