Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 8

Morgunblaðið - 03.12.1998, Síða 8
8 C FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Nýjar hugmyndir um breytt form á dreifíngu og sölu víns hér á landi gætu sætt sjónarmið andstæðra fylkinga í áfengismálum Sjálfstæðar sölu- einingarí verslunum? Enginn vafí leikur á um að mjög skiptar skoðanir eru á lofti hvað varðar afstöðu manna til áfengismála hér á landi. Undanfarin ár hafa Kaupmanna- samtökin barist fyrir því að sala á léttvíni og bjór verði gefin frjáls á Islandi en hafa mætt harðri andstöðu bindindismanna. Elmar Gíslason ræddi við forsvarsmenn fylkinganna og fræddist um hugsan- lega málamiðlun. AFENGIS- og tóbaks- verslun ríkisins, ÁTVR, starfrækir í dag 26 út- söluverslanir á landsvísu. Þar af eru átta á höfuðborgarsvæð- inu. Á Vesturlandi eru fjórar versl- anir, í Borgamesi, Ólafsvík; Stykk- ishólmi og á Akranesi. Ibúar á Vestfjörðum gátu þar til í fyrra eingöngu keypt sér áfengi á ísa- fírði en nú hefur Patreksfjörður bæst í hópinn. Auk verslunar á Akureyri eru fjórar búðir á Norð- urlandi, nánar tiltekið á Húsavík, Siglufirði, Sauðárkróki —--------- og Blönduósi. Þá rekur ríkisfyrirtækið þrjú úti- bú á Austurlandi. Eitt er staðsett á Egilsstöðum, annað á Seyðisfírði og ___________ hið þriðja í Neskaupstað. Tvö útibú þjónusta íbúa á Suður- landi. Annað er á Höfn í Hornafirði en hitt er á Selfossi, sem er í um 400 kflómetra fjarlægð. Þá er ein verslun í Vestmannaeyjum og önn- ur í Keflavík. Á síðasta ári opnaði ÁTVR tvær verslanir, á Patreksfirði og í Kópa- vogi. Utsölustöðum verður ekki „ Morgunblaðið/Kristinn MUNU Islendingar geta nálgast léttvín og bjór hjá kaupmönnum í framtíðinni? Afram strang- ar reglur varð- andi dreifingu og sölu fjölgað á þessu ári en samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu, þá er stefnt að því að opna verslun í Mosfellsbæ á næsta ári, auk tveggja útibúa á landsbyggðinni en staðsetning þeirra fékkst ekki upp- gefin. Augljós mismunun Af þessari upptalningu er ljóst að íbúum landsins er stórlega mis- munað hvað varðar aðgang að áfengisverslunum þeim sem hið opinbera hefur einokun á að reka. Þetta hafa margir gagn- rýnt og krefjast þess að sala á bjór og léttari vín- um verði gefin frjáls. Kaupmannasamtök ís- lands eru meðal þeirra sem hafa gengið hvað harðast fram í málinu og krefjast þess að sala á umræddum vörum færist í hendur verslunarinnar. Á morgunverðarfundi sem sam- tökin stóðu fyrir á dögunum viðr- uðu nokkrir fulltrúar andstæðra fylkinga skoðanir smar á málinu. Þeirra á meðal var Óskar Magnús- son, stjórnarformaður Baugs hf., sem kynnti niðurstöour úr nýlegri skoðanakönnun sem nemendur í viðskipta- og hagfræðideild við Háskóla íslands unnu fyrir fyrir- tækið um afstöðu fólks á höfuð- borgarsvæðinu til málefnisins. Niðurstöðurnar sýna ótvíræðan stuðning manna við afnám einka- réttar ríkisins. 61% þeirra sem svöruðu vildu færa viðskiptin í hendur kaupmanna en einungis 27% voru því andvíg og 12% óá- kveðin. Þá tóku rúmlega 90% fólks undir 27 ára aldri afstöðu með frjálsri sölu samanborið við 52% fylgni meðal fólks yfír 46 ára aldri. Fleiri fylgismenn á landsbyggðinni Benedikt Kristjánsson, formað- ur Kaupmannasamtakanna, telur að leiða megi líkur að því að mál- efnið eigi sér enn fleiri fylgismenn á landsbyggðinni en í höfuðborg- inni ef litið er til þess að íbúar í Reykjavík hafa mun betri aðgang að vörunni en þeir sem búa úti á landi og þurfa margir hverjir að fara um langan veg til að sækja þjónustuna. „Núverandi ástand er augljóslega til að mismuna kaup- mönnum. Það hefur sýnt sig að fólk vill geta gert öll sín innkaup á sama stað og þar með talin áfengis- kaup. Þeir kaupmenn sem reka verslanh' í nábýli við áfengisútsölur njóta þ.a.l. ákveðinna fori’éttinda af þeim sökum. Ágætt dæmi um þetta má finna á Vestfjörðum. Þar sækir fólk sífellt í auknum mæli til ísa- fjarðar til að gera öll sín innkaup. Það er m.a. af þeirri ástæðu sem verið er að loka verslunum bæði á Suðureyri og Flateyri um þessar mundir“. Benedikt telur víst að ef svo heldur fram sem horfir, þá gæti þró- unin orðið sú að margir kaupstaðir verði án mat- söluverslana í framtíð- Snýst um að draga úr áfengisneyslu unglinga Sjóðvélar Einfdldar öruggar -og endingargóöc 26.900, Stgr. m/vsk B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 533 2800 irni ax Virðulegu fjárfestar Nú er tækifærið fyrir áramót! Eignaval býður nú um þessar mundir upp á afar góða fjárfestingakosti. Bæði nýjar og eldri góðar húseignir. Einnig bjóðum við endurnýjaðar eignir sem hafa fjölmarga nýtingarmöguleika. Ef þú ert eigandi stóreignar og hefur hug á að selja hana fyrir áramót, endilega hafðu samband og við bjóðum þér kostakjör. Kveðja, sölumenn atvinnuhúsnæðis Eignavals. Dilbert á Netinu vfj> mbl.is \í-l.iy\s= &rrrn\ML£> /vy'/ / mm. Á liðnu sumri var samþykkt breyting á áfengislögunum. Sem ætti að geta dregið nokkuð úr því misræmi sem ríkir í dreifingu vör- unnar. Einkaleyfið er áfram í höndum ÁTVR en samkvæmt 10. gr. núgildandi laga nægir meiri- hlutasamþykkt innan viðkomandi bæjar- eða sveitarstjórnar til að geta óskað eftir áfengisútsölu á svæðinu en áður fyrr þurfti að fara fram kosning um málið meðal íbúa. Benedikt segir breytinguna vissulega vera skref í rétta átt en bendir jafnframt á að yfirvofandi alþingiskosningar í vor geri mönn- um erfitt fyrir að sækja málið af krafti. „Við áttum nýlega fund með Geir H. Haarde fjármálaráð- herra um málið. Hann tók undir það sjónarmið okkar að bæta þurfi dreifingarmálin en sagði jafn- framt að lítill tími gæfíst til að sinna málinu fyrir næstu kosning- ar“. Ómálefnaleg umræða Óskar Magnússon segir að öll umræða um málið hafi hingað til einkennst af deilum og ómálefn- anlegum rökstuðningi tveggja andstæðra fylkinga. Hann segir mikilvægt að menn geri sér grein fyrir þessu og að reynt verði að finna einhvern milliveg sem allir geti sætt sig við. Sjálfur stingur hann upp á svokallaðri „þriðju leið“ sem ætti að geta sameinað ólík sjónarmið í málinu. Hún felst í því að setja upp sjálfstæðar sölu- einingar með áfengi inni í stór- mörkuðum. Þannig gæti ríkið komið til móts við auknar og breyttar þarfir markaðarins án þess að missa stjórn á dreifingu og sölu, því opnunartímar, verð- lagning, fjöldi útsölustaða o.s.frv. yrðu áfram í höndum hins opin- bera. Aðspurður um það hvort hug- myndin yrði ekki til þess að drepa endanlega niður samkeppni frá smærri kaupmönnum, segir Óskar að í fyrsta lagi sé lítið eftir af slík- um verslunum auk þess sem sér virðist önnur þróun ógna tilvist þeirra meira, þ.e. klukkubúðirnar svokölluðu. Óskar leggur áherslu á að tillagan miði að því að strangar reglur ríki áfram varðandi dreif- ingu og sölu áfengis. „Hvernig þeim yrði nákvæmlega háttað er algjörlega óljóst að svo stöddu og því ekki hægt að segja að einhver einn aðili standi betur að vígi en annar í þeim efnum“. Snýst um að vernda unga fólkið Þórarinn Tyifingsson, yfirlækn- ir SÁA, segir áfengisneyslu Islend- inga hafa farið vaxandi undanfarin ár. Hann segist fúslega geta fallist á frjálsa sölu áfengis og fjölgun út- sölustaða ef hægt er að sýna fram á að drykkja aukist ekki í kjölfarið. Slíkt sé hins vegar engan veginn unnt og þ.a.l. verði að spyrna við fótum gegn frekari útbreiðslu áfengisvandamála á Islandi sem í dag kosta þjóðarbúið um 7 millj- arða króna á ári. „Nú þegar drekka Islendingar yfir 15 ára aldri að meðaltali um fimm lítra af sterku áfengi á ári. Samkvæmt sölutölum ÁTVR á fyrstu níu mánuðum árs- ins má álykta að neyslan aukist um 5-10% á þessu ári. Menn geta ekki horft á þessar tölur án þess að setja þær í samhengi við áfengis- vandamál ungs fólks á Islandi sem hefur aukist. Umræðan snýst ekki um fullorðið fólk heldur um að vernda þá sem hafa ekki aldur til að neyta áfengis samkvæmt lög- um“. Þórarinn segist ekkert hafa út á tillögur Óskars Magnússonar að setja ef þær mæta þeim grundvall- armarkmiðum að hefta útbreiðslu áfengis meðal ungs fólks. „Það er ekkert skilyrði í sjálfu sér að ríkið einoki dreifingu og sölu áfengis. Málið snýst um að setja sér markmið og þau eru að draga úr áfengis- neyslu ungmenna á íslandi. Ef kaupmenn geta unnið að þessum markmiðum, með þeim hætti sem Óskar nefnir, þá tel ég ekkert at- hugavert við það í sjálfu sér að áfengissala verði í höndum versl- unarinnar", segir Þórarinn. Hugsanleg málamiðlun Sökum þess hversu stutt er til næstu alþingiskosninga er óraun- hæft að gera ráð fyrir að einhver breyting eigi sér stað á yfirstand- andi þingi. Málið hefur hingað til strandað á skilyrðislausum kröfum kaupmanna um frjálsa sölu og dreifingu á léttvíni og bjór sem áfengisvarnarmenn telja sýna fram á að versluninni sé ekki treystandi til að framfylgja þeim markmiðum sem snúa að því að halda áfengis- neyslu íslendinga í skefjum. Skoð- anakannanir sýna aftur á móti fram á vaxandi fylgi höfuðborgar- búa við frjálsa sölu léttra vína og bjórs auk þess sem sýnt er að að- gengi landsmanna að vörunni er misgott eftir búsetu þeirra. Með tillögu Óskars Magnússon- ar kann að vera komin fram hug- mynd sem gæti mætt hagsmunum andstæðra fylkinga í málinu, þ.e. kröfum fólks um bættan aðgang að vörunni yrði svarað, án þess að stríða gegn markmiðum góðtempl- ara um að draga úr áfengisneyslu unglinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.