Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.12.1998, Blaðsíða 4
4 C FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI Eimskipafélagið er ósátt við málalyktir í útboði bandaríska hersins vegna varnarliðsflutninganna Brotá milliríkja- samningi? s Forsvarsmenn Eimskipafélags Islands hafa kært samning bandaríska hersins við syst- urfélögin Transatlantic Lines Iceland - Atl- antsskip og Transatlantic Lines Inc. fyrir alríkisdómstólnum í Washington. Meginrök ákærunnar byggjast á því að hann brjóti gegn ákvæðum milliríkjasamnings þjóð- anna frá 1986. Elmar Gíslason kynnti sér ákæruatriðin og ólík sjónarmið í málinu. Morgunblaðið/Ásdís EIMSKIPAFELAG Islands telur samning flutningadeildar bandaríska hersins við skipafélagið Transatlantic Lines Iceland brjóta gegn milliríkjasamningi þjóðanna frá 1986. DEILUR um fyrirkomulag flutninga íyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli eru ekki nýjar af nálinni. Eftir að Eimskipafélagið og Hafskip höfðu séð alfarið um verkefnið frá 1970 til ársins 1984, gerðist það að banda- ríska skipafélagið Rainbow Na- vigation krafðist þess að flutningam- ir yrðu eingöngu boðnir út í Banda- ríkjunum. Beiðni félagsins grund- vallaðist á bandarískum lögum írá 1904 sem kveða á um að þarlend yf- irvöld hafi greiðan aðgang að banda- rískum skipum til flutninga á haettu- tímum. A móti kröfðust skipafélög í landinu að fá forgang að öllum flutn- ingum fyrír herinn sem var sam- þykkt. Með vísan til þessara laga gerði Rainbow Navigation tilboð í flutninga hersins til Islands og ann- aðist þá alfarið fram til ársins 1987. íslensk stjómvöld töldu slík for- réttindi bandarískra skipafélaga óréttmæt. Gerð var krafa um jafnan aðgang íslenskra flutningafyrir- tækja að verkefninu á hverjum tíma á sömu forsendum þ.e. að hér á landi væri jafn mikil þörf fyrir ís- lensk skipafélög sem nýst geti á hættutímum. Niðurstaðan varð of- angreindur milliríkjasamningur sem veitti íslenskum skipafélögum kost á að taka virkan þátt í flutning- um fyrir varnarliðið. Frá árinu 1987 hafa flutningamir síðan verið boðnir út reglulega af flutningadeild hersins og var síð- asta útboðið auglýst í janúar á þessu ári. Lægstu tilboðin áttu Trans Atlantic Lines LLC í Banda- ríkjunum og Atlantsskip, sem skráð er í Garðabæ. Forsvarsmenn Eim- skipafélagsins telja að með samn- ingnum hafí flutningadeild hersins sniðgengið meginákvæði milliríkja- samningsins frá 1986 og hefur fé- lagið kært herinn fyrir undirrétti í Bandaríkjunum. Hafa ekki burði til að tryggja flut.ninga á hættutímum Að sögn Þórðar Sverrissonar, framkvæmdastjóra flutningasviðs hjá Eimskipi, byggist kæra félags- ins á hendur bandaríska hernum að- allega á tvennu: „Við gerð milliríkja- samningsins á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda árið 1986 var það grundvallarmarkmið haft að leiðarljósi að bæði íslensk og banda- rísk skipafélög gætu tekið þátt í flutningum fyrir varnarliðið. Samn- ingurinn byggist á því að vegna ör- yggishagsmuna íslands er nauðsyn- legt að þjóðin eigi skipafélag sem tryggt geti samgöngur til lengri tíma í siglingum á milli íslands og Bandaríkjanna. Slíkt skipafélag þarf einnig að hafa sfyrka fjárhagsstöðu til að geta veitt Islandi það öryggi í flutningaþjónustu sem landinu er nauðsynlegt á hættutímum.“ Að sögn Þórðar uppfyllir Atlants- skip ekki þessi skilyrði að þeirra mati m.a. vegna þess að 75% fyrir- tækisins eru í eigu bandarískra að- ila. Þar af leiðandi geti Atlantsskip 11-11 kaupir Omron- verslunar- kerfi NÝHERJI hf. og Kaupás hf., sem rekur 11-11 verslanirnar, hafa gert með sér samstarfssamning um kaup á Omron-verslunarkerf- um og tilheyrandi búnaði fyrir allar 11-11 búðirnar. A meðfylgj- andi mynd sjást Lúðvík Andreas- son, söíustjóri Omron-kerfa hjá Nýherja, og Sigurður Teitsson, framkvæmdastjóri Kaupáss, handsala samninginn en hægra megin við þá stendur Jón K. Jensson, þjónustustjóri PC-deild- ar Nýherja. Jafnframt gekk Kaupás frá þjónustusamningi við Nýherja um eftirlit og þjónustu á öllum tækj- um 11-11 verslananna og þeim ekki talist íslenskt fyrirtæki sam- kvæmt milliríkjasamningnum auk þess sem það hefur hvorki reynslu né fjárhagslegan sfyrk tií að tryggja samgöngur Islendinga á hættutímum. Einungis um eitt útboð að ræða Hitt atriðið sem Þórður nefnir sem samningsbrot snýi- að því að bæði Atlantsskip og Ti'ansatlantic Lines eru að stærstum hluta í eigu sama aðila, American Automar Inc. (AAI) sem hefur aðsetur í Bathseda í Maiyland. „Samkvæmt milliríkja- samningnum og bandarískum sam- keppnislögum er sama aðilanum eða systurfyrirtækjum óheimilt að bjóða í íslenska og bandaríska hlut- ann í einu og sama útboðinu. Full- trúar hersins hafa reyndar haldið því fram að um sé að ræða tvö að- skilin útboð, en samkvæmt úrskurði sem kveðinn var upp af Alríkisdóm- stólnum í Washington í máli Rain- bow Navigation 1988, var úrskurðað að um eitt útboð væri að ræða. Sá úrskurður hefur hingað til verið virtur, þar til nú að AAI setti upp lepp á Islandi til að ná til sín öllum skipaflutningum fyrir herinn á milli íslands og Bandaríkjanna". Þórður leggur áherslu á að með málaferlunum sé Eimskipafélagið á engan hátt að reyna að koma í veg fyrir aukna samkeppni, heldur sé hér um að ræða skýrt samningsbrot að þeirra mati sem ekki er hægt að láta viðgangast. Hann segir að með aðgerðum sínum hafi bandaríska fé- lagið brotið gegn ákvæðum milli- ríkjasamningsins og við því þurfi að tölvum og tækjum á skrifstofu Kaupáss, sem tengjast Omron. Omron-verslunarkerfin notast við Ebenezer söluhugbúnað, sem tengist bókhaldskerfi skrifstofu bregðast. „Eins og eðlilegt þykir við upphaf slíkra málaferla þar vestra, fórum við fram á það við dómstólinn í Washington að lögbann yrði sett á flutningasamninginn. Samkvæmt bandarískum lögum þarf' mjög ríka ástæðu til fá sett lögbann og er í raun einungis tekið til greina ef hægt er að sýna fram á óbætanlegt fjárhagslegt tjón fjTÍr lögbanns- beiðanda vegna málsins. Þeim beiðni var synjað og í framhaldinu lögðum við málið formlega í hendur réttarins í Washington sem mun dæma í málinu á næstu mánuðum.“ Snýst um að drepa niður samkeppni Guðmundur Kjærnested vildi í samtali við Morgunblaðið ekki tjá sig um hvernig eignarhaldi Atlants- skipa væri nákvæmlega háttað, enda málinu óviðkomandi að hans sögn. „Hvort skipafélagið sé að hluta eða öllu leyti í eigu erlendra aðila skiptir ekki máli svo fremi sem það uppfylli lög um skráningu og rekstur fyi-irtækja á íslandi. Þannig er ekkert sem mælir gegn því laga- lega að útlendingar stofni og starf- ræki fyrirtæki á Islandi. Þetta hafa m.a. forsvarsmenn Eimskips undir- strikað með ríkri áherslu á að bæði íslenskum og erlendum skipafélög- um sé frjálst að stunda siglingar til Islands og frá. Ég fæ því ekki séð annað en að aðgerðir Eimskipafé- lagsins í málinu snúist miklu fremur um að drepa niður nýjan samkeppn- isaðila á siglingaleiðinni heldur en brot á milliríkjasamningi." Guðmundur bendir einnig á vax- Kaupáss. Allar verslanir 11-11 eru tengdar aðalskrifstofunni með ISDN simahnu og getur hún því verið í sainbandi við búðirnar hvenær sem er sólarhringsins. andi áherslu á að laða að erlenda fjárfesta til landsins ætli íslending- ar að fylgja eftir þeirri þróun sem er að eiga sér stað á erlendum fjár- málamörkuðum. „Þetta má m.a. sjá hjá Samskipum sem eru að hluta til í eigu erlendra aðila. Þeir hafa margsinnis boðið í umrædda varn- arliðsflutninga án þess að Eim- skipafélagið hafi séð ástæðu til að hafa af því afskipti. Á sama hátt hlýtur það að vera málinu óviðkom- andi hver á meirihluta í Atlants- skipum, ef félagið er skráð á fslandi og stjórn og starfsemi þess lýtur ís- lenskum lögum.“ Ágreiningur yfírvalda Þórður Ægir Oskarsson, skrif- stofustjóri á Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, staðfesti í gær að ákveðinn túlkunarági'eining- ur ætti sér stað á milli yfirvalda hér á landi og í Bandaríkjunum varð- andi tiltekin atriði í samningnum sem sneru að samkeppnisþættinum. „Við komum sjónarmiðum okkar á framfæri við þarlend stjórnvöld í september sl. og höfum átt í skoð- unarskiptum við bandaríska utan- ríkisráðuneytið síðan.“ Þórður Æg- ir segir enga niðurstöðu liggja fyrir að svo stöddu en að málinu verði hraðað eins og frekast sé unnt. Hann leggur áherslu á að þær við- ræður sem átt hafa sér stað á milli stjórnvalda ríkjanna, séu á engan hátt tengdar málaferlum Eimskipa- félagsins, sem fyrirtækið rekur sem einkamál fyrir bandarískum dóm- stólum, án nokkurra tengsla við ágreining yfirvalda. Ný samstarfs- fyrirtæki Vildarkjara SÍFELLT fjölgar fyrirtækjum sem Vildai-kjör ehf. gera samninga við. Með samningum við þrjú ný fyrirtæki, Árvík, Höld og Ólaf Gíslason - Eld- varnarmiðstöðina, eru samstarfsfyr- irtækin nú orðin um tuttugu talsins. Vildarkjör hafa nú starfað í tæp tvö ár. Tilgangur fyrirtækisins er að veita viðskiptavinum sínum (áskrif- endum) aðgang að góðum vörum og þjónustu á hagkvæmara verði en al- mennt gerist á mai'kaðnum. Er það gert með samningum við valin fyrir- tæki sem til fyrirmyndar eru talin á sínu sviði varðandi gæði vöru og þjón- ustu, segir í fréttatilkynningu frá Viklarkjörum. Áskrift veitir aðgang að samning- um Vildarkjara um vörur og þjónustu á sérkjörum. Afslættir eru mismiklir eftir vörutegundum og geta numið allt að þriðjungi af smásöluverði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.